Morgunblaðið - 10.10.1961, Síða 17
Þriðjudagur 10. okt. 1961
M O n C V iy B L 4 Ð1Ð
17
50 ára
Birgir Thoroddsen, skipstjóri
ÞAÐ þykir kanski ekki neinar
stórfréttir í þjóðfélagi okkar,
þótt einstaklingur nái þeim aldri
að verða fimmtugur. I>ó er spá
mín sú, að lengi ennþá þyki þessi
tímamót nokkur viðburður innan
fjölskyldna og vinahópa.
f í dag er Birgir Thoroddsen,
skipstjóri á M/S Lagafossi 50
ára. Hann er fæddur í Vatnsdal
í Patreksfirði 10. október 1911,
sonur hjónanna Ólínu Andrés-
dóttur og Ólafs Thoroddsen, fyrr-
verandi skipstjóra.
Ungur að árum hóf Birgir starf
sitt á hafinu. Fyrst á vélbátum
og siðan á togurum frá Patreks-
firði. Ekki leið á löngu þar til
Birgir fannst of þröngt um sig á
vísu ef tilefni gefast til þess.
Hann er vel mælskur, ræðinn
og skemmtilegur í kunningja-
hópi. Af slíkum mönnum er
sannalega alltof fátt meðal sam-
ferðamannanna. Þessir góðu
hæfileikar Birgis verka því eins
og salt og pipar á bragðleysi
hversdagsleikans.
f gegnum félagsmálin hefur
skapast vinátta milli fjöldskyldna
okkar Birgis. Austur við Þing-
vallavatn í Miðfellslandi standa
tveir sumarbústaðir hlið við hlið
að vísu engar hallir, en vinalegir
í smæð sinni eigi að síður. Þar
höfum við Birgir, ásamt konum
okkar og börnum leitað næðis og
hvíldar frá önnum dagsins. ,,Þar
andar guðs blær,“ og þar er svo
frjáls að njóta friðar Oig fjalla-
loftsins tæra. Megi þær stundir
verða sem flestar, sem fjöldskyld
um okkar lánast að lifa þar í
sátt og samlyndi.
í dag hvarflar hugur vina og
samstarfsmanna til afmælisbarns
ins sem siglir skipi sínu milli
erlendra hafna „færandi varn-
inginn heim“. „Það er ekki nauð
synlegt að lifa, en það er nauðsyn
að sigla“, segir gamalt máltæki.
Þetta er enn í dag mikill sann-
leikur. Og meðan við eigum mörg
og góð skip, fullskipuð vöskum,
hugdjörfum sjómönnum er von
með að velmegun haldist í landi
voru og íslenzkt þjóðlíf blómgist
og dafni. /
Birgir minn ! Meðlimir í Stýri-
mannafélagi fslands senda þér
árnaðaróskir í tilefni dagsins. Ég
og fjöldskylda mín óskum þér
allra heilla og guðsblessunar í
gleði og starfi í hafi og í höfn,
um .ókomin ár.
Theodór Gíslasonr.
til 1908, að hann gerðist bóndi
að Hrafnabjörgum eftir fráfall
Gísla Oddssonar föðurbróður
hans. Á Þingeyri byggði Ólafur
traust og vandað íbúðarhús
ásamt öðrum manni (Kristjáni).
Að Hrafnabjörgum búnaðist
þeim hjónum vel, enda var Ólaf-
ur hið mesta synrtimenni og
þoldi engin vanhöld á verkfær-
um eða öðru, er hann hafði
undir höndum og átti að veita
forsjá.
1908 varð hann fyrir alvarlegu
brunaslysi á fiskiskipi er hann
átti og beið hann þess aldrei
bætur.
Þeim hjónum varð ekki barna
auðið, en hjá þeim fóstraðist
stjúpsonur Ólafs, Steingrímur
Jónsson, fyrrv. rafmagnsstjóri
Reykjavíkur.
1927 létu þau hjón af búskap
og fluttust til Reykjavíkur. —
Skömmu eftir komuna suður
gerðist Ólafur verkstjóri hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur og
hélt því starfi fram um áttrætt.
Síðustu árin var hann mjög far-
inn að heilsu þar til yfir lauk.
Ólafur var einn af hinum
traustu manndómsmönnum, enda
alinn upp við skapfestu þeirrar
kynslóðar, er þurfti að vinna
hörðum höndum til þess að geta
staðið á eigin fótum, með mann-
gildishugsjónina að leiðarljósL
Skapgerðarlistin er sennilega
ein af torlærðustu listgreinum
mannlífsins. Og því skal ekki
neitað að stundum gat „kastast
í kekki“ á yfirborði skapgerðar-
innar. En þeir sem þekktu Ólaf
Kristjánsson vissu að undir yf-
irborðinu sló hlýtt og trútt
barnshjarta. Það var hans aðals-
merki.
Að leiðarlokum fylgja honum
hugheilar kveðjur samverka-
og samferðamanna.
Megi þjóð vor eignast marga
slíka heilsteypta sæmdarmenn.
Þá mun vel farnast.
Hnginn er höldur
hetjumundir stirðar.
Árvakur þjónn
í aldingarði lífs.
Stundarfleyi stýrðir,
styrkum höndum.
Dagsverki lokið.
— Ljóssins opnar dyr.
Bjarni ívarsson.
Birgir Thoroddsen
skipstjóri
þessum heimaskipum og sótti
Ihann því á fjarlægri mið, í leit
að nýju starfi og til þess að
kynnast betur hinum stóra heimi.
Næst ræður Birgir sig á verzl-
unarskip og gerist farmaður og
ihefur haldið sig í þeirri stétt æ
síðan.
Hann lauk farmannaprófi frá
Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík 27. apríl 1937 og gekk í Stýri
mannafélag íslands að loknu
prófi. Það er um þetta leyti, sem
kunningsskapur okkar byrjar og
hefur haldist óslitið síðan. Aldrei
urðum við skipsfélagar. en í
félagsmálum stýrimanna höfum
við starfað mikið saman, að úr-
lausnum hinna ýmsu vandamála
einkum er snertir kaup- og kjara
samninga.
Af öllum þeim mörgu stýri-
mönnum er lögðu gjörfa hönd á
plóginn og hlífðu sér hvergi í
margskonar samningagerðum,
minnist ég Birgis, sem sérlega
ósérhlífins og mikilsvirks samn-
ingamanns.
Á þessum árum var lítið upp
úr félagsstörfum að hafa, nema
helst áhyggjur og erfiði. Laun
heimsins eru vanþakklæti eins og
oft vill verða.
Það reið þvl á, að félagslyndir
menn veldust í hinu ábyrgða-
meiri störf félagsins. Um árabil
var Birgir Thoroddsen varafor-
maður Stýrimannafélags fslands.
Við stýrimenn þökkum honum
af heilum hug, þann skerf er
hann lagði ávalt öllum málefn-
um félagsins, sem því máttu til
hagsbóta verða. •
Birgir varð fastur stýrimaður
hjá Eimskipafélagi íslands 1938.
Hann sigldi á flestum hinna eldri
„Fossa" og mörgum hinna yngri.
Á M/S Gullfoss sigldi hann I.
stýrimaður í nokkur ár og var
skipstjori á honum í afleysing-
ium. Birgir hafði því mikla og
haldgóða reynslu að baki sér, er
hann tók við fastri skipstjórn á
M/S Lagarfossi um áramótin síð-
ustu.
Giftur er Birgir Hrefnu Gísla-
dóttur, mestu ágætis konu og
eiga þau þrjá mannvænlega syni:
Börk, Ragnar Stefán og Gísla,
sem allir eru í foreldrahúsum.
Birgi er margt til lista lagt.
Hann fæst dálítið við að mála
xnyndir í frístundum sínum og
létt er honum að mæla fram
Ólafur G. Kristjánsson
Skipsfjóri — M inningarorð
F. 24. okt. 1876. D. 1. okt. 1961
„Til moldar oss vígði hið mikla
vald.
Hvert mannslíf, sem jörðin elur.
Sem hafsjór sr rís með fald við
fald,
þau falla en guð þau telur.
Því heiðloftið sjálft er huliðs-
tjald,
sem hæðanna dýrð oss felur."
(Einar Benediktsson).
Á MÁNUDAG var borinn til
moldar frá Dómkirkjunni í
Rvík Ólafur Guðni Kristjánsson,
fyrrv. skipstjóri, Laufásvegi 73.
—• Hann lézt að Landsspitalan-
um 1. okt. eftir stutta legu þar.
Fæddur var hann að Sellátr-
um í Tálknafirði 24. okt. 1876 og
því tæpra 85 ára, sonur hjón-
anna Sigríðar Ólafsdóttur og
Kristjáns Oddssonar bónda þar.
Ungur að árum fluttist hann
með foreldrum sínum að Núpi
í Dýrafirði og átti þar sín æsku
spor, þar til þau hjón fluttu
að Lokinhömrum í Arnarfirði
laust fyrir aldamótin.
Að Ólafi stóðu traustar ættir
vestfirzkra sjávarbænda, er
stunduðu jöfnum höndum sjó-
sókn og landbúnað. Óláfur hóf
nám í Stýrimannaskólanum í
Reykjavík og lauk þaðan burt-
fararprófi 1902. Hann kvæntist
1901 Sigríði Jónsdóttur, ekkju
eftir séra Jón Steingrimsson að
Gaulverjabæ í Árnessýslu. —
Nokkru síðar fluttu þau hjón
vestur að Lokinhömrum í Arn-
arfirði. Hóf Ólafur þá skipstjórn
frá Þingeyri og hafði þar búsetu
Vörubílstjórafélagiið Þjótur, Akranesi
TILKYNNING
Frá og með 1. október 1961 og þar til öðruvísi verður
ákveðið, verður leigugjald fyrir vörubifreiðar í tíma-
vinnu sem Aér segir:
Fyrir Dagv. Eftirv. Nætur og helgid.
2% t. vörub. Kr. 101.25 113.75 126.24 pr. klst.
2V2—3 t.hlassþ. — 114.30 126.80 139.29 _ —
3 _3% _ — 127.40 139.90 152.39 — —
ZV2— 4 — — 139.35 151.85 164.34 — —
1 £ 1 — 150.25 162.75 175.24 — —
4^—5 — — 159.00 171.50 183.99 — —
5 _5% _ — 166.60 179.10 191.59 — —
5%—6 — — 174.25 186.75 199.24 — —
6 —6% — — 180.75 193.25 205.74 — —
6 V2 —7 — — 187.30 199.80 212.29 — —
1 1 — 193.85 206.35 218.84 — —
1 00 1 á! I> — 200.40 212.90 225.39 — —
Aðrir taxtar breytast samkvæmt því.
Akranesi, 1. október 1961
Vörubílstjórafélaffið Þjótur.
iMMtaamRMk
******^ Íií rnmmms I
7Ji> T4
i-ii-rt? r J ''í’au
AXMINSTER — velnaðurinn er heimskunnur AXMINSTER
— gólfteppin eru eftirsótt hér á landi sem annarsstaðar.
Pantið AXMINSTER — gólfteppið sem allra fyrst því senn
líður að jólaannríkinu. Veljið yður mynstur og liti úr hinu
ótrúlega fjölbreytta úrvali hjá AXMINSTER.
Þér veljið RÉTT ef þér veljið AXMINSTER.