Morgunblaðið - 04.10.1961, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 4. okt. 1961
MORGVNBLAÐIÐ
9
Minningarorð
um skipverja af m.s.
Helga frá Hornafirði
Til moldar oss vígði hið mikla vald
hvert mannslíf, er jörðin elur.
Sem hafsjór, er rís með fald
við fald,
þau falla, en Guð þau telur.
ÞESSI orð þjóðskáldsins djúp-
skyggna, Einars Benediktssonar,
komu miér í hug, er mér barst
hin sviplega fregn, af því, að
m,.b. Helgi frá Hornafirði hefði
farizt 15. þ.m. á siglingu heim frá
Englandi og 7 ungir Hornfirðing-
ar hefðu látið þar lífið, í baráttu
við storm og feiknsjóa úthafsins.
Við íslendingar erum, að vísu,
ekki óvanir því, að slysafregnir
beri okkur að eyrum. Barátta
þjóðarinnar fyrir lífi sinu, um
allar aldir, við harðviðri og hríð-
ar norðursins og æðandi öldur
mikilla hafa, hefur oft og löngum
kallað fram þungar fórnir. —
Margir eru þeir synir þjóðarinn-
ar, sem af þeim völdum hafa iát-
ið lífið langt fyrir aldur fram.
En samt er það og verður ávallt
svo, að í hvert sinn, er slíkar
fórnir eru færðar, hlýtur hvert
mannshjarta að kippast við og
það því meir, sem fórnirnar eru
stærri og átakanlegri.
húseigendur húsbyggjendur
spárið tíma ý’ög . erfiði ■ i leit
að heppilegum byggingarefnum
úpplýsingar og sýnishorn frá 56 af
helztu fyrirtaekjum landsins
opið alla virka daga kl. 1— 6
laugardaga kl. 10—12
mjðvikudagskvöld kl. 8—10
byggingaþjónusta a. í.
laugavegi 18a s: 24344
STARFANDI FOLK
velur hinn
RIT - LÉTTA
Pafket T-Ball
Hyggin móðir! Hinn erfiði
starfsdagur gefur henni engan
tíma til að bjástra við van-
gjöfula kúlupenna. Þess vegna
velur hún hinn frábæra Park-
er T-Ball . . . hinmnýja kúlu-
penna sem gefur strax, skrifar
mjúklega á allan venjulegan
skrifflöt, og hefir allt að fimm
smnum meiri blekbyrgðir.
POROUS-KULA EINKALEYFI PARKERS
Blekið streymir um Kúluna og matar iun-
ar fjölmörgu blekholur . . . Þetta tryggir
að blekið er alltaf sk rifhæft i oddinum.
Parker 'Xs&töL
kúlupenni
A PRODUCT OF
Ý
THE PARKER PEN COMPANY
9-B114
Hinir sjö vösku menn, er líf-
ið létu, þegar m.b. Helgi fórst,
voru allir í blóma lífsins og sum-
ir barnungir. Er það átakanlegt
áfall fyrir lítið þorp, eins og Höfn
í Hornafirði er, að verða í einu
að sjá á bak, svo mörgum ung-
um og hraustum sonum. — Það
eru dökk sorgarský, sem nú
drjúpa yfir byggðum Hornafjarð-
ar og hugum þess fólks, er þar
á einhver kynni. — Þyngst verð-
ur þó sorgin hjá vinum og vanda-
mönnum þeirra, ér lífið létu, og
þá allra þungbærast Hátúnsfjöl-
skyldunni á Höfn, hinum öldruðu
ágætishjónuim, frú Sigurborgu
Ágústsdóttur og Runólfi Bjarna-
syni í Hátúni, börnum þeirra,
tengdadætrum og barnabörhum.
— En i þessu slysi fórust tveir
synir þeirra hjóna, tengdasonur
og sonarsonur, ungir vaskleika og
drengskaparmenn, sem svo marg
ar vonir voru tengdar við. Lifa
nú eftir, innan' þessarar fjöl-
skyldu þrjár ungar, syrgjandi
ekkjur og ellefu föðurlaus börn.
— Sá harmur, sem þessa fjöl-
skyldu nístir, er sárari og dýpri
en nokkur orð fá lýst. — En
kæru vinir, Sigurborg og Run-
ólfur og þið öll, sem hér eigið
um sárt að binda, minnizt þess,
ef það mætti ykkur bölið iétta,
að við öll, sem kynni höfðum af
þessum horfnu ástvinum ykkar,
samsömuimst ykkur í sorginni.
Slíkir drengir voru hinir föllnu
ástvinir ykkar og ættmenn að
hver sá, sem þeim kynntist ber
um þá bjartar minningar og
harmar að þeirra naut eigi hér
lengur við.
Um 12 ára skeið hafði ég meiri
og minni kynni af flestum þeim,
er með m.b. Helga hlutu hina
votu gröf, var nágranni þeirra
og sveitungi og sumir þeirra voru
nemendur mínir um árabil. All-
ar mínar minningar, sem tengdar
eru samveru við þessa menn
stafa hlýju á veginn og er ég lít
til baka, finnst mér ég eiga svo
bágt-m,eð að trúa því, að þessir
ungu menn, sem ég fyrir fám
vikum síðan sá alla hrausta og
glaða, fulla lífs og starfsþrótti,
séu nú svo skyndilega horfnir
héðan, út yfir landamærin miklu,
sem aðskilja líf og dauða. En
gátur lífsins eru margar svo tor-
ráðnar og skammsýni og dul
marka skynjunum okkar bás. —
Þess vegna verður svo margt,
sem við ekki skiljum, svo margt
sem glepur okkur sýn.
En í þeirri trú, að bak við alit
vaki voldug, hulin hönd, er öllu
stýri og stjórni, biðjum við þess
að sú hönd leiði og verndi sálir
hinna föllnu vina og félaga, í
þeim nýju heimkynnum, þar sem
þær nú dvelja og þar sem við
trúum að sé engin sorg, engin
kvöl og enginn dauði.
Guð blessi minningu þeirra og
allt og alla, sem þeir unnu.
Knútur Þorsteinsson.
Maður í góðri stöðu með tvö
stálpuð börn óskar eftir tveim
stórum
stotum og eldhúsi
Getum veitt mikla húshjálp,
einnig borgað góða leigu. —
Tilboð óskast fyrir fimmtu-
uagskvöld, merkt: „222 —
5392“.
Einbýlishús óskast
í Silfurtún, Hafnarfirði eða
nágrenni, má einnig vera í
Kópavogi.
mAlflutnings- og
FASTEIGNASTOFA
Sigurftur Reynir Péturss. hrl.
Agnar Gústafsson, hrl.
Björn Pétursson, fasteigna-
viðskipti.
Austurstræti 14.
Símar 17994 og 22870.
Hugmyndasamkeppni
um skipulag
Hafnarfjarðarbær og skipulagsnefnd ríkisins efna til
samkeppni um skipu’ag að miðbæ Hafnarfjarðar, á
svæði, sem takmarkast af Reykjavíkurvegi, Hverfisgötu
Lækjargötu. Brekkugötu, Suðurgötu, Mýrargötu og jafn-
framt að frumdrögum að skipulagi hafnarinnar, að svo
miklu leiti sem það hefur áhrif á skipulag svæðisins.
Tilgangur samkeppninnar er að fá fram hugmyndir að
byggingarfyrirkomulagi og nýtingu þessa takmarkaða
miðbæjarsvæðis (city) og aðliggjandi hafnarsvæðis.
Verðlaunaupphæðin er kr. 100.000,00, þar af 1. verð-
laun eigi lægri en kr. 50.000,00. Auk þess er dómnefnd-
inni leyfilega að ráðstafa kr. 25.000,00 til kaupa á 2—3
úrlausnum.
Dómnefnd skipa Stefán Gunnlaugsson, bæjarstjóri,
bæjarverkfræðingur Hafnarfjarðar, Aðalsteinn Júlíus-
son, vitam., Gunnlaugur Pálsson, arkitekt og Ágúst Páls-
son, arkitekt.
Skilmálar og önnur gögn afhendast til 1. des. 1961,
gegn kr. 300.00 í skiiatryggingu í Byggingaþjónustu A.í.
Laugavegi 18 A, sem er opin alla virka daga kl. 13—18,
nema laugardaga kl. 10—12, og auk þess miðviku-
dagskvöld kl. 20—22.
Urlausnir skulu afhendast Olafi Jenssyni, Bygginga-
þjónustu A.í. að Laugavegi 16 A, eigi síðar en mánu-
daginn 5. febrúar, 1962, fyrir kl. 18.00.
Dómnefndin
Sendisveinn
Eitt af elztu og þekktustu innflutningsfyrirtækjum
landsins óskar að ráða röskan og ábyggilegan pilt til
innheimtu og sendistarfa. — Upplýsingar í skrif-
stofu félagsins, Tjarnargötu 14.
Félag íslenzkra stórkaupmanna.
RHINEGOLD
Húnar og skrár úr
þrýstisteyptri zinkblöndu,
hertu látún, nikkel óg
steyptri málmblöndu.
Liga „Knightsbridge",
„Charlton“, „Grosvenor",
„Shaftesbury“, „Mayfair",
„Kensington".
No. 8000
Plötustærð — 16,8 cms.
Lengd handfangs — 11,4 cms.
Húnar fást með
og án skráa
Húðað ineð satinnikkeli, krómi,
látúni eða mattri málmblöndu
Þessir ágætu nýtízku húnar eru af listrænni
gerð, en sérstaklega þægilegt er að taka í
þessa tegund hurðarhúna
BLOORE & PILLER LTD.
BRASSFOUNDERS
BIRMINGHAM ENGLAND
Umboðsmaður á íslandi. — John Lindsay, Reykjavík
Sími 15789 — 33262