Morgunblaðið - 22.09.1961, Page 17
aMManfflfaSi
Föstudagur 22. sept. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
17
— Norræn list
Frh. af bls. 13.
sérstakn nærfærni, og það er
skilningur og virðing í verkum
þessa málara fyrir yndisþokka
konunnar. Ég nefni tvö verk sér-
staklega, no. 118 og 119.
I Það má vel kalla finnska mál-
arann OLAVl VAARULA surreal
ista, hann notar fínlega liti og
Ibyggir verk sín á sérkennilegan
hátt. Daninn KJELD HANSEN er
nokkuð einhæfur, bæði í litum og
byggingu. Svíinn ACKE OLDEN-
BURG málar af mik’.um þrótt, en
hann virðist á stundum ekki nægi
lega sjálf^tæður í myndbyggingu
Sinni. RAGNAR EKELUND var
finnskur og notar mjúka liti,
byggir vel verk sín og er látlaus.
INGER SJÖLIE frá Noregi vinn-
ur verk sín hressilega, en það
er eins og eitthvað vanti til að
gera þau eftirminnileg.
Um okkar menn skrifa ég ekki
einu sinni, en það er ánægjulegt
að sjá, hvað þeir standa sig vel
á þessari sýningu, hvort heldur
um myndhögg eða málverk er að
ræða.
í>egar talað er um heildarsvip
sýningarinnar, þá verður ekki
skilið milli landa. Heildarsvipur-
inn er lifandi og öllum til sóma.
En ef við athugum hvert land
fyrir sig, þá hljótum við að kom-
ast að þeirri niðurstöðu, að það
eru fyrst og fremst Finnar, sem
vekja athygli. Danir standa að
vísu mjög sterkir og Svíar einnig,
en það verður ekki sagt um deild
Noregs í heild. Nörðmenn hafa
oft staðið sig betur á sýningum
Norræna listbandalagsins. Áður
en ég skil við þetta skrif, langar
mig að geta þess til gamans að
það voru raunverulega íslending-
ar, sem fyrstir sýndu nýjar hrær-
íngar í myndlist á þessum sýning
um. Þeir þóttu heldur ódælir í
hópnum á þeim árum, en nú er
svo komið, að þeir skera sig ekki
úr með nýjungar.
f Við eigum enn eftir að heim-
sækja graflistina í Listamanna-
skálanum og gerum það næstu
daga. Þessi sýning Norræna list-
bandalagsins er svo mikill við-
burður í myndlistarlífi okkar, að
það má enginn, sem áhuga hefur,
Játa þetta tækifæri sér úr greip-
um ganga. Það verður einnig að
minnast á það hér, að mjög vönd-
uð sýningarskrá hefur verið gerð
yfir þessa sýningu, og er hún til
sóma fyrir þá, er það verk unnu.
Það er mikið átak, er liggur að
baki eins umfangsmikillar sýn-
jngar og þessarar. Þag er því æski
legt, að Sem flestir fái að njóta
jþess aðsjá hana og kynnast
þannig myndlist á Norðurlöndum.
Valtýr Pétursson.
— S.U.S. síða
Framh. af bls. 8.
.málaleiðtoga á vesturlöndum til
þess að draga úr hættjfrnni á slík-
um skelfingum.
Þessi mikla styrjaldarhætta hef
ur orðið til þess, að borgaravarn-
ir (civil defense) hafa mjög ver-
ið auknar á vesturlöndum und-
anfarið, sbr. t.d. umfangsmiklar
aðgerðir Bandaríkjastjórnar á
þessu sviði síðustu vikur. Þá er
einnig vitað, að Rússar hafa ekki
látið sitja við orðin tóm í þessum
efnurn.
Sá misskilningur er útbreiddur,
að engar varnir séu til fyrir ó-
breytta borgara í kjarnorkustríð-
um. Vitað er, að hægt er að
byggja loftvarnarbyrgi, sem veita
góða vöm gegn geislaverkunum
eftir vetnissprengjuárás. M.a. hef
ur ríkisstjóri New York fylkis,
Nelson Rockefeller, mjög beitt
sér fyrir því í ríki sínu, að slík-
um byrgjum yrði komið upp í
hverju einasta íbúðarhúsi. Þá
hafa einnig verið gerðar erlendis
víðtækar áætlanir um brottflutn-
ing fólks af þéttbýlustu svæðun-
um, ef til styrjaldar kernur. Enn-
fremur hefur umfangsmikilli
fræðslu verið komið á um það,
hversu fólk skuli haga sér í
atómstríði, til þess að hafa sem
bezta von um að lifa slík átök af.
Eftir því sem bezt verður vitað
hafa slíkar sjálfsagðar varúðar-
ráðstafanir, sem hér hefur verið
lýst, lítt verið athugaðar hérlend
is, og á þar vafalaust nokkra sök
á almenn trú á að til styrjaldar
muni ekki koma. f ljósi síðustu
atburða í kalda stríðinu verður
að líta á slíka skoðun, sem órök-
studda óskhyggju.
Nauðsynin á að hefjast þegar
handa um að byggja upp öflugar
borgaravarnir á íslandi ætti að
vera öllum ljós og þess ber að
vænta, að viðkomandi yfirvöld
geri sér hið bráðasta grein fyrir
þeirri ábyrgð, sem á þeim hvílir.
— S.G.
Malmö
SANDALAR
Veri kr. 159,65
SKÓSALAN
Laugaveg 1
iRÐURLÖi 1961
FEGURÐARSAMKEPPNÍ NORÐURLANDA
verður endurtekin
vegna gífurlegrar aðsóknar og fjölda áskorana
í kvöld, föstudag, kl. 7. Sama efnisskrá.
Aðgöngumiðasala hafin í Austurbæjarbíói og bóka-
búðum Lárusar Blöndals, verð 45 kr. —
Takið þátt í hinni spennandi keppni.
Hver verður k.iörin ungfrú Norðurlönd?
Vélrifun
Verzlunarfyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða
vélritunarstúlku á skrifstofu sína nú þegar eða 1.
október n.k. — Kunnátta í ensku nauðsynleg. —
Gott kaup. — Umsóknir sendist afgr. Mbi. fyrir 23.
sept. n.k. merktar: „Vélritun — 5855“.
IMýtt Mýtt
international Scout
BÆNDUR!
Internationail Harvester býður upp á nýja
landbúnaðarbifreið með framdrifi.
INTERNATIONAL SCOUT bifreiðin hentar mjög
vel íslenzkum staðháttum og hefur hlotið einróma
lof og vinsældir í Bandaríkjunum.
Áætlunarverð:
SCOUT húslaus kr. 122,000,—
SCOUT með stálhúsi kr. 131,000,—
„SCOUT“ er bifreiðin, sem allir vilja eiga
Allar nánari upplysingar hjá umboði fyrir
INTERNATIONAL HARVESTER EXPORT Co.
ÖXULL H.F.
Borgartúni 7 — Sími 12506.