Morgunblaðið - 05.10.1961, Qupperneq 10
10
MORCUNLLAÐIÐ
Fimmtudagur 5. okt. 1961
Frá Evrópumeistara-
mótinu
r
I
Mynd þessi er frá leikji-
um miili íslands og Frakk
lands. Xil vinstri sést
Stefán J. Gudjohnsen og á
móti honum Jóhann Jóns-
son. . Frönsku spilararnir
eru C. Deruy snýr að
myndavélinni) og L. Mala-
bat. —
☆
bridge
Mynd þessi sýnir fyrirliða
íslenzku kvennasveitarinn-
ar, Laufeyju Þorgeirsdótt-
ur, í þungum þönkum.
☆
Sænski spilarinn Jan Wo-
hlin vakti ávallt mikla at-
hygli ekki eingöngu fyrir
hve mikill vexti hann er,
Hér sést hann í djúpum
hugleiðingum í leiknum
milii Svíþjóðar og Egypta-
lands.
Lárus Karlsson keppir nú
í 8. sinn á Evrópumeistara
móti og þekkir því marga
keppendur. Hér er Lárus
í anddyri keppnishússins.
☆
☆
Fjórar af íslenzku döm-
unum á leið tii keppni. —
Þær eru, talið frá vinstri:
Ósk Kristjánsdóttir, Vigdís ,
Guðjónsdóttir, M a g n e a ‘
Kjartansdóttir og Hugborg
Hjartardóttir.
Myndin sýnir mesta áhrifa
mann í bridgeheiminum,
Baron Robert de Nexon.
Auk þess sem hann er for-
seti alþjóðasambandsins er
hann forseti Evrópusam-
bandsins og ávallt fyrir-
liði franskra bridgesveita
í alþjóðlegum keppnum.
KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR + KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR ,
Q
rV'
3
kvikmyndir * skrifar um kvikmyndir * kvikmyndir
innar þar, hana óhæfa til starfs-
ins. En Gladys gefst ekki upp.
Hún ræðst sem þjónustustúlka
til uppg j af aembættismanns og
safnar þannig fé til þess að kom-
ast til Kína upp á eigin spýtur.
Þegar þar að kemur leggur hún
leið sína yfir Rússland og Síberíu.
Eftir langa og erfiða ferð kemst
hún loks til Kína, þar sem við
henni blasir allsstaðar eymd, tor
tryggni, mannúðarleysi og van-
þekking. Gladys hittir nú kristni-
boðann frú Lawson, sem býr i
borginni Wangcheng og sezt að
hjá henni. Gladys tekur þegar til
starfa Og sýnir bæði dugnað og
hugrekki í margskonar erfiðleik-
um og hættum sem steðja að úr
öllum áttum. Mandarininn í borg-
inni fær mætur á þessari ungu
og heilsteyptu konu og tekur
hana í sína þjónustú. Hún hittir
einnig fyrir gjörvulegan höfuðs-
mann Linnan, sem er kinverskur
í aðra ættina en hollenzkur í hina.
Innrás Japana í Kína er yfirvof-
andi og höfuðsmaðurinn ræður
Gladys til að hverfa úr landi þeg-
ar í stað. Hún neitar því, — hún
hefur fengið kínverskan þegnrétt
og hún kveðst vilja dveljast með
þjóð sinni þar til yfir lýkur. Jap-
anir gera árás á borgina, en
Gladys gerir þá hetjudáð að flýja
með hundrað börn yfir fjöll og
firnindi, marga daga ferð, við
miklar þrautir, ög kemur þeim
á öruggan stað. Þar hittir hún
fyrir forstjórann frá London, sem
dæmdi hana óhæfa til kristniboð3
ins í Kína. En nú lofsamar hann
dáð hennar eins Og allir aðrir. Og
hún bíður betri tíma með Linnan
höfuðsmanni, — manninum, sem
hún elskar og sem elskar hana.
Þetta er stórbrotin mynd og
vel gerð Og leikur Ingrid Berg-
man í hlutverki Gladys er frábær
og ógleymanlegur. Einnig er af-
burðargóður leikur Roberts Don-
ats í hlutverki mandarinsins og
Curd Júrgens, er leikur Linnan
höfuðsmann, fer einnig vel með
það hlutverk.
Ég mæli eindregið með þessari
áhrifamiklu mynd.
Gamla Bíó:
SKÓLAÆSKA Á GLAPSXIGUM
MIKIÐ hefur verið um það rætt
og ritað hversu óhugnanlega fari
í vöxt að unglingar verði eitur-
lyfjanautninni að bráð. Einna
mest mun þessa gæta meðal æsku
fólks í Bandaríkjunum, enda mun
það ærið mikið Og alvarlegt
vandamál þar í landi. — Um þetta
mál fjallar mynd sú, sem hér er
um að ræða. Atburðirnir gerast
meðal nemenda í menntaskóla í
smáborg á vesturströnd Banda-
ríkjanna. Skólavistin þar er dýr
og því stunda þar nám nær ein-
göngu synir og dætur auðugra
foreldra. Dag einn finnast mari-
júrana vindlingar á skólalóðinni
og veldur það miklu uppnámi.
Ríkislögreglan kemst í málið, en
kennarar skólans og foreldrar
nemendanna hugsa fyrst og
fremst um það að koma í veg
fyrir að þetta verði að opinberu
hneykslismáli. Dollarinn er mátt-
ugur og málið er þaggað niður.
En nú b ætist í hópinn nýr nem
andi, Tony Baker. Þetta er hressi-
legur ungur piltur, orðhvatur við
kennarana ög aðsópsmikill í hví-
vetna og hefur auk þess peninga
eins og sand. Hann tekur brátt
forystuna meðal skólasystkina
sinna, sem dáðst að djarflegri
framkomu hans. En Tony er ekki
allur þar sem hann er séður.
Hann verður þess brátt áskynja,
að ein af ungu stúlkunum er eit-
urlyfjaneytandi og hann ákveður
að taka málið í sínar hendur og
rannsaka hverjir það 7 séu, sem
sjá unglingunum fyrir eitrinu.
Hann beitir við það bæði kænsku
og dirfsku og tekst að lokum að
koma upp um bófana.
í myndinni blasir við áhorfand
anum ofsafengið Og taumlaust líf
þessa unga fólks, sem hugsar ekki
um annað en skemmtanir, æðis-
genginn dans og jazz-músik og
hraðann bílaakstur. Vafalaust er
þetta meira og minna ýkt í mynd
inni, en þó satt og rétt inn við
kjarnann. Og maður sannfærist
um að þetta taumlausa líf hafi
óhjákvæmilega óholl áhrif á sálar
líf unglinganna og leiði þá á villi-
götur, jafnvel til eiturlyfjanotk-
unar, því alltaf þarf að auka á
spennuna og leita nýrra og sterk-
ari nautna.
Mynd þessi er áhrifarík, •—
þung ádeila og alvarleg varnaðar-
orð, serh allir unglingar hafa gott
áf að sjá Og hugleiða, svo að þeir
komist í skilning á því hver voði
þqjm er búinn, sem, ef til vill af
forvitni eða í augnabliks léttúð
reykja fyrstu eitursígarettuna eða
taka við fyrstu heroin-innspýting
unni.
Myndin er ágætlega gerð og
leikur unga fólksins prýðísgóður.
Einkum er athyglisverður leikur
Russ Tamblyn’s í hlutverki
Tony’s og Diane Jergens, er leik-
ur ungu stúlkuna, sem hefur orð-
ið eiturnautninni að bráð; Og for
vitnilegt er að sjá þarna fleiri
leikara með þekkt nöfn, svo sem
John Barrymore, yngra, Charles
Chaplin, yngra og Jacki Coogan.
sem leikur aðal-bófann.
Nýja Bíó:
GISTIHÚS
SÆLUNNAR SJÖTTU
MYND þessi, sem er amerísk og
tekin í litum og Cinema-Scope, er
byggð á sögunni „The Small Wom
an“ eftir Alan Burgess, en sagan
hefur komið út í íslenzkri þýð-
ingu bæði í Úrvali og Vikublað-
inu „Fálkanum“. — Segir hér frá
ungri stúlku, enskri, Gladys
Aylwand, sem hefur brennandi
áhuga á að komast til Kína og
gerast þar trúboði. Þegar hún
kemur til London, dæmir for-
i stöðumaður kristinboðsstofnunar
Félagslíf
Frá Farfuglum
Mynda- og skemmtikvöldið
verður fimmtudaginn 12. október
nk. í Breiðfirðingabúð uppi. —.
Þeir félagar sem vildu lána
„Slides" til sýningar eru vinsam-
legast beðnir um að hafa sam-
band við skrifstofuna að Lindar-
götu 50, í kvöld kl. 8.30—10. —
Sími 15937.
Stjórnin.
Knattspyrnudeild Vals
Æfingar fram að áramótum
eru sem hér segir:
Meistara- og 1. flokkur:
miðvikud: kl. 8.30.
2. flokkur: föstud. kl. 10.10.
3. flokkur: miðvikud. kl. 7.40.
4. flokkur: miðvikud. kl. 6.50.
5. flokkur C-D: sunnud. kl. 1.
5. flokkur A-B: sunnud. kj. 1.50.
Stjórnin.
Knattspyrnudeild Vals
4. flokkur B.
Haustmeistarar 4. flokks B. —.
Myndataka verður á föstudags-
kvöld kl. 9. Mætið stundvíslega
með búning.
Þjálfarar.
Knattspyrnudeild Vals
Haustmeistarar 2. flokks B. —
Myndataka verður á föstudags-
æfingunni kl. 10.10. Mætið allir
stundvíslega með búning.
Þjálfarar,
Skíðadeild Víkings
heldur aðalfund sinn í kvöld
kl. 8.30 í Víkingsheimilinu. —
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.