Morgunblaðið - 28.09.1961, Side 1
24 sfður
48. árgangur
219. tbl. — Fimmtudagur 28. september 1961
Prentsmiðja MorrrunblaSsins
Hvernig verður
v.-þýzka stjórnin?
Adenauer virðist reyna að knýja fram
imdanslátt frjálsra demókrata með
viðræðum við jafnaðarmenn
Bonn, 27. september.
(NTB/Reuter)
TALSMAÐUB Kristilega
demókrataflokksins sagði í
dag, að Adenauer kanslari
hafi lýst því yfir, að hann
œtli að taka upp viðræður
við frjálsa demókrata um
stjórnarmyndun. Adenauer
hefði einnig ítrekað, að hann
mundi áfram verða forsætis-
ráðherra — og hefði hann í
því tilliti einhuga stuðning
þingmanna flokks síns.
Talsmaðurinn sagði, að
Adenauer hefði ekki fengið
neitt umboð frá flokki sín-
um til að semja við jafnað-
armenn um þátttöku í sam-
steypustjóm — en engin
samþykkt lægi heldur fyrir
um bann við samstarfi við
jafnaðarmenn.
Fyrr í dag hafði formæl-
andi Frjálsa demókrata-
flokksins í Bonn látið svo
um mælt, að nú virtust
nokkrar líkur til, að
stjórnarsamstarf kynni að
takast með kristilegum demó
krötum og jafnaðarmönnum
— en viðræður þessara
flokka hófust í gær. — Tals-
maðurinn bætti því við, að
jafnaðarmenn virtust ætla
sér að komast í stjórn, hvað
sem það kostaði.
Það vekur athygll, að Aden-
auer hefir kosið að ræða fyrst
við jafnaðarmenn, þrátt fyrir
það, að flokkur hans hefir alltaf
miðað við, að samningar væru
fyrst reyndir við frjálsa demó-
krata. — Telja stjórnmálasér-
fræðingar, að það hafi verið
bragð Adenauers til þess að
reyna að buga andstöðu frjáisra
demókrata gegn því, að hann
gegni áfram kanslaraembættinu.
Hinir síðarnefndu ítreka þó svo
að segja daglega, að þeir vilji
ekkert með Adenauer hafa að
gera.
Hættið að leika með
kjarnorkueldinn
Galvao skýtur
upp kollinunt
Kasablanka, 27. sept.
ENRIQUE Galvao, sem frægur
varð fyrir að ræna portúgalska
lúxus-skipinu „Santa Maria“,
snemma á þessu ári, kom hingað
í dag frá París. — Ekki vildi
hann segja fréttamönnum neitt
um erindi sitt, en kvaðst mundu
verða okkra daga í Marokkó.
sagði Home lávarður, utanríkisráðherra
Bretlands, við Rússa á Allsherjarþinginu
Sameinuðu þjóðunum,
New York, 27. september.
(AP—NTB/Reuter)
AÐALRÆÐUMAÐUK á Alls
herjarþinginu í dag, er það
hélt áfram umræðu um al-
þjóðamál, var brezki utan-
ríkisráðherrann, Home lávarð
ur, og kom haiin víða við í
ræðu sinni.
t Ráðherrann beindi ýms
um skeytum að Sovétríkjun-
um — sagði m. a., að þau
„lékju sér að kjarnorkueld-
inum“ með því að æsa bróð-
ur gegn bróður, hvenær sem
færi gæfist. I’á ásakaði Home
Rússa fyrir að hafa leikið
hinn kraklegasta hráskinna-
leik í viðræðunum um bann
við kjarnavopnatilraunum —
og beindi þeirri spurningu
til hinna svoncfndu hlut-
lausu ríkja, hvort þau hefðu
Aðstoð við erlend riki
Washington, 27. sept.
(NTB-AFP).
BANDARÍKJAÞING I a u k
störfum snemma í dag, eftir að
báðar deildir höfðu afgreitt
frumvarp forsetans um aðstoð
við erlendar þjóðir. Niðurstað
an varð sú, að samþykkt var
að veita alls rúmlega 4 mill-
jarða dollara til slíkrar aðstoð-
ar á þessu ári — en það er
hálfum milljarði dollara
minna en Kennedy forseti
hafði farið fram á. — Hins
vegar féllst þingið nú á, að
ákveða megi aðstoð við er-
lend ríki til fimm ára I senn
(þó skal áætlunin endurskoö-
uð áriega), en hingað til hefir
aðeins verið fjallað um slík
mál fyrir eitt ár í einu.
Bandaríkjaþing hefir nú set-
ið lengur en-nokkru sinni, síð-
an í Kóreustyrjöldinni, árið
1951. Þá varð fundum eigi lok-
ið fyrr en 20. október. Þingið
kemur saman á ný 10. janúar
næstkomandi.
verið jafnhófsöm í gagnrýni
sinni, ef vesturveldin hefðu
orðið fyrri til að hefja til-
raunasprengingar og dreifa
þannig atóm-helrykinu um
víða veröld.
t Home lávarður skoraði
á Rússa að hefja samvinnu
við vestræn ríki til trygg-
ingar friði — „með því að
efla heildarvilja Sameinuðu
þjóðanna, í stað þess að
reyna að knýja áfram sinn
þríeykisvagn“.
t Um Berlínar- og Þýzka-
landsmálin sagði ráðherrann
m. a., að Brctar mundu
leggja hart að sér til að ná
samkomulagi — en sérhver
lausn yrði að vera byggð á
grundvelli sjálfsákvörðunar-
Norrænt landnám
á Nýfundnalandi
Kaupmannahöfn, 27. sept.
(Einkaskeyti frá
Páli Jónssyni)
BERLINGSKE Tidende segir þá
frétt, að norskur rannsóknarleið-
angur, undir stjórn fornfræðings-
ins Helge Ingstad, telji sig hafa
fundið sannanir fyrir því, að nor-
rænir menn hafi búið á norður-
strönd Nýfundnalands um árið
1000. Hafa leiðangursmenn fund-
ið leifar sjö húsa um 16 km. vest
an við Bauld-höfða, sem þeir telja
að verið hafi bústaður nprrænna
manna.
réttar Þjóðverja, hvar í land
inu sem þeir hyggju.
— ★ —
Home lávarður hrósaði af-
vopnunartillögum Kennedys, sem
hann kallaði „áhrifamiklar“, —
og hvatti til, að þær yrðu lagð-
ar tii grundvallar nýjum af-
vopnunarviðræðum, annaöhvort
i 10 þjóða hópnum, sem sótti
afvopnunarráðstefnuna siðustu
og Rússar ruku burt af á af-
drifaríku andartaki, eða í enu
víðari þjóðahóp.
★ sjAlfsákvörðunar-
RÉTTURINN
— Það er svo sem ekkert
undarlegt, þótt suma fýsi að gera
breytingar á samningi, sem er
15 ára gamall, sagði Home, er
Framhald á bls. 23.
ENN tekst einum og einum
að Iosna við „austursæluna“
og komast yfir til Vestur-
Berlínar, þrátt fyrir gadda-
vírsgirðingar, steinmúra og
nauðungarflutninga fólks burt
frá borgarmörkunum að aust-
anverðu. — t gær hermdu
t. d. fregnir, að a. m. k. sjö
manns hefði tekizt að flytja
vestur yfir mörkin — um há-
daginn.
Meðfylgjandi mynd sýnir
tvö atriði þess harmleiks, sem
sifellt er að gerast á mörkum
Austurs og Vesturs í Berlin.
— Til vinstri sést hvar a-þýzk
ir lögreglumenn (að ofan) og
ínefndur vestanmaður togast
á um 77 ára gamla konu, sem
reyndi í örvæntingu að klifra
út um gluggann á íbúð sinni
til að forðast að vera flutt
nauðug á brott. Hún má
þakka hinum nafnlausa
tnanni, sem togaði í fætur
hennar, að hún hlaut frelsið.
Til hægrj sést hvar önnur
kona, fimmtug að aldri, stökk
aiður í net slökkviliðsmanna
á öðrum stað í horginni, rétt
iður en „alþýðulögreglan"
greip hana til að flytja hana
eitthvað austur á bóginn ..
Tsjombe kveðst vilja
semja við Adoula
Segist nú aðeins bíða svars
hans við tilboði sínu
Elisabethville, 27. sept.
(NTB/Reuter)
TSJOMBE, Katangaleiðtogi,
skoraði í dag á Cyrille Ad-
oula, forsætisráðherra mið-
stjórnar Kongó í Leopold-
ville, að koma til viðræðna
við sig á hlutlausu lands-
svæði, með það að markmiði
að ryðja úr vegi öllum á-
greiningsmálum hinna 2ja
stjórna. — Ég skora jafn-
framt á alla velviljaða menn
að veita mér lið við að koma
á slíkum fundi, sagði Tsjom-
be á blaðamannafundi, — og
ég vænti þess, að við (hann
og Adoula) munura finna
lausn, sem allir megi vel við
una. —
Tsjombe sagði, að enda þótt
stjórn sín hefði nú mjög sterka
aðstöðu eftir úrslit þardaganna
við lið SÞ í Katanga, vildi hann
leggja áherzlu á ósk sína um
„samninga við hina kongósku
bræður mína — án utapiaðkom-
andi íhlutunar". — „Því bið ég
Adoula forsætisráðherra að hitta
mig á hlutlausu svæði, og bíð
ég nú svars hans“.
í dag var það haft eftir heim-
ildum, sem standa Tsjombe
Framh. á bls. 2.