Morgunblaðið - 10.10.1961, Síða 5
Þriðjudagur 10. okt. 1961
M O Tt C T’ \ r> r 4 f) I Ð
5
MENN 06
= mLEFN!=
NORSKUR stúdentaprestur,
Leif M. Michelsen,, hefur
1 dvalið hér á Iandi síðan um
mánaðamót í boði Kristilegs
1 stúdentafélags. Hann sat mót
J félagsins í Vindáshlíð helgina
30. sept. — 2. okt. og hefur
síðan talað á opinberum sam-
komum í Reykjavík og heim-
sótt gagnfræðaskóla. f kvöld
og annafð kvöld mun hann
Itala við stúdeirta á Gamla
Garði.
Leif M. Michelsen er fram-
kvæmdastjóri „Norges kriste-
lige Student — Gymnasiast-
lag“, en það er kristilegt fé-
lag háskólastúdenta, mennta-
og gagnfræðaskólanemenda. f
sambandi við þennan félags-
skap starfa 10 prestar, sem
ferðast um milli skólanna. Eru
þeir sérstaklega vígðir af
biskupi til þess starfa.
★
Blaðið hitti séra Leif M.
MicKelsen að máli fyrir
skömmu og spurðum við hann
fyrst:
— Hvers vegna kusuð þér
að vígjast til starfa fyrir
unga fólkið?
— Mér finnst það vera verk
efni mitt að leiða norska æsku
til heilshugar trúar á Krist.
Vegna þess að ég veit að hún
getur ekki fengið ríkara líf
en það sem hann vill gefa
henni. Við viljum að Noregur
sé kristin þjóð og kristnin
setji svip sinn á þjóðfélagið.
í>ar aí leiðandi er mjög mikil-
vægt að vinna meðal skóla-
fólks, því það á að erfa land-
ið. Þegar þessi kristilega starf
semi fyrir skólafólk hófst
1924 voru t. d. mjög fáir lækn
■ar trúaðir, en þeim hefur
fjölgað mjög mikið.
— En eru ekki mótsagnir
milli kristinnar trúar og nú-
tíma vísinda?
— Margir eru þeirrar
skoðunar að þetta geti ekki
samræmst og vísindanienn
geti ekki trúað á guð. En ég
hóf starf mitt meðal stúdenta
við Tækniháskólann í Þránd-
heimi og starfaði þar í fimm
ár og s.l. 2 ár hef ég starfað
meðal raunvísindastúdenta í
Osló. Margir tækni- og raun
vísindastúdentar eru trúaðir.
Einnig eru margir vísinda-
menn á þessum sviðum trú-
aðir t. d. prófessor og nokkr-
ir dósentar og lektorar við
Þrándheims-háskóla.
— Hvað eru mörg félög inn
an sambandsins, sem þér
stjórnið?
— Það eru 160 félög. f byrj-
un var þessi starfsemi aðeins
fyrir háskólastúdenta og þá
aðallega guðfræðistúdenta, en
núna eru stúdentar, sem
leggja stund á aðrar greinar
jafn fjölmennir í félögunum.
Stærsta félagið innan sam-
takanna er Félag kristilegra
háskólastúdenta í Osló en í
því eru um 400 stúdentar.
Annars vinnum við mest
meðal nemenda 1 gagnfræða-
og menntaskólum. en kristin
fræði eru kennd þar alveg
fram til stúdentsprófs. Prest-
arnir 10 ferðast á milli skól-
anna og taka þátt í kristin-
fræði kennslunni og halda
samkomur fyrir nemendurna.
— Hvernig aflið þið fjár til
þessarar starfsemi?
— Við höfum ýmsar tekju-
lindir. Um einn þriðja af
tekjunum fáum við með því
að unglingarnir innan félags-
skaparins taka að sér að vinna
ákveðinn hluta verks. T: d.
að ryðja skógi í burtu þar sem
á að byggja raforkuver. Þeir
fá frítt fæði og húsnæði. en
oftast búum við í tjöldum.
Rætt við
norskan
stúdentaprest
Einnig fá unglingarnir fríar
ferðir á staðinn og heim aft-
ur. Eh kaupið þeirra fáum við
til starfseminnar. f hverjum
vinnuflokki eru um 150 ungl-
ingar og dvelja þeir Vz mán-
uð í búðunum. í þessum
vinnubúðum höfum við kristi
lega starfsemi svo sem helgi-
stundir og biblíulestra á
kvöldin.
Þeir unglingar innan . sam-
takanna, sem ekki sjá sér
fært að taka þátt í vinnubúð-
unum leggja 5% af sumar-
kaupi sínu til starfsemi
þeirra.
Af öðrum tekjulindum má
nefna framlög frá styrktar-
félögum, sem eru nokkuð
margir.
— Hvernig hefur yður þótt
að tala við íslenzka stúdenta?
— Mér hefur þótt það gott,
en þó hef ég ekki komizt í
náin tengsl við þá. Eg vona
að úr því rætist því að nú er
ég fluttur á Gamla Garð og
ætla að búa þar, þar til ég
held heimleiðis á fimmtudag.
— Er öðruvísi að tala um
kristindóm við stúdenta, en
aðra?
— Sá. sem ætlar að tala við
stúdenta um kristindóm, verð
ur að þekkja hugarfar þeirra
og vandamál. Og hann þarf
að geta talað skýrt og rök-
rétt. Stúdentar þarfnast ein-
falds og skýrs boðskapar um
fyrirgefningu syndanna, eins
og allir aðrir. Það er engin
aukalest til himna fyrir stú-
denta.
Við köllum starf okkar
evangelískt- stúdentastarf.
Fagnaðarerindi Jesú Krists
er þungamiðjan í því.
Þó við höfum einnig áhuga
á menningar- og þjóðfélags-
vandamálum, verða þau aldr-
ei aðalatriðið. Stúdentar og
annað skólafólk þarf að öðl-
ast lifandi trú á Krist.
Læknar fiarveiandi
Alma Þórarinsson til 15. októbef. —
(Tómas A. Jónasson).
Árni Björnsson um óákv. tíma. —
(Stefán Bogason).
Axel Blöndal til 12. okt. (Olafur
Jóhannsson)
Eggert Steinþórsson óákv. tíma.
(Kristínn Björnsson).
Esra Pétursson um óákv. tíma.
(Halldór Arinbjarnar).
Eyþór Gunnarsson frá 17.9. í 2—3
Vikur. (Viktor Gestsson).
Gísli Ólafsson frá 15. apríl í óákv.
tíma. (Stefán Bogason).
Guðjón Guðnason frá 28. júlí til 10.
okt. (Jón Hannesson).
Hjalti Þórarinsson til 15. október. —
(Olafur Jónsson).
Jón Hannesson til 18. okt. (Ofeigur
J. Ofeigsson).
Jón Hjaltalín Gunnlaugsson fjarv.
til októberloka. — (Stefán Bogason,
Laugavegsapóteki frá kl. 4—5, sími
19690).
Kjartan R. Guðmundsson frá 21. sept.
1961 til 31. marz 1962. (Samlagssj. Ol-
efur Jóhannsson, Taugasj. Gunnar
Guðmundsson) .•
ólafur Geirsson fjarv. fram í miðj-
•n nóvember.
Sigurður S. Magnússon f óákv. tími.
Sveinn Pétursson frá 5. sept. í 4—5
vikur. (Kristján Sveinsson).
Víkingur Arnórsson óákv. (Olafur
Jónsson).
Söfnin
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 er
opió þriðjud., fimmtud. og sunnudaga
trá kl. 1.30—4 e.h.
Þjóðminjasafnið er opið sunnud.,
|>riðjud., fimmtud. og laugard. kl.
1.30— 4 e. h.
Listasafn Einars Jónssonar opið
6unnudaga og miðvikudaga frá kl.
1.30— 3,30.
Tæknibókasafn IMSÍ, Iðnskólanum:
Opið alla virka daga kl. 13 til 19. —
Laugardaga kl. 13—15.
Ameríska bókasafnið, Laugavegi 13,
er opið kl. 9—12 ng 13—18, lokað laug-
ardaga og sunnudaga.
Bókasafn Dagsbrúnar, Freyjugötu 27.
Opið á föstudögum frá 8—10 f.h., laug-
ardögum og sunnudögum kl. 4—7 e.h.
Bókasafn Kópavogs: — Utlán þriðju
daga og fimmtudaga í báðum skólun-
um fyrir börn kl. 6—7:30 og fullorðna
kl. 8:30—10.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur —
Sími 12308 — Aðalsafnið Þingholts-
stræti 29 A: Útlán: 2—10 alla virka
daga, nema laugardaga 2—7. Sunnu-
daga 5—7. Lesstofa: 10—10 alla virka
daga, nema laugardaga 10—7. Sunnu-
daga 2—7.
Útibú Hólmgarði 34: Opið 5—7 alla
virka daga, nema laugardaga.
Útibú Hofsvallagötu 16: Opið 5:30—
7:30 alla virka daga, nema laugardaga.
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla
túni 2. opið dag’ega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Að lifa kátur, lífs er mátinn beztur;
þó að bjáti eitthvað á,
úr því hlátur gera má.
(Lausavísa)
Ætíð ver í vöku og blund
vafin Jesú örmum;
standi hvers hans æð og und
opin þér á dauðastund.
(Gömul lausavísa)
Sú var fríðust drósa drós,
dyggð og tryggðum vafin,
sannnefnd víðis ljósa ljós,
landsins prýði hrós og rós.
(Úr Andrarímum).
Loftleiðir h.f.: —
I dag er Snorri Sturluson væntanleg
ur kl. 09:00 frá NY. Fer til Gautaborg
ar, Khafnar og Hamborgar kl. 10:30.
Leifur Eiríksson er væntanlegur kl.
24:00 frá Luxemburg. Fer til NY kl.
01:30
Jöklar haf.: Langjökull er á leið til
A-Þýzkaland, Vatnajökull er á leið til
Haifa.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er á Akranesi Askja er á leið til
Grjkklands.
Skipadeild SÍS: Hvassafell er vænt
aplegt til Onega í dag. Arnarfell fer frá
Hamborg í dag. til Rvíkur. Jökulfell er
á leið til London. Dísarfell fer frá Gufu
nesi í dag til Reyðarfjarðar. Litlafell
kemur til Rvíkur á morgun. Helgafell
er á leið til Rvíkur. Hamrafell er
væntanlegt til Batumi 12. þ.m. Tubal
er í Þorlákshöfn. Henry Horn lestar á
Austf j arðahöf num.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla er á
Austfjörðum á suðurleið. — Esja kom
til Reykjavíkur í gær að vestan úr
hringferð. — Herjólfur fer frá Vest-
mannaeyjum kl. 22:00 í kvöld til
Reykjavíkur. — Þyrill er á Norður-
landshöfnum. — Skjaldbreið fer frá
Rvík í dag vestur um land til Akur-
eyrar. — Herðubreið er á Austfjörðum
á norðurleið.
Margar hefur kapítuli klausur.
Oft er stutt kápa víð að neðan.
Fáir etja kappi við sjálfan sig.
Ekki er sætleiki í tvísoðnu káli.
Flest allt það sem fer í kaf, flýtur
upp um síðir.
Sá er verðugur síns kets, er sitt kál
át.
Ekki eru jötnar meybarna meðfæri.
Hægara er að tala tólf jökla en genga
einn.
Já er meyjar nei.
(íslenzkir málshættir).
7. okt. opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Petrí.ia Þorsteinsdóttir,
Flókagötu 60 og Gunnar Guð-
mundsson, Baldursgötu 26
Reglusamur maður
óskar eftr atvinnu nú þeg-
ar, vanur akstri. Uppl. í
síma 32454.
Útlærð
hárgreiðsludama óskast
hálfan eða allan daginn. —
Uppl. í síma 17963 milli
10—12 fyrir hádegi.
Bifvélavirkjun
óska eftir að komast sem
nemi í bifvélavirkjun. Tilb
sendist afgr. Mbl. fyrir
föstudagskv., merkt: „lag-
inn".
Aukavinnt
Vantar fólk til innheimtu-
starfa. Tilb. sendist afgr.
Mbl. merkt „Innheimta —
5645“
Mótatimbur
og vinnuskúr til sölu. Uppl.
í síma 34013.
Amerísk vatteruð I ápa
nr. 14 til sölu, hentug fyrir
skólastúlku, tækifærisverð.
Uppl. í síma 19404..
Nýleg þvottavél.
B. T. H. (Gala) til sölu.
Hagstætt verð. Uppl. í dag
og kvöld í síma 19497.
Permanent litanir
geislapermanent, gufu
permanent og kalt perma-
nerst. Hárlitun og hárlýsing
Hárgreiðslustofan Perla
Vitastíg 16A — Sími 14146
Útvarpsviðgerðir
Gerum við allar gerðir viðtækja, radiogrammófóna,
segulbandstæki (Grundig), sjónvarpstæki.
Fljót afgreiðsla.
Viðtækjaverzlun og vinnustofa
GEORG ÁMUNDASONAR
Skipholti 1 — Sími 15485.
Til sölu
4ra herb. íbúð við Skólabraut.
Nánari upplýsingar gefur
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar
og Guðmundar Péturssonar
Aðalstræti 6 símar 1-2002, 1-3202, 1-3602.
Frá Golfskálanum
Tökum fermingarveizlur, veizlur og fundi.
Steingrímur Karlsson, Ingibjörg Karlsdóttir,
sími 36066 og 37940.
Matbarinn
LÆKJARGÖTU6
er fluttur í Lækjargötu 8.
Kjorbarínn
Fjósamann vanfar
að Hvanneyri
.SKÓLAST JÓRI.
Iðnaðarhúsnœði
óskast fyrir léttan og hávaðalausan iðnað.
Upplýsingar í síma 14477.
Til sölu
Einbýlishús við Arnarvog í Garðahreppi. 6 herb.,
eldhús og bað, ásamt bílskúr.
Nánari upplýsingar gefur
MáHlutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar
og Guðmundar Péturssonar
Aðalstræti 6 símar 1-2002, 1-3202, 1-3602.