Morgunblaðið - 10.10.1961, Page 1
24 sfður
48. árgangur
229. tbl. — Þriðjudagur 10. október 1961
Frentsmiðja MorTunblaðsina
Sendiherra í
handalögmáli
Amsterdam, 9. okt. (AP/NTB) hennar Alexei Goiub, 35 ára efna
1 DAG kom til átaka á flug-
vellinum í Amsterdam. Átt-
ust þar við fimm starfsmenn
sendiráðs Sovétríkjanna,
þeirra á meðal sendiherrann,
Panteleimon K. Ponomaren-
ko, og flokkur hollenzkra
iögreglumanna. í átökunum
hlaut sendiherrann hncfa-
högg í andlit og hnappur var
slitinn úr fötum hans.
BAÐST HÆLIS
Til átakanna kom þegar hol-
lenzka lögreglan neitaði að af-
Ihenda vegabréf rússneskrar
konu, frú Golub, vegna þess að
lögreglan óttaðist að verið væri
að flytja hana til Sovétríkjanna
gegn vilja hennar. En eiginmaður
!
Alþingi
kemur
saman
REGLULEGT alþingi,82. Vög
gjafarþing, kemur saman i
dag að aflokinni guðsþjónustu
í Dómkirkjunni kl. 13,30. Sr.j
Jón Auðuns dómprófastur
predikar. Mun forseti íslands
setja þingið í sal meðri deild-i
ar.
verkfræðingur, baðst á laugardag
hælis í Hollandi sem pólitískur
flóttamaður og afhenti lögregl-
unni vegabréf konu sinnar. Frú
Golub baðst einnig hælis, en
skipti síðar um skoðun og gaf
sig fram í sendiráði Sovétríkj-
anna í Haag. Sendiráðsmenn
fylgdu henni þaðan til Schipol
flugvallarins við Amsterdam, en
þaðan átti rússnesk fárþegaflug-
vél að flytja frúna til Moskvu.
FENGU EKKI AÐ FARA MEÐ
Á flugvellinum var frú Golub
beðin að kama til útlendingaeftir-
litsins til að fá vegabréf sitt.
Sendiráðsmennirnir rússnesku
vildu fá að fylgja frúnni þangað,
en lögreglan bannaði það. Réð-
ust_þá sendiráðsmennirnir inn til
eftirlitsins og heimtuðu vegabréf
ið, en yfirmaður lögreglunnar á
flugvellinum neitaði. Kom nú til
átaka og fluttu sendiráðsmenn þá
frú Golub í skrifstöfu rússneska
flngfélagsins, en lögreglan sló
hring um skrifstofuna.
Þegar hér var komið kærði
sendiherrann 'málið til Jan de
Quay forsætisráðherra Hollands,
sem kvaddi sendiherrann á sinn
fund.
Seinna í kvöld átti frú Golub
tal við mann sinn. Að loknum
þeim viðræðum kvaðst hún
ákveðin í að halda heim til sovét
ríkjanna. Var þá ekki lengur neitt
því til fyrirstöðu að hún færi, og
fékk hún vegabréf sitt. Rúss-
neski sendiherrann fylgdi henni
að flugvélinni, sem beðið hafði
í rúmar átta klukkustundir.
Elússar eiga nú
öfiugustu kjarn-
orkukafbátana,
segir Izvestia
Moskvu, 9. okt. (AP)
SKÝRT var £rá því í Sovét-
ríkjunum í dag að Rússar
ættu nú hraðskreiðasta flota
kjarnorkuknúinna kafbáta,
sem til væri, og að væri fær
um að ráða niðurlögum flota
sérhvers annars ríkis í neðan
sjávarorustu. Segir í frétt-
inni að þessir nýju kafbátar
séu búnir kjarnorkueldflaug-
um og sigli með mun meiri
hraða en hraðskreiðustu far-
þcgaskip, eins og United
States og Queen Elizabeth.
„Faðir kjarnorkuflotans"
í þessu sambandi gefur stjórn
arblaðið Izvestia í skyn að
Georgi Zhukov marskálkur hafi
verið rekinn úr embætti vam-
armálaráðherra og úr Æðsta
ráðinu 2. nóv. 1957 vegna þess
að hann var mótfallinn smíði
!kj arnorkukaf báta.
Segir blaðið að Nikita Krús-
jeff forsætisráðherra hafi ákveð
ið að halda áfram smíði kjarn-
orkukafbátanna, og sé hann nú
viðurkenndur af rússneskum
sjóliðum sem: „Faðir kjarnorku
Framh. á bls. 23.
Jörgen Jörgensen og kona hans við Tjörnina.
(Ljósm. Mbl.: 01. K. M.)
i því að ég hafi gert
aö eitt sem rétt var,
sagði Jorgen Jorgensen í samtali við Mbl. í gær
— ÉG hef haft það stórgott
á íslandi, sagði Jörgen Jörg-
ensen, fyrrum menntamála-
ráðherra, í örstuttu samtali
við fréttamann Morgunblaðs-
ins í gærdag. Mér hefur ver-
ið sýnd meiri vinátta, meðan
ég hef dvalizt hér, en mig
hefði nokkurn tíma órað fyr-
ir.
Jörgen Jörgensen og frú
halda heim til Danmerkur í
dag og er þá lokið heimsókn
þeirra til íslands að þessu
sinni. — Jörgensen hefur
komið hingað nokkrum sinn-
um áður, m.a. setið hér þing-
mannaráðstefnu Norðurlanda
og Norðurlandaráðsfundi. —
Hann segir, að sér hafi ætíð
fundizt landið undurfagurt,
og vinni á við nánari kynni.
— Allsstaðar mætir manni
lifandi saga, sagði hann, og
það er eins og gamlar aldir
komi hlaupandi á móti
manni hvert sem farið er.
— Þér hafið auðvitað verið á
Lögbergi, sagði fréttamaður
Morgunblaðsins.
— Já, þangað hef ég komið,
svaraði Jörgen Jörgensen.
— Finnst yður fallegt þar?
— Ekkert fallegra en annars
staðar. En það er einkennileg
tilfinning að standa á þeim
stað, þar sem lýðræðið varð að
veruleika í fyrsta skipti á Norð
urlöndum. Á Lögbergi fer mað-
ur ósjálfrátt að rifja upp fyrir
sér, hvernig draumurinn sem
allar þjóðir bera í brjósti, rætfc-
ist hér fyrir þúsund árum,
draumur fólksins um að það
fengi sjálft að stjórna sínum
málum.
Ég skrapp austur á Lögberg
í fyrra, þegar ég sat Norður-
landaráðsfundinn, hélt Jörgen-
sen áfram. Mér fannst ég sjá,
hvar fólkið sat allt umhverfis
mig á hrauni og og mosa og talaði
saman um þjóðmál. Það var eins
og að vera kominn þúsund ár
aftur í tímann, og ég fann hve
þetta fólk skildi vel lýðræðið og
hve hugsanir þess voru nátengd
ar skilyrðislausum kröfum lýð-
ræðisins um algert frelsi. Það
Frh. á bls. 23
Bang-Jensen myrtur?
Washington, 9. okt. (NTB)
. ÖRYGGISMÁLANEFND banda-
: f riska þingsins skýrði frá því í dag
i 800 faldast í Japan
VAXANDI uggs verður nú vart
víðast um heim, vegna geislunar-
hættunar af völdum áframhald-
andi kjarnorkusprengínga Sovét-
veldisins — sem nú eru orðnar
19 talsins. Eykst þessi hætta
jafnt og þétt eftir þ /i sem spreng
ingunum f jölgar — en á þeim er
enn ekkert lát fyrirsjáanlegt.
Af skiljanlegum ástæðum eru
það ekki sízt Japanir, sem fylgj-
ast nákvæmlega með aukningu
hinna geislavirku áhrifa frá
sprengingum. Samkvæmt fregn-
um frá Tokyo í gær, er geisla-
virknin þar um slóðir nú meiri
en nokkru sinni áður, síðan til-
raunir Sovétveldisins hófust.
í Shizouka-heilsuverndarstofnun-
innj í Vestur-Japan hafði hún
fyrr um daginn reynzt vera 800
sinnum meiri en eðlilegt er. Eru
háskólaprófessorar þeirrar skoð-
unar, að kjarnorkutilraununum
sé um að kenna.
í bandaríska stórblaðinu „New
York Times“ var á dögunum vik-
ið að hinum látlausu kjarnorku-
sprengingum Sovétveldisins í rit
stjórnargrein. Þar er m. a.
minnzt á þá undraverðu stað-
reynd, að enda þótt sovézku til-
r,- unasprengingarnar séu nú orðn
ar nálægt tuttugu talsins, hafi
Krúsjeff forsætisráðherra ekki
skýrt íbúum Sovétríkjanna frá
því einu orði, að slífcar tilraunir
standi yfir — hvað þá getið
þeiirar hættu, sem sprengingun-
um fylgir fyrir mannkynið allt.
★
Og blaðið heldur áfram:
„Þau viðbrögð, sem mál
þessi hafa vakið á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna bera
engu að síður vott um þann
vaxandi ugg sem stefna Sovét-
veldisins hefur orsakað hjá
þeim hluta mannkynsins, sem
um hana veit. Utanríkisráð-
herra Kanada hefur sagt frá
því, að geislavirkni í and-
rúmslofti Toronto hafi þús-
undfaldast, og aðalfulltrúi
Pakistan hefur varað við því,
að áframhald þessara til-
rauna skapi tvísýnu um „jafn
vel framtíð mannlegs lífs á
jörðunni.“
að allar líkur bentu til þess að
danski stjórnarerindrekinn Fovl
Bang-Jensen, sem lézt af höfuð-
skoti í nóv. 1959, hafi verið drep-
inn af kommúnistum, en ekki
framið sjáifsmorð eins og áður
var álitið.
í skýrslu nefndarinnar segir
að gögn New York lögreglunnar
hafi verið mjög vafasöm og að
margt bendi til þess að Bang-
Jensen hafi verið myrtur. Of
mikið mæli gegn sjálfsmorði, of
margar líkur fyrir því að hann
hafi verið myrtur og of margt
bendi til að Sovétríkin hafi ver-
ið flækt í málið. Dag Hammar-
skjöld fyrrverandi aðalritari SÞ
sagði Bang-Jensen, sem áður var
ritari Ungverjalandsnefndar SÞ,
upp starfi í'júlí 1958 fyrir að
neita að afhenda lista yfir vitni,
sem gáfu nefndinni skýrslur um
ástandið í Ungverjalandi. Hann
hvarf frá heimili sínu í New
York 23. nóvember 1959 og lík
hans fannst tveim dögum seinna
í almenningsgarði í útjaðri borg-
arinnar.