Morgunblaðið - 13.09.1961, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.09.1961, Qupperneq 24
Veðrið Sjá kortið á bls. 23. 206. tbl. — Miðvikudagur 13. september 1961 ÍÞRQTTIR Sjá bls. 22 Geislavirkni sjðfaldaðist hér í fyrradag Samkvæmt mælingum Eftlis- fræöistofnunarinnar a. m. k. gæti verið farið að gæta hér. Síðast er sprengt var hefðu lið- ið 2—3 vikur áður en það barst hingað, en þá gætti þess í marga mánuði. Yfirleitt vildi hann sem minnstar ályktanir draga af mæl- ingunni í fyrradag, sagði að hækk unar hefði aðeins gætt á mælum f einn dag og ekki meira en svo að það gæti stafað af öðru en kjarnorkusprengingunum, t. d. samdrætti geislavirkra efna sem ætíð eru í loftinu og hefðu slík „stökk“ fundizt á mælunum áð- ur. Þessi hækkun væri enn ekki mikil miðuð við það sem var eftir kjarnorkusprengingarnar fyrir nokkrum árum, þegar geisla virkni þrítugfaldaðist. Frá því farið var að mæla geislavirkni hér 1958 og fram í júní 1959 var geislavirkni í loftinu 2—3 Pc/Ms. Síðan fór geislavirknin sílækk- andi og gætti ekkert sprenginga Frakka í Saharaeyðimörkinni. Síldarnæturnar orðnar of djúpar ef Hvalfjarðasíld kæmi segir Sturlaugur Böðvarsson MÆLINGAR á geislavirkni í loftinu hafa síðan 1958 far- ið fram á vegum Eðlisfræði- stofnunar Háskóla íslands og hefur geislavirkni farið sí minnkandi síðan og að und- anförnu verið mjög lítil, jafnvel lægri en hægt hefur verið að mæla, enda engar kjarnorkusprengjur verið sprengdar í heiminum. En í fyrradag sýndu mælamir svo skyndilega 7 sinnum meiri geislavirkni en verið hefur undanfarið ár. Hefur geislavirknin yfirleitt verið 1/100 picocurie á kubikmetra af lofti, en mælarnir sýndu í fyrradag 7/100. Þann fyrsta þessa mánaðar eða fyrir 11 dögum byrjuðu Rússar aftur að sprengja kjarnorku- sprengjur, sem kunnugt er, fyrst þrjár í Síberíu, þá eina við Stal- ingrad og loks tvær í Norður-ís- hafinu á sunnudag. Hafa blöð á Norðurlöndum mjög rætt um að þar mundi fara að gæta veru legrar geislavirkni frá sprengjun- um. Þorbjörn Sigurgeirsson, for- stöðumaður Eðlisfræðistofnunar- innar, taldi í samtali við blaðið í gær óhugsandi að geislavirkni frá síðustu tveimur sprengjunum Sæmileg veiði BERGEN, 11. september. — Veðrið er gott á síldarmiðunum við ísland og í morgun barst í skeyti frá eftirlitsskipinu Garn þar sem sagði, að veiðin væri góð, al'lt upp í 90 tunnur í lögn. Siðar í dag sagði í öðru skeyti friá Gam, að aflinn hefði rýmað, væri nú 5—50 tunnur. .— NTB. FRÉTTARITARI blaðsins á Akra neisi símaði í gær að trillubátur- inn Björgvin, hafi siglt inn í síldartorfu er hann var nýlagður af stað af miðunum úti í For í fyrradag. Hafi síldin vaðið allt í kringum bátinn með sporða- köstum og hausaslætti. Hélt bát- urinn áfram gegnum síldina í hálftíma með tveggja mílna hraða og hafði fréttaritarinn heyrt það eftir Guðjóni Frið- björnssyni, skipstjóra, að þarna hefði verið óhemju síld. ★ Að fengnum þessum fréttum hringdum við til Sturlaugs Böðvarssonar, og spurðum hvort þeir feðgar væru farnir að hugsa til að senda báta sína á síld- veiðar í Flóanum. Hann var að koma úr Reykjavík og hafði ekki heyrt um þessa síld, en sagðist vona að þetta væri rétt og þá mundu þeir fara að athuga það. Bátarnir væru nú í hreins- un og málun eftir sumarið. Aimars sagði Sturlaugur að ef síldin kæmi svona nálægt, yrði varla hægt að veiða hana vegna þess að ekki eru lengur til nógu litlar nætur. Undanfarin ár hefði síldin verið svo langt úti í hafi að næturnar hefðu verið „dýpkaðar“ æ meira. Til dæmis yrði ekki hægt að veiða Hvalfjarðarsíld með nótunum, r Olaíar Magnússon hættur síldveiðum + SÍLDARBÁTURINN Ólafur Magnússon er nú hættur veiðum og kominn til heimahafnar, Ak- ureyrar. Var afli hans orðinn 22.362 þús. mál og tunnur og bát- urinn aflahæstur síldarskipanna á vertíðinni. Eru þá allir hættir síldveiðunum fyrir Norður- og Austurlandi. sem bátarnir hefðu núna, þó hún kæmi. Áður var Hval- fjarðaríldin veidd með 20 faðma nót, en nú epu síldarnæturnar 50 faðma og ekki nothæfar til veiða í grunnum fjörðum. Annars sagði Sturlaugur að síldin væri óútreiknanleg. Áður fyrr var venjulega hægt að byrja að veiða hana hér síðast í ágúst og þá var liætt um miðjan októ- ber. En nú um nokkur ár hefur hún ekki komið fyrr en í nóvem- ber. — Vonandi að þetta hafi verið sild, sem sást. *>á fcrum við að athuga málið, sagði hann að lokum. Mæðiveiki MÆÐIVEIKI hefur í sumar orðið vart á bænuim Skörðum í Dölum, og hefur komið í ljós að 12% af fullorðnu fé á bænum hefur tek- ið veikina. Veikinnar hefur ekki orðið vart í Dölum í 3 ár. í frétta tilkynningu frá Guðmundi Gísla- syni, lækni á Keldum. segir um þetta: Snemma á sl. vori fannst mæði veikikind í Skörðum í Miðdölum. Þurramæði hafði þá ekki orðið vart í Dölum um þriggja ára skeið. — Féð í Skörðum var í sumar einangrað í girðingu í heimalandi. Þegar líða tók á sum arið, bar á sjúklegum einkenn- um í ánum, svo sem vanþrifum og mæði, og sum lömbin virtust ó- eðlilega rýr og vesæl. Síðastliðinn föstudag var fénu BLÓMASKRAUTH) í görðun- um í bænum er óvenju mikíð enn. Ljósmyndari blaðsins nokkrar myndir af görðum í gær. Hér er ein, af nýjum garði á Túngötu 24. Á bls. eru tvær aðrar myndir. Samið við yfir- menn á farskipum í GÆR var undirritaður kjara- samningur við yfirmenn á far- skipum, vélstjóra, stýrimenn, bryta og loftskeytamenn. Áður, eða 1. ágúst hafði verið samið við undirmenn og 28. ágúst við skipstjóra og er þessi samningiir á svipuðum grundvelli. Samn- ingurinn gildir frá 1. ágúst lil 1. júlí 1962. í Dölum slátrað í Borgarnesi, (152 fullorðn um kindum og 140 lömbum). Við líffæraskoðun kom í ljós. að um 12% af fullorðnu fé frá Skörðum hafði þegar tekið veikina, Fyrsta veika kindin, sem fannst í vor, var að dauða komin úr þurramæði. Hún hét Rjúpa, var 7 vetra gömul, undan fjárskiptaá úr A-Barðastrandasýslu, og hafði alltaf gengið norðantil á Hauka dal. — Allar líkur benda til þesa að Rjúpa hafi smitazt fyrir um það bil 4 árum, en eins og kunn ugt er, fannst mikil þurramæði- sýking í fé í Haukadal á árunum 1957 og 1958. Aðrar kindur í Skörðum, sem nú í haust reyndust aðframkoma Framh. á bls. 23 HÉRAÐSMÖT Sjálfstæðismanna á ísafirði 16. sept. * HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna verður í Alþýðuhúsinu á ísafirði, laugardaginn 16. september, klukkan 21. Á móti þessu munu þeir (ngólfur Jónsson, landbún- aðarráðherra, og Gísli Jóns- 5on, alþingismaður, flytja ræður. Flutt verður óperan Rita eftir Donizetti. — Með hlut- verk fara óperusöngvararnir Þuríður Pálsdóttir, Guðmund Gísli ur Guðjónsson og Guðmund- ur Jónsson og Borgar Garð- arsson, leikari. Við hljóðfærið Fritz Weisshappel, píanó- leikarL — Dansleikur verður um kvöldið. Ingólfur 12% kinda á Skorðum sýktar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.