Morgunblaðið - 19.09.1961, Page 1
24 sfður
48. árgangur
211. tbl. — Þriðjudagur 19. september 1961
Frentsmiðja Morgunblaðsin*
Málstaður
hans lifir
Ummœli Bjarna
Benediktssonar
forsœtisráðh. um
fráfall Hammar- '
skjölds
BJARNI Benediktsson, for-
[ sætisráðherra sem nú er stadd
ur í Noregi komst svo að orði
við fréttamann Morgunblaðs-
ins í gær um fráfall Dags
Hammarskjölds, framkvæmda
stjóra Sameinuðu þjóðanna:
Hammarskjöld var öðrum
fremur imynd laga og réttar
í heiminum. Hugsjóna hans er
nú meiri þörf en nokkru sinni
■ fyrr. Við sklum vona að annar
finnist í hans stað en ekki
dylja okkur þess, að heimur-
inn gat vart orðið fyrir meira
1 áfalli en fráfalli hans nú. Mál-
staðurinn lifir þótt maðurinn
falli.
Mynd þessi er ein hinna síðustu er teknar voru af Hammarskjöld, framkv.stj. S.Þ. — Hér er hann að ganga út úr húsi
Adoula forsætisráðherra Kongó, eftir viðræður við hann og Gizenga.
Hörmulegt slys, er framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fórst
S Á hörmulegi atburður gerðist í fyrrinótt, að Dag
Hammarskjöld, framkvæmdastj. Sameinuðu þjóðanna,
fórst í flugslysi skammt frá borginni Ndola í Norð-
ur Rhodesíu. Með flugvélinni voru átta aðrir farþegar
og fimm manna áhöfn. Fórust allir sem í vélinni voru,
utan einn bandarískur varðmaður úr liði Sameinuðu
þjóðanna, Harold Julian að nafni. Liggur hann þungt
haldinn á sjúkrahúsi í Ndola.
'k Hammarskjöld var á leið til viðræðna við Moise
Tshombe í Ndola, og skyldu þær viðræður miða að
því að koma á vopnahlé í Katanga. Þykir það tákn-
rænt fyrir allan feril Hammarskjölds, að hann skyldi
farast í slíkri friðarför, því að hann hefur um langt
skeið verið einn helzti og virkasti merkisberi friðar
í heiminum.
Bandaríski liðþjálfinn segir, að nokkrar sprenging-
ar hafi orðið í flugvélinni, áður en hún hrapaði til jarð-
ar en ekkert hefur enn komið fram sem leiði í ljós,
hver sé orsök þessa óbætanlega slyss.
'tr Fregnin um lát Hammarskjölds kom eins og reiðar-
slag yfir flestar þjóðir heims. Fjöldi leiðtoga þjóða
hins vestræna heims og hlutlausra hafa látið í ljósi
harm sinn og ugg við þær afleiðingar, sem kunna að
verða vegna fráfalls Dags Hammarskjölds.
Fyrstu fregnir af slysinu bárust
frá Rihodesíu í gærmongum. —
tHermdu þær, að flugvél — sem
talin vair sú, er flutti Hammar-
skjöld — hefði flogið yfir bong
inni Ndola um miðnætti á sumnu
dag en snúið síðan við og flogið
Iburt, enda þótt merki hefði verið
gefið um, að allt veeri tilbúið til
Xendingiar. Heyrðist ekki framar
til flugvélarinnar.
Þegar í stað var hafin leit og
samlband haft við yfirstjórn Sam
einuðu þjóðanna í Leopoldville og
Elisabethville. Voru allar flugvél
ar, sem tiltækilegar voru, teknar
í notkun og einnig tóku þátt í
leitinni flugvélar írá Rhodesíu.
svo og bandarískar flugvélar.
Það var afríkanskur kolagerð
armaður frá Rhodesíu, sem fyrst
ur fann flak flugvélarinnar, en
skömmu síðar kom þar að flugvél
frá Rhodesíu og vísaði hún leitar
mönnum á vettvang. Hafði flug-
vélin strokizt við marga trjátoppa
og rekist á hæð af svo miklu
afli, að tveir hreyflar hennar sem
rifnuðu af voru enn ófundnir síð
degis í gær. Nokkru eftir að frétt
ist að flakið hefði fundizt var op
inberlega staðfest að lík Hammar
skjölds framkvæmdastjóra hefði
fundist á slysstaðnum.
• Sprengingar í flugvélinni.
Svo sem fyrr segir var Hammar
skjöld á leiðinni frá Leopoldville
til Ndola til þess að ræða við
Tshombe uim leiðir til friðar í Kat
Myndir
og
frásögn
Íaf landsleiknum við
Englendinga er á bls. 22.
anga. Samkvæmt fregnum brezka
útvarpsins hafði Hammarskjöld
sjólfur lagt til, að þeir ræddúst
við í Ndola og óskað aðstoðar fuJl
trúa brezku stjórinarinnar, er
staddir voru í Salisbury, við uind-
ir búning viðræðnanna.
Ranghermt var í gær, að Hamm
arskjöld væri kominn til Ndola og
viðræður hafnar, en þær fregnir
síðan bornar til baka. Með fram
kvæmdastjóranum fórust meðal
annarra sérstakur ráðgjafi hans
og samstarfsmaður um málefni
Afríku, Henrich Wieschoff, banda
rískur samstarfsmaður hans,
William Randolo og persónulegur
aðstoðarmaður Hammarskjölds á
ferðalögum.
Er Thsombe frétti af láti Hamrn
arskjölds hélt hann þegar heim
til Katanga aftur. Kvaðst hann
mjög harma fráfaU Hammar-
skjölds. Hann hefði virt fram-
kvæmdastjórann mikils og vænzt
góðs árangurs af þeirra viðræð-
um.
Bandarikjamaðurinn, sem
komst lífs af, sagði í kvöld,
að nokkrar sprengingar heðfu
orðið í flugvélinni rétt í þann
mund er Hammarskjöld hafði
tekið ákvörðun um, að flug-
vélinni skyldi ekki lent í
Ndola og gefið upp annan á-
kvörðunarstað. Evrópskur lög-
regluforingi í Mufulira, sem er
um 50 km frá Ndola, kveðst
hafa séð nokkra Ijósgeisla
skera myrkrið seint á sunnu-
dagskvöld.
Flugmaðurinn, sem fyrstur
flaug yfir flakið tilkynnti, að
Framhald á bls. 23.
Þýzku
kosning-
arnar
I K.OSNINGUNUM tU . vest-
ur-þýzka sambandsþingsins á
sunnudag tapaði Kristilegi
demókrataflokkurinn um 40
þingsætum, sem skiptust nær
jafnt milli sósíaldemókrata
og Frjálsra demókrata. Þing-
sætin skiptast nú þannig:
Kristilegi demókratafl. 243
Sósíaldemókratafl. 190
Frjálsir demókratar ... 66
sjá bls. /0