Morgunblaðið - 10.10.1961, Page 24
í
L
Háskólahátíð
Sjá bls. 8.
Noregsbréf
Sjá bls. 13.
229. tbl. — Þriðjudagur 10. október 1961
Forðuðu stórbruna
með snarræði
Kviknaði í Niðnrsuðuverk-
smiðjunni á ísafirði
lsafirði, 9. okt.
UM kl. 4,15 aðfaranótt sunnu-
dags urðu tveir piltar, þeir Hörð-
ur Bergmann og Höskuldur Ing-
varsson varir við að eldur var
laus í niðursuðuverksmiðjunni á
Torfnesi. Brugðu piltarnir fljótt
við Og hljóp Höskuldur að næsta
brunaboða til að gera slökkvi-
liði aðvart, en Hörður braust inn
í verksmiðjuna og tókst að finna
kolsýruslökkvitæki, sem þar er
geymt. Þegar Hörður kom á stað-
inn var eldurinn orðinn töluvert
magnaður í kaffistofu verk-
smiðjunuar. Hjálpuðust þeir
Hörður og Höskuldur að því að
halda eldinum í skefjum, þar til
slökkviliðið kom á vettvang. Er
slökkviliðið kom, tókst fljótlega
að kæfa eldinn.
Uninið í verksmiðjunni í gær
Telur forstjóri Niðursuðuverk-
smiðjunnar, Böðvar Sveinbjörns-
son, að engu hefði mátt muna að
stórtjón hlytist af og að Hörður
Engir viðræðu-
fundir
ÚM HELGINA voru engir við-
ræðufundir milli fulltrúa LÍÚ og
sjómanna við Faxaflóa og Breiða-
fjörð og hafði ekki verið boðaður
fundur í gær.
og Höskuldur hafi með snarræði
sínu tekizt að forða stórbruna.
Skemmdir á verksmiðjunni
urðu þær að þak yfir kaffistofu
féll niður og einnig brunnu borð
Og stólar í kaffistofunni. í gær
var gerð bráðabirgðaviðgerð í
verksmiðjunni og tók hún til
starfa að nýju í morgun. Talið er
að kviknað hafi í út frá skor-
steini. — A.K.S.
Isólfsskáli, eins og hann var fyrir brunann.
isólfsskáli brann
á sunnudagsmorgun
Svo og
dr. Páls
hálfunnin handrit
og 100 ára orgel
UNDIR MORGUN sl. sunnudag
brann til kaldra kola ísólfsskáli,
sumarbústaður dr. Páls ísólfsson-
ar og Sigrúnar Eiríksdóttur konu
hans skammt fyrir austan Stokks
eyri og með honum handrit af
hálfunnum tónsmíðum Páls, yfir
100 ára gamalt orgel, píanó og
talsvert af búslóð þeirra hjóna.
Skálann gáfu Stokkseyringar
þeim hjónum fyrir nokkrum ár-
Gróf lögbrot
kommúnista
á þingi iðnnemasambandsins
ÞAU undur gerðust á þimgi Iðn-
nemasambandsins, er haldið var
um helgina, að fráfarandi stjórn
réð úrslitum um formannskjör,
þótt meðlimir hennar væru ekki
fulltrúar á þinginu og hefðu því
ekki atkvæðisrétt. Aðeins fimm
atkvæði skildu að formaninsefni
það er einmitt tala stjórnarmeð-
lima.
19. þing Iðnnemasambands fs-
lands, var sett á laugardag kl.
13,30 í Tjarnarcafé Og lauk á
sunnudagskvöld. Þingið sátu 45
fulltrúar frá 15 félögum víðs veg-
ar að á landinu. Á þinginu var m.
Indriði Þorsteins-
son fær móður-
málsverðlaunin
STJÓRN Minnirgarsjóðs Björns
Jónssonar, Móðurmálssjóðsins,
ákvað á sunnudag, afmælisdag
Björns, að veita
á þessu ári Ind-
riða G. Þor-
steinssyni blaða-
manni verðlaun
úr sjóðnum.
Verðlaun þessi
eru veitt mönn-
um, sem hafa að
alstarf við blöð
eða tímarit, fyr-
ir góðan stíl og
vandað mál og
skal þeim að jafnðai varið til
utanfarar. Veitt eru að þessu
sinni kr. 12 þús.
í stjórn Móðurmálssjóðsins
eru þessir menn: dr Einar Ól.
Sveinsson, prófessor, dr. Hall-
dór Halldórsson. prófessor, Tóm-
as Guðmundsson, skáld, Bjarni
Guðmundsson, blaðafulltrúi, og
Pétur Ólafsson.
lýðræðissinna og kommúnista, en j a. fjallað um skipulagsmál
I.N.S.I., iðnfræðslu, kjara- Og fé-
lagsmál og gerðar ályktanir um
þau.
Störf þingsins höfðu farið fram
með friðsamlegum hætti, en er
gengið skyldi til formannskjörs,
kO:n upp ágreiningur um, hvort
fráfarandi stjórn skyldi hafa at-
kvæðisrétt eða ekki. Töldu lýð-
ræðissinnar, að einungis rétt-
kjörnir fulltrúar til þingsins
hefðu atkvæðisrétt og vitnuðu
til annarra félagssamtaka máli
sínu til stuðnings. Það fór' þó
svo, að kommúnistar höfðu sitt
mál fram með ofbeldi og náði for
mannsefni þeirra, Guðjón Tómas-
son, naumlega kosningu. Hlaut
hann 24 atkvæði, en formannsefni
lýðræðisinna, Jóhann V. Árnason
19. Er þessi litli atkvæðamunur
mjög athyglisverður, þegar þess
er gætt, að kommúnistar höfðu
lagt áherzlu á að halda stjórn
þessara félagssamtaka og lagt
mikla vinnu í það, auk þess sem
þeir frömdu lögbrot, sem fyrr
segir.
I. G. Þ.
AKRANESI, 9. okt. — Sl. laugar-
dag var önnur Svarthamarsrétt.
Sumir heimtu vel, aðrir verr eins
og gengur. Og í dag er slátrað af
fullum krafti hér í sláturhúsi
kaupfélagsins, og eitthvað verð-
I ur slátrað þar á morgun. — O.
ara
um og hafa þau síðan verið þar
mikið og byggt við hann og
stækkað.
— Þetta er mikið áfall, sagði
dr. Páll, er Morgunblaðið átti
í gær tal við þau hjónin um
þetta. Eg ætlaði að vera þarna í
haust og vinna, og því skildi ég
eftir handrit sem ég var að vinna
að, m.a. drög að tveimur stærri
orkesterverkum og fruondrætti að
óperu, sem ég var búinn að safna
mikið saman í. Nei, þetta er
hvergi til annars staðar nema
sumt í kollinum á mér, en annað
er alveg tapað.
Einnig var í ísólfsskála mikið
af innbúi þeirra hjóna, sængur-
fatnaður og borðbúnaður fyrir
yfir 20 manns, enda var oft gest-
kvæmt í bústaðnum og þau ekki
flutt í bæinn. Auk þess var þarna
píanó og gamalt enskt orgel, sem
faðir Páls hafði gefið honum, um
100 ára gamalt. Húsið var mjög
lágt vátryggt.
-— Þetta er þó ekkert, úr því
ekki varð neitt manntjón, sagði
Páll. Þegar hús, sem er úr timbri,
tjargað að utan og ferniserað að
innan, brennur, er gott að enginn
sefur uppi á loftinu.
Gengið vel frá um kvöldið
Á laugardagskvöldið voru
börn Páls, Einar og Þuríður
þar ásamt fleira fólki, en
áður en þau fóru var geng-
ið mjög vandlega frá, eins og
jafnan var siður, öll öryggi
skrúfuð úr og skvett vatni í eld-
stóna. — Þau eru bæði eldhrædd
og mjög samvizkusöm með þetta,
sagði Páll. Svo maður skilur ekki
hvernig hefur getað kviknað í.
En það er nú verið að rannsaka
það.
Framhald á bls. 23.
Sækir ráðstefnu
um höfundarétt-
armál
ÁLÞJÓÐARÁÐSTEFNA verðúr
ht ldin á vegum UNESCOs og
Bernarsambandsins í Rómaborg
dagana 10. til 26. október. Þar
verður væntanlega gengið frá
alþjóðasáttmála um réttindi list-
flytjenda, útvarpsstofnana og
hljómplötuframleiðenda. Dr. jur.
Þórður Eyjólfsson, hæstaréttar-
dómari, er fulltrúi íslands á ráð-
stefnunni.
Páll ísólfsson í stofunni í ísólfsskála.
Úkumaður tekinn
undir áhrifum lyfja
Á SUNNUDAGINN tók lögregl-
an tvo ökumenn í Reykjavík,
sem báðir voru grunaðir um
ölvun við akstur. Við rannsókn
kom í ljós að um ölvun var að
ræða í öðru tilfellinu, en hinn
maðurinn var miður sín af
neyzlu lyfja.
Leitaði lögreglan til læknis
með mann þennan, og kom þá í
ljós að maðurinn hafði neytt
örvandi taugalyfs, og var með
pílluglas á sér.
Ólafur Jónsson, fulltrúi, skýrði
Mbl. svo frá í gær að undanfama
10 daga hefðu lögreglunni bor-
ist þrjú slík tilfelli. f 24. gr.
umferðarlaganna er kveðið á
um að menn megi ekki aka bif-
reið undir áhrifum örvandi lyfja
og mun sama refsing liggja við
því og ölvun við akstur.
Drengir kveiktu í
bílskúr
UM kl. 4 í gær kviknaði í bílskúr
á Shellvegi 6. Höfðu tveir 7 ára
drengir verið að leika sér þar
með eld og kveikt í skúrnum.
Var slökkviliðið kvatt á vett-
vang. Urðu miklar skemmdir á
skúrnum og eitthvað var geymt
þar af dóti sem eyðilagðist.
Einnig var slökkviliðið hvatt í
Slippinn um 9 leytið í gærmorg-
un. Var um smávegis íkviknun að
ræða út frá lögsuðu í togaranum
Hallveigu Fróðadóttur.
Kona varð fyrir
þríhjóli
Á fjórða tímanum á sunnudag-
inn varð það slys á Laugavegi
að kona varð fyrir þríhjóli og
lærbrotnaði.
Þriggja ára snáði stýrði þrí-
hjólinu, og við áreksturinn skall
konan í götuna með fyrrgreind-
um afleiðingum. Var hún flutt
í slysavarðstofuna.
Blátindur kominn
til Færeyja
VÉLBÁTURINN Blátindur, sem
fyrir helgi var með bilaða vél
c.ustur undan Færeyjum, var
dreginn til Færeyja af Vest-
mannaeyjabátnum Halkion og
kom þangað um miðnætti á laug-
ardag. Mun bilunin á vélinni ekki
hafa verið stórvægileg, Og var
hún í athugun síðast þegar fregn-
ir bárust í gær. Leið áhöfninni
vel.
r
Islenzkur yfirmað-
ur Parísarskrif-
stofu TWA
SIGFÚS Guðmundsson, flugvall-
arstjóri í Reykjavík á árunum
1946—56, hefur verið ráðinn for-
stjóri Parísarskrifstofu hins
stóra bandaríska flugfélaga
Trans World Airlines og er flutt-
ur til Parísar með fjölskyldu
sína.
Sigfús hefur undanfarin ár
stjórnað skrifstofu félagsins I
Bangkok í Tailandi, en hann hóí
störf hjá félaginu 1956, er hann
setti á stofn millilandastöð fyrir
TWA á Keflavíkurflugvelli. Sú
millilandastöð var lögð niður er
þotumar komu til sögunnar árið
1958, og fór Sigfús þá til Bang-
1 kok.