Morgunblaðið - 22.09.1961, Qupperneq 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
^östudagur 22. sept. 1961
Dagskrá Allsherjarþingsins undirbuin
Samþykkt að ræða sérstaklega
stöðvun kjarnavopna-tilrauna
— þrátt fyrir kroftug mótmæli Russa
— Lítt miðar í framkvæmdastjóra-málinu
%
New York, 21. sept.
— (AP — NTB — Reuter)
DAGSKRÁRNEFND Alls-
herjarþings SÞ sat á rök-
stólum í dag til þess að á-
kveða dagskrá þingsins og
fundartíma. Var ákveðið, að
haustfundinum skuli ljúka í
síðasta lagi 20. desember.
Flest dagskrármál voru sam-
þykkt án umræðu, en til all-
harðra orðaskipta kom út af
öðrum, svo sem Angólamál-
inu og tillögu Stevensons,
fulltrúa Bandaríkjanna, um
að taka sérstaklega á dag-
skrá stöðvun tilrauna með
kjarnavopn, en rússneski
fulltrúinn vildi láta það mál
felast í afvopnunarmálinu í
heild, sem þegar hafði verið
samþykkt á dagskrá án um-
ræðna.
til, að stjórnmálanefnd Allsherj-
arþingsins léti spurninguna um
stöðvun kjarnavopnatilrauna
ganga fyrir öðrum málum. Kvað
hann raunhæft samkomulag um
bann við slíkum tilraunum nú'
vera nauðsynlegra en nokkru
sinni. Hélt hann því fram, að slikt:
samkomulag væri grundvöllur j
þess, að takast mættu samningar
um almenna afvopnun. Brezki
fulltrúinn, sir Patrick Dean,
studdi tillögu Stevensons ein-
dregið.
Valerian Zorin, fulltrúi Rússa,
mótmælti mjög ákveðið Og hélt
því fram, að ekki ætti að skilja
þetta atriði frá afvopnunarmál-
inu. Fóru nokkur orðaskipti milli
þeirra Stevensons, þar sem hvor
kennai öðrum um, að viðræðurn-
ar í Genf um bann við kjarna-
vopnatilraunum fóru út um þúf-
ur. — Svo fór, að tillaga Steven-
sons var samþykkt með 16 at-
kvæðum gegn 3, en tveir fulltrúar
sátu hjá, Frakklands og Túnis
(Mongi Slin», forseti Allsherjar-
þingsins). Það voru Sovétríkin,
Búlgaría Og Tékkóslóvakía, sem
greiddu atkvæði gegn tillögunni.
*
ic Önnur mál
Tillaga frá 40 Afríku- og Asíu-
ríkjum um að taka ástandið í
Angóla til umræðu var samþykkt
gegn kröftugum mótmælum
portúgalska fulltrúans. Svo fór
og um tillögu um að ræða kyn-
þáttastefnu Suður-Afríku, en full
trúi landsins mótmælti því einnig,
að SÞ væru bærar að fjalla um
það mál, sem væri „algert innan-
ríkismál*. — Meðal þeirra mála,
sem enn voru tekin á dagskrána,
var tillaga frá Danmörku og
Svíþjóð, um að rætt verði vanda-
mál hinnar miklu fólksfjölgunar
í heiminum, en fulltrúar hinna
ýmsu kaþólsku ríkja telja, að
ekki beri að grípa tii neinna ráð-
stafana til þess að draga úr barn
eignum — slíkt sé andstætt guð-
legum vilja og forsjón. — Mörg
fleiri mál voru tekin á dagskrá
Allsherjarþingsins i dag.
í gær 'noist Haustmánuður,
og á mongun er jafndægur á
hausti. Oft er talað um jafn-
dægrastorma, enda láta þeir
ekki á sér standa «n þessar
mundir. Djúp lægð er skamimt
fvrir sunnan Iandið og mun
ganga norður yfir það. Storm
sveipurinn Esther er skammt
austur af New York, nálægt
Cape Cod, og hreyfist NA á
bóginn, en fremur hægt enn
sem komið er.
Veðurspáin kl. 10 í gær-
kvöldi:
SV-land til Breiðafjarðar
Og miðin: Allhvass sunnan í C
nótt, kaldi eða stinningskaldi C
á morgun, skúrir. «
Vestfirðir: Allhvass NA Og C
rigning fyrst en SA kaldi og 2
skúrir á morgun.
Vestfjarðamið: Hvass NA,
rigning. .'
Norðurland til Austfjarða
og miðin: Allhvass sunnan og
sums staðar rigning í nótt,
stinningskaldi og léttskýjað á <
morgun.
SA-land og miðin: Allhvass •
sunnan og SV, skúrir.
Verkfræöingum boöin
13,8% kauphækkun
ir Stungiff upp á Nehrú
Ekkert hefir enn gerzt ákveðið
varðandi framkvæmdastjórn SÞ,
en stöðugar viðræður eru bak við
tjöldin um það mál. Er sagt, að
ýmis ,,miðríki“ (sennilega átt við
hlutlausu „blokkina") séu að
reyna að koma sér saman umj
ályktunartillögu til þess að
leggja fyrir Allsherjarþingið.j
með það fyrir augum, að það
útnefni framkvæmdastjóra til
bráðabirgða. Ekki hafa þessir að-|
ilar þó enn komið sér saman um'
neinn „frambjóðanda", en m. a. I
mun hafa verið bent á NehrúJ
forsætisráðherra Indlands, sem
einn hinna líklegustu.
Adlai Stevenson lagði eindregið
I Myndin sýnir svipbrigffi
Tsjombes, þegar honum voru
sagffar fréttirnar um hiff
hörmulcga flugslys. Hann var
þá að halda hlaðamannafund
í Ndola. Var hann einmitt
aff úthúffa SÞ fyrir affgerffir
þeirra í Katanga, þegar frétta i
maffur frá Daily Telegraph í £
Lundúnum kom til fundar- /
ins og flutti þangað fréttina J
um flugslysiff. Tsjombe brá
mjög viff, og sagffi lágt eftir
stundarþögn: — Ef frétt yffar
er á rökum reist, harma ég
mjög þennan atburff. Hamm-
arskjöld var maffur, sem ég
bar mikla virffingu fyrir —
og ég vonaffi einmitt, aff viff
7 mundum nú komast að sam-
) komulagi hér í Ndola ..
Forseti Islands heim-
sœkir bœ Stefáns G.
Fréttaskeyti til Mbl.
frá AP. og J.M.
Á þriðjudag flaug forseti fslands
og föruneyti hans frá Winnipeg
til Regina, og síðan var ekið um
Vatnabyggðimar til Wynyatrd.
Þar fögnuðu mörg hundruð börn
honum og veifuðu íslenzkuon fán
um. Samkoma var í íþróttaskála
mikluim, og var þar sarnan kom
ið á þriðja þúsund manns. Sér
stakt hátíðablað var gefið út
vegna heimsóknarinnar, og mynd
ir af forsetahjónunum sáust víða
í gluggum. Að lokum var haldin
samikoma í íslenzku kirkjunni.
Síðar um daginn var haldið til
Markerville og þar komið heim
á bæ Stefáns G. Þar lagði forseti
blómsveig á gröf skáldsins og
annan við minnismerki hans, sem
stjórn Kanada lét reisa. Margt
manna kam á samkomu, sem hald
in var forsetahjónunum til heið
urs. Dætur Stefáns, afkomendur
hans margir og tveir ráðherrar
Alberta-fylkisins önnuðust mót-
tökurnar.
Þá var haldið til Edmonton,
höfuðborgíir Alberta-fylkis, og
hlutu forsetahjónin þar hjartan
legar móttökur. Um kvöldið sátu
þau veizlu hjá íslendingafélaginu
þar í borg, og heilsaði forseti
persónulega^ flestum hinna 120
boðsgesta. í ræðu, sem forseti
flutti, rakti hann viðburði síðustu
ára á íslandi og minntist á þátt
Vestur-íslendinga í landnámi
Kanada.
Iðraðist, skilaði fénu
EINS og skýrt var frá í blaðinu
á fimmtudag, var stalið um 500
krónum um borð í botnvörpungn
um Fylki í Reykjavíkurhöfn á
þriðjudag. Skipverjar höfðu orð
ið varir við ferðir drengs, sem
þeir gátu gefið greinargóða lýs-
ingu á, og töldu hann líklegan til
að hafa valdið peningahvarfinu.
Drengurinn iðraðist stuldarins
og fór á miðvikudagskvöld um
borð í togarann í því skyni að
skila peningunum á sama stað,
en er hann heyrði mannamál þar
inni, áræddj hann ékki að fara
þángað, heldur skildi seðlana eft
ir á bak við salemishurð, þar
sem þeir fundust.
Sagan er þó ekkj þar með öll.
Drengurinn, sem er 15 ára, trúði
systur sinni fyrir hnuplinu. Hún,
sem mun vera um tvítugt, gerði
sér lítið fyrir og vatt sér í einum
hvelli með bróður sinn til lögregl
unnar þar sem hann játaði brot
sitt. Vonandi -stígur hann ekki
oftar út á þessa braut, fyrst
hann sneri svo snarlega við af
henni í þetta sinn.
Fyrsti fundur Rusks og
Gromykos
NEW YORK, 81. sept. — Utan-
ríkisráffherramir Dean Rusk
(Bandaríkjunum) og Andrei
Gromyko ('Sovétríkjunum) áttu
í dag eínkaviffræffur yfir miff-
degisverffi í Waldorf Astoria-
hótelinu. Var þetta fyrsti fund-
ur þeirra um Berlínarmáliff og
önnur alþjóffleg vandamál, en
taliff er aff þeir muni hittast öðru
hverju næstu daiga til þess aff
kanna, hvort grundvöllur sé fyr-
ir samningum milli Vesturveld-
anna og Sovétríkjanna um þýzku
vandamálin, og þá sér í lagi Ber-
lín. Einnig er taliff aff ráffherr-
arnir muni ræffa um framtíð SÞ
eftir lát Hammarskjölds.
— ★ —
Utanríkisráðherrarnir voru
fremur þurrir á manninn við
fréttamenn, sem biðu við hótel-
ið. Þannig anzaði Gromyko ýms-
um spurningum þeirra út í hött,
um leið og hann gekk inn í borð-
salinn. „Ég ætla að snæða mið-
degisverð með utanríkisráherran
um,“ sagði hann aðeins. — Eng-
in tilkynning var gefin út um
fundinn að honum loknum.
4 ára verkfræðiitgum boðin 24%
kauphækkun
ÞAÐ kom fram á fundi bæj-
arstjórnar Reykjavíkur í
gær, að verkfræðingum hef-
ur nu verið boðin sama
hækkun á launum og opin-
berir starfsmenn hafa fengið,
eða 13.8% að viðbættum
4% 1. júní 1962. Þá hafa
vinnuveitendur einnig boðið,
að verkfræðingar skuli nú
fá hámarkslaun eftir 4 ára
starf í stað 10 ára áður. —
Mundi þetta hafa í för með
sér u.þ.b. 24% launahækkun
verkfræðinga, sem starfað
hafa 4 ár eða lengur.
Það var Gunnlaugur Pétursson
borgarritari, settur borgastjóri,
sem gaf þessa upplýsingar, er
hann svaraði fyrirspurn Alfreffs
Gíslasonar bæjarfulltrúa Alþýðu
bandalagsins um lausn verkfræð
ingadeilunnar.
Þá kom það einnig fram i
ræðu borgarritara að í síðasta
tilboði vinnuveitenda hefði ver-
ið gert ráð fyrir því, að deildar-
verkfræðingar fengju. 10% hærri
laun en almennir verkfræðingar,
eins og samkvæmt síðasta samn-
igi, en hins vegar skyldi ekki
samið við Stéttarfélag verkfræð
inga um kaup yfirverkfræðinga,
enda yrðu þeir ekki meðlimir
félagsins. Sagði borgarritari, að
Reykjavíkurbær hefði getað fall-
izt á þetta tilboð, sem var sett
fram á síðasta fundi deiluaðila
með sáttasemjara laust fyrir síð-
ustu helgi, en verkfræðingar
hefðu hafnað því án þess að
koma fram með gagntilboð.
★ Þegar verffi samiff
viff verkfræffinga.
í ræðu, sem Alfreff Gíslason
flutti eftir svar borgarritara við
fyrirspurn hans, kvaðst hann
telja, að bæjarráð og borgar-
stjóri hefðu látið undir höfuð
4:4 í Bretlandi
ÍSLENZKU landsliðsmennirnir
kepptu annan aukaleik sinn í
Bretlandi í gær við Athenian.
Jafntefli varð 4:4. íslendingarnir
byrjuðu vel, skoruðu þrjú fyrstu
mörkin.
leggjast að vinna samkvæmt sam
þykkt bæjarstjórnar frá 17.
ágúst sl. um þessi mál, þar sem
bæjarstjórn fól þessum aðilum
að stuðla að lausn deilunnar.
Flutti AG síðan tillögu, þar sem
þeirri skoðun var lýst, að þegar
bæri að ganga til samninga við
verkfræðinga á þeim grundvelli,
að laun þeirra yrðu hækkuð og
starfsskilyrði bætt.
Björgvin Fredriksen (Sjálf-
stæðisflokkur) svaraði AG og
kvaðst undrast framkomu full-
trúa Alþýðubandalagsins í bæjar
stjórn, sem nú hvað eftir annað
bæru fram harðorðar kröfur um
það, að gengið yrði að kauphækk
unarkröfum hæstlaunuðu stétta
þjóðfélagsins.
Ósamræmi í kröfugerffinm.
Beindj BF þeirri spurningu
til AG, hvort hann væri þeirr
ar skoffunar aff ganga bærl
aff öllum kröfum verkfræff-
inga. Svaraffi AG þeirri spurn
ingu játandi.
Úr því aff svo er, sagffi BF,
er ég hræddur um, aff hann
Guðmundur J. Guffmundsson
verffi aff fara aff breyta um
tón, þegar hann talar viff hafn
arverkamennina, því aff þeim
segir hann, aff affeins hinir
lægstlaunuffu eigi aff fá kaup-
hækkun.
Fullyrðingum AG um, að bæj
arráð og borgarstjóri hefðu hald
ið að sér höndum við lausn verk
fræðingadeilunnar svaraði BF á
þá lund, að þessir aðilar hefðu all
an tímann fylgzt mjög vel með
þróun hennar og samkomulags-
möguleikum, en hins vegar væri
rojög óeðlilegt, og raunar óverj-
andi, að atvinnurekandi, sem fær
tekjur sínar sínar með sköttum á
þegnana gangi á undan öðrum
vinnuveitendum í samningum um
kaup og kjör, eins og bæjarfulltrú
ar Alþýðubandalagsins vilja láta
Reykjavíkurbæ gera í hvert sinn
sem til vinnudeilu kemur.
★ Vilja þeir nýja skriffu?
Að lokum sagðist BF vera þeirr
ar skoðunar, að það væri ekki
fyrst og fremst hagur verkfræð-
inga, sem þeir Alþýðubandalaga
menn bæru fyrir brjósti, heldur
vekti nú aðeins fyrir þeim, að fá
sem hæsta kauphækkun hjá þeim
til þess að geta svo bráðlega sett
fram kröfur um samræmingu
launa alls hópsins síns.