Morgunblaðið - 10.10.1961, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 10. okt. 1967
Andrej Gromyko, ntanrikisráðherra Sovétríkjanna. — Hvern svipinn skyldi hann oftast sýna
í viðræðum sínum við Kennedy?
Breytingar á
brezku stjórninni
London, 9. okt. (AP/NTB)
í DAG tilkynnti Macmillan
forsætisráðherra ýmsar breyt
ingar á brezku stjórninni. —
Eru helztu breytingarnar
þær, að Ian MacLeod ný-
lendumálaráðherra verður nú
formaður íhaldsflokksins og
leiðtogi hans í neðri deild
þingsins, en Reginald Maud-
ling fyrrum verzlunarmála-
ráðherra verður nýlendu-
málaráðherra.
MacLeod tekur við embætt-
um, sem R. A. Butler hafði áð-
ur með höndum, en Butler verð
ur áfram innanríkisráðherra og
fulltrúi forsætisráðherra. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimild-
um mun orsökin fyrir því að
Butler er leystur frá störfum
vera sú að Macmillan óski eft-
ir að Butler hafi betra tæki-
færi til að vera forsætisráð-
herranum til aðstoðar í ýmsum
áríðandi málum, sem nú bíða
úrlausnar. Butler á m.a. að
vera formaður viðræðunefndar
um aðild Breta að Efnahags-
bandalagi Evrópu.
MacLeod hefur aðeins Stt
sæti á þingi í 11 ár, en ýmsir
stjórnmálafræðingar telja hann
væntanlegt forsætisráðherraefnL
MacLeod hefur m.a. ritað marg-
ar bækur um bridge og er við-
urkenndur sérfræðingur á þvl
sviði. Hann var heilbrigðismála-
ráðherra 1952—55 og verka-
málaráðherra 1955—59.
Gromyko
til Moskvu
London, 9. okt. (AP).
ANDREI Gromyko utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna hélt í kvöld
frá Bandaríkjunum áleiðis til
Sovétríkjanna. Hann kemur við
í London og mun þar ræða við
Home lávarð, utanrikisráðherra
Breta.
Um helgina átti Gromyko við-
ræður við Kennedy forseta í
Washington. Ræddu þeir m. a.
um Berlín og Þýzkalandsvanda-
málin. Haft var eftir sendiherra
Vestur-Þýzkalands í Washington
að viðræðurnar hafi borið nei-
kvæðan árangur, en Pierre Sal-
inger, blaðafulltrúi Kennedys,
bar á móti þessu í dag. Sagði
hann að þótt viðræðurnar hafi
ekki skapað samningsgrundvöll,
litu Bandaríkin ekki á þær sem
neikvæðar.
Dean Rusk utanríkisráðherra
átti í dag símtöl við sendiherra
Bandaríkjanna í Bonn og Moskvu
Og hafa þeir báðir verið kallaðir
heim til viðræðna.
Kennsla í norsku
og sænsku
SENDIKENNARINN í norsk-u við
Háskóla íslands, Odd Didriksen
cand. mag., og sendikennarinn í
sænsku, Jan Nilsson fil. mag.
munu hafa námskeið í háskól-
anum fyrir almennin-g í vetur.
Kennslan er ókeypis og verður
hanni hagað sem hér segir:
í norsku: byrjendaflokkur
þriðjudaga kl. 8:15 e.h. og fram-
haldsflokkur fimmtudaga kl. 8:15
e.h. Væntanlegir nemendur í báð
um flokkum eru beðnir að koma
til viðtals fimmtudaginn 12. okt.
kl. 8:15 e.h. í VI. kennslustofu
háskólans.
í sænsku: Kennt verður á
mánudögum og miðvikudögum kl
8:15 til 10 síðd., og verður kennsl-
an til jóla eingöngu ætluð byrj-
end-um. Væntanlegir nemendur
eru beðnir að koma til viðtals
mánudaginn 16/ okt. kl. 8:15 e.h.
í III. kennslustofu háskólans.
Afhenti trúnaðar-
bréf í Portúgal
Hinn 6. október s.l. afhenti
Henrik Sv. Björnsson forseta
Portúgal trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra íslands í Portúgal
með búsetu í London.
Frétt frá utanríkisráðuneytinu.
Fyrstu tónleikar Sinfdníu-
hljómsveitarinnar
Á efnisskrá vetrarins eru
fjölmdrg störverk
NÆSTKOMANDI fimmtudag
verða fyrstu tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar á vegum Rík-
isútvarpsins fluttir í hinu nýja
Háskólabíói, sem er stærsti og
fullkomnasti tónleikasalur bæj-
arins. Verkefnin á fyrstu sjálf-
stæðu tónleikunum í þessum
sal eru Karneval Dvoraks og
Konsert Mendelssohns fyrir
fiðlu og hljómsveit. Einleikari
með hljómsveitinni er hinn
ágæti fiðluleikari, Michael Rab-
in, sem margir hér kannast við.
Þá er seinasta verkið á efnis-
skránni Scheherazade, op. 53,
sinfónísk svíta eftir Rimsky-
JCorsakoff.
Stjórnandi er hinn nýi hljóm-
sveitarstjóri, Jindrich Rohan og
verða þetta fyrstu tónleikarnir,
sem hann stjórnar hér opinber-
lega. Þá leikur Mariluise Dra-
heim á hörpu á þessum fyrstu
tónleikum, en það er nýlunda
að útvarpið hefur ráðið hörpu-
leikara.
Tónlistarskrá vetrarins
Samfelld tónleikaskrá hefur
verið lögð fyrir veturinn nú í
upphafi starfsársins, og er hún
komin út í litlu kveri. Aðrir
tónleikar verða 26. október og
þar leikin verkefni eftir Bartók,
Havelka, Stravinsky, Smetana
og Liszt. Þriðju tónleikarnir
eru helgaðir Ravel, Chausson og
César Franck og á þeim tón-
leikum er Einar G. Sveinbjörns
son einleikari. Á fjórðu tón-
leikunum er flutt Ein Deutches
Requiem, op. 45 eftir Brahms
undir stjórn dr. Roberts A.
Ottóssonar og með Fílharmoníu-
kómum. Síðar rekur hvert stór-
verkið annað fram í júníbyrj-
un. Verða íslenzk verk flutt
hvert eftir annað, eftir Jón
Leifs, Jón Nordal, Hallgrím
Helgason, Pál ísólfsson og sér-
stakir íslenzkir tónleikar með
ýmsum höfundum eru ráðgerðir
17. maí. Sérstakir jólatónleikar
verða haldnir í Dómkirkjunni
29. desember.
Æskulýðstónleikar
og útvarpstónleikar
Þá hefur verið ákveðin sú ný-
breytni að hafa æskulýðstón-
leika. Þeim verður skipt eftir
aldursflokkum hlustenda og eru
mörg stór og skemmtileg og að-
gengileg verkefni á þeim. Fyrst
eru hljóðfærin kynnt hvert um
sig og síðan skýrð og svo hald-
ið áfram stig af stigi upp x sam
felld verk.
Þá eru ýmisleg verkefni flutt
í útvarpssal, eins og t.d. söng-
leikurinn Hans og Gréta eftir
Humperdinck með söngvurum,
þul og hljómsveit, Jólaleikur
fyrir böm eftir Carl Orff með
kvennakór, talröddum, einsöngv
urum og hljóðfæraleik, Saga
hermannsins eftir Stravinsky og
úrdráttur úr óperunni Pagan-
ini eftir Lehar og þættir úr
óperettum og íslenzk sönglög
með hljóðfæraundirleik. Þá em
afmælistónleikar Bjarna Þor-
steinssonar og leikur í Þjóðleik-
húsinu.
Áskrifendur aff tónleikunum
Sú nýjung hefur verið tekbf*
upp að mönnum er gefinn kost-
ur á að gerast fastir áskrifend-
ur að öllum tónleikunum í einu
eða helmingi þeirra. Kosta 14
tónleikar 700, 560 eða 350 kr.
og fylgja ókeypis tvennir auka-
eða hátíðartónleikar. Misseris-
tónleikar kosta 385, 300 og 185
kr. og fylgja þá einir aukatón-
leikar. Eiga áskrifendur for-
gangsrétt að kaupum aðgöngu-
miða.
Aðrar helztu breytingarnar
eru þessar: Dr. Charles Hill
verður húsnæðismálaráðherra,
Frederick J. Erroll verður verzl
unarmálaráðherra og Henry
Brooke verður aðstoðarfjármála
ráðherra og ríkisféhirðir.
Svavar sýnir með
Copra
ÞÁ heldur Copra, félagsskapur
danskra, íslenzkra, belgískra og
hollenzkra myndlistarmanna sýn
ingu á málverkum og höggmynd
um í Kaupmannahöfn. Einn ís-
lenzkur málari, Svavar Guðna-
son, er meðal stofnenda Copra
og sýnir hann T myndir á þess-
ari sýningu, sem margir af kunn-
ustu listamönnum Dana taka
þátt í. Copra-hópnum hefur ver-
ið boðið að halda sýningu í
London í haust.
IMýíar kennslubækur i
dönsku eftír Agúst
Ságurðsson
ÞÞRIÐJA hefti kennslubókar í
dönsku eftir Ágúst Sigurðsson
er komin út hjá ísafoldarprent-
smiðju. í bókinni er að miklu
leyti sama efni og var áður í
síðari hluta annars heftis. Tölu-
^ NA /5 hnútar SV SÖhnútor X Snjókoma »úst mm V Skúrír v K Þrumur 'W&S, II H Hm1
Á HÁDEGI í gær var allvíð-
áttumikið lægðarsvæði frá fs-
landi vestur um Suður-Græn-
land, en lægðin var fremur
grunn og vindur því hægur á
landinu. Loftvogin féll mest
við Suður-Grænland um rúm-
lega mb. á hverrjum klukku-
tíma, og leit út fyrir að það
fall mundi breiðast austur.
Var því búizt við vaxandi
SA-átt hér á landi. í fyrrinótt
voru einstök hlýindi á Jan
Mayer, 13 stiga hiti, en þar
er meðalhiti hlýjasta mánað-
ar ársins ekki nema 5 stig.
Veffurspáin kl. 10 í
gærkvöldi
SV-land til SA-lands og
miðin: Hæg breytileg átt,
skýjað en úrkomulítið.
verðu nýju efni hefur þó verið
bætt við framan til í bókinni og
textinn er prýddur nokkrum
nýjum myndum eftir Halldól'
Pétursson, listmálara, auk nýrra
mynda eftir danska teiknara.
Málfræðin er breytt frá mál-
fræði annars heftis, einkum er
bætt inn fjölda æfinga og skýr-
ingardæma. Málfræðin er ætluð
íil undirbúnings undir landspróf
og ætlast höfundur til þess, að
hún sé mest lesin í landsprófs-
deildum 3ja bekkjar, en hún
ætti þó einnig að vera fullnægj-
andi fyrir 4. bekkjar nám til
gagnfræðaprófs. Að öðru leyti
er bókin sérstaklega ætluð dug-
legum annars bekkjar deildum,
Einnig eru nýkómnar út tvær
aðrar bækur eftir sama höfund
í nýjum útgáfum, Danskir les-
kaflar, fyrra bindi, og Danskt-
íslenzkt orðasafn. Orðasafnið
'hefur verið aukið svo að það nær
einnig yfir hið nýja efni í 3ja
hefti kennslubókarinar og les-
köflunum. í leskaflana hefur
verið bætt tveimur köflum I
stað annarra, sem hafa verið
felldir niður.
AKRANESI, 9. okt. — 8 línubát-
ar lönduðu hér í dag. Afli þeirra
var 4—6 lestir á bát. Skipaskagi
hefur fiskað hér 1 8 róðrum 53,5
lestir.
Katla er hingað komin og los-
ar 4500 tómar tunnur til síldar-
stöðvanna á staðnum. — Oddur.