Morgunblaðið - 10.10.1961, Blaðsíða 22
22
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 10. okt. 1961
KR vann Fram 2-1
í framlengdum ieik
og leikur úrslitaleikinn i bikarkeppninni
vib Akranes eða Keflavik
EKKI sáust þess veruleg merki
á leik KR gegn Fram í bikar-
keppninni á suninudaginn, að
þarna væri lið á ferð sem teldi
10 menn er leikið hafa í lamdsliði
Islands, þar af 8 sem voru í lands
liðinu fyrir 3 vikum síðan. Það
var með miklum harmkvælum
— og reyndar aðstoð frá Fram —
sem KR tókst að tryggja sigur
sinn ei leikurinm hafði verið fram
lengdur um hálftíma þar sem
jafnt stóð að venjulegum leik-
tíma loknum 1:1. í framlenging-
unni skoraði KR annað mark, svo
leik iauk 3:1.
• Bjargað á línu
Leikurinn var allur heldur laus
i reipunum Og tilviljanakenndur.
í fyrri hálfleik áttu liðin bæði
upplögð tækifæri til marka, en
hvorugt fékk skorað. Bæði lið-
in björguðu á línu. Sigurður bak-
vörður á línu Fram skoti frá
Sveini og Bjarni Felixson á línu
KR skoti frá Guðmundi Óskars-
Félagslíi
Knattspyrnufélagið Valur
Knattspyrnudeild
2. fl. Fundur verður í félags-
heimilinu í kvöld kl. 8,30. Kaffi
— Utanferð — Kvikmynd. Fjöl-
mennið réttstundis.
Stjórnin
íþróttafélag Kvenna
Leikfimin byrjar hjá okkur á
íimmtudag 12. okt. Sérstakur frú
arflokkur. Nánari uppl. í síma
14087
Knattspyrnufélagið Þróttur
Handknattleiksdeild
— Æfingartafla —
Æfingar verða fyrst um sinn,
eem hér segir:
1. að Hálogalandi: Mfl. og 2. fl.
kv. mánud kl. 8,30—9,30 og föstu
daga kl. 10,10—11,00
Mfl. K miðvikud. kl. 7,40—8,30
3. fl. miðvikud. kl. 6,50—7,40.
2. í ÍR-húsinu: Mfl. og 2. fl. k kl.
10,15—11,05 3 fl. k laugard. kl.
6,55—7,45.
Þjálfarar verða M. 1. og 2. fl. k
Karl Jóhannson. M. 1. og 2. fl.
kv.. Böðvar Guðmundsson. 3. fl.
k.: Guðmundur Axelsson.
Verið með frá byrjun og takið
nýja félaga með ykkux. Mættið
stundvíslega á æfingar.
Stjórn HKD K.Þ.
IR Handknattle/ksdeild
Æfing verður í kvöld að -Há-
logalandi fyrir 3ja fl. kl. 8,30 og
Meistarafl. 1. og 2. fl. kl. 8,45. —
Mætið með útigalla — Stjórnin
Sunddeild Ármanns
Sundæfingar Ármanns eru nú
hafnar í Sundhöll Reykjavíkur
og verða sem hér segir: á þriðju
dögum og fimmtudögum kl. 18,45
— 20,15 og á föstudögum kl. 19,30
—20,15. Þjálfari verður Ernst
Backman. Sundknattleiksæfingar
verða á mánudögum og miðviku
dögum kl. 21,50.
Stjórn Sunddeildar Ármanns
' syni. — Auk þessara færa átti
Gunnar Felixson opið tækifæri
en var of seinn. Garðar og Gunn-
ar Guðmannsson áttu og góð skot
sem Geir bjargaði vel og Þorgeir
Lúðvíksson átti gott skot á KR
markið, sem Heimir fékk þó
varið.
• Fram skorar
Framarar réðu svo lögum og
lcfum í upphafi fyrri hálfleiks og
KR komst aldrei í færi, utan það
að Ellert skaut framhjá eftir að
hafa brotizt laglega í gegn
Og á 21. mín. bar sókn Fram
árangur. Ungur en efnilegur út-
herji, Ragnar Jónsson, komst
framhjá Hreiðari, lék að marki
og skoraði laglegt mark.
Við markið var eins og KR
vaknaði af dvala. Þeir tóku völd-
in að mestu í sínar hendur, en
að sama skapi slaknaði á öllu hjá
Fram og úthaldsleysis og vilja-
leysis tók að gæta.
• KR-sigrat
Á 29. mín. jafnar Gunnar Felix
son fyrir KR. Hann fékk óhindr-
aður að undirbúa sig að vild í
vítateig Fram og sendi knöttinn
hnitmiðuðu skoti í jarðarhorn
marksins.
Fleiri urðu mörkin ekki. KR
var heldur meira í sókn en
hættuleg tækifæri voru fá.
Framlengt var í 2x15 mín. —
Sóttu KR-ingar heldur meir en
jafnlélegur var leikurinn sem
fyrr. Nokkru eftir upphaf fram-
lengingarinnar var Geir mark-
vörður Fram eitthvað að stríða
sóknarmanni KR. Það var dýr-
keyptur leikur, því á Fram var
dæmd óbein vítaspyrna inni í
teignum. Upp úr henni skoraði
Sveinn Jónsson sigurmarkið!
• Lið KR var undarlega slappt
miðað við þann styrkleika sem
ætla mætti að væri í landsliðs-
mönnum liðsins. Einna beztan
leik átti Bjarni Felixson bakvörð-
ur — eini maður liðsins sem ekki
hefur leikið í landsliði. Hörður
átti í sífelldum brösum við Bald-
vin, ungan en efnilegan miðherja
Fram. Garðar var óvenjulega
slappur og svifaseinn og aðrir
mistækir mjög og náðist aldrei
heilsteyptur leikur hjá liðinu. —
Það var mikið baslað og puðað.
Framliðið lyppaðist niður ein-
mitt þegar ætla mætti að það
efldist við sigurvon. Markið var
laglegt hjá nýliðanum, en þá var
eins og dofnaði yfir öllu liðinu Og
úthaldið virtist þrotið. Nýliðarn-
ir lofa góðu, bæði Ragnar og
Baldvin en Þorgeir hafði ekki
úthald. Geir í markinu varði
oft laglega, en undarlegar dillur
bans eiga kannski mestan þátt í
því að Fram komst ekki í úrslit
bikarkeppninnar — það var KR
sem tryggði sér það sæti með
hjálp hans.
KR er þar með í úrslitum um (
bikarinn. Mótherjarnir verða
Akranes eða Keflavík. Úr því
fæst skorið n.k. sunnudag.
Htafrétth tHtffyHkiahha ' yC * 1 2
Enska knattspyrnan ■:■
12. UMFERÐ ensku deildarkeppninnar W. B. A. 12 3 3 6 16:19 9
fór fram sl. laugardag og urðu úrslit Blackpool 12 3 3 6 19:25 9
þessi: Chelsea 12 2 3 7 22:29 7
1. deild: Birmingham 12 2 3 7 16:34 7
Arsenal - - Blackpool .. 3:0
Birmingham — Wolverhampton . .. 3:6 2. deild (efstu Off neðstu liðin):
Everton - — N. Forest Liverpool 12 10 1 1 31:6 21
Fulham - - Aston Villa .. 3:1 Southampton 12 7 2 3 27:10 16
Ipswich — - West Ham . 4:2 Leyton Orient 12 6 2 4 23:13 14
Léicester — Sheffield U .. 4:1
Manchester City — Cardiff .. 1:2 Leeds 12 3 2 7 12:23 8
Sheffield W. — Chelsea .. 5:3 Bristol Rovers 12 3 1 8 14:21 7
W.B.A. — Manchester U .. 1:1 Charlton 12 1 2 9 12:33 4
2. deild:
Derby — Sunderland ............ 1:1
Huddersfield — Norwich ........ 1:1
Leyton Orient — Stoke ......... 3:0
Luton — Bury................... 4:0
Middlesbrough — Liverpool ..... 2:0
Newcastle — Charlton .......... 4:1
Plymouth — Leeds .............. 1:1
Preston — Bristol Rovers ...... 1:0
Southampton — Brighton ........ 6:1
Swansea — Scunthorpe .......... 2:0
Walsall — Rotherham ........... 5:0
f Skotlandi f6ru m.a. þessir leikir fram:
St. Mirren — Aberdeen ......... 3:2
Dundee — Kilmarnock ........... 5:3
Staðan er nú þessi:
1. deild (efstu og neðstu liðin):
Burnley 11 9 1 1 38:22 19
Manchester U. 11 6 3 2 21:15 15
West Ham 12 6 3 3 28:22 15
Ipswich 12 6 2 4 34:27 14
s
Sendisveinn óskast
hálfan eða allan daginn.
Bókaútffáfan HELGAFELL
Veghúsastíg 7.
Ríkharðs-
dansleikur
í KVÖLD verður nýstárlegur
dansleikur í Breiðfirðingabúð.
Nnkkrir áhugamenn um söfn
itnina til handa Ríkharði Jóns
syni standa að skemmtuninni
Fyrir dansinum leika þrjár
hljómsveitir og hafa þær all-
ar gefið vinnu sína í söfnunina
og sömuleiðis hefur forstjóri
hússins Sigmar Pétursson lán
að húsið án endurgjalds.
Hljómsveitirnar sem leika
fyrir dansinium eru hljómsveit
iÞorsteins Eiríkssonar, hljóm-
sveit Sverris Guðmundssonar,
ásamt Sigurdór söngvara og
hljómsveit Björns R. Eeinars-
sonar.
Þeir sem koma í Breiðfirð-
ingabúð í kvöld leggja því
ríflega í styrktarsjóð Ríkharðs
(um leið og þeir skemmta sér
án efa ’ vel.
Sundæfingar Í.R.
Sundæfingar sunddeildar Í.R.
hefjast mánudaginn 9. október.
Þjálfari verður eins og áður,
Jónas Halldórsson. r
J
Æfingar verða á:
mánudögum kl. 6,45 — 8,15
miðvikudögum — 6,45 — 8,15
föstudögum — 6,45 — 7,30
Mæið vel og stundvíslega. Nýir
félagar eru beðnir að mæta til
skráningar, ekki seinna en
fimmtán mínútum fyrir auglýstan
tíma.
Sunddeild l.R.
Boumemouth úr 3. deild er nú eina
liðið 1 deildarkeppninni, sem hefur
ekki tapað leik það sem a-f er keppnis-
tímabilinu. — Skotland vann N.-Irland
sl. laugardag með 6:1.
Reykjavíkurmótið
í handknattleik
REYKJAVÍKURMÓTIÐ í hand-
knattleik hefst 21. október n.k.
og verður leikið að Hálogalandi,
öll handknattleiksfélögin hafa
nú hafið æfingar. Þátttöku í mót
ið ber að tilkynna HKRR fyrir
12. okt. ásamt 35 kr. þátttöku-
gjaldi fyrir hvern flokk. Berist
tilkynningar ekki fyrir þann
tíma og fylgi greiðsla ekki verða
þær ekki teknar til greina.
.0T
Armann
vann 3 titla
í róðri
RÓÐRARMÓTI íslands lauk á
sunnudaginn. í 2000 m róðri karla
sigraði sveit Ármanns á 8:53,0
mín. önnur var sveit Akureyr-
inga á 9:26,0. íslandsmeistarar
Ármanns eru Bjarni Sveinbjörns-
son, Magnús Gústavsson, Davíð
Helgason og Ágúst Ingólfsson.
Stýrimaður var Max Jeppesen,
sem um áratugaskeið hefur unn-
ið róðraríþróttinni. Vann Ármann
alls 3 fslandsmeistaratitla.
í 1000 m róðri drengja sigraði
sveit Akureyringa en sveit Róðr-
arfélags Reykjavíkur var í 2.
sæti.
Ranghermt var í sunnudags-
blaðinu að 500 m róður á laugar-
dag hefði verið milli drengja-
sveita. Þar voru karlasveitir í
keppni, en úrslitin voru þau er
sagt var þá.
FRÍ - þing
STJÓRN FRÍ hefir ákveðið að
ársþing FRl 1961 verði haldið
dagana 18.—19. nóvember n.k.
Málefni, er sambandsaðilar
óska að tekin verði fyrir á
þinginu skulu tilkynnt FRÍ
minnst tveim vikum fyrir þing-
ið. —
Nýlega er Iokið miðsumars-
móti 5. fl. B. Sigurvegarar'
urðu Knattspyrnufélagið
Fram. Hér birtist mynd af hin
um ungu sigurvegurum ásamt
þjálfara. Aftari röð talið frá
vinstri:
Bragi Benediktsson, Bern-
harð Stefánsson, Kristján
Gunnarsson, Finnur Sigur-
geirsson, Gísli Jónsson, Mar-
teinn Geirsson og þjálfarinn
.Alfreð Þorsteinsson.
Fremri röð: Bjarni Ingólfs-
son, Birgir Eyþórsson, Þórar-
inn Kristbjörnsson, Skúli Kon
ráðsson, Ingimar Einarsson og
;Sveinn Eyþórsson. — Á mynd
ina vantar: Sigurgeir Sigurðs
son og Jóhann P. Malmquist.
'—'*■*—«**» *x*in~ rfii—.ivwnrfrr-
Akranes
Fram 3-0
AKRANES vann B-lið Fram !
bi karkeppninni í leik sem fram
fór á Akranesi. Skoruðu Akur-
nesingar 3 mörk gegn engu —-
öll í fyrri hálfleik. Leikurinn var
heldur lélegur og lítið um heil.
steyptan leik. Markatalan gefur
ekki rétta hugmynd um leikinn
því Framliðið sótti fast á köflum
en brást öll kunnátta og hæfni,
er að marki Skagamanna kom,
Fyrir Akranes skoruðu Skúli Há-
konarson og Þórður Jónssön (úr
vítaspyrnu). Þriðja markið kom
upp úr mikilli þvögu.
Akranes mætir næst Keflavík
um sæti í úrslitum um bikarinn,
Sá ieikur verður á Melavellin-
um a sunnudaginn.
QtflHÍHÍHÍHiHÍHÍHÍHlHttfÍ
EINMENNINGSKEPPNI Brldg*
félags Reykjavíkur lauk nýlega.
Alls voru spilaðar 4 umferðir,
þátttakendur 48. Sigurvegarl
varð Þórir Sigurðsson, var hann
mjög vel að sigrinum kominn,
með jöfnum og góðum árangri
(340—383—365—371). Röð «
efstu var sem hér segir:
1. Þónr Sigurðsson ,. 1459
2. Jónas Bjarnason ,. 1437
3. Ásbjörn Jónsson .. 1437
4. Jakob Bjarnason ,. 1426
5. Ingi Eyvinds ...... 141«
6. Eiður Gunnarsson . 141«
Næsta keppnl njh B. R. verS-
ur tvímenningskeppni 1. flokka
og hefst hún í kvöld kl. 8 I
Skátaheimilinu Öllum er heun-
il þátttaka.