Morgunblaðið - 04.10.1961, Page 1
4
24 sfður
48. árgangur
224. tbl. — Miðvikudagur 4. október 1961
Prentsmiðja Mo gnnblaðslns
Skora á Egypta
að steypa Nasser
Damaskus, 3. ökt. (NTB-AP)
ERLENDIR fréttamenn eru
nú komnir til Damaskus, en
þeim var fyrst eftir bylting-
una í fyrri viku bannað að
ferðast þangað. Meðal frétta-
manna sem komnir eru til
borgarinnar er John Organ
frá fréttastofu Reuters og
símar hann í dag að allt sé
með kyrrum kjörum í borg-
inni og ástandið að komast
I eðlilegt horf. Útgöngubann
hefur verið í borginni að
næturlagi, en hefur nú verið
stytt úr 12 tímum í fjóra.
Útvarpið í Damaskus sendi
f dag út áskorun til egypzku
þjóðarinnar um að gera bylt-
ingu gegn Nasser forseta og
endurreisa einingu Araba.
Tuttugu stjórnmálaleiðtog-
ar í Sýrlandi, sem áður
studdu sameiningu landsins
og Egyptalands, hafa lýst
yfir stuðningi við núverandi
ríkisstjórn.
ÁGENGNI EGYPTA
Zahreddin hershöfðingi, yfir-
rnaður sýrlenzka hersins,, átti í
dag fund með erlendum frétta-
mönnum. Sagði hann að meðan
Sýrland var í sambandslýðveld-
inu hafi Nasser sífellt tmnið að
því að bola sýrlenzkum herfor-
ingjum úr ábyrgðarstöðum í
hernum og koma Egyptum að í
þeirra stað. Með þessu áfranr
haldi hefðu brátt engir Sýr-
lendingar verið eftir í hernum,
sagði Zahreddin. >á skýrði hers
höfðinginn frá því að Egyptar
hafi sent hergögn fyrir tiu mill
jónir sýrlenzkra punda frá Sýr-
landi tii Egyptalands.
HLUTIÆYSX
Dr. Momoun Kuzbari forsætis
ráðherra hélt einnig blaðamanna
fund í dag. Sagði hann að Sýr-
land mundi taka upp hlutleys-
isstefnu, og hét því að efnt
skyldi til almennra, frjálsra
kosninga í landinu innan fjög-
urra mánaða. Forsætisráðherr-
ann kvaðst mótfallinn þjóðnýt-
ingarstefnu og sagði að fyrir-
tæki, sem fyrri stjórn landsins
þjóðnýtti, yrðu aftur afhent
fyrri eigendum.
★
í kvöldútvarpi frá Damaskus
Frh. á bls. 2
Jarlinn at
Snowdon
Löndon, 3. okt. (NTB—AP).
iANTHONY Armstrong Jones,
eiginmaður Margrétar prins-
essu systur Bretadrottningar,'
'var aðlaður í dag. Hlaut hann*
nafnið jarlinn af Snowdön.
Jarlinn af Snowdon og Mar-
i grét prinsessa eiga von á barni
'#í þessum mánuði. Verði það
[Jsonur, hlýtur hann nafnbótina
^Linley greifi, en það nafn fylg
ir einnig jarlstign föðurins. Ef,
>það verður dóttir, nefnist húr
> lafði Armstrong Jones.
Margrét prinsessa nefnis
hér eftir Hennar konunglega
tign Margrét prinsessa, greifa-j
‘frú af Snowdon.
Snowdon er nafn á hæsta
fjalli Wales og talið að það
Íhafi verið valið vegna tengsla
Armstrong Jones fjölskyld-
unnar við Wales. Nafnið
.Linley er úr móðurætt Arm-j
strong Jones.
Enn flýja þeir sæluna
3Vi milljón Ausfur Þjóðverja hafa
fluið til V. Þýzkalands frá 1950
Northeim og Duderstadt,
Vestur-Þýzkálandi, 3. okt.
— (NTB — AP) —
FIMMTÍU og fimm manna
hópur Austur-Þjóðverja flýði
nótt yfir landamærin til
Vestur-Þýzkalands og kom-
ust allir heilu og höldnu til
borgarinnar Duderstadt. Á
flóttanum voru mennirnir
samanbundnir eins og fjall-
göngumenn til þess að eng-
inn villtist á leiðinni, en
börnum og gamalmennum
var komið fyrir í hestvagni.
Á hestvagninum var hús-
gögnum staflað umhverfis
flóttafólkið til að verja það
skotum landamæravarða, ef
til kæmi, en hófar hestanna
voru vafðir tuskum til að
ekki heyrðist í þeim á leið-
inni.
ÓTTUÐUST BROTTFLUTNING
Flóttafólkið var allt frá þorp
inu Böseckendorf í Austur Þýzka
landi, skammt austan við Duder-
stadt í Vestur Þýzkalandi. Óttuð-
ust þorpsbúar brottflutning til
samyrkjubúa, því yfirvöldin í
Austur Þýzkalandi eru að
,,hreinsa til“ á landamærunum og
flytja alla, sem þar búa. Hið eina,
sem markar landamærin á þessu
svæði, er upphækkun, en þarna
eru hvorki múrveggir né gadda-
vír. En talið er sennilegt eftir
þennan fjöldaflótta að þarna
verði settar upp tálmanir.
I Berlín tókst 8 mánns að flýja
yfir steinvegginn til Vestur
Berlínar, nokkrir með því að
synda yfir Spreefljótið, aðrir
Þúsundir manna gengu nm I,
'götur Damaskus eftir að bylt- ;
ingunni lauk. Bar mannfjöld- 1
inn spjöld með slagorðum j
gegn Nasser og græn-hvít- (
svarta fána með þrem rauðum |
stjörnum, en þannig var þjóð- J
fáni Sýrlands fyrir sameining- '
una við Egyptaland 1958.
brutust gegn um gaddavírsgirð-
ingar. Eirtn 24 ára austur þýzkur
verkamaður tók traustataki krana
bifreið, sem notuð hafði verið við
smíði múrveggsins á landamærun
um, og ók henni gegn um eftir-
litsstöð Austur Þjóðverja við
Heinrich Heine Strasse og yfir
til Vestur Berlínar kl. 6 í morg-
un. Austur þýzka lögreglan hélt
uppi skothrið á bifreiðina á flótt-
anum, en manninn sakaði ekki.
3% MILLJÓN
Á árunum 1950—1960 flýffu
samtals 3.300.000 Austur Þjóð-
verjar yfir landamærin til Vestur
Þýzkalands, að því er segir í
frétt ARP fréttastofunnar. Mestur
var flóttamannastraumurinn árið
1953, en þá flýðu 410.000 manns
vestur yfir landamærin. Árið
1956 komu 400.000 flóttamenn til
Vestur Þýzkalands.
í bráðabirgðaskýrslu fyrir
árið 1961 segir að á' tímabilinu
frá janúar til september hafi
190.000 flóttamenn komið frá
Austur til Vestur Þýzkalands.
Svíi forstióri IAEA
Einn af herforingjum byltingarin nar borinn um götur Damaskus.
Kosið í stjórn
jr
Arnasafns
Kaupmannahöfn, 3. okt.
Einkaskeyti frá Páli Jóns-
syni. —
Kaupmannahafnarblaðið Ber-
lipgske Tidende skýrir í dag
frá kosningu í stjórn Árna-
safns. Segir blaðið að háskóla-
ráð Kaupmannahafnarhá-
skóla hafi kosið prófessorana
Jón Helgason og Kr. Hald. og
Sáttmálasjóður muni síðar til
nefna einn stjórnarmeðlim.
Vilja halda áfram
Berlingske Tidende segir að
prófessorarnir Jóhannes Brónd-
sted og Bröndum-Nielsen, sem til
•nefndir voru af kennslumálaráðu
Framh. á bls. 23.
Vín, 3. október —
(AP—NTB) —
Sænski kjarnorkufræðingur-
inn dr. Sigvard Eklund var í
dag kjörinn aðalforstjóri al-
þjóða kjarnorkumálastofnun-
arinnar (IAEA) með 46 atkv.
gegn 16. Fjórtán ríki sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna.
Aðalfulltrúi Rússa á ráðstefn-
unni, Vassili Emelyanov prófess
or, barðist ákaft gegn kosningu
Eklunds, og lagði til að yfirstjórn
stofnunarinnar væri falin þrem
mönnum, einum frá kommúnista
ríkjunum, einum frá Vesturveld-
unuim og einum fulltrúa „hlut-
lausu“ rikjanna. Komimúnistarík
in, Júgóslavía og nokkur „hlut
laus“ Afríku- og Asíuríki greiddu
atkvæði gegn Eklund.
Eklund, sem er fimmtugur, tek
ur við af W. Sterling Cole frá
Bandaríkjunum, sem lætur af
störfum í nóvember, og er kos
inn til fjögurra ára.
!
NÚ ERU skólarnir að byrja
og veldur það miklum breyt-
ingum á útburðarstarfsliði
blaðsins. Má búast við að þetta
valdi talsverðum erfiðleikum
við að koma blaðinu til kaup-
enda, a.m.k. fyrstu daga októ
ber, en að sjálfsögðu verður
allt gert, sem hægt er til þess
að það gangi sem greiðlegast.