Morgunblaðið - 13.10.1961, Blaðsíða 3
Föstudagur 13. okt. 1961
M O R CU 1S B T. 4 Ð 1 Ð
ÞAÐ er úða helv.... rtgn-
ing. Sennilega lýsir þessi setn-
ing tilfinningum flestra gagn-
vart rigningunni, a. m. k. full-
orðna fólksins. Það eru bara
börnin, sem hafa gaman af
iienni. Hún er leikfang, sem
himinninn réttir þeim í hend-
urnar. Það gerir ekkert til,
þótt leikfangið sé blautt og
maður sjálfur, ef maður er
krakki. Stappa í pollunum.
Sigla kubbum. Skvetta yfir
hausinn á sér. Það er voðalega
gaman.
En fullorðna fólkinu finnst
ekki gaman að láta strsetis-
vagnana skvetta á fínu fötin
sín. Ekki heldur leigubílana.
Eins og þeim sé borgað fyrir
það.
„Bölvaður dóninn“, sagði
maður á Seljaveginum og skrif
aði upp númer á bíl, sem þaut
framhjá honum Og ataði fötin
hans auri. „Hann skal fá þetta
borgað, bölvaður dóninn“,
sagði maðurinn Og reyndi að
skrifa númer bílsins á renn-
blautan miða, sem hann hafði
dregið upp úr vasa sínum,
ásamt skriffseri.
Sennilega hefur hann slæmt
minni. Nema hann geri þetta
til að sýna, hvað hann er reið
ur. Eða til að fullvissa sig um,
að hann muni áreiðanlega
kæra þennan bíl Og fá ókeypis
hreinsun á fötin sín. Kannski
verður hann búinn að gleyma
þessu á mor£un eða fyrirgefa
það, ef það verður hætt að
rigna.
Ungu stúlkurnar eru súrar
á svipinn og sennilega súrar
á bragðið líka. Meikið rennur
niður eftir andlitum þeirra.
Sumar eru eins og klessumál-
verk. Þær eru ljótar í rigning-
unni. Það eru flestir ljótir í
rigningu. Hárið klesst niður í
augun og augnabrúnirnar
signar.
„Pabbi', segir ljtill drengur,
sem er að fara í strætó á
Seljaveginum, „hvers vegna
eru allir svona reiðir?" Pabbi
hans anzar ekki, svo hann er
sennilega reiður líka. Þannig
er svipur flestra. Eins og þeir
Það er betra að vera vel búinn í haustrigningunum.
séu reiðir. Nema börnin. And-
lit þeirra eru eins og sól í
rigningunni.
„Hvaðan kemur rigningin,
mamma?“
„Af himnum, væni minn“.
„Eru englarnir að pissa,
mamrna?"
Viðstaddir brosa. Þannig eru
börn. Þetta er ekki guðlast,
því hverjir standa englunum
nær en börnin? Þau eru glettn
ir og stundum óþægir englar.
„Mamma, er ekki hægt að
setja bleyjur á þá?‘
„Þær eru allar orðnar
blautar í rigningunni."
„Getur guð ekki keypt bleyj
ur handa þeim 1 búð?“
„Nei.“
„Á guð enga peninga,
mamma?“
Hver endist til að svara öll-
um þessum spurningum? Það
er ekki fyrr búið að svara
einni, en önnur tekur við. Eins
og dropi eftir dropa. Þeim
rignir bókstaflega yfir full-
orðna fólkið.
Niðri í bæ eru göturnar
STAKSTEII\!AR
(Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
næstum auðar, en margir
standa í skjóli í anddyrum og
inni í búðum og skýlum. Þarna
eru tvær stúlkur.
„Er ekki gaman?“
„Hvað er gaman?“
„f rigningunni".
„Nei, við erum orðnar hund-
blautar".
„Það hlýtur að vera gott að
fá ókeypis bað.“
„Ekki í öllum fötunum.1*
„Farið þið þá úr þeim.“
En þá stytti allt í einu upp.
i.e.s.
Slæmur sjúkdómm
Margir sjúkdómar hrjá mann-
kynið. Einn er þó verstur: þegar
fólk opinberar geðveikisköst sin
á prentL
Þorvaldur Þórarinsson má gæta
sín. Hann er haldinn þessum sjúk
dómi, og er ekki annað að sjá
en „köstin“ séu að ágerast með
aldrinum. 1 Þjóðviljanum í gær
birtist eitt þeirra í grein sem heit
ir „Kopar í gluggakistunni“. Af
öllum vegsummerkjum hlýtur
það að hafa verið með afbrigðum
kvalafullt. Lögfræðingurinn fjall
ar um Háskólahátíðina, en hið
rússneska hjarta hans virðist ekki
geta komizt yfir gjö fBandaríkja-
stjórnar til Háskólans, og hann
segir harmi lostinn:
„En þá dró ský fyrir sólu: rekt
or skýrði frá því í sömu ræðunni,
að stjórn Bandarikja Norður-
Ameríku hafi tilkynnt sér að hún
hyggðist gefa háskólanum finun
milljónir íslenzkra króna. Vakti
undrun mína að rektor skyldi
opinbera þessa
fregn, þar eð
ekki var vitað að
borizt hefði um
þetta formlegt er
indi, né heldur
að háskólaráð
hefði fjallað um
málið eða tekið
formlega afstöðu
til þess sam-
kvæmt eðli þess
og venju, hvað
þá veitt gjöfinni viðtöku. En að
vorum lögum mun kinnhestur
vera eina gjöf sem er af hendi
innt án samþykkis þiggjandans.
Háskólarektor getur ekki þegið
slíka rasgjöf upp á sitt eindæmi.
Háskólaráð hefur ekki siðferði-
lega heimild til að veita henni
viðtöku, á meðan háskólinn er
ennþá eitt af sjálfstæðistáknum
vorum. Og þjóðin vill ekki slíka
gjöf“.
Þjóðin er ég!
Þorv. Þórarinsson
Vetrarstarf Æsku-
SÉRA Bragi Friðriksson kynnti
fréttamönnum í gær starfsáætl-
un Æskulýðsráðs fram að ára-
mótum og sagði jafnframt frá
sumarstarfi þess. Gat hann þess
m. a., að Æskulýðsráð hefði í
samráði við fleiri aðila haft
námskeið fyrir börn og ungl-
inga á leiksvæðum borgarinnar
undir leiðsögn valinna íþrótta-
kennara, sem hefði gefizt mjög
vel. Þá hefðu ýmsir æskulýðs-
leiðtogar átt þess kost að heim-
Reykja-
hefjast
sækja nágrannalöndin og kynn-
ast æskulýðsstarfi þar, jafn-
framt því sem erlendir leiðtog-
ar hefðu komið hingað.
Einnig hafa skátar rekið
Skátaheimilið við Snorrabraut í
sumar í samráði við Æskulýðs-
ráð til félags- og tómstunda-
starfs undir umsjón séra Krist-
jáns Róbertssonar. Þá gat séra
Bragi þess, að ýmis félagasam-
tök hefðu sett á fót sumarbúða-
starfsemi víða um land, enda
nauðsyn þess mikil, að börn fái
dvalið utan bæjanna að sumri
til. Þá hefur í sumar verið gerð
ur út skólabátur, vb. Kári Sól-
mundarson, í tæpa tvo mánuði.
Þá stóð Æskulýðsráð fyrir og
skipulagði sérstakan æskulýðs-
dag í sambandi við Reykjavík-
urkynninguna.
Einnig efndi Æskulýðsráð í
vor til ljósmyndatökuferðalags í
samvinnu við Farfugla, en þeir
hafa skipulagt fjölmörg ferðalög
með góðri þátttöku æskufólks.
Þá er þess að geta, að Æsku-
lýðsráðin í Hafnarfirði, Reykja-
vík og Kópavogi efndu nýlega
til námskeiðs í modelsmíði,
mosaikvinnu og leðuriðju fyrir
leiðbeinendur í tómstundaflokk-
um. —.
Hér fer á eftir starfsáætlun
Æskulýðsráðs okt.—des. 1961:
Tómstundaheimilið að Lindargötu 50
Mánudaga: Bast-, tága- og perlu-
vinna, bein- og hornvinna, ljósmynda-
iðja.
Þriðjudaga: Taflklúbbur, smíðafönd-
ur og ljósmyndaiðja.
Miðvikudaga: Frímerkjakvöld, en
þangað geta ungir frímerkjasafnarar
komið til fræðslu um söfnun frí-
merkja, frímerkjaskipta og vinnu við
frímerkjasöfn sín. Þessa daga fer og
fram málm- og ljósmyndaiðja.
Fimmtudaga: Mosaikiðja, flugmódel
smíði, ljósmyndaiðja.
Föstudaga: Tómstundakvöld eldra
áhugafólks.
Laugardaga^ Kvikmyndasýning kl.
4 e.h. og um kvöldið kl. 8:30 „opið
hús“. Hljómplötur, leiktæki, kvikmynd
ir. —
A sunnudögum munu svo ýmsir
fundir fara fram við og við.
Vogaskóli
Þar munu tómstundaflokkar nem-
enda starfa á miðvikudögum og verður
það nánar auglýst í skólanum.
Háagerðisskóli
Æskulýðsráð starfar hér í samvinnu
við sóknarnefnd Bústaðasóknar. Þar
fer fram: Bast-, tága- og perluvinna
á mánudögum og miðvikudögum kl.
8:30 og kvikmyndasýningar hvern laug
ardag kl. 4:30 og 5,45 e.h.
Golfskálinn
Þar mun vélhjólaklúbburinn Elding
halda fundi sina hvern miðvikudag
kl. 8 e.h. Klúbburinn hefur fræðslu
um umferðarmál og akstursæfingar
undir stjórn Sigurðar Þorsteinssonar,
lögregluþjóns og auk þess er Jón Páls-
son leiðbeinandi klúbbsins af hálfu
æskulýðsráðs. Klúbburinn hefur og
opið verkstæði fyrir félaga öðru hverju
og veitir leiðbeiningar um meðferð vél-
hjóla. Æskulýðsráð og Lögreglan í
Reykjavík hafa haft samvinnu um
þessa starfsemi og hún reynzt vel.
A fimmtudögum kl. 8 e.h. mun
Fræðafélagið Fróði halda fasta
fræðslu- og málfundi sína í Golfskál-
anum. Þetta félag er stofnað af nokkr- ;
Framhald á bls. 22. ]
Þjóðin er auðvitað Þorvaldur
Þórarinsson og- aðrir þeir sjúkl-
ingar, sem hafa leitað hælis á
„rússnesku deildinni“. Sálar-
ástandi þeirra er bezt lýst með
orðum Þorvalds sjálfs, þegar
hann segir, að þá hafi lagzt yfir
háskólahátíðina „þungir skugg-
ar“, þegar rektor tilkynnti að
Bandaríkjamenn hefðu gefið skól
anum fimm milljónir íslenzkra
króna. En lögfræðingurinn reynii
að hugga sig með þvi, að Banda-
ríkjaforseti muni sjálfur biðjast
afsökunar á gjöfinni einn góðan
veðurdag, svo spádómsgáfan virð
ist ekki bregðast Þorvaldi í ó-
ráðsköstunum! Hann segir:
„Sá dagur mun koma að forseti
Bandaríkjanna biðst opinberlega
fyrirgefningar á þessu frum-
hlaupi, hvað svo sem íslenzk
stjórnarvöld gera, og hvað svo
sem háskólaráð gerir.“
Það hlýtur að vera þungbær
raun að vakna snemma morguns
og sjá svona ritsmíðar eftir sig á
prenti.