Morgunblaðið - 28.09.1961, Síða 8
8
MORCVNBLAÐ1Ð
Fimmtudagur 28. sept. 1961
Bretar 09 Efnahagsbandalagið:
Hagsmunir samveid-
isins í fyrirrúmi
Undirbuningsfundur um aðild Breta
11.-12. okt
London og Briissel, 27. sept.
DUNCAN Sandys, nýlendu-
málaráðherra Bretlands, tjáði
fulltrúum á þingmannafundi
brezka samveldisins í gær
að ríkisstjórn sín muni ekki
semja um aðild að Efnahags-
bandalagi sexveldanna, ef
það eigi að kosta það að
rjúfa eða spilla tengslunum
við samveldislöndin. Fyrsta
* skilyrðið væri að tryggja
sameiginlega hagsmuni sam-
veldisins — aðild Breta að
bandalaginu væri háð því,
að sér-samningar tækjust
um það. Var þessum um-
mælum ráðherrans mjög
fagnað á fundinum.
Á ráðherrafundi sexveldanna
f Brussel í gær var formlega
fagnað umsókn Breta um aðild
að Efnahagsbandalaginu — og
náðist samkomuiag um bréflegt
Svar til Bretastjórnar við um-
sókninni, og barst það Macmill-
an í dag. 1 því er fulltrúum
Breta m. a. boðið til undirbún-
ingsviðræðna um samninga dag-
ana 11. og 12. október n.k. í
París. — Á þeim fundi eru
Bretar beðnir um að gefa
endanlegt yfirlit um öll helztu
vandamál sín varðandi inn-
göngu í bandalagið, m. a. um
Samsæti
til lieiðurs forseta
Vancouver, 24. sept.
ÍSLENZKI kvennaklúbburinn
hélt forseta íslands og frú sam-
sæti í Victoria í gærkvöldi og
sóttu það um 70 manns. Auk for-
seta fluttu ræður í hófinu Jón
Sigurðsson ræðismaður í Vancou-
ver, Jakobína Johnson og Sófoní-
as Þorkelsson. í morgun heim-
sóttu försetahjónin fræga blóma-
garða hér og snæddu síðan há-
degisverð í boði Pearches fylkis-
Stjóra. Meðal gesta voru Bennet
forsætisráðherra British Colum-
bia, aðrir ráðherrar, borgarstjór-
ar Victoria og Vancouver. Um
kvöldið var haldið fjölmennt sam
sæti, sem íslendingar í Vancouver
og Kaliforníu gengust fyrir. —
— Magnússon
afstöðuna til Friverzlunarbanda-
lagsins, brezka samveldisins og
til vandamála landbúnaðarins.
Endanlegur samningafundur
verður að líkindum haldinn í
Brussel fyrrihluta nóvember, ef
allt gengur samkvæmt áætlun
og engin snurða hleypur á þráð
inn. — Ráðherranefnd sexveld-
anna hefur einnig fagnað um-
sókn Dana um aðild að Efna-
hagsbandalaginu. írska lýðveld-
ið, sem er þriðja ríkið, er form-
lega hefur sótt um aðild að
bandalaginu, er aftur á móti
talið hafa þá sérstöðu, að rétt-
ara sé að miða við, að það verði
aukameðlimur — svo sem nú
hefur verið samþykkt varðandi
Grikkland.
KBISTILEGA stúdentamót
ið í Vindáshlíð hefst á
Iaugardaginn og stendur
til mánudags. Þegar hafa
40—50 stúdentar tilkynnt
þátttöku sína. Eins og get-
ið var í Mbl. um síðustu
helgi mun norskur stúd-
entaprestur, Leif M. Mic-
helsen, verða aðalræðu-
maður mótsins — en hann
mun síðan dveljast hér í
Reykjavík um skeið og
tala á fundum og samkom-
um í byrjun næsta mán-
aðar. Myndln, sem hér
birtist, er frá mótsstaðn-
um, Vindáshlíð. Kirkjan
er sú hin sama og áður
stóð á Saurbæ á Hvalfjarð
arströnd. Þar verður hald-
in guðsþjónusta á sunnu-
daginn. Fjær sést skáli
KFUK, þar sem aðrar
samkomur mótsins verða
haldnar.
Símstöðvarstjórar fagna fram-
kvæmdaáætlun póst- og
málastjórnarinnar
sima-
FÉLAG símstöðvarstjóra, sem er
deild í Fél. ísl. símamanna, hélt
sinn árlega fund á Blönduósi, dag
ara 25. Og 26. ágúst s.l.
Deildin sem nær yfir allt land-
ið, heldur fundi sína til skiptis
á hinum ýmsu stöðvum út um
land. Að þessu sinni varð Blöndu
ós fyrir valinu, enda var þetta 20
ára afmælisfundur og hafði fyrsti
fundur verið haldinn á þessum
sama stað. í fyrstu vöru samtök
þessi sjálfstæður félagsskapur, en
með náinni samvinnu við Fél. ísl.
símamanna, en fyrir 5 árum sam-
einaðist það aðalfélaginu og starf-
ar nú sem deild í því. Fyrstu
stjórn þess skipuðu, Karl Helga-
son, Blönduósi, Hjálmar Hall-
dórsson, Hólmavík og Þorkell
Teitsson, Borgarnesi. Núverandi
stjórn þess skipa Jón Tómasson,
Keflavík, Karl Helgason, Akra-
nesi og Sigríður Pálsdóttir, Hvera
gerði.
Á fundinum mættu nú nær
helmingur félagsmanna, eða um
40% og telst það sérlega gott mið-
að við hina dreifðu aðstöðu.
Form. F.Í.S. Sæmundur Símonar-
son, Reykjavík, mætti einnig á
fundinum og gaf skýrslu um ýms
mál, sem félagið vinnur nú að
fyrir deildina.
íslenzkir námsmeiin
hljóta hollenzkan styrk
1 FYRRAHAUST var frá því
greint i' fréttum, að hollenzkur
maður, dr. J. E. Quintus Bosz,
fyrrum ræðismaður íslands og
Danmerkur í Surabaja í Indó-
nesíu, hefði stofnað sjóð til
minningar um son sinn, er ætl-
að væri að styrkja hollenzka,
danska og íslenzka menn til
rannsókna á sviði lífefnafræði,
lyfjafræði og næringarefna-
fræði hitabeltislanda, og veita
verðlaun fyrir árangur í þess-
um fræðigreinum. Úthluta má
úr sjóðnum allt að þremur
styrkjum árlega, er samtals
nema 5.000 gyllinum, en það
jafngildir nær 60.000 íslenzkum
krónum. Sjóðssjórn, sem skipuð
er fjórum Hollendingum, ákveð
Ur hverjir styrki skulu hljóta.
Ákveðið var að styrkfé það,
sem úthlutað yrði 1961, rynni
allt til íslenzkra umsækjenda,
þar sem íslendingum hafði ekki
áður gefizt kostur á að sækja
um styrki úr sjóðnum. Styrki
hlutu þeir Jóhann Axelsson,
lífeðlisfræðingur, og Vilhjálmur
Skúlason, lyfjafræðingur.
Við næstu úthlutun mun
verða valið úr umsóknum frá
ofantöldum þremur löndum. ís-
lenzkir umsækjendur skuli um
eitthvert skeið hafa stundað
nám við Háskóla Islands. Um-
sóknir skulu sendar mennta-
málaráðuneytinu fyrir 1. febr.
nk. Umsókn fylgi upplýsingar
um náms- og starfsferil, stað-
fest afrit af prófskírteinum,
meðmæli háskólakennara og ýt-
arleg greinargerð um rannsókn-
arstörf, sem umsækjandi kann
að hafa unnið. Æskilegt er að
umsóknir séu ritaðar á ensku.
Félagsdeildin hefir ætíð unnið
tvíþætt, bæði að hagsmunamál-
um félagsmanna og einnig að
bættum kjörum starfsfólks þess-
ara stöðva. Einnig hefur hún lát-
ið sig varða skipulagsmál stofn-
unarinnar og sett fram sín sjón-
armið á ýmsu er snert hafa rekst-
ur hennar. Fundurinn gerði sam-
þykktir um ýms mál, m. a. þessi:
Fundurinn fagnar þeim stór-
hug sem lýsir sér í hinni yfir-
gripsmiklu framkvæmdaáætlun
póst og símamálastjórnar, sem nú
hefir verið samin og þakkar þeim
aðilum, sem að henni hafa unnið.
Félagið mun með samtökum sín-
um veita þessu stórmáli stuðning
sinn, eftir því sem unnt er, svo
að áætlun þessi takist.
Fundurinn lítur svo á, að til
þess að opinber rekstur geti innt
af hendi þá þjónustu sem hon-
um er ætlað, þurfi hann að geta
orðið samkeppnisfær um beztu
starfskrafta við einkareksturinn.
Því séu launamál starfsmanna rík
isins ekki leyst með því einu, að
hækka laun þeirra um 13,8%, svo
langt sem þeir hafa dregizt aftur
úr miðað við aðrar stéttir þjóð-
félagsins. Fundurinn telur núver-
andi launalög algjörlega óviðun-
andi og þar gæti hins mesta ósam
ræmis. Sé því aðkallandi að taka
þau nú þegar til endurskoðunar,
þar sem fyllsta tillit sé tekið til
hinna mismunandi ábyrgðar-
starfa. Það verður að teljast óeðli
legt að ýmsar stofnanir í landinu,
sem á beinan eða óbeinan hátt
heyra undir ríkisrekstur, eða
njóta sérstakra fríðinda af opin-
berri hálfu, samræmi ekki launa
greiðslur og rekstur hliðstætt því
sem gildir hjá opinberum aðilum.
Telur fundurinn því eðlilegt, að
t. d. Hagstofa íslands safnaði
launaskýrslum allra ríkisstofn-
ana, með það fyrir augum, að
vinna úr þeim til launasamræm-
ingar.
Fundurinn leggur áherzlu á, að
stjórn B.S.R.B. beiti sér fyrir því,
að viðurkenndur verði á næsta
Alþingi samningsréttur allra opin
berra starfsmanna.
Útaf skrifum eins dagblaðanna
í Reykjavík á s.l. vetri, samþykkti
fundurinn svohljóðandi ályktun:
Fundur símstöðvastjóra á 1. fL
B. stöðvum vill enn á ný og að
geínu iilefni víta harðlega þá
blaðamennsku, sem enn hefir ver
ið viðhöfð gagnvart starfsmönn-
um þessarar stofnunar og fram
kom í grein Alþýðublaðsins 10.
marz s.l. undir fyrirsögninni:
Frumlegur fjárdráttur. Þar sem
rakaiausar dylgjur eru viðhafðar
Og sýniiega einungis sem æsiefni
á hinn tillitslausasta hátt. Er það
lágmarkskrafa til ritstjórna ís-
lenzkra blaða, að þær kynni sér
málin áður en slíkar fréttir eru
birtar.
Allar þessar ályktanir voru
samþykktar í einu hljóði.
Bridgefclag
Hafnarfjarðar
AÐALFUNDUR Bridgefélags
Hafnarfjarðar var haldinn í Al-
þýðuhúsinu 20. sept. sl. Kosin var
ný stjórn á fundinum, en hana
skipa: Form. Sveinn Bjarnason,
varaform. Guðm. Finnbogason,
ritari Ólafur Bergþórsson, gjald-
keri Ögmundur Haukur og áhalda
vörður Sveinbjörn Pálmason.
Þess má geta að starfsemi fé-
lagsins hefst í kvöld með ein-
menningskeppni. Spilað er í Al-
þýðuhúsinu á hverju miðviku-
Uagskvöldi og hefst keppnin kl.
8.
Nómsflokkor
Beykjavíkur
INNRITUN í Námsflokka Reykja
vikur hófst mánudaginn 25. sept-
ember og er innritað i
1. stofu í Miðbæjarskólanum kL
5—7 og 8—9 s.d. Námsgreinar
eru að mest öllu leyti þær sömu
og áður, en tekin verður upp
foreldrafræðsla. þar sem rætt
verður um uppeldi barna fram
að 7 ára aldrí’ og umgengni við
þau, kenndir leikir og notkun
ieiktækja ásamt föndri við hæfi
barna undir ^skólaskyldualdri.
Gert er ráð fyrir að þessi flokk-
ur verði á miðvikúdögum kL
9-10.30 (aðéins einu sinni í vikuy.
— Framhaldsflokkar verða i
frönsku og spönsku. Bætt verður
við 4. fl. í þýzku. í þeim flokki.
svo og í 5. og 6. fl. í ensku, fer
kennslan fram á hinu erlenda
máli. Nokkrar talæfingar verða
í ýmsum öðrum flokkum (t. d. 3.
flj í ensku, 1. fl. í dönsku). Aðr.
ar námsgreinar eru: íslenzka,
reikningur, bókfærzla, algebra,
sálarfræði, skrift, föndur, kjóla.
saumur, barnafatasaumur, snið-
teikning og vélritun ( f vélritun
verður framhaldsflokkur fyrir
þá, sem lært hafa vélritun a. m. k.
1 vetur áður).
Kennslugjald er ekkert nema
innritunar’gjaldið, sem er kr.
40,00 fyrir bóknámsflokkana og
kr. 80,00 fyrir verknámsflokka
(saumaflokka, föndur, sniðteikn
ingu og vélritun, — í vélritunar.
tímunum verða ritvélar til af.
nota, en þátttakendur geta ekki
fengið þær lánaðar heim).
Nehrú vill ekki
taka við af
Hammarskjöld
Nýju Dehli, 26. sept.
(NTB-Reuter)
NEHRÚ, forsæfisráðherra Ind-
lands, lét svo um mælt í dag, að
ekki fýsti sig að verða eftirmaður
Dags Hammarskjölds sem aðal-
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna.
Það var í veizlu í Nýju Delhi,
að Nehrú var spurður, hvað hann
vildi segja um þær tillögur, sem
fram hafa komið, um að hann
verði skipaður framkvæmdastjóri
SÞ. Nehrú svaraði aðeins: — Það
mundi ég alls ekki vilja (að taka
við stöðunni).
(Barry Goldwater, einn af leið-
togum repúblikana í öldunga.
deild Bandaríkjaþings, lýsti í dag
vantrausti á Nehrú sem heppi.
legum framkvæmdastjóra SÞ, að
því er segir í frétt fr^ AP-frétta.
stofunni. „Hann yrði sífellt að
tvístíga," sagði Goldwater.).
Axel Skúlason klæð-
skerameístari 60
SL. LAUGARDAG varð einn
þekktasti klæðskerameistari
þéssa bæjar, Axel Skúlason, 60
ára. Hefur hann unnið við
klæðaverzlun Andrésar Andrés-
sonar í 46 ár að einu ári undan
skildu.
Hann byrjaði 14 ára sem sendi
sveinn. Koim strax í ljós hand-
lagni, stundvísi og öll háttsemi
sem ungan svein mátti prýða.
Eftir stuttan tíma hóf hann klæð
skeranám hjá fyrirtækinu, eftir
þann tíma vann hann um nokk-
urra ára skeið sem klæðskera-
sveinn en fór um eins árs tíma
til Kaupmannahafnar að afla sér
meiri þekkingar á því sviði og
gekk á tilskurðarskóla samhliða.
Um margra ára skeið hefur
hann staðið fyrir 1. fl. vinnu í
klæðskeradeildinni og unnið sér
traust viðskiptavina og þeirra er
reka það fyrirtæki. Á þessum
tímamótum vil ég þakka af alhug
þessum frænda mínum og vini
trausta vináttu og mikið starf um
ara
margra ára skeið.
Að eðlisfari er Axel hlédræguir
en því traustari þegar á reynir.
Það hef ég bezt fundið þau 46
ár, sem við höfum oft sópið súrt
og sætt saman í þessari eilifu bar-
áttu, sem maður verður að heyja
þegar forðabúrið er ekki stórt,
hugurinn hleypur um efni frann
stundum, en með aðstoð góðra
starfskrafta og tryggrar vináttu
hefur sigiur fengizt á þessari nú
orðinni löngu göngu.
Axel á gott og fallegt heimili í
Úthlíð 3, góða konu og þrjú mjög
efnileg börn. Á svona tímamótum
vakna endiurminniingar og fyllist
þá hugur minn þakklæti og bless
unaróskum, að þú kæri Axel, fáir
yfirstigið þann lasleika, er hefur
bagað þig um nokkur ár og þú
fáir að njóta þess góða er þitt
heimili hefur þér að bjóða tugi
ára lengur.
Lifðu heill, frændi og vinur.
Andrés Andrésson