Morgunblaðið - 04.10.1961, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 4. okt. 1961
.Fundur ÞJóðhildfarkirkfu
er skemmtileg tíðindi4
segir þjóðminjavörður
„ÞETTA eru ákaflega skemmti-
Ieg tíöindi“, sagði dr. Kristján
Eldjárn, þjóðminjavörður, þegar
fréttamaður Morgunblaðsins
ræddi Iauslega við hann um fund
Þjóðhildarkirkju x Brattahlíð í
Grænlandi.
Kristján sagði það eftirtektar-
vert, hve vel staðsetning kirkj-
unnar kæmi heim við frásögnina
í Eiríks sögu nauða (stundum
kölluð Þorfinns saga karlsefnis),
þar sem sagt er, að hún hafi
verið reist „eigi allnær húsun-
um“.
Svo segir í sögunni: „Leifr tók
land í Eiríksfirði ok fór heim
síðan í Brattahlið. Tóku þar allir
menn vel við honum. Hann hoð'
aði brátt kristni um landit ok
almennilega trú ok sýndi mönn-
um oaðsending Ólafs konungs
Tryggvasonar ok sagði, hversu
mörg ágæti ok mikil dýrð fylgdi
þessum sið. Eiríkr tók því máli
seint, at láta sið sinn. en Þjóð-
hildr gekk skjótt undir ok lét
gera kirkju eigi allnær húsun-
um. Þat hús var kallað Þjóðhild-
arkirkja. Hafði hon þar fram
bænir sínar ok þeir menn, sem
við kristni tóku. Þjóðhildr vildi
ekki samræði við Eirík, síðan
hon tók trú,, en honum var þat
mjög móti skapi“.
Þjóðminjavörður gat þess, að
einkennilegt væri, að ekki hefði
verið tekið eftir minjum þessum
áður, því að grænlenzkar forn-
minjar leyna sér yfirleitt ekki.
Venjulega mótar fyrir veggjum,
og einkum er allur gróður
grænni og ræktarlegri. sem
sprettur upp af hvers konar
mannvirkjum. Þar að auki er
byggð á þessum slóðum. Þess ber
þó að gæta, að rústirnar eru
óvenju gamlar, svo að náttúran
hefur haft naegan tíma til að
endurheimta landið og slétta yfir
mannanna verk.
Ekki mætti búast við því. að
mikið fyndist 1 kirkjugarðinum
og kirkjutóftinni annað en
mannabein, því að kristnir menn
höfðu ekki skartgripi með sér í
moldina. Beinafundir frá þess-
um tíma (fyrri hluta 11. aldar)
væru hins vegar mikilvægir
vegna mannfræðilegs gildis.
Fyrri beinafundir hafa verið frá
seinni tímum, 13., 14. og jafnvel
15. öld, en erfitt væri að tíma-
setja þá suma. í Þjóðhildarkirkju
garði liggja án efa nokkrir af
fyrstu kynslóð Grænlendinga
hinna fornu. Ekki er enn vitað,
hvenær kirkjan var aflögð, en
Melgaard telur líklegt, að það
hafi verið um miðja 11. öld.
Ekki er hægt að segja með
vissu. að Leifur heppni hvíli
þama, þótt það sé 'mjög senni-
legt. Einungis rúnasteinn með
nafni Leifs gæti tekið af öll
tvímæli um það, og vera má, að
slíkur finnist. Rannsóknir á staðn
um eru enn á byrjunarstigi, sagði
þjóðminjavörður að lokum, svo
að enn er of snemmt að spá
nokkru um árangur af uppgreftr-
inum, en líklegt mætti telja, að
sitthvað fróðlegt ætti eftir að
koma í ljós.
ÞESSI mynd, sem hér birtist.l
var á forsíðu Þjóðviljans íj
gær og stendur undir henni:]
„Séð yfir hluta fundarsalarins ]
í Alþýðuhúsinu um helgina.j
— Ljósm. Þjóðviljans)“.
Á mynd þessari, sem erl
minnkuð hér í Morgunblað- ’
Vítaverð dsann-
sögli Hannibals
inu, sést hluti þeirra fulltrúa,
sem sátu ráðstefnru A. S. I.
um kjaramálin, sem haldin
var nú um helgina. Það sem
er athyglisvert við þessa
mynd, er það, að hún sýnir
stórvítaverða hlutdrægni sam-
bandsstjómar A. S. f., þar
sem ljósmyndari frá Þjóðvilj-
anum hefur einn fengið að-
gang að fundunum og leyfi
til þess að taka myndir af
fulltrúunum.
Eins og skýrt var frá í
Morgunblaðinu s. 1. sunnudag
var fréttamönnum meinað að
sitja ráðstefnuna eða taka
myndir af henni. Morgunblað
ið spurði Hannibal Valdimars-
son þá m. a. þessarar spurn-
ingar: — En hefur Morgun-
blaðið þá leyfi til að senda
ljósmyndarar og taka myndir
af fundarmönnum? Forseti
Alþýðusambandsins svaraði:
— Nei, ekki samkvæmt
ákvörðun stjórnarinnar. Þetta
voru orð forseta Alþýðusam-
bandsins 1 sunnudagsblaði
Morgunblaðsins, en hann virð
ist ekki eimx sinní geta sagt
satt um það, hvort ljósmynd-
urum er leyft að taka myndir
af ráðstefnum A. S. í. eða ekki.
Hvað þá um hin stærri málin?
Stúdentar ekki með
/ æskulýbsmóti kommúnista
i Helsingfors
ísland í
5-6 sæti
TORQTIAY í gærkvöldi. — Úrslit
í 14. umferð í opna flokknum
urðu þessi: Þýzkaland vann Hol-
land 6:0, Noregur vann Belgíu
6:0, ítalía vann Svíþjóð 5:1,
Egyptaland vann Spán 6:0, írland
vann Líbanon 5:1, Sviss vann
Dan.mörku 6:0 og Frakkland vann
Finnland 6:0. England og ísland
sátu hjá.
Úrslit í kvennaflokki: Noregur
vann fsland 6:0 (131:76), í hálf-
leik 45:54 fyrir fsland). íriand
vann Fin.nland 6:0, Svíþjóð vann
Frakkland 6:0, Holland vann
Egyptaland 5:1, Belgia vann
Þýzkaland 6:0.
Sjá nánar fréttir frá mótinu
á bls. 6.
FORVÍGISMENN norrænna há-
skólastúdenta, sem þessa dagana
eru á ráðstefnu hér í Reykjavík,
héldu fund með fréttamönnum í
gær og sögðu frá ýmsum málum,
sem nú eru ofarlega á baugi hjá
stúdentum í þessum löndum.
M. a. kom það fram hjá fulltrúum
finnskra stúdenta, að mjög hörð
andstaða væri gegn því meðal
stúdenta og alis æskulýðs í Finn-
landi, að kommúnistar fengju
framgengt áformum sínum um að
halda næsta festival sitt í Hels-
ingsfors. Vilja þeir með engu
móti una þvi, að áróðurssam-
kunda af þessu tagi verði hald-
in i landi þeirra. Hafa háskóla-
stúdentar á Norðurlöndunum öll-
um lýst yfir stuðningi við þessa
afstöðu finnskra stúdenta.
Þessar norrænu formannaráð-
stefnur stúdenta eru haldnar einu
sinni til tvisvar á ári. Samvinna
þessi hefur verið í nokkuð föstu
/'NA /5 hnútor\
jj/* S V 50 hnútar
X Snjikoma
• úinvm
V Siúrir K Þrumur W/til KukiaM Hitoski! H Hm» 1 L*Lag» |
formi frá 1953, en íslendingar
urðu þó ekki aðilar að henni fyrr
en 1957.
Tiigangurinn með henni er sá,
að skiptast á upplýsingum og
skoðunum um þau mál, sem mest
snerta hagsmuni stúdenta hverju
sinni. Á ráðstefnunni hefur m. a.
verið rætt um sameiginlega út-
gáfu námsbóka, og þá sérstaklega
í stærðfræðilegum greinum, gagn
kvæmt gildi prófskírteina, og ráð
gazt um gang mála í alþjóðasam-
bandi stúdenta (ISC-COSEC).
Ennfremur hefur ráðstefnán
ákveðið útgáfu fréttablaðs, stú-
denta, Nordisk Students News,
sem sænska stúdentasambandið
mun annast. Að ráðstefnunni lok-
inni munu fulltrúarnir taka þátt
í afmælisfagnaði Háskóla íslands.
Vinningar í
hnppdræfti DAS
f GÆR var dregið í 6. fl. Happ-
drættis D.A.S. um 55 vinninga
er féllu vinningar þannig:
3ja herb. íbúð Ljósheimum 20
tilbúin undir tréverk kom á nr.
42192 í umboði Akureyri. Eigandi
Gísli Eyland, Víðimýri 8, Akur-
eyri.
2ja herb. íbúð Ljósheimum 20
tiibúin undir tréverk kom á nr.
47270 í umboði Grafarness. Eig-
andi Guðbjartur Gíslason, Öl-
keldu, Staðarsveit.
Opel Caravan fólksbifreið kom
á nr. 60134. Eigandi Jóhann Jóns
son, Háagerði 25.
Skoda fólksbifreii? kom á nr.
58180 í Rvík Eigandi Hrefna
Stefánsdóttir, Hverfisgötu 123.
Eftirtalin númer hlutu húsbún-
að fyrir kr. 10.000,00 hvert. 5207
30059 37055 44269 48347
Eftirtalin númer hlutu húsbún áð fyrir kr. 5.000,00 hvert:
4329 5790 6643 6710 6784
8196 8727 9039 9380 9802
10170 12799 14676 20521 20729
21399 21730 22112 23644 25149
28870 29654 30475 31172 32393
33154 33228 34909 35431 35842
37303 38477 39001 40295 40513
45731 47162 48061 53094 54170
56772 64827. 57378 59603 62323 64748
(Birt án ábyrgðar).
Kosning í safnráð
Listasafnsins
KOSNING til Safnráðs Listasafns
ísland lauk 30. september s.l. —
Talning atkvæða fór fram í dag
(3. okt). Kjörnir voru aðalmenn
í Safnráð til fjögurra ára Gunn-
laugur Scheving og Þorvaldur
Skúlason listmálarar, og Ásmund
ur Sveinsson, myndhöggvari. —
Varamenn Sigurður Sigurðsson
og Karl Kvaran, listmálarar og
Sigurjón Ólafsson, myndhöggv
ari.
Tvö ljóslaus farar-
tæki valda slysi
f FYRRAKVÖLD ók sendiferða-
bifreið á gamlan mann á reiðhjóli
á Akranesi. Skall hann á bifreið-
inni og meiddist eitthvað á
brjósti, en mun þó óbrotinn. Var
hann fluttur á sjúkrahús og síð-
an heim.
Slysið varð á gatnamótum
Suðurgötu og Mánagötu um kl. 7
um kvöldið. Voru bæði farar-
tækin ljóslaus, en dimmt var í
lofti þennan dag, og orðið dimmt.
Þjófarnir settust að
sumhli á innbrots-
stað
Lægðin fyrir suðvestan land Veðurspáin kl. 10 í gær-
var nærri kyrrstæð í gær og kvöldi:
SA-átt ríkjandi um land allt.
Skúrir voru á A og S-landi,
en þurrt að mestu fyrir norð
an og á Vestf jörðum kl. 15 var
14 stiga hiti á Egilsstöðum og léttskýiað
11 stig í Möðrudal, en 8 stig vl0a .yj°
í Reykjavík og var hvergi
kaldara á veðurstöðvum lands in: Sunnan
ins. skúrir.
SV-land, Faxaflói Og miðin:
SA kaldi, skúrir.
Breiðafjörður til NA-lands
Og miðin: SA gola eða kaldi,
ða léttskýjað.
Austfirðir, SA-land og mið-
og SA kaldi,
f FYRRINÓTT var brotizt inn á
nokkrum stöðum í Reykjavík og
nágrenni. Var brotin rúða á götu
hlið skartgripaverzlunar Guðm.
Andréssonar á Laugavegi 50 og
stolið úr sýningarglugga 2 gull
lituðum karlmannsúrum og einu
gulllituðu kvenmannsúri og auk
þess þremur armböndum á úr.
Þá var farið inn í verzlunina
Skeifuna í Blöndu-hlíð 35 og stol
ið 800 kr. í peningum, 60 pörum af
nælonso'kkum og tveimur peys
um.
Uppi í SeláSi var brotizt inn i
verzlun, ráðist á glugga rr»;ð
rimlum fyrir og var rúðan brot
in og rimlarnir beygðir svo hægt
væri að komast inn. Voru þjófarn
ir sýnilega í sígarettuleit, en
höfðu lítið upp úr krafsinu, að
eins 5 stykki.
Brotin var í fyrrinótt rúða í
verzlun Hans Petersen í Banka-
stræti. Var ekki farið inn og engu
stolið.
Loks var brotin rúða í útihurð
í Aðalbarnum í Aðalstræti 8 og
hurðin þannig opnuð. Höfðu
þjófarnir sezt ofur rólegir að
sumli í efri veitingasalnum, veitt
sér 6 þilsnera og 1 malt og reykt
nokkrar sígarettur og skilið flösk
ur og sígarettustubba eftir. Ekki
var öðru stolið.
— Sýrland
Framh. af bls. 1
var lesin upp áskorun ti
egypzku þjóðarinnar um að ger
byltingu gegn Nasser, brjót
niður harðstjórnina og endur
vekja einingu Araba. Byltingi:
í Sýrlandi hafi verið gerð ti
að vemda þessa einingu. Áskor
unin var marglesin í kvölddag
skránni.