Morgunblaðið - 04.10.1961, Blaðsíða 12
12
MORGVNBLAÐM>
MiSvikudagur 4. okt. 1961
CTtgefandi: H.f Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: A.rni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
Á AÐ MINNKA JÖFNUÐINN?
PMns og alkunnugt er berj-
ast bandamennirnir í
Framsóknar- og kommúnista
flokknum barðri baráttu fyr-
ir því að fallizt verði á allar
kröfur lækna og verkfræð-
inga. Ef farið yrði að ráðum
stjórnarandstæðinga, mundu
þessar tvær starfsstéttir
mjög bæta hag sinn, borið
saman yið aðra.þegna þjóð>-
félagsins.
Með slíkri ráðstöfun
mundi með öðrum orðum
aukinn tekjumismunurinn,
því að staðreynd er það, að
þessar stéttir búa við einna
bezt launakjör. Með afstöðu
sinni lýsa stjórnarandstæð-
ingar því sem sagt yfir, að
þeir telji launajöfnuð vera
orðinn of mikinn í hinu ís-
lenzka þjóðfélagi og hinar
sérmenntuðu stéttir, sem
eðlilega hafa haft hærri lauh
en aðrir, eigi að bera hlut-
fallslega meira úr býtum en
þær hafa gert að undan-
förnu.
Morgunblaðið hefur áður
sagt, að það teldi réttmætt
að verkfræðingar fengju
nokkru meiri hækkun en
aðrar stéttir fengu í sumar.
Þannig hefur blaðið játað
að sjónarmið stjómarand-
stæðinga hefðu við nokkur
rök að styðjast, að því er
verkfræðinga varðar. Hins-
vegar kemur auðvitað ekki
til mála að fallast á allar
kröfur þeirra. Um læknana
er það aftur á móti að
segja, að nokkuð erfitt er að
átta sig á, hver muni vera
raunveruleg laun þeirra og
ástæða til að ætla að þau
séu í mörgum tilvikum
hærri en þeir vilja vera
láta.
Kröfur þeirra eru þó ekki
eingöngu um bætt launakjör,
heldur líka um breytta starfs
tilhögun og hafa þeir í því
efni ýmislegt til síns máls.
Ánægjulegt er því, að
þriggja mánaða frestur skuli
nú fást til þess að ræða mál-
efni þeirra niður í kjölinn og
leita lausnar, sem allir geti
við unað.
AÐRIR
HÁSKÓLAMENN
ITinu er heldur ekki að
“ leyna, að einmitt læknar
og verkfræðingar hafa sæmi-
legust launakjör allra há-
skólamenntaðra manna. At-
hyglin hefur fyrst og fremst
beinzt að kjörum þeirra,
vegna þess að þeir hafa ver-
ið kröfuharðastir að undan-
förnu, en ekki af hinu, að
þeir búi við nein sultarkjör,
borið saman við aðra menn
með svipaða menntun.
Ef fallizt yrði á þau sjón-
armið Framsóknarmanna og
kommúnista, að umyrðalaust
éigi að samþykkja allar kröf
ur lækna og verkfræðinga,
þá leiðir það af sjálfu sér að
einnig verður að bæta kjör
annarra menntamanna. Slík
almenn hækkun launa
menntamönnum til handa er
vissulega þess eðlis, að hana
má ræða öfgalaust, því að
kjör þeirra eru vafalaust
almennt lakari en gerist hjá
nágrannaþ j óðunum.
í sambandi við þær um-
ræður, verða menn þó að
hafa í huga að öll íslenzka
þjóðin hefur axlað nokkrar
byrðar til þess að rétta við
fjárhag sinn og tryggja efna-
hagslegt sjálfstæði landsins.
Það ætti því ekki að vera til
of mikils mælzt, að þeir
menn, sem þjóðin hefur
kostað miklu til að mennta,
stilltu kröfum sínum í hóf,
meðan verið er að treysta
þann grundvöll, sem lagður
hefur verið að stórfelldum
framförum í náinni framtíð.
Að svo miklu leyti sem
menn eru reiðubúnir til að
bæta hag menntamanna
meir en annarra, þá á það
að gerast á næstu árum, þeg-
ar ný auðlegð skapast vegna
þeirra miklu framfara, sem
óhjákvæmilega hljóta að
fylgja í kjölfar heilbrig&rar
efnahagsmálastefnu hérlend-
is eins og alls staðar annars
staðar. Fyrr er það ekki
unnt.
AÐ FLÝJA LAND
Ehtt af því, sem mjög hefur
^ dregið úr samúð almenn
ings með kjarabaráttu verk-
fræðinga og lækna, eru hinar
sífelldu hótanir um að flytja
af landi brott og jafnvel
beinar hvatningar til hinna
sérmenntuðu manna um að
koma ekki heim til íslands
eða hverfa héðan brott, ef
þeir hafa komið.
Þvílíkar bardagaaðferðir
falla íslenzkum almenningi
ekki í geð. Hann veit að
hann hefur búið vel að
menntamönnum sínum og
hann vill af frjálsum vilja
gera það áfram. En hann
mun undir engum kringum-
stæðum láta ógna sér til að
fallast á eitt eð*a neitt í því
efni.
íslenzkir menntamenn eiga
sannarlega mikilla skyldna
að gæta við þjóðarheildina.
Sanngjarnar kröfur sínar
eiga þeir að flytja af rök-
festu og stillingu en ekki til-
1
uz YUfaw
Byitingaráætlun Castros
■
SAMTÖK landflótta Kúbu
manna í Florída í Banda-
ríkjunum gáfu á dögun-
um út tilkynningu þess
efnis, að samtökin hefðu
komizt yfir skjöl nokkur
í Buenos Aires, höfuðborg
Argentínu, þar sem laus-
lega væri sett fram áætl-
un Castros og stjórnar
hans á Kúbu um það,
hvernig kollvarpa skyldi
ríkisstjórn Frondizis í
Argentínu og ná þar völd-
um.
„Lýðræðislega bylting-
arnefndin“ svonefnda til-
kynnti, að benni hefðu
borizt umrædd skjöl í
hendur snemma í ágúst
— frá Vitalio de la Torre,
kúbönskum ræðismanni í
Buenos Aires, sem flúði
til Bandaríkjanna og fékk
hæli þar sem pólitískur
flóttamaður.
Ar Áætlun í 15 liðum
Talsmaður samtakanna
sagði, að áætlun Castros vseri
í 15 liðum — og meginatriði
hennar væru eftirfarandi:
1) Stofnun víðtæks njósna-
kerfis innan hersins í Argen-
tínu. — 2) Leyniskólar eða
æfingastöðvar í skæruhem-
aði. — 3) Framkvæmd fyrir-
ætlunar, sem miðar að því að
hafa áhrif á fréttaflutning —
og að vinna skemmdarverk
hjá blöðum og útvarpsstöðv-
um. (Sérstaklega er minnzt
á óháða blaðið „La Prenza“
í þessu sambandi.) — 4)
Barátta gegn lögum um
„verndun lýðræðisins'* (en
slíkt lagafrumvarp er nú til
meðferðar í argentínska þjóð
þinginu.) — 5) Undirróður í
því skyni að æsa til verk-
falla. — 6) Stefnt skal að
því, að „Che“ Guevara, iðn-
aðarmáiaráðherra Kúbu og
„efnahagssérfræðingi" Castros
verði boðið að koma í heim- lauma vopnum og áróðurs-
sókn til Argentínu. — 7) tækjum inn í Argentínu að
Samvinna við sendiráð Kúbu norðan. — 9) Hafin Skal ó-
í Uruguay^ um kommúnískt frægingarherferð gegn helztu
andkommúnistum í röðum
hershöfðingja og stjórnmála-
manna. 1Ó) Stefnt skal að
því að gera Argentínu að
miðstöð fyrir útbreiðslu
kommúnistaáróðurs í ná-
grannalöndunum, einkum
Brasilíu og Paraguay. — 11)
Unnið skal að því að koma
á fót einhverri vinsælli
hreyfingu meðal almennings,
er lúti forustu vinstriafla og
beiti sér óbeint í stjórnmála-
baráttunni. — 12) Hrint skal
af stað áróðursherferð gegn
Bandaríkjunum, Perú og
Venezúela. — 13) Kúbanska
sendiráðið (í Buenos Aires)
skal hafa náið samband og
samstarf við sendiráð Sovét-
ríkjanna — og Tassfréttastof
una. — 14) Unnið skal að
því, að vinstri-sinnaðir verka
menn, stúdentar og mermta-
menn verði sendir í kynnis-
ferðir og til námsdvalar á
Kúbu, þar sem síðan á að
vinna þá til fylgis við kenn-
ingai; marxismans. — 15)
§] Loks skal sérstök áherzla
lögð á áróður innan stúdenta
samtakanna í Argentínu.
★ Heimild um kommúniskt
undirróffursstarf
Arturo Frondizl, forsetl
Argentínu, var nýkominn til
Bandaríkjanna, þegar and-
stæðingar Castros birtu fyrr-
greinda áætlun. Hann neitaði
fréttamönnum um að segja
nokkuð um plaggið — kvaðst
ekki hafa heyrt neitt um það
fyrr, og væri rétt að bíða og
sjá, hvort skjölin væru ó-
fölsuð áður en hann gerði
þau að umtalsefni.
Ekki heíur frétzt frekar af
máli þessu síðustu dagana —
en ef skjölin reynast ófölsuð,
má segja, að þarna sé fyrir
hendi allmerkileg heimild
um starfsaðferðir fimmtu her
deilda kommúnismans, sem
víðast munu svipaðar í megin
atriðum. —
. . . steypa Frondizi?
útbreiðslustarf og undirróð-
ur í ríkjum Suður-Ameríku
yfirleitt. — 8) Beita skal
flokki eiturlyfjasmyglara
(sem sagt er, að hafi bæki-
stöðvar í Bóliviu) til þess að
„Dauða-beltið
BERLÍN, 30. september. —
Stúlkur og fullorðnar konur
bættust í gær í hóp verka-
manna, sem vinna nú aff því að
rífa mannvirki og jafna allt viff
jörðu mefffram markalínunni
milli Austur- og Vestur-Ber-
línar.
Var unnið á mörgum stöðum
einka sér bardagaaðferðir á
borð við þær, sem í mörgu
verkalýðsfélaginu hafa ver-
ið viðhafð«ar, rýrt hafa traust
ið á félaginu og skaðað hags-
muni félagsmanna. Ef still-
ingu og sanngirni er beitt á
báða bóga, þá er ekki
minnsti efi á því, að skjót-
lega er hægt að finna lausn
á deilu, bæði verkfræðinga
og lækna.
í allan gærdag og stóðu her-
menn og lögreglumenn yfir
fólkinu með brugðna byssu-
stingi. Bendir allt til þess, að
skortur sé á vinnuafli í Austur-
Berlín, því barnungum stúlkum
er nú skipað að mæta til starfa.
Þarna er unnið að því að gera
autt belti meðfrarh múrveggn-
um á markalínunni. Er það gert
tíl þess að landamæraVörðum
kommúnista reynist auðveldara
að skjóta þá, sem reyna að
komast yfir múrinn og flýja yf-
Jr til Vestur-Berlínar. Svo mik-
íð er víst, að Vestur-Berlínar-
búar kalla þessa ræmu „dauða
beltið". — Víðtækar ráðstafanir
eru og gerðar meðfram öllum
austur-þýzku landamærunum.
Samt sem áður tekst fáein-
um mönnum jafnan að flýja á
hverri nóttu og aðfaranótt föstu
dags munu 20 manns hafa kom-
izt yfir til Vestur-Berlínar.
Trillurnar
öfluðu vel
við Grænland
TÓRSHAVN, 29. sept. —
Veiðar línubátanna hafa geng
ið vel það sem af er árinu,
en togurunum hefur gengið
stirðlega. Trillubátarnir, sem
gerðir eru út frá Grænlandi
hafa veitt mjög vel. Þar er
um að ræða 190 manns á 43
bátum, sem róa frá Borgs-
havn, Kangarsuk og tveimur
höfnum á Ravns Stóroy. —
Þann 1. sept. höfðu trillurn-
ar fiskað samtals 1,800 tonn
(/ saltfiskur) — og verður
aflinn seldur beint til Grikk-
lands án milligöngu Föroya
Fiskisölu. Trillurnar róa i
Grænlaqdi frá mánaðamót-
um maí-júní fram í septem-
berlok. — Arge.