Morgunblaðið - 23.09.1961, Blaðsíða 1
24 síöur
18. árgangur
215. tbl. — Laugardagur 23. september 1961
Frentsmiðja Morgunblaðsins
Dean Rusk leggur til að:
Heimskunnur
stjórnmálaleiðtogi
verbs látinn taka v/ð framkvæmdastjóra-
starfi SÞ til bráðabirgða
Myndt þessi gefur nokkuð til kynna ástandið á þeim slóffum sem hvirfilvindurinn „Nancy“ fór
um á dögunum. Hún er tekin í næst stærstu borg Japans, iðiwffarbænum Osaka, þar sem vind-
urinn geistist yfir með um 200 km hraða á klukkustund, og olli miklu tjóni bæði á húsum,
símalínum og öðrum mannvirkjum.
New York, 22. september.
(AP — NTB — Reuter)
Dean Rusk, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, lagði
í dag til, að einhverjum
heimskunnum stjómmálaleið
toga verði þegar falið að
taka að sér starf fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna til bráðabirgða.
•fr Skjót lausn brýn
í ræðu, sem Rusk flutti á
fundi hjá samtökium, eriendra
frétt-amanna í Washington í dag,
hvatti hann eindregið til, að alls-
herjarþingið tæki höndum sam-
an um slíka lausn á því mikla
vanda-máli sem skapast hefði við
fráfall Dags Hammarskjölds.
Lýsti hann yfir þeirri skoðun
sinni, að allsherjarþingið hefði á
sínu valdi að leysa málið með
þessum hætti, án þess að Örygg-
isráðið fjallaði um það. Bráða-
birgðalausn af þessu tagi væri
nauðsynleg, til þess að unnt væri
að halda starfsemi samtakanna
áfram, meðan reynt væri að leysa
framkvæmdastjóramálið til fram
búðar.
ýkr Gegn þrískiptingu
Utanríkisráðherrann vísaði
með öllu á bug tillögu Sovétveld
isms um þrískiptingu fram-
kvæmdastjórnarinnar og sagði að
starfi framkvæmdastjórans væri
ekki hægt að deila niður. — Slík
þrískipting á einu eða öðru sviði
innan samtakanna mundi lama
styrkleika Sameinuðu þjóðanna
og valda þeim óbætanlegu tjóni.
Starfsemi saim-takanna verður að
stjórna með styrk, hæfni og ein-
urð, sagði Rusk.
Fréttaritari júgóslavnesku
fréttastofunnar Tanjug hefur sím
aff frá New York, aff kommúnista
ríkin muni leggja til, aff fulltrúa
frá einhverju hlutlausu ríkjanna
verffi faliff aff gegna starfi fram-
kvæmdastjóra SÞ til bráffabirgffa.
Fréttaritarinn, sem ber fyrir sig
heimildir, er hann telur nákomn-
ar austur-evrópsku sendinefnd-
unum á allsherjarþinginu, segir
ennfremur, aff í tillögunni muni
jafnframt verffa lagt til, aff fram-
kvæmdastjórinn fái sér viff hliff
tvo ráffgjafa, annan bandarískan
en hinn sovézkan. Ekki muni þó
ætlast til, aff þeir hafi neitunar-
vald.
Tvísýnt
um líf
Julians
NDOLA, 22. sept (NTB—Reut-
er) — Líffan Harold Julians,
bandaríska lífvarffarins, sem
einn komst lífs af í flugslysinu
viff Ndola í Norffur-Ródesíu,
þegar Dag Hammarskjöld
fórst, hefur fariff talsvert
versnandi.
í sjúkrahúsinu í Ndola var
á föstudag sagt, aff á næstu
tveim dægrum muni væntan-
lega fást úr því skoriff, hvort
hann lifi þaff af. Var líffan
hans sögff mjög slæm. Eigin-
kona Julians, Marie aff nafni,
kom í dag frá Miami og dvel
ur nú viff sjúkrabeð manns
síns.
Kjarnorkutilraunir
fordæmdar á þingi SÞ
MMbA
Tillaga Sovétveldisins um
þrískipta framkvæmdastjórn
harðlega gagnrýnd
Almenn umræða um alþjóðamál hafin
New York, 22. sept. (NTB-AFP)
A L LIR ræðumenn við al-
menna stjórnmálaumræðu á
fundi allsherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna í dag lýstu
yfir þeirri skoðun, að tilraun
um með kjarnorkuvopn bæri
að hætta tafarlaust. Einnig
bar mjög á góma skipun
manns til að gegna fram-
kvæmdastjórn samtakanna.
Alþjóffamálin rædd
Almenn umræða um ástandið
í alþjóðamálum, hófst á fundi
allsherjarþingsins í dag. Brazil-
íski fulltrúinn, Alfonso Arinaos
de Melo Franco, mæltist til þess
að samningaviðræður um stöðv-
un tilrauna með kjarnorkuvopn
yrðu teknar upp að nýju þeg-
ar í stað. Varðandi stjórn sam-
takanna sagði hann, að land sitt
Framh. á bls. 23
Argentínumaður |
synti
báöar
leiðir
yfir Ermarsund
FOLKESTONE, 22. sept. —
Argentínski sundgarpurinn,
Antonio Abertondon, hefur
unnið það afrek að synda
fyrstur manna fram og til
baka yfir Ermarsund — án
hvíldar. Hann var rúmar 18
klukkustundir frá Englandi
til frönsku strandarinnar. Að
henni lokinni staldraði hann
rétt við meðan aðstoðarmenn
smurðu líkama hans að nýju.
Síðan hélt hann ótrauður af
stað til baka og tókst að ljúka
sundinu á rúmlega 43 klukku
stundum.
í dag synti Prkistanmaður
inn Daz yfir Ermarsund í
sjötta sinn — og setti nýtt
met. Var hann 10 klukku-
stundir og 35 mínútur á leið-
inni, sem er um stundarfjórð
ungi betri tími en eldra met-
lið. —
Brondt gegn
SÞ í Berlín
BERLÍN, 22. sept. (NTB/Reuter)
— Borgarstjóri Vestur-Berlínar,
Willy Brandt, sagði hér árdegis
í dag, að hann teldi það ekki raun
hæfa tillögu, að flytja aðalstöðv-
ar Sameinuðu þjóðanna til Berlín
ar nú, enda þótt borgin yrði ætíð
reiðubúin til að verða aðsetur al-
þjóðlegra samtaka eða stofnana.
Lýsti borgarstj órinn jafnframt
yfir þeirri skoðun sinni, að íbúar
Vestur-Berlínar yrðu næstu mán
uðina enn að vera undir það bún
ir, að mæta erfiðleikum með still
ingu. — Það væri hins vegar
bjargföst trú sín, að þegar nú-
verandi þróun tæki enda, myndi
skapast nýir tímar frelsis og ör-
yggis, sem gerðu fólkinu kleift
að halda uppbyggingu borgarinn-
ar áfram.