Morgunblaðið - 05.10.1961, Blaðsíða 11
í'immtudagur 5. okt. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
11
Brynjólfur Kjartansson
fyrrverandi skipstjóri
Fæddur 20. des. 1893
Dáinn 20. sept. 1961
í>ANN 20. september sl. lézt í
sjúkrahúsi hér í bæ, Brynjólfur
Kjartansson fyrrv. skipstjóri eft-
ir nokkurra vikna þunga sjúk-
dómslegu og var hann jarðsettur
27. septemiber.
Hér er fallinn i valinn einn
hinna mætustu manna úr sjó-
íuenmastétt. Ungur hóf hann nám
í menntaskóla og lauk þaðan
prófi og hélt síðan áfram námi í
læknadeild háskólans um hríð, en
hætti þar námi og gerðist sjó-
maður. Brynjólfur sigldi á ýms-
um skipum og fékk því hald-
góða þekkingu á hinum marg-
þættu störfum sjóanannsins.
Hann lauk farmannaprófi frá
Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík árið 1922. Þá lauk hann
einnig loftskeytamannsprófi og
starfaði sem loftskeytamaður sam
hliða skipstjómarstörfum í mörg
ár. —
Lengst af sigldi Brynjólfur hjá
H.f. Shell á m.s. Skeljungi I. og
II. eða um 30 ár, fyrst sem stýri-
maður og síðustu árin, sem fast-
ur skipstjóri. Eftir að Brynjólf-
ur hætti störfum hjá H.f. Shell,
vann hann um tíma á Keflavíkur-
flugvelli en gerðist svo starfs-
maður hjá Háskóla. íslands og
var þar starfandi til æviloka.
Brynjólfur var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Ingveldur
Brandsdóttir, sem er látin fyrir
mörgum árum. Þau áttu saman
tvo drengi, Brand og Gísla, sem
báðir eru kvæntir hér í bæ.
Seinni kona hans er Elísabet Jóns
dóttir og áttu þau saman tvö
börn: Bryndisi Kristínu og Leif.
Eg átti því láni að fagna að
kynnast frænda mínum og vini
Brynjólfi all náið. Á U imili
móður minnar var hann tíður
gestur á hátíðum og tyllidögum,
þegar hann gat komið því við
vegna starfa sinna á hafinu. Allt- 1
af var framkoma hans jafn ljúf
og prúð, í unglingahóp þar sem
gleðin réði ríkjum eða þá er sorg
og raunir steðjuðu að. Seinna
er við áttum samleið á hafinu,
komst ég að raun um, að þar gilti
sama prúðmennskan á hverju
sem gekk. Aldrei minnist ég þess
að hafa heyrt blótsyrði af munni
Brynjólfs og er það sjaldgæft í
sjómannastétt Og er ég ekki að
segja þetta öðruom félögum mín-
uim til lasts, heldur til þess að
sýna hversu vel Brynjólfur hafði
stjórn á allri sinni framkomu,
bæði í orði og verki.
Já, þeir eru margir, skyldir og
vandalausir, sem sakna Brynjólfs
Kjartanssonar og senda konu
hans, börnum og öðrum ástvin-
um innilegustu samúðarkveðjur
við fráfall hans.
Brynjólfur!
Við skipstjórnarmenn þökkum
þér hlýtt viðmót og gott sam-
starf.
Svo kveð ég þig kæri frændi
með þökk fyrir allt og allt og bið
þér blessunar guðs og óska þér
fararheilla til stranda eilífðar-
landsins, þar sem ég vona að
leiðir okkar liggi saman að lok-
um.
Theodór Gíslason.
Húseigendur
Húsaleigusamningar fást í skrifstofu vorri Austur-
stræti 14, III. hæð. Opið frá 11—12 og 1—7 alla
daga nema laugardaga milli 11 og 12.
Ilúseigendafélag Reykjavíkur
KÚLAPENNINN I ÁR ER
<EV<=RSHARP
SUPER €
HvIHk þægindi, sparnaður og ánægja að skrifa með
góðum penna, sem fæst á hóflegu verði EVERHSARP
SUPER E er nýjang í pennasmíði, sem sparar yður
tíma og óþægind'. Hann er ávalt reiðubúinn til
skrifta mjúklega og örugglega. EVERSHARP
SUPER E sameinar alla kosti lindarpennans og kúlu-
pennans. Munið að kynna yður kosti EVERSHARP
SUPER E pennatis, þegar þér ákveðið kaupin á
skólapennanum. EVERSHARP SUPER E fæst
í helztu ritfanga- og bókaverzlunum.
Góður penni, hóflegt verð..............það er
EVERSHARP
Kristín Eiríksdóttir
Fædd 28. júlí 1868
Dáin 29. sept. 1961
í DAG verður til moldar borin
ein elzta og mætasta kona þessa
bæjar, Kristín Eiríksdóttir, Berg
staðastræti 7, Reykjavík. Hún var
fædd á Vatnsnesi við Keflavík,
en foreldrar hennar voru Eiríkur
Sveinsson og kona hans Þuríður
Nikulásdóttir. Kristín var tvígift,
fyrri maður hennar hét Magnús
Zakaríasson. Reistu þau glæsilegt
heimili í Keflavík, en sambúð
þeirra varð stutt, því tæpum
tveim árum eftir brúðkaupið and
aðist Magnús. Son áttu þau einn,
Þórð Magnússon, er starfað hefur
á skrifstofum Reykjavíkurbæjar
í fjölda ára. Hann ólst upp hjá
móður sinni og hefur dvalið hjá
henni alla tíð.
Semna giftist Kristín Þórgeiri
Pálssyni. Bjuggu þau fyrst í Kefla
vík, en fluttust til Reykjavíkur
árið 1903. Reistu þau húsið Berg-
staðastræti 7 og þar átti Kristín
heima til dauðadags. Börn Kristín
ar eru þau Magnús stórkaupmað-
ur Þorgeirsson í Pfaff og Emelía
kaupkona Þorgeirsdóttir. Öll eru
börn Kristínar prýðilega vel gefin
og ágætisfólk. Þorgeir og Kristín
slitu samvistum, en hún bjó á-
fram með börnum sínum á Berg-
staðastræti 7 og setti þar á stofn
matsölu.
Haustið 1921 bar fundum okkar
Kristínar fyrst saman. Eg kom
þá frá námi í Kaupmannahöfn og
var ekki allt Of vel f jáður. Spurði
ég því góðan kunningja minn,
hvort han ngæti ekki bent mér á
matsölustað, þar sem ég gæti
fengið að skulda fæðið að minnsta
kosti í einn mánuð. Hann fór
þegar með mig til Kristínar, þar
sem hann borðaði sjálfur. Samn-
ingar tókust mjög greiðlega milli
mín Og þessarar hæglátu, en þó
fjörlegu, eldri konu, og hjá henni
borðaði ég þar til ég stofnaði
mitt eigið heimili.
Kristín hafði marga ágæta
kosti sem matselja. Hún var
hagsýn og hafði ódrepandi dugn-
að við að útvega sér það bezta,
sem hún þurfti til starfseminnar.
Hún hafði alltaf hlýlegt viðmót
við alla. Mér fannst aldrei, að ég
væri að koma inn á matsöluhús,
þegar ég kom tli Kristínar, held-
ur inn á hlýlegt og notaíegt heim
ili, og þannig held ég að því hafi
verið varið með alla, sem þar
borðuðu.
Og nú, þegar við kveðjum
Kristínu Eiríksdóttur hinstu
kveðju, þá fylgir henni hlýr hug
ur og þakklæti okkar allra, sem
hún fóstraði í lengri eða skemmri
tíma af æfi okkar.
Blessuð sé minning hennar.
V.S.
„Dömur"
SAMKVÆMISSJÖL
SAMKVÆMISJAKKAR
SAMKVÆMISTÖSKUR
HVÍTIR SKINNHANZKAR
STÍF SKJÖRT
Hjá Báru
Austurstræti 14
Glæsílegt einbýlishus
í SKERJAFIRÐl. — Húsið er fullpússað að innan.
Allar hurðir nema útihurðir fylgja. Einnig öll
hreinlætistæki og nokkuð af öðru efni.
Upplýsingar á skrifstofunni, (ekki í síma).
FASTEIGNA & FISKISKIP
Bankastræti 6 — Sími 19764,
Barnaskóli
H afnarfjarðar
verður settur í Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
6. okt. kl. 6 síðdegis.
SKÓLASTJÓRI