Morgunblaðið - 15.09.1961, Síða 23
Föstudagur 15. sept. 1961
MORGXJ'NBIAÐIÐ
23
— Gramyko
Framhald af bls. 1.
I Vonast menn nú til, að ein-
!hver áreiðanleg Og ljós hugmynd
fáist um, hver hin raunverulega
afstaða Sovétstjórnarinnar er í
I>ýzkalandsmálinu.
Kennedy hafði lagt til, að þeir
Eusk og Gromyko ræddust við
um það leyti er Allsherjarþing
SÞ hæfist og samkvæmt tilkynn-
ingu Rússa.telja þeir ekkert því
til fyrirstöðu. Gromyko verður
formaður sendinefndar Rússa á
Allsher j arþinginu.
0 Grundvöllur kannaður
í tilkynningu Sovétstjórnar-
innar segir meðal annars, að ljóst
sé, að báðir aðilar séu fúsir að
hefja viðræður á alvarlegum og
heiðarlegum grundvelli Og leitast
við að finna lausn á hinum erfiðu
deilum um friðarsamninga og á-
standið í Berlín.
1 í Washington er lögð áherzla á
að hér sé fyrst og fremst um við-
ræður að ræða til glöggvunar á
stefnu beggja aðila og til þess
að þrautreyna hvort raunveru-
legur grundvöllur er til samn-
ingaviðræðna.
Fréttaritari Reuters í Moskvu
segir, að yfirlýsing sovétstjórn-
arinnar í dag sé e.t.v. upphaf
langra, en að sjálfsögðu erfiðra,
samningaviðræðna, sem kunni að
lykta með fundi þeirra Krúsjeffs
og Kennedys. Er haft eftir áreið-
anlegum heimildum í Moskvu, að
Krúsjeff hafi fullan hug á, að
fá Kennedy í heimsókn til
Moskvu.
Loks segir fréttaritari Reuters
að sendiherra Bandaríkjanna í
Moskvu, Llewellyn Thompson
hafi átt mikinn Og góðan þátt í
þessu máli.
í dag hófust í Washington
þriggja daga viðræður utanríkis-
ráðherra Vesturveldanna. Berlín
armálið var til umræðu í dag og
tók Von Brentano, utanríkisráð-
herra Vestur-Þýzkalands ekki
þátt í þeim fundi.
Bandarískur fiðluleikari
heldur tónleika hér
NU í lok vikunnar er væntan-1
legur hingað til lands kunnur
bandarískur fiðlusnillingur. Mic-
hael Rabin að nafni, sem er að
hefja tónleika/ör til ýmissa
Vestur-Evrópulanda utan íslands
svo sem Englands. Noregs, Finn-
lands, Vestur-Þýzkalands, Sviss
og Ítalíu. Á fslandi heldur hann
einleikstónleika, hæði á vegum
Tónlistarfélagsins í Reykjavík
og á Akureyri, en í ýmsum borg-
um framangreindra landa kemur
hann aðallega fram sem einleik-
ari með sumum þekktustu sin-
fóníuhljómsveitum viðkomandi
landa. Leikur hann við þau tæki
færi konserta m. a. eftir Brahms,
Beethoven, Tschaikovsky, Prok-
ofief, Wieniawski og fleiri tón-
skáld. í viðtali við listamanninn,
sem birtist nýlega í einu af dag-
blöðum New Yorkborgar, segist
hann hafa búið sig undir að
leika samtals um 25 fiðlukon-
serta í þessari tónleikaför.
Mishael Rabin er aðeins 25 ára
gamall, fæddur í New Yorkborg
2. maí árið 1936. Samt sem áður
telst hann meðal beztu og þekkt-
ustu fiðluleikara í Bandaríkjun-
um. Samkvæmt áður nefndu
blaðaviðtali heldur hann að jafn
aði millum 50 og 75 opinbera
tónleika á ári hverju, auk þess
sem hann hefur leikið inn á
listarinnar og er hann var 8 ára
gamall var honum komið til
náms hjá kennara í fiðluleik, er
nýtur afar mikils álits, Ivjp
Galamian að nafni, sem um langt
árabil hefur starfað við Juilliard
tónlistarskólann í New York og
Curtis tónlistarskólann í Phila-
delphia. Sumir telja Galamian
einn af beztu fiðlukennurum í
heimi, en Rabin var nemandi
hans í meir en 10 ár.
Á efnisskránni eru verk eftir
Beethoven, Fauré, Chausson,
Ohopin-Milstein, Kroll, Blooh og
Sarasate. Mitchell Andrews að-
stoðar.
Michael Rabin
fjöldann allan af hljómplötum,
sem njóta mikilla vinsælda.
Svo sem að líkum lætur hóf
Rabin tónlistarnám sitt mjög
ungur að árum. Aðeins 5 ára
byrjar hann að nema píanóleik,
en tveimur árum síðar gefur vin
ur fjölskyldunnar honum fiðlu
og verður það tii þess, að hann
skiptir um hljóðfæri og hefur
gefið sig einvörðungu að fiðlu-
leik upp frá því. Foreldrar hans,
sem bæði eru tónlistarfólik, komu
fljótlega auga á að hér var á
ferðinni undrabarn á sviði tón-
I hríð á Vatnajökli
LEIÐANGURSMENN í haustmæl
ingaferð Jöklarannsóknarfélags
ins á Vatnajökul hafa undanfarna
daga setið veðurtepptir í snjó-
bíl og slyddu með annan snjó-
bílinn bilaðan í skála félagsins á
Grímsfjall. Höfðu þeir lokið mæl-
reyna að draga þann bíl niður af
jöklinum þegar veðrið lægir.
Ferðin upp gekk ágætlega. Lagt
var af stað úr Reykjavík á laugar
dag áleiðis í Tungnaárbotna og
haldið á jökulinn á sunnudag. —
Komust leiðangursmenn þá að
Pálsfjalli og síðan daginn eftir á
Grímsfjall. Höfðu þeir lokið mæl
ingum og nauðsynlegum störfum
er veðrið versnaði. Leiðangrinum
stjórnar dr. Sigurður Þórarinsson,
en sænski jöklafræðingurinn
Schytt er með í ferðinni.
Hinir isfirzku skemmtikraftar, einu vantar á myndina.
ísfirðingar skemmta
Reykvíkingum
BLAÐAMAÐUR Mbl. átti
í gær tal við þrjá unga ís-
firðinga, sem hingað eru
komnir til að skemmta
höfuðborgarbúum, ásamt
nokkrum öðrum. — Var
fyrsta skemmtun þeirra
ákveðin um miðnætti í
Austurbæjarbíói í gær-
kvöldi, önnur er fyrirhug-
uð í kvöld og fleiri munu
fylgja í kjölfarið, ef að>-
sókn verður góð.
Þeir félagar nefna sig BG-
sextettinn og Jón Bjarnason
töframaður. Þeir koma fram
í margskonar klæðnaði,
syngja og spila dans- og
dægurlög, skröltmúsík og
létta klassíska músík. Þess á
milli sýnir Jón Bjarnason
töfralistir og aflraunir.
ísfirðingamir sögðust vera
hingað komnir til að hressa
upp á skemmtanalífið í
henni Reykjavík. Þeir hefðu
ferðazt um landið í sumar,
allsstaðar fengið góðar við-
tökur og þeir eindregnir
hvattir til að fara nú suður
og sýna Reykvíkingum listir
sínar.
í hljómsveitinni eru: Bald-
ur Geirmundsson, hljómsveit-
arstjóri, sem spilar á tenór-
saxafón, Karl Geirmundsson,
bróðir hans, gítarleikari, Karl
Einarsson, trommuleikari,
Magnús Jóhann, píanóleikari,
og Kristján Friðbjarnarson,
bassaleikari. Söngvari með
hljómsveitinni er Guunar
Hólm.
Tennur og freðýsa
Jón Bjarnason lét þess get-
ið, að bezt hefði sér tekizt
upp í sumar uppi á Þing-
mannaheiði, þegar bíllinn
festist í á og hann dró hann
upp með tönnunum. Tenn-
urnar í sér væru sterkar,
enda væri hann alinn upp á
vestfirzkri freðýsu.
Þeir félagar voru spenntir
að sjá, hvernig höfuðborgar-
búar tækju sýningu þeirra. —
Voru þeir flestir komnir með
illkynjaðan leiksviðsskjálfta,
þegar við kvöddum og óskuð-
um þeim alls góðs um kvöld-
ið. —
— Kafanga
Framhald af bls. 1.
um — en af þeim vhðist mega
ráða eftirfarandi:
í nótt og í dag hefur verið
barizt í borginni. Liðsmenn Kat-
anga virðast að miklu leyti und-
ir stjórn evrópskra liðsforingja,
þeirra á meðal margra franskra
sem ekki hafa þorað heim til
Frakklands vegna þess, að þeir
eru viðriðnir uppreisnir hægri-
sinnaðra hershöfðingja gegn de
Gaulle. Nokkur brögð hafa ver-
ið að því, að Gúrka-menn frá
Indlandi í liði SÞ hafi sýnt
villimannlegar aðfarir og sé
svo að sjá, sem yfirstjórn SÞ
hafi ekki að fullu vald yfir
þeim hermönnum sínum. Frétta-
,maður Reuters, James Tomlin,
segir í fréttaskeyti seint í kvöld,
að hann hafi tvisvar verið vitni
að því, að indverskir hermenn
SÞ gerðu skothríð á sjúkrabif-
reiðir, sem höfðu uppi merki
Rauða krossins.
Talið er, að a.m.k. 150 manns
hafi fallið úr Katangaher og 30
úr liði SÞ. Herma síðustu fregn-
ir, að liðsmenn SÞ hafi grafið
skotgrafir í stærsta skemmti-
garði Elisabethville, skotfæra-
geymslur Katangahers hafi verið
brenndar og ennfremur, að bar-
izt sé í iðnaðarborginni Jadot-
ville, norðvestur af Elisabeth-
ville.
í nótt höfðu hermenn SÞ náð
öllum mikilvægum byggingum á
sitt vald. en óstaðfestar fregnir
herma að Katangamenn hafi náð
sumum þeirra aftur og séu her-
menn SÞ víða I varnarstöðu.
• Thsombe vildi gefast upp
Aðalfulltrúi SÞ í Kongó, Dr.
Sture Linner, gaf fréttamönnum
í Leopoldville í dag skýrslu
um atburðina í Katanga og
aðdraganda þeirra. Segir dr.
Linner erlenda liðsforingja í
her Katanga ábyrga fyrir
því, sem hafi gerzt þar.
við ákvörðun Öryggisráðs SÞ frá
að borgarastyrjöld yrði í landinu.
Thsombe hafi í gær ætlað að gef
ast upp og skipað fyrir um vopna
hlé, en evrópsku liðsforingjarnir
tekið af honum ráðin og síðan
komið fram með hættulegum ó-
heilindum, sem hafi leitt af sér
núverandi ástand í Katanga.
Rekur dr. Linner í skýrslu sinni
viðskipti stjórnar SÞ og mið
stjórnarinnar í Leopoldville við
Tshombe og stjórnina í Katanga
Dag Hammarskjöld er nú í
Leopoldville og ræðir við stjórn
ina. Sendiherra Breta þar í borg
hefur lýst ugg brezku stjórnar-
innar vegna atburðanna í Kat-
anga og telur stjórn Sameinuðu
þjóðanna ekki hafa umboð til
iþeirra. Hinsvegar hefur stjórn
Bandaríkjanna lýst stuðningi við
aðgerðir SÞ í Katanga svo og
stjórn Indlands, sem segir að-
gerðir samtakanna í samræmi
við ákvörðun öryggisráðs SÞ frá
febrúar sl., þar sem SÞ var
heimilað að beita valdi ef nauð-
syn krefði til þess að hindra
að borgarastyriöld vrð ! landinu
- S.U.S. síSa
Framh. af bls. 17. i^.
rekenda um kaup og kjör.
Óheimilt sé að leggja niður
vinnu við varðveizlu verðmæta,
sem til eru orðin áður en vinnu-
stöðvun hefst.
Samúðarvinnustöðvun sé þvi
aðeins heimil, að henni sé beint
gegn þeim aðila, sem vinnustöðv-
un beinist að, enda sé um tengda
hagsmuni að ræða.
í lok vinnudeilu sé aðilum henn
ar óheimilt að gera heildarsamn-
ing um að fella niður árgreinings
mál fyrir dómstólunum vegna
vinnudeilunnar og framkvæmdar
á henni.
Settar verði' ákveðnar reglur
um réttindi manna í stéttarfélög-
um og hvernig þau verði tryggð
sem bezt. Verði þar m. a. kveðið
á um framkvæmd hvers konar
kosninga og atkvæðagreiðslna og
hvernig farið skuli með ágreining
út af þeim. Sáttasemjara sé skylt
að sjá um framkvæmd atkvæða-
greiðslu um sáttatillögur.
Valdsvið Félagsdóms verði auk
ið og honum m. a. fengið vald
til að dæma um ágreining milli
stéttarfélaga eða heildarsamtaka
þeirra, svo og um réttindi manna
innan stéttarfélaga.
— „Ungfrú
Framh. af bls. 24.
dvöl hér, auk ýmissa annarra
gjafa.
Keppnin verður haldin í Austur
bæjarbíói fimmtudagskvöldið 21.
þ.m. Kynningar- og krýningar-
hátíðir verða haldnar að Hótel
Borg föstudags- og laugardags-
kvöld 22. og 23. þ.m. Hingað
koma erlendu þátttakendurnir
með flugvél Loftleiða miðviku-
daginn 20. þ.m. frá Kaupmanna-
höfn.
í sjálfri keppninni í Austurbæj-
arbíói munu stúlkurnar bæði
koma fram í kjólum og baðföt-
um. í sambandi við keppnina
verður tízkusýning og margt ann
að til skemmtunar.
Dómnefndin verður skipuð
einum fulltrúa frá hverju Norð-
urlandanna, en formaður hennar
verður Jón Eiríksson, læknir. Sá
háttur verður hafðui á, að dóm-
nefndin ræður ein úrslitum, en
áhorfendum mun þó gefast kost-
ur á að láta álit sitt í ljós, en til
þess mun atkvæðaseðill fylgja
hverjum aðgöngumiða. Eigi mega
dómendur ljá samlanda sínum at-
kvæði, en það er gert til trygg-
ingar því, að réttlátur dómur fá-
ist.
vKIPAUTGCRB RIKÍSINS
Ms. HERÐUBREIÐ
fer vestur um land í hringferð
hinn 19. þ. m. Tekið á móti flutn
ingi í dag og árdegis á morgun
til Homafjarðar, Djúpavogs, —
Breiðdalsvíkur, Söðvarfjarðar,
Vopnafjarðar, Bakkafjarðar, Þórs
hafnar, Raufarhafnar og Kópt-
skers. Farseðlar seldir á mánu-
dag.
Félagslíl
Róðramóti Islands 1961
er frestað. Verður mótið haldið
í Reykjavík 7. og 8. október n.k.
Tilkynningar um þátttöku send-
ist ÍBR, Hólateigi 2, fyrir 24.
sept n.k.
^___________________ ÍBR.
Knattspyrnufélagið Fram
5. fl. a, b og c, ath.. Áriðandi
fundur verður í félagsheimilinu
í kvöld (föstudag) Kl. 7.30 fyrir
c-lið og kl. 8 fyrir a- og b-lið.
Mætið stundvíslega.
Þjálfari. >
Ferðafélag íslands
ráðgerir tvær skemmtiferðir
um næstu helgi á laugardag í
Þórsmörk á sunnudag gönguför
á Hegnil. Uppl. í skrifstofu fé-
lagsins. Símar 19533 og 11798.