Morgunblaðið - 12.10.1961, Síða 1

Morgunblaðið - 12.10.1961, Síða 1
24 áíður 48 árgangur t* Fjárlagafrumvarp lagt fram á Alþingi: Fjárlög 1962 - án nýrra skatta KAGNHILDUR HELGADÓTTIR sést hér í forsetastóli Neðri deildar Alþingis en hún var kjörin til þeirrar virðingarstöðu — fyrst íslenzkra kvenna — á fundi deildarinnar í gær. — Kauphækkanirnar í sumar valda hækkun rekstrarútgjalda Áfram haldið til aukinnar hag- kvæmni i rekstri ríkisins og stofnana þess J FYRSTA MÁL, sem lagt var fyrir Alþingi, er frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1962, en því var útbýtt á fundi Samein- aðs þings í gær. Vegna kauphækkananna á síðastliðnu sumri og gengisbreytingarinnar, munu útgjöld ríkissjóðs á næsta ári verða hærri en áður — en engu að síður hefur tekizt að koma fjárlögunum saman, án þess að leggja á nokkra nýja skatta. Er áfram haldið því starfi, sem hófst á sl. ári, til að auka hagkvæmni í rekstri ríkis og ríkis- stofnana, en það hefur þegar borið verulegan árangur. — Fjármálaráðherra, Gunnar Thoroddsen, mun flytja fjár- lagaræðu sína eftir helgina og þá gera þingi og þjóð ítar- lega grein fyrir hinu nýja frumvarpi. Kauphækkanirnar og gengisbreytingin valda hækkunum Á sjóðsyfirliti fjárlagafrum- varpsins eru niðurstöðutölur að þessu sinni 1721 milljón króna eða tæplega 170 milljónum hærri en í fjárlögum yfirstand- andi árs; niðurstöðutölur á rekstraryfirliti eru aftur á móti 1.718.075.000 kr. en voru síðast 1.549.768.000 kr. — Er áætlað að kauphækkanirnar í sumar Kona kjörin þingforseti í fyrsta skipti Deilt um aldursforseta í Sameinuðu þingi 21 mal þegar komið fram á þingi SAMEINAÐ Alþingi hélt áfram störfum laust eftir há- degi í gær og var Friðjón Skarphéðinsson þá kjörinn forseti þess. Á fundum þing- deilda síðar í gær fóru einn- ig fram forsetakjör og var Ragnhildur Helgadóttir kos- in forseti Neðri deildar og Sigurður ÓIi Ólafsson for- seti Efri deildar. — Hefur það ekki gerzt fyrr í sögu þingsins, að kona væri kjör- inn þingforseti. Eftir að Gísli Jónsson hafði sett fund í Sameinuðu þingi, xnælti hann á þessa leið: Út af fyrirvara háttv. 1. þingmanns Vestur-Norðlendinga Skúla Guð- mundssyni hér á þinginu í gær m.i það, hvort ekki bæri að fela háttvirtum alþingismanni, Jóni Pálmasyni. sem nxættur er sem varaþingmaður háttvirts 2. þing- manng V-Norðlendinga, Gunnars Gxslasonar, aldursstörf forseta, aldursforsetastörfin, þar sem get ið er, að hann er elztur þeirra þingmanna, er nú eiga sæti á Alþingi og vegna urnmæla dag- blaða um þetta atriði, skal tekið franx eftirfarandi: Samkvæmt tilmælum forseta Eftir að forseti íslands hafði í gær sett Alþingi, óskaði hann eftir því, að aldursforseti þings- ins, 1. þm. Vestf. Gísli Jónsson, tæki nú við fundarstjórn, þar til kosinn hefði verið forseti Sam- einaðs þings, allt sanxkvæmt fyrirmælum 1. mgr. 1 gr. þing- skapa. Gegn þessum fyrirmælum for- seta íslandg var engum mótmæl- um hreyft, enda Alþingi þá ó- Framhald á bls. 8. leiði af sér útgjaldaaukningu, er nemur 122 millj. kr., og gengis- breytingin 16 millj. kr. til við- bótar, þannig að rekstrarútgjöld aukist fyrir þetta tvennt um 138 milljónir. Af eðlilegum ástæðum verður svo einnig nokkur hækkun á kostnaði við kennslumál og dómsmál, svo sem venjan hefur verið. Aftur á móti er gert ráð fyrir lækk- un, vegna væntanlegra breyt- inga á niðurgreiðslum og af öðrum ástæðum. — Niðurstað- an verður því sú, að hækkun rekstrarútgjaldanna mun í heild naumast verða meiri en 131 millj. kr. Um rekstrartekjurnar er þafJ að segja, að þær munu, sam- kvæmt áætluninni, aukast um svipaða upphæð og rekstrarút- gjöldin. Er sú aukning aðallega sprottin af hækkun aðflutnings- gjalda vegna gengisbreytingar- innar. — Rekstrarafgangur er áætlaður 110.349.281 kr. og greiðslujöfnuður 6.640.109 kr. Framhald á bls. 8. Uppþotí Póllandi Varsjá, 11. október. YFIR þúsund manns réðust á lögregluna í smábænum Torn í Norður-Póllandi í gær til þess að hindra yfirvöldin í að loka ka- þólskum kirkjugarði þorpsins. —• Lögreglunni barst fljótlega liðs- auki og gat hún yfirbugað þorps- búa. Tíu menn voru handteknir. Tilkynnt hafði verið, að kirkju- garðinum skyldi lokað. Fulltrúar stjórnarvaldanna komu til þess að innsigla kirkjugarðshliðið, en verkamenn, sem voru að kirkju- byggingu rétt hjá, kömu á vett- vang og hindruðu að kirkjugarðs hliðið yrði lokað. Var kirkju- klukkum hringt í ákafa og dreif að múgur og margmenni til að verja kirkjugarðinn. Yfir þús- und manns söfnuðust þarna sam an og réði lögreglan ekki við neitt fyrr en henni barst öflugur styrkur. 11 sveitir orrustu- þota til Evrópu WASHINGTON, 11. okt. — f dag kom 1.500 maima liðsauki Bandaríkjahers til megin- lands Evrópu og samtímis var tilkynnt í Washington, að á næstunni yrði ein brynvarin herdeild og 11 sveitir orrustu þota sendar til Evrópu. Er þetta samkvæmt áætlunum Bandaríkjastjórnar um að styrkja varnir Evrópu með 40 þús. manna viðbótarstyrk. f brynvörðu deildinni og flokkum, sem henni verða til aðstoðar eru um 5 þús. manns, en í flugsveitunum, sem send ar verða austur yfir haf, eru 275 flugvélar. Lifum á mestu hættutímum mannkyns — sagði Kennedy WASHINGTON, ll.'okt. — Það er ekki ástæðulaust að óttast styrjöld. Við lifum á mestul hættutímum mannkynsins, sagði Kennedy, forseti, á fundi með fréttamönnum í dag. Vesturveld in og Rússa greinir á. Fundur- inn með Gromyko var gagnleg-| ur, en þar kom ekkert fram, sem gefur von um samkomulag. Og við munum ekki hopa, en leita leiða til friðsamlegrar lausnar. Forsetinn kom víða við, því spurningarnar, sem fréttamenn lögðu fyrir hann, voru margvís- legar. Endanleg ákvörðun um það, hvort Bandaríkjamenn senda her til S-Vietnam verður ekki tekin fyrr en sérlegur sendimað- ur forsetans, Maxwell Taylor, kemur heim úr förinni til S- Vietnam. Fulltrúar Vesturveldanna hitt ast í Washington í næstu viku til þess að ræða málin í ljósi þess, sem fram kom í viðræðun- um við Gromyko — og forset- inn væntir þess, að fulltrúi v- þýzku stjómarinnar verði þar viðstaddur. / Um kínverska kommúnista sagði Kennedy, að enn væru þess engin merki, að þeir vildu lifa í samfélagi við Bandaríkja- meixn, sem vildu eiga friðsam- leg viðskipti við allar þjóðir. Loks sagði forsetinn. að hann væri reiðúbúirxn að ræða um stöðvun kjarnorkutilrauna, þeg- ar Rússar hefðu lokið sínum til- raunum. Hinsvegar teldu Banda ríkjamenn sig á engan hátt skuld bundna til þess að hætta tilraun- I um þegar Rússar hætta. Og hvort Bandaríkjamenn mundu sprengja í gufuhvolfinu: Sú , ákvörðun verður tekin síðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.