Morgunblaðið - 24.09.1961, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.09.1961, Blaðsíða 14
34 MORCVTS BL ÁÐIb Sunnudagur 24. sept. 1061 Þessar ^læsilegru 3—5 herbergja íbúðir eru til sölu, við Kleppsvegs. Upplýsingar í Pípuverksmiðjunni frá kl. 2—7 í dagf. HANDRIÐALISTAR úr plasti fyrirliggjandi. Stærð: 40x8 mm. Litur: grár, svartur, rauðbrúnn. Verðið mjög hagstætt. Vinnuheimilið að Reykjalundi Aðalskrifstofur Reykjalundi: Sími um Brúarland Skrifstofan í Reykjavík, Bræðraborgarstíg 9, sími 22150 Ný sending Helena Rubinstein snyrtivörur. (Reykjavikur Apóteki) — Sími 19866. Konan mín GUÐRÚN SÆMUNDSDÓTXIR frá Hraunhvammi andaðist í St. Josefsspítala, Hafnarfirði, þriðjudaginn, 19 þ.m. Gunnlaugur Sigurðsson JON ÞORSTEINSSON frá Úlfsstöðum Loðmundarfirði, andaðist á Seyðisfjarðarspítala hinn 21. september. Jarðarför ákveðin síðar. Vandamenn. Útför sonur okkar INGÓLFS VIGNIS fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 26. september og hefst kl. 2 e.h. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Hafnarfirði, 22. september 1961. Rósa Ingóifsdóttir, Guðmundur í. Guðmundsson. Konan mín GUÐRÚN SÆMUNDSDÓTTIR verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, þriðjudaginn 26. sept. kl. 13,30. Gunnlaugur Sigurðsson Maðurinn min nog faðir okkar ÁSGEIR SIGURÐSSON skipstjóri m.s. Heklu andaðist 22. september í Stavanger Eiginkona og börn „AUSTIINI SJÓ“ fjölskyldubifreiðin er langódýrasta bifreið- in í dag, miðað við sína mörgu óvenjulegu eiginleika Kraftmikil vél, 34 hestöfl, gerir bífreiðina viðbragðsfljóta og mjög auðvelda í akstri. Benzíneyðsla er sérstaklega lítil og hefur komizt niður 15% ltr. á 100 km. Hvert hjól er sérstaklega fjaðrað með gúmmíútbúnaði ásamt dempara er gerir bifreiðina stöðuga í beygjum. Verksmiðjuverð AUSTIN SJÖ er kr. 34.115.— og útsöluverð áætlað kr. 102.000,— Sýnishornabifreið væntanleg til landsins snemma í næsta mánuði. Allar nánari upplýsingar hjá Garðar Gíslason hf. Bifreiðaverzlun — Sími 11506 Spónlímingarpressa er til sölu. Pressan er ársgömul með 3 rafmagns- elementum 100 x 220 cm. Sérstaklega hentug fyrir húsgagnavinnustofur og smærri verkstæði. SIGURÐUR ELÍASSON HF. — Trésmiðja Auðbrekku 52 — sími 14306 — Kópavogi. Nr. 24/1961 Tilkynning Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarks- verð á steinolíu og gildir verðið hvar sem er á landinu: Selt í tunnum, pr. líter.......... Kr. 2,33 Mælt á smáílát, pr. líter ....... Kr. 2.80 Söluskattur er iniiifalinn í verðinu. Reykjavík 22. sept. 1961. VerSlagsstjórinn — Reykjavlkurbréf Frh. af bls. 13. 11 ur farið hrollur um lesendur Morgunblaðsins, þegar þeir hafa horft á myndirnar sem teknar voru af honum skömmu fyrir af- tökuna. f>að var brotinn maður, sem þar birtist. En örlögin hrópuðu á blóð og þau hafa fengið það. Enginn veit hverjar afleiðingarnar verða, hvar hefndin bíður eða hvort hún fær að vinna sín verk í fyll. ingu tímans. Gursel hershöfð- ingi hefur sagt, að hann hafi ekki annað í hyggju en koma á raun- verulegu lýðræði í landinu og leysa vandamál þjóðarinnar á lýðræðislegan hátt. Ekki skal það efað. En áreiðanlega verður það verk ekki auðveldara eftir aftöku Menderesar, Bayars forseta og Zorlus, utanríkisráðherra. Að þessum mönnum standa sterk öfl og þau bíða færis. Menderes var mjög dáður af bændum, enda bar hann hag þeirra fyrir, brjósti alla tíð. Og því skal ekki gleymt, að % hluL ar þeirra, sem greiddu atkvæði um nýju stjórnarskrána, voru henni mótfallnir. Menderes var orðinn þjóðsagnapersóna í heima landi sínu, þegar hann lézt. Hann lenti, eins og marga rekur minni til, í hryllilegu flugslysi í Bret- landi, en komst af og tókst að brjótast út úr brennandi flakinu. Það var myrkur. Forsætisráð* herra Tyrklands reikaði um skóg. inn örvita, hrópandi í sífellu; „Hér er Menderes, Menderes forsætisráðherra Tyrklands.** Hróp þetta minnir óneitanlega á Örvæntingaróp annars sigraða valdamanns: „Hest! Hest! Kon- ungdæmi mitt fyrir hest!“ Hvort sem menn eru konung. ar eða einvaldar, hvort sem þeir heita Ríkarður III. eða Menderes, rennur upp sú stóra stund, þeg- ar ókunn rödd segir: Hingað og ekki lengra! En því vildu tyrk- neskir bændur ekki trúa. Þeir héldu að Menderes væri heilagur maður, eftir að hann slapp úr flugslysinu. Og sú þjóðsaga var oft sögð í Tyrklandi meðan hann dvaldist í fangelsinu og beið dóms, að hann riði hvítvængjuð- um hesti frá Jassaida-fangeisinu til Eyup-bænahússins í Istanbul, Sú þjóðsaga var auðmeltari en óþægileg staðreynd. Og í slík. um sögum geta bæði óláns- og illræðismenn fengið uppreisn. Pílagrímsför Áður hefur verið minnzt hér f Reykjavíkurbréfi á afhendingu Ingólfsstyttunnar 1 Noregi. Er ekki úr vegi að ljúka þessu spjalli með svofelldum orðum Bjarna Benediktssonar, þegar hann afhenti styttuna í pílagrím# för íslendinganna til Noregs, Ráðherrann sagði: „Við íslendingar erum tengdir Norðmönnum og Noregi á ótal vegu. Frá Noregi komu forfeður okkar og héðan tóku þeir með sér tungu sína, sem við enn töL um og sízt viljum glata. Hingað sóttu þeir uppistöðu í réttarskip- un sína, sem við enn erum stoltir af. Til íslands fluttu þeir með sér forna, norska menningu, sem í mynd Eddukvæða og frásagna Snorra Sturlusonar er enn hluti af uppeldi okkar og hugarheimi, Umfram allt höfum við fengið að erfðum frá Norðmönnum seiglu, áræði og sjálfstæðisþrá, sem fleytti þjóðinni gegnum ótal margar aldalangar þrengingar og gerði henni að lokum fært að fylgja norsku fordæmi og endur- heimta sjálfstæði sitt og skipa sér í sveit frjálsra þjóða.“ Undir þessi orð tekur íslenzka þjóðin. PILTAR A ef þiá elqfí nnnustum /Æ pS a éq Hrintjána //v/ fájrfá/7 temv/7wion_ /f^/rarr/ 6 \

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.