Morgunblaðið - 16.09.1961, Blaðsíða 2
2
MORGUTSBLAÐIÐ
L'augardagur 16. sept. 1961
Útflutningsverðmæti síldaraf-
furða á Siglufirði nemur 213 millj.
Siglufirði, 15. sept.
ALLS tóku síldarbræðslur á
Siglufirði á móti 351.000 mál-
um síldar og 62.000 málum
síldarúrgangs í sumar. Er á-
ætlað útflutningsverðmæti
mjöls og síldar úr þessum af-
ufðum um 98 millj. kr. Þá
voru saltaðar hér 139.750 tunn
ur síldar, og er áætlað útflutn
ingsverðmæti saltsíldarinnar
um 115 millj. kr. Heildarút-
flutningsverðmæti síldaraf-
Símagjöld hækka
21.00.
ÞANN 1. okt. næstk. tekur gildi'
ný gjaldskrá fyrir landssímann.
Helztu breytingar á símagjöldum!
frá fyrri gjaldskrá eru eftirfar
andi:
Símaafnotagjöid (venjuleg árs-' 17.00.
fjórðungsgjöld) þjónustutími á yfir 350 km
virkum degi:
24 stundir kr. 500.00. Áður kr.
450.00.
14 stúndir kr. 445.00. Áður kr.
400.00.
10 stundir kr. 405.00. Áður kr.
360.00.
6 stundir kr. 365.00. Áður kr.
325.00.
2 stundir kr. 225.00. Áður kr.
200.00.
Á sjálfvirkum stöðvum auk
iþess kr. 0.80 (áður kr. 0.70) hvert
símtal yfir 600 á ársfjórðungi.
Utanbæjarsímtöl (3 mín.)
0—10 km. kr. 6.00. Áður kr.
6.00.
10—25 km. kr. 9.00. Áður kr.
8.00.
25—100 km. kr. 13.00. Áður kr.
11.00.
100—225 km. kr. 17.00. Áður kr.
15.00.
225—350 km. kr. 20.00. Áður kr.
kr. 24.00. Áður kr.
Rotaður og rænd-
ur á Landa-
kotstúni
A FIMMTUDAGSKVÖLD kom
maður inn til lögreglunnar og
kærði árás á sig og rán nóttina
áður. Kvaðst hann hafa verið á
heimleið nokkru eftir miðnætti
og gengið vestur Landakotstún.
Veit maðurinn ekki fyrr en
hann er sleginn niður, og telur
hann sig hafa legið í óviti á
túninu nokkra stund. — Síðan
raknaði hann úr rotinu og var
þá með glóðarauga. Neðri tann-
garður hans var horfinn og
hefur ekki fundizt enn, sömu-
leiðis veski með 900 krónum.
Reynt hafði verið að ná af hon-
um armbandsúri með því að
smokka keðjunni og úrinu fram
af hendinni, en það ekki tekizt.
Þeir, sem veitt geta einhverjar
upplýsingar um málið, eru
beðnir að láta rannsóknarlög-
regluna vita.
Intrlend símskeyti (venjuleg) _
Innanbæjar kr. 0.90 orðið. Áð-
ur kr. 0,75.
Utanbæjar kr. 1.50 orðið. Áð-
ur kr. 1,25.
Hraðskeyti tvöfalt venjulegt
símskeytagjald.
(Frá Póst- og símamála-
stjórninni).
urða á Siglufirði í sumar nem
ur því um 213 millj. kr.
Héðan er og fluttur út freð-
fiskur- frá tveimur hraðfrysti-
húsum, saltfiskur og skreið.
Verðmæti síldarinnar fjór-
faldast við það eitt að hún er
söltuð, en verðið til skipanna
er um 200 krónur á tunnuna af
hráefninu. Við niðurlagningu
eða suðu margfaldast verðmæt-
ið enn. — Stefán.
Innflutningur
gefinn frjáls
bifreiða
í gær
EINS og skýrt var frá í blað-
inu í gær, hefur ríkisstjórnin
ákveðið, að gefa frjálsan inn-
flutning bifreiða, að undan-
skildum notuðum bifreiðum.
Gaf viðskiptamálaráðuneytið
út í gær svo hljóðandi regl-
Chr. Madsen, kennari, og Sigurður Bergsson, hakarameistari,
formaður Landssambands bakarameistara, virða fyrir sér
dýrindis köku — nægtahorn.
Bakaranámskeiði lokið
Hráefni of hátt tolluð
í GÆR lauk hálfsmánaðarlöngu inn til að veita námskeiðinu for-
námskeiði á vegum Landssam- stöðu. Hann hefur ferðast víða
bands bakaraimeistara. Danskur um lönd til kennslu og fyrir-
sérfræðinguæ í köku- og brauða- lestrahalds.
bakstri, Christian Madsen, sem Um 50 bakarar, meistarar,
er kennari við Teknologisk Insti- sveinar og nemar, hvaðanæva að
tut í Kaupmannahöfn, var feng- af landinu, tóku þátt í námskeiði
þessu. Ljúka þeir hinu mesta
lofsorði á kennslu Madsens, sem
bæði var bókleg og verkleg. —
Fréttamönnum var í gær boðið
á fund þeirra, er þátt tóku í
námskeiðinu, og boðið upp á hin-
ar lystilegustu kræsingar.
Sigurður Bergsson, formaður
landjssambandsins, rakti tildrög
námskeiðsins og ræddi hag bak-
ara almennt. Hann kvað bakara
vilja tryggja neytendum góða
þjónustu, en um leið yrðu þeir
að fá öruggan grundvöll undir
starfsemi sína. Saankvæmt rann-
sókn Chr. Madsens væri verð á
fullunnum vörum bakara yfirleitt
hærra í Danmörku en á íslandi,
en hins vegar væru hráefni mun
dýrari hér á landi. Því gætu bak
arar ekki keypt eins vönduð og
góð hráefni og þeir kysu. Nefndi
Sigurður t.d., að möndlur og
möndlumassi væri hátollavörur,
og ef bakarar vildu auka gæði
vöru sinnar með því að nota
slík efni, hlyti það að koma nið
ur á útsöluverðinu, og varan seld-
ist síður vegna verðsins. Hins
vegar kvað Sigurður töluverðan
skilning vera nú ríkjandi á því
hjá yfirvöldunum að hér þyrfti
að ráða bót á.
Djúp lægð skammt undan hvass eða hVass norðan, skýj
suðurströndinni, hreyfist lítið að, skúrir austan til í nótt.
úr stað. Veðurhorfur næsta UM hádegið í gær var djúp
sólarhring: lægðarmiðja (960 mb) um
200 km suður af Hornafirði
SV-land til Breiðafjarðar Og 0g hreyfðist norður eftir í
SV-mið til Breiðafjarðarmiða: stefnu á austanvert landið.
Norðan hvassvirði, stormur Á SA-landi var SA-stormur
eða rok með köflum í nótt, og rigning og sömuleiðis á
skýjað. skipaleið milli íslands og
Vestfirðir til Austfjarða og Færeyja. Á öllu Norðurlandi
Vestfjarðamið til Austfjarða- var vindur allhvass NA og
miða: Norðaustan hvassviðri, víða rigning. Hiti var 8—10
rigning. stig fyrir norðan en. 12—15
SA-land og SA-mið: All- stig suðvestanlands.
ur um þennan innflutning:
1. Innflutningur nýrra og ónot-
aðra bifreiða er frjáls. Hins veg-
ar er innflutningur notaðra
fólks-, sendi- og jeppabifreiða,
að burðarmagni minna en 3
tonn, háður leyfum (sbr. reglu-
gerð útgefna 15. september 1961
um breytingu á reglugerð nr. 78,
27. maí 1960, um innflutnings- og
gjaldeyrisleyfi).
2. Innflutningsleyfi fyrir not-
uðum bifreiðum verða hér eftir
aðeins veitt eftirtöldum 'aðilum:
a. Aðilum, sem flytja búferl-
um til landsins, enda færi slíkir
aðilar sönnur á, að þeir hafi átt
viðkomandi bifreið erlendis í
eigi skemmri tíma en eitt ár.
b. Aðilum sem kaupa bifreiðar
af starfsfólki erlendra sendiráða
hér, enda mæli utanríkisráðu-
neytið með sölunni.
Landsbanki íslands og Útvegs-
banki íslands munu annast út-
gáfu leyfa samkvæmt grein þess
ari.
3. Gjöld samkvæmt 16. gr.
laga nr. 4 1960 verða innheimt
við tollafgreiðslu. Verða gjöld
þessi innheimt af öllum bifreið-
um að burðarmagni minna en 3
tonn að undanskildum jeppabif-
reiðum. Gjöldin eru ákveðin
135% af fobverði eða eftir at-
vikum matsverði bifreiða þyngri
en 1150 kg, en 100% af bifreiðum
1150 kg og léttari, án tillits til
þess, hvort bifreiðin er ný eða
notuð.
Forseti færði
Diefenbaker
bréfapressu
ÞEGAR forseti íslands, hr. Ás-
geir Ásgeirsson, kvaddi for-
sætisráðherra Kanada, John
G. Diefenbaker, færði hann
Diefenbaker bréfapressu að
gjöf. Er hún úr silfri og svip-
uð bréfaþressu þeirra, sem for
setinn gaf herra Vanier, land-
stjóra Kanada.
Bréfapressu þessa gerði
Gunnar Hjaltason gullsmiður
í Hafriarfirði. Er það haglega
smíðað víkingaskip úr silfri er
stendur á silfurstöpli, og nöfn
Islands og Kanada og nöfn
forseta og Diefenbaker forsæt-
isráðherra greipt á fótinn.
Furtseva bauð
en forfallaðist
MOSKVU, 15. sept. — Fóstbræð-
ur halda héðan í dag — til borg-
arinnar Riga. — Hér í borg hafa
verið mikil veizluhöld fyrir kór-
inn, t. d. hjá íslenzku sendiherra
hjónunum, sem höfðu „stóra
móttöku". Þá bauð Furtseva,
menntamálaráðherra, kórmönn-
um til hádegisverðar — en for-
fallaðist, svo að vararáðherrann,
Kuznetsov, var gestgjafi okkar
í staðinn. Viðstaddir voru marg-
ir frægir listamenn. — í gær-
kvöldi var okkur boðið á ballett-
sýningu í Bolsjoileikhúsinu. Að
því löknu sátum við rausnarboð
Ingva Ingvarssonar, sendiráðs-
fulltrúa, og konu hans, Hólm-
fríðar.
— Ágúst.
Kennedy svarar Belg-
rad-ráðstefnunni
Washington, 15. september.
KUNNGERT hefur verið bréf
það, er Kennedy, Bandaríkja-
forseti, afhenti þeim Mobito
Keita, forseta Mali-ríkjasam-
bandsins, og Sukarno, Indónesíu
forseta, sem svar við orðsend-
ingu Belgrad-ráðstefnunnar.
í svari sínu segir Kennedy,
að hann sjái enga ástæðu til
þess að ætla annað en viðræð-
ur milli Rússa og Bandaríkja-
manna um Berlínardeiluna geti
borið árangur. Hinsvegar verði
öllum að vera Ijóst, að Banda-
ríkjamenn muni ekki sitja við
Seðlaveskið
AF vangá birtist í blaðinu I gær
frétt um hvarf seðlaveskis með
stórri fjárupphæð. Var í henni
lýst eftir drengjum sem komið
höfðu í hús þar er seðlaveskið
hvarf frá. Fréttin kom upphaf-
lega frá rannsóknarlögreglunni,
og átti að birtast strax, en birt-
ing dróst og var fréttin úrelt
í gær. Drengirnir hafa gefið sig
fram og sannað sakleysi og eru á
engan hátt riðnir við hvarf veskis
ins.
samningaborð undir ógnunum
eða úrslitakostum. Kleift ætti
að vera, segir forsetinn, að
finna lausn, sem báðir aðilar
sjá sér hag í að samþykkja.
Uppástungu Belgradráðstefn-
imnar um fund æðstu manna
austurs og vesturs svarar
Kennedy á þá lund, að slík ráð-
stefna sé æskileg, ef hún sé
vandlega undirbúin — sé hún
það ekki geti hún aðeins gert
illt verra. Kennedy segir, að
Berlínardeilan eigi rót að rekja
til aðgerða af hálfu Rússa en
ekki af hálfu Bandaríkjamanna.
Bandaríkjamenn hafa engan
hug á að beita valdi eða ógn-
unum, segir Kennedy — en við
erum staðráðnir í að standa við
skuldbindingar okkar og erum
því viðbúnir að mæta valdi
með valdi.
í svarinu skýrir Kennedy
einnig frá ákvörðun Banda-
ríkjamanna að hefja að nýju
tilraunir með kjamorkuvopn
og harmar, að Rússar skuli
hafa vísað á bug tillögu Breta
og Bandaríkjamanna um, að
ekki verði gerðar tilraunir með
kjamorkusprenejur í gufuhvolí-
inu. —
t