Morgunblaðið - 22.09.1961, Blaðsíða 22
22
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 22. sept. 1961
Sigríður ísleif Ágústsdóttir
F. 22. 3. ’05. — D. 16. 9. ’61
ÞEGAR kallið kemur, kaupir sig
engin frí. (í dag, þig, á morgun
mig). Nú hefir kallað verið á þig
Sigríður mín, til líkhamlegs
dauða, frá miklum og ströngum
þjáningum, er vöruðu mörg ár,
og þú barst með frábæru þreki
og sálarstyrk, er greinilega sýndi
þinn andlega þroska, og þína
léttu lund, er lítið eitt rofaði til í
veikindum þírium. Bros þitt og
hlátur, vakti alstaðar birtu og yl
Söngvin varstu og glöð í góðra
vina hópi.
Frú Sigríður sáluga, var gift
Kristjáni Sigurjónssyni yfirvél-
stjóra. Þau áttu indælt heimili að
Barmahlíð 29, og bar það hús-
móðurinni fagurt vitni um feg-
urðarsmekk og snyrtimennsku.
Þau hjón áttu 30 ára hjúskapar
afmæli 19. september. Þau eign
uðust tvö myndarbörn, er bæði
eru gift og farinn að heiman.
Kynni okkar Sigríðar hófust í
Kvennfélaginu „Keðjan“, bæði í
leik og starfi. Þessi fátæklegu orð
eiga að túlka alúðar þakkir fyrir
samverustundir í því félagi. Al-
góður Guð vermdi þig og styrki
um alla eilífð.
Innilega hluttekningu sendi ég
manni hennar og börnum.
Vertu sæl Sigríður. far þú í
friði, friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
✓ Jónína Lofts.
Á Gríska ríkisstjórnin baðst
lausnar í dag. Kosningar
verða í landimi 29. okt. nk.
Á De Gaulle hefur afsalað sér
þeim sérstöku völdum, er
hann tók sér í apríl sl. í Alsír
uppreisninni.
faugavegi 26 tilkynnir:
Danir unnu Norðmenn
með 11:6 í 4 leikjum
Thorbjörn Svendsen lék 100 leik sinn og
Poul Pedersen setti ,,danskt met"
með 48 leikjum
ust A-lið landanna í Osló, B-liðin
HINN MIKLI ósigur Dana í knatt
spyrnu fyrir Þjóðverjum hefur
að vonum vakið athygli. 5 mörk
gegn 1 er einn stærsti ósigur
Dana um mjög langt skeið ef und
an er talinn einn leikur gegn
Svium fyrir fáum árum. Danir
voru einmitt svo bjartsýnir fyrir
þennan leik.
• Fjórir Ieikir
Meginástæða til bjartsýni
þeirra var hin mikla velgengni
dönsku liðanna sem mættu Norð-
mönnum um s.l. helgi. Þá helgi
gerðu Danir og Norðmenn hrein
lega upp hjá sér á knattspymu-
sviðinu, léku 4 landsleiki. Mætt
í Danmörku, en aiuk þess fór fram
leikur unglingaliða 18—23 ára og
loks léku drengir innan 18 ára ald
urs. Er síðast taldi leikurinn ný
lunda en þótti gefast mjöig vel.
• A-leikurinn
í leik A-liðanna höfðu Danir al
gera yfirburði og unnu 4:0. f hálf
leik stóð 2:0 og skoraði John Daní
elsen bæði miörkiri. í síðari hálf-
leik bættu Ole Madsen og Ole
Sörensen tveim mörkum við.
Eftir leikinn var mikið talað
um tvö „met“ sem sett voru. —
Thorbjörn Svendsen lék nú sinn
100 landsleik. Var hann ákaft
hylltur. Stefnir hann nú að því að
ná 105 landsleikum en slíkan
landsleikjafjölda á enginn knatt
spyrnumaður fyrr né síðar. Billy
Wright Englandi á metið, 104
landsleiki.
Hitt „metið“ setti Poul Peter-
sen fyrirliði danska liðsins. Hann
lék sinn 48. landsleik og hefur
í nginn Dani komist svo oft 1 lands
liðið.
• Hinir leikimir
í B-leiknum höfðu Danir einn
ig algera yfirburði og unnu með
4:0. Tefldu Danir fram mörgum
þrautreyndum manninum s.s.
Henning Enoksen.
í unglingaleiknum unnu Danir
með 2:0, og var það vel verðskuld
aður sigur.
En í drengjaleiknutn komn
Norðmenn á óvart og unnu stór
sigur 5 mörk gegn 1. Eru Norð
menn að vönum montnir yfir
sínum yngstu knattspyrnumönn
um.
Eftir þessa sigurhelgi er það
að vonum að Danir hafi haldið
bjartsýnir til Dusseldorf til að
.mæta Þjóðverjum. En sá leikur
fór á annan veg eins og fyrr seg-
ir.
Efnilegur
spjót-
kastari
AKRANES og Kópavogur háðn
um sJ. helgi keppni í frjálsíþrótt
um og náði hún bæði til kvenna
og karla. Svo fóru leikar liðin
skildu jöfn. Hlutu bæði 88 stig
eftir keppni í 16 greinum. í keppn
inni var keppt um bikar er Kaup
félag S-Borgfirðinga gaf.
Árangur var yfirleitt Jafn og
sæmilegur í flestum greinum. —
Einna beztur var hann hjá ísl.
meistaranum í hástökki kvenna,
1.40 m. Þá keppti Jón Þ. Ólafsson
sem estur í hástökki karla og
stökk 1.95 m.
Hvað mesta athygli vekur af
rek Gunnars Gunnarssonar í
spjótkasti. Sigraði hann með yfir
burðum 54.25. Er afrek Gunnars
sérlega athyglisvert þar sem
hann hefur ekki stundað spjót-
kast nema örfáium sinnum síðustu
vikur. Gunnar er einnig mjög góð
ur knattspyrnumaður, er miðvörð
ur í Akranesliðinu og lék athyglis
verðan leik sem miðvörður i
pressuliðinu á dögunum. Má mih
ils af Gunnari vænta.
Knattspyrnan
VEGNA veðurofsans á laugardag
varð að fresta nokkrum leikjum
í Haustmótum yngri flokkanna
og fara þeir leikir fram sunnu-
daginn 8. október á sömu völlum
og á sama tíma og átti að vera
á laugardag. Þó er undanskilinn
leikur Fram og Víkings í 2. fl. A.,
sá leikur fer fram á Háskólavell-
inum sunnudagsmorgun 8. okt. og
hefst kl. 10,30.
Þá fórst leikur Í.B.f. og Fram B
í Bikarkeppninni fyrir, en hann
átti að fara fram á ísafirði s.L
laugardag. Lið Fram komst ekki
vestur og er leikurinn ákveðinn
n.k. laugardag á ísafirði Og hefst