Morgunblaðið - 26.09.1961, Blaðsíða 1
24 sföur
48. árgangur
217. tbl. — Þriðjudagur 26. september 1961
Prentsmiðja Mor'gunbla3siH9
Johu F. Kennedy
Kennedy
fagnaö
UM 4000 manns fönguðu
Kennedy forseta fyrir utan
aðalstöðvar Sameinuðu þjóð-
anna í New York, þegar
hann kom þangað til þess
að ávarpa Allsherjarþingið á
mánudag. Lögregla sá um að
mannfjöldinn truflaði ekki
umferð. Fyrir bifreið forset-
ans fóru 50 lögreglumenn á
bifhjólum og rétt á eftir
henni fór bifreið öryggis-
varða úr bandarísku leyni-
þjónustunni. Það er mál
manna, að sjaldan eða aldrei
hafi Kennedy forseti verið
einbeittari og hátíðlegi —
en þegar hann flutti þessa
fyrstu ræðu sína á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna.
Framh. á bls. 2.
Ræða Kennedys á Allsherjarþingi £Þ
Vopnunum verður að eyða,
áður en þau eyða okkur
Nýjar tillögur um aivopnun
í áföngum og undir eftirliti
KENNEDY BANDARÍKJAFORSETI flutti í gær fyrstu
ræðu sína á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og komst
þar m. a. svo að orði, að þróun alþjóðamála næstu tíu
mánuðina kunni að gera út um örlög mannkynsins í þús-
undir ára. Hann hvatti Sovétveldið til að keppa með öðr-
um þjóðum að friði í heiminum og lagði fram nýja af-
vopnunaráætlun — þar sem fyrst er gert ráð fyrir
stöðvun kjarnorkutilrauna. Kennedy mælti mjög ákveð-
ið gegn sovézku tillögunni um að fela starf framkvæmda-
stjóra SÞ í hendur þrískiptri framkvæmdastjórn — en
lagði í þess stað til, að leitast yrði við að finna í starfið
mikilhæfan stjórnmálaleiðtoga, sem fær yrði um að beita
viti og valdi til að láta gott leiða af siðferðilegum styrk
þessara alþjóðlegu samtaka.
komulag um fullkomna afvopn-
unaráætlun. Geröi hanin grein fyr
ir tillögum, sem m.a. fóliu í sér
eftirfarcindi sex atriði;
Kennedy forseti lagffi á-
herzlu á þaS, að ef stjóm Sam-
einuðu þjóðanna yrði skipt í
þrennt eða falin nefnd, eða
látin ganga á milli manna,
mundi það leiða til stjórnleys-
is, máttleysis og ringulreiðar
innan samtakanna.
Um Berlínar-vandamálið sagði
forsetinn m.a.: Engin fullikomán
lausn er sjáanleg. Það er ljóst,
að með mannafla Qg vopnum má
um tíma sundra þjóð, sem vill
sameinast, burtséð frá því, hve
hyggileg slík stefna væri. En
við trúum þvi, sagði Kennedy,
að unnt sé að finna friðsamlega
lausn, sem tryggir frelsi Vestur-
Berlínar og öryg.gi álfunnar.
Vopnunum verður að eyða
í þeim kafla ræðunnar, sem
fjallaði um hinar nýju afvopn-
unartillögur, sagði Kennedy m.a.,
að eins og ástandið væri í heim-
inum yrði sérhver maður að horf
ast í augu við þann möguleika,
að einn góðan veðurdag yrði ekki
lengur fært að búa á jörðunni.
Vopnum stríðsins verður að
eyða, áður en þau eyða okk-
ur, sagði forsefinn. Ekki mætti
lengur láta einskæran áróður
um almenna og fullkomna af-
vopnun hindra það, að fyrsta
skrefið í áttina til afvopnun-
ar yrði stigið.
Stöðvum kjarnorkutilraunir
Kennedy gerði það að tillögu
sinni, að viðræður um afvopnun
yrðu hafnar að nýju þegar í
stað og þeim haldið áfram stanz-
laust, þar til náðst hefði sam-
»%*■
Hugsuðum bara
um að lifa og ausa
V I Ð erum búnir að jafna
okkur, a. m. k. líkamlega,
sagði Helgi Símonarson, annar
skipsbrotsmanna af Helga frá
Hornafirði, er Mbl. liafði sím-
tal við hann um borð í Heklu
í gær. Hún var þá skammt
uiiitlan Dyrhólaey.
A
— Við lágum í rúminu i
sex daga, fyrst með töluverð-
an hita. En við fengum góð
lyf og vorum fljótir að ná
okkur, því hvorugur okkar
hafði fengið lungnabólgu eða
annað ámóta alvarlegt.
— Okkur varð aldrei ofsa-
lega kalt, þó við værum fá-
klæddir. Og enda þótt við vær
um nær sólarhring í gúmmí-
bátnum og veðrið vont, vorum
viö önnum kafnir að ausa all-
an tímann, jusum með höndun
uin. Um annað var ekki að
læöa.
&
— Það var að vísu hráslaga-
legt í hæsta máta að koma
Helgí Símonarson
fyrst í sjóinn. Þetta bar svo
brátt að. Við stukkum allir
eins og við stóðum, flestir
fremur fáklæddú. Það, gekk
greiðlega hjá okkur öllum að
komast á kjölinn á Helga. En
hafrótið var mikið og það
braut stöðugt á kjölnum. Rok-
ið var svo mikið, að við réðum
ekki við neitt. — Skipið var
svo að segja tómt, Htil „bal-
lest“. Nokkrir kartöflupokar, ,
held ég.
— Við Gunnar Ásgeirsson,
sem komust í björgunarbát-
inn, gátum komið tjaldinu yf-
ir bátinn — og þó að hann
fyllti nokkrum sinnum gátum
Framhald á bls. 23
1)
2)
3)
4)
5)
6)
Allar þjóðir undirskrifi einn
og sama samning um stöðv-
un tilrauna með kjarnorku-
vopn. Megi gera það, án
þess að bíða eftir að af-
vopnunarviðræður hefjist.
Framleiðsla kjarnakleyfra
efna til smíði kjarnorku-'
vopna verði stöðvuð, og þau
ríki, sem ekki hafa byrjað
slíka framleiðslu fái ekki
umráð yfir efnum þessum.
Bann verði sett við afhend-
ingu kjarnorkuvopna til
ríkja, sem ekki framleiða
slík vopn sjálf.
Kjarnorkuvopn verði hvorki
beint né óbeint notuð þann-
ig, að af þeim leiði tilkomu
nýrra vígstöðva úti í himin-
geimnum.
Birgðum kjarnorkuvopna,
sem nú eru til, verði smám-
saman eytt og þau efni, er
þannig fást til ráðstöfunar,
verði hagnýtt í friðsamleg-
um tilgangi.
Tilraunir og framleiðsla á
eldflaugum fyrir kjarnorku-
sprengjur verði stöðvaðar,
og slíkar birgðir einnig
eyðilagðar.
Dag Hammarskjöld
I
Kennedy lagði áherzlu á það,
að ekiki væri nóg að eyðileggja
vopnin. Um leið yrði að koma á
föstum lagareglum er tækju til
heimsins alls og gera ráðstafanir
til að fylgjast með því, að slíkutm
reglum yrði fylgt.
Forsetinn mæltist til þess af
Sovétveldinu, að það keppti með
öðrum þjóðum að eflingu friðar
í heiminum og gengi lengra í
þá átt nú en áður.
Friði ógnaS
Kennedy sagði að eins og sak-
ir stæðu væri heimsfriðnum ógn
að á tveim stöðum, í Suðaustur-
Asíu, þar sem þegar hefði verið
ráðist á Suður-Vietnam, og í
Berlín, þar sem friðurinn væri í
hættu af því að gildandi samn-
ingar væru virtir að vettugi. Á-
stæðan til hins alvarlega ástands
í Berlín er sprottin af ógnunum
við óyggjandi réttindi Ve&turveld
anna og skyldur þeirra — svo og
frelsi borgarinnar.
Möguleikarnir á viðræðum um
Berlínar-málið eru nú í athugun
og er Of snemmt að segja til um,
hverjir þeir í raun og veru eru.
Bandaríkin munu fyrir sitt leyti
fagna því, ef unnt verður með
tíð og tíma að tilkynna, að sam-
komulag um lausn hafi náðst.
— Ef þeir, sem skapað hafa
Greinar
eftir
Hammar-
skjöld
Á BLS. 10 í blaðinu í 1
dag birtist grein eftir
Dag Hammarskjöld, hinn
nýlátna framkvæmdastj.
Sameinuðu þjóðanna. —
Nefnist greinin „Hvað
lífið hefur kennt mér“,
en næstu daga munu
birtast hér í blaðinu
nokkrar greinar eftir
; Hammarskjöld.
þetta vandamál, kjósa frið,
mun friður ætíð rikja í Berlin,
sagði Kennedy forseti.
ÖRLÖG MANNKYNS RÁÐIN
Það var með alvörusvip,
sem forsetinn lýsti yfir: —
Þær samþykktir og ákvarð-
anir, sem teknar verða á
næstu 10 mánuðum, kunna
að gera út um örlög mann-
kynsins næstu tíu þúsund ár-
in. Það gagnar ekki að hlaup
ast burt frá þessum ákvörð-
unum og það er gagnslaust
að breyta þeim eftir á.
— Eftirkomendur okkar
munu annað hvort minnast okk
ar sem kynslóðarinnar, sem
umskapaði heiminn og gerði
hann að einu eldhafi, eða sem
kynslóðarinnar. sem stóð við
heit sín um að bjarga framtíð
mannkynsins. — Ég lofa því, að
Bandaríkin muni gera sitt ítr-
asta til að efna þetta heit. Ég
fullvissa yður um, að Bandarík-
in munu aldrei hefja árás eða
framkalla árás með ögrunum,
að við munum aldrei láta undan
ógnunum eða sjálfir hafa í
frammi ógnanir um valdbeit-
Framh. á bls. 2.