Morgunblaðið - 04.10.1961, Page 23
Miðvikudagur 4. okt. 1961
MORGVNBlÁÐIÐ
23
Sunnan sex - ný revía
tJM NÆSTU mánaðamót hefjast'
sýningar í Sjálfstæðishúsinu á
nýrri revíu, sem Flosi Ólafsson
leikari stendur fyrir. Á hún að
heita Sunnan sex og er í tveim-,
ur þáttum, sex atriðum. Flosi,
sem leikur smáhlutverk, verður
leikstjóri, en með aðalhlutverk-1
in fara Guðrún Stephensen, Karl
Guðmundsson, Kari Sigurðsson
og Baldur Hólmgeirsson. Auk
þessara verða svo nokkrar þokka
dísir. I
Revían, sem stendur yfir í
— Árnasafn
Framh. af bls. 1
neytinu, geti hugsað sér að láta
af störfum, en séu reiy’búnir að
Ihalda áfram ef ráðunrytið óskar
þess. Bröndum-Nielsen hefur ver
ið formaður safnstjórnarinnar
frá 1953 samkvæmt ósk ráðuneyt
isins, að því er blaðið segir. í við
tali við blaðið segist hann hvað
eftir annað hafa skorað á Jörgen
Jörgensen fyrrum menntamála-
ráðherra að láta fara fram nýjar
kosningar í stjórn Árnasafns, en
ekkert hafi úr því orðið fyrr en
Jörgensen lét af embætti.
En þótt Bröndum-Nielsen gangi
úr stjórn Árnasáfns, mun hann
halda áfram baráttu sinni gegn
afhendingu handritanna, að
sögn blaðsins, og hefur þegar
flutt mái sitt á fundum víða um
Oanmörku.
Tvær Ieiðir
Kvöldberlingur segir í dag, að
endanleg ákvörðun um Árnasafn
Verði tekin eftir næstu stjórnar-
myndun. Yfirstjórn safnisins lýt
ur Helweg Petersen kennslumála-
ráðherra og honum ber að undir
búa sérhvert lagafrumvarp, er
varðar afhendingu handritanna.
Auk þess eru öll skjöl er snerta
afhendinguna geymd hjá kennslu
málaráðuneytinu.
í Kvöldberlingi segir ennfrem
ur: Sá, sem verður kennslumála
ráðherra eftir næstu þingkosning
ar, hefur um tvær leiðir að velja.
Hann getur lagt afhendingarfrum
varpið aftur fyrir þingið óbreytt
frá því sem var og tryggt þing-
meirihluta fyrir samþykkt þess,
en þá er ekki lengur unnt að
fresta málinu. Hann getur einn-
ig lagt fram frumvarpið í breyttri
mynd, en þá geta 60 þingmenn
krafizt frestunar á afhendingu,
tvo tíma, er eftir óþekktan höf-
und, en um músikina sér Magnús
Ingimarsson hljóðfæraleikari.
Hann hefir samið flest lögin og
útsett. Alls koma fram 11 manns
og hljómsveit Sjálfstæðishússins,
sem aðstoðar. Efni revíunnar er
um þrjá skreiðarbraskara, sem
selja vöru sína í ýmsum gæða-
flokkum. Sagði Flosi Ólafsson
fréttamönnum í gær. að revían
væri færi full af gáska og fjöri
og í henni mikill söngur. Hann
sagði að fyrri þátturinn gerðist í
Reykjavík en sá síðari væntan-
lega á þjóðhelgum stað. — Æfing
ar eru hafnar fyrir nokkru og er
ráðgert að frumsýning verði 1.
nóvember næstkomandi.
Mannrán
Saigon, 3. ókt. — (AP) —
BÍKISSTJÓRNIN í Suður-
Vietnam skýrði frá því í dag
að skæruliðar kommúnista
hafi rænt formanni sendi-
nefndar þeirrar, sem hefur
með höndum samninga við
alþjóða eftirlitsnefndina í
Laos og Vietnam.
Þá tilkynnti ríkisstjórnin jafn-
framt að her Suður Vietnam hafi
fellt 130 skæruíiða Viet Cong
kommúnista og handtekið 30 í
bardögum í síðustu viku. Þrjár
bækistöðvar skæruliða voru eyði
laggðar og náði stjórnarherinn
miklu magni af hðrgögnum. Það
fylgir fréttinni að aðeins þrír
hermenn stjórnarhersins hafi
fallið og tveir særzt — sem telja
megi mjög óvenjulegt, því venju
lega sé mannfall stjórnarhersins
um 10—20% minna en hjá skæru
liðum.
Miklubrautin er
IVa m á breidd
SÚ PRENTVILLA var á þriðju
síðu blaðsins í gær, þar sem skýrt
var frá hinuim miklu framkvæmd
um á Miklubrautinni, að brautin
var sögð sjö metra breið. Hið
rétta er, að steinsteypta brautin
er hálfur áttundi metri á breidd.
Hér sjást nokkrir sýningargesta hjá Ford-umboðinu virða fyrir sér Consul 315, fjögurra dyra,
en sá bíll vakti mesta athygli á sunnudaginn.
Ford-sýníngin fjölsótt
BIFREIÐASÝNING Fordumboðs
ins Kr. Kristjánsson, sem haldin
var á sunnudaginn við Suður-
landsbraut 2, vakti mjög mikla
athygli almennings. Yfir 10 þús.
manns munu hafa skoðað bifreið
arnar á sýningarsvæðinu. Greini-
legt var, að menn kunnu vel að
meta þessa framtakssemi fyrir-
tækisins, þvi að bílarnir voru
grandskoðaðir af áhugasömu en
miskunnáttusömu fólki. 25 bílar
af árgerðinni 1961 voru sýndir.
Glugginn góði í Consul 315.
Mesta athyglí vakti Cönsul 315,
en þeir eru framleiddir bæði 4ra
og 2ja dyra og kosta frá 145 þús.
krónum. Afturglugginn er með
nýju sniði. Rúðan hallar inn að
neðan og gluggakarmurinn geng
ur út eins og skyggni að ofan.
Því sezt hvorki snjór né vatn á
rúðuna.
fbúðarvagninn.
Gaman þótti mönnum að skoða
íbúðarvagninn. Þetta er ekki
caravan-vagn til að tengja aftan
við bifreiðir, heldur e.k. sendi-
ferðabíll, útbúinn margvíslegum
þægindum. Fjórir geta sofið í
honum; þar er rennandi vatn, ís-
skápur, eldunartæki, skápar o.fl.
Lyfta má þakinu. Leizt mörgum
Nálega 200 ferm. kvikmyndatjald
NÚ ER verið að Ieggja síðustu á myndinnl sést sýningartjald af mönnunum, sem við það
hönd á hið glæsilega bíó Há- ið, en það er tæpir 200 ferm. sta— da.
skólans, Hálskólabíóið. Hérna og má glöggt greina stærð þess (Ljósm. Ól.K.M.)
vel á gripinn, og kona ein heyrð
ist stinga upp á því við mann
sinn, að bezt væri að selja gömlu
íbúðina og festa kaup á Thames
vagninum, sem kostar 275 þús.
kr.
Eflum
vestrœna
samvinnu
Varðhergsfundur
í gœrkvöldi
FUNDUR var haldinn, í gær-
kvöldi í hinu nýstofnaða fé
lagi, Varðbergi, sem er félag'
ungra áhugamanna úr öllumj
lýðræðisflokkum, um ísland
og vestræna samvinnu. Fund-
urinn, sem haldinn, var í Tjarn
arcafé, var mjög fjölmennur.
Framsögumenn voru Emil
Jónsson, ráðherra, Jóhann Haf<
stein, ráðherra, og Ólafur Jó-
thannesson, prófessor. Frá ræð
um þeirra og fundinum verðuri
nánar greint í næsta blaði. Að!
iimræðum þeirra loknum tóku
n.okkrir til máls. Segja má, að
höfuðinntakið í ræðum allra
hafi verið, að efla bæri að mun
«þátttöku íslendinga í vest
rænni samvinnu og fræðslu
starfsemi um Atlantshafs-'
bandalagið hér á landi.
Félagslíf
Ferðafélag íslands v
heldur kvöldvöku í Sjálfstæðis
húsinu fimmtudaginn 5. okt.
1961. Húsið opnað kl. 8.
Fundarefni:
1. Kvikmynd af slóðum Fjalla-
Eyvindar, tekin áf Ósvaldi Knud
sen, málarameistara, texti eftir
dr. Sigurð Þórarinsson jarðfræð-
ing.
2. Myndagetraun, verðlaun
veitt.
3. Dans til kl. 24.
Aðgöngumiðar seldir í Bóka-
verzlunum Sigfúsar Eymunds-
sonar og ísafoldar Verð kr. 35.00.
Norskt skip
Akureyri, 3. okt. Fyrir nokkrum
dögum kom hingað til Akureyr
ar norski línuveiðarinn Brosund
frá Álasundi. Skipið hafði fengið
á sig brotsjó á Skagagrunni og
við það höfðu brotnað nokkrar
styttur og borðstokkur stjórn-
borðsmegin á kinnung. Einnig
urðu sikemmdir á stjórnpalli skips
ins og víðar, m.a. jnun aðálvél
skipsins hafa stöðvast um stund
ar sakir. Skipið komst þó hjálpar
laust til Akureyrar og fer viðgerð
á því hér fram. Skipið er nýlegt
80 lesta tréskip. — Stefán.
JUDO — JU-JITSU
Æfingar eru byrjaðar og eru
sem hér segir:
Þriðjudagar: Judo. Kl. 7 mæti
byrjendur, þeir, sem lengra eru
komnir mæti kl. 8.
Miðvikudagar: Kl. 9 til 10:
sjálfsvörn, Ju-jitsu.
Föstudaga: KI. 8 til 9 sjálfs-
vörn, Ju-jitsu, kl. 9 til 10 Judo,
byrjendur og lengra komnir,
sameiginleg æfing.
Æfingar fara fram í fþrótta-
húsi Jóns Þorsteinssonar, Lindar
götu 7.
Judodeild
Glímufélagsins Armann.
Samkomui
Kristniboðssambandið
Fórnarsamkoma í kvöld kl.
8.30 í kristinboðshúsinu Betaníu
Laufásvegi 13. Halla Bacmann
kristinboði talar. Allir eru hjart-
anlega velkomnir.
Skógarmenn KUFM
Fundur verður í kvöld kl. 8 1
húsi KUFM við Amtmannsstíg.
Nýjum skógarmönnum frá sumr-
inu sérstaklega boðið fjölbréytt
dagskrá. Fjölmennið.
Stjórnin.
Zíon Austurgötu 22, Hafnarfirði
Almenn samkoma í kvöld kl
8.30. Allir velkomnir.
Heimatrúboð leikmanna.
Frelsesarmeen
Norskforening hos kapt. Ona
i kveld kl. 20.30.
Velkomin.
Filadelfía
Biblíuskólinn verður settur i
dag kl. 5. — Almenn samkoma
kl. 8.30. Allir velkomnir.
Faðir okkar
INGVAR S. JÓNSSON
frá Seyðisfirði,
andaðist á Elliheimilinu Grund aðfaranótt 3. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
F. h. bræðranna.
* Ólafur Ingvarsson, Varmalandi.