Morgunblaðið - 15.09.1961, Qupperneq 1
24 síður
48. árgangur
208. tbl. — Föstudagur 15. september 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Bardagar og mann
fall í Katanga
Öngþvei' i í Elisabethville, — borgin
raímagnslaus, símasomband riofið og
matvælaskortur yfirvofandi
Salisbury, Bancroft, Leopold-
ville og Elisabethville,
14. sept. (NTB/Reuter)
SAMKVÆMT nokkuð áreið-
anlegum fregnum fer ástand-
ið hraðversnandi í Katanga-
fylki. Barizt hefur verið í
alla nótt og allan dag í Elisa-
bethviile og borgin er nokk-
urn veginn skipt til helminga
milli hermanna Katanga-
síiórnar og herliðs Samein-
uðu þjóðanna. Hætta er talin
á ættflokkabardögum, því að
hermenn af Balua-ættflokkn-
um, sem hlynntir eru Tshom
be eru farnir að hefna harma
sinna og leiðtogans á öðrum
fámennari ættflokkum.
Síðustu fregnir frá Elisabeth-
ville herma, að algert öngþveiti
sé þar í borg; allsstaðar er raf-
magnslaust, símasamband rofið
og matvæli orðin mjög af skorn-
um skammti, en samgöngur í
ólestri.
• Tshombe leynist
Nú er talið, að Tshombe
leynist í áusturhluta borgarinn-
ar, sem er á valdi Katangaher-
manna.
Sir Roy Welensky, forsætisráð
herra í Rhodesíu, las í dag yfir-
lýsingu *frá Tshombe, þar sem
hann kveðst hafa tekið forystu
í styrjöld gegn herliði SÞ. Seg-
ir Tshombe aðgerðirnar í Elisa-
bethville verri en aðgerðir
Rússa í Búdapest á sínum tíma
og skírskotar til allra þjóða að
veita stjóm sinni siðferðilega og
efnalega aðstoð. Kveðst Tshom-
be staðráðinn að berjast til hins
ýtrasta fyrir sjálfstæði Katanga.
Síðustu fregnir herma, að
Tshombe hafi komið upp út-
varpsstöð í skóginum utan við
borgina og séu þaðan send
hvatningarorð hans til lands-
manna um að rísa gegn herliði
Sameinuðu þjóðanna.
• Evrópskir liðsforingjar
í liði Katanga
Ekki þykir með öllu ljóst
hver hefur verið gangur mála í
Katanga. Fréttamenn hafa orðið
að fara til landamæra Rhodesíu
til þess að koma frá sér fregn-
Framhald á bls. 23.
SVO sem fyrr hefur ver-
ið greint frá tók Bjarni
Benediktsson, dómsmála-
ráðherra, við embætti for
sætisráðherra í gær, þar
eð Ólafur Thors tekur
sér hvíld frá störfum
fram til áramóta. Áður
hafði verið ákveðið, að
Bjarni Benediktsson færi
utan og afhenti Norð-
mönnum afsteypu af
styttu Ingólfs Arnarson-
ar og fór hann með
Heklu síðdegis í gær. —
Skömmu fyrir brottför
kom Ólafur Thors um
borð til þess að kveðja
forsætisráðherra og tók
ljósmyndari Mbl., ÓI. K.
M., þessa mynd af þeim á
bátaþilfarinu við það
tækifæri. (Fleiri myndir
og frásögn á bls. 10).
Friáls innflutningur bíla
í DAG gefur viðskiptamála-
ráðherra út reglugerð um
frjálsan innflutning bíla, þó
með þeirri undantekningu,
að ekki verður gefinn frjáls
kjarnorku-
sprenging
Rússa
Washington, 14. sept.
(NTB/Reuter)
EKKERT lát virðist ætla
að verða á kjarnorku-
sprengingum Rússa, fyrst
þeir eru á annað borð
® byrjaðir. í dag sprakk 10.
sprengjan síðan 1. sept.,
að þeir hófu aftur til-
raunir með kjarnorku-
sprengjur. Tilraunin var
gerð við Novaja Semlja.
10. kjarnorkusprengjan
var nokkurra megatonna
að afli — samsvarar
milljónum lesta af TNT-
sprengiefni.
Hvorki blöð né útvarp
í Sovétríkjunum hafa enn
sem komið er skýrt frá
kjamorkuvopnatilraunum
Rússa.
Þegar hefur mælzt
veruleg aukning á geisla-
virkni í andrúmslofti, þ.
á. m. í Noregi, Þýzka-
landi, Ítalíu og Japan.
innflutningur á notuðum bíl-
um. —
Hverfur þannig úr sögunni
braskið með leyfin, því allir
bílar verða nú gjaldeyrisbíl-
ar. Gjöld af gjaldeyrisbílum
verða óbreytt.
Fram að þessu hafa gjald-
eyrislausir bílar verið með
135% gjaldi, en þar sem endir
verður bundinn á gjaldeyris-
Undirbúa
jarðveginn
TUNIS, 14. sept. (NTB-Reuter).
— Fulltrúar ríkisstjórna Frakk-
lands og Túnis hafa ræðzt við
til þess að undirbúa jarðveg frek
ari samningaviðræðna um flota-
stöðina í Bizerta. Samkvæmt á-
reiðanlegum heimildum hafa við
ræðurnar farið vel fram og báð-
ir aðilar sýnt jafn mikinn áhuga
á, að hin hörmulega deila verði
til lykta leidd. Fulltrúarnir ræð-
ast aftur við næstu da,ga.
brask í sambandi við bíla-
kaup og þessir bílar verða
nú með 100% gjaldi, mun
yfirleitt óhætt að segja, að
lækkunin nemi um 10% frá
því sem nú er.
Gjaldeyrisbílar hafa verið
og verða áfram með 135%
gjaldi, ef þeir eru yfir 1150
kg., en 100% gjaldi, ef þeir
eru 1150 kg. eða minna.
Er þetta í fyrsta skipti í 30
ár, sem innflutningur bif-
reiða er gefinn frjáls hér á
landi, og er hér stórum
áfanga náð í þá átt að gefa
allan innflutning til landsins
frjálsan.
Gromyko fús til við-
ræðna við Dean Rusk
Moskvu, Washington, 14. sept.
— (Reuter/NTB) —
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
í Moskvu tilkynnti í dag, að
Andrei Gromyko, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, væri
fús til þess að ræða við ut-
anríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Dean Rusk, um Þýzka-
landsmálið og önnur alþjóð-
leg deilumál.
Tilkynningu sovétstjórnarinnar
hefur verið vel tekið í Bandaríkj
unum, og hún talin svar við um-
mælum Kennedys frá í gærkvöldi
að Bandaríkjamenn væru reiðu-
búnir til alvarlegra viðræðna við
Rússa ura heimsmálin.
Framhald á bls. 23. 1