Morgunblaðið - 13.10.1961, Blaðsíða 5
Föstudagur 13. olct. 1961
MORGVNBLAÐIÐ
5
Dýrafræðingar hafa neitað
algjörlega, minnsta kosti opin
berlega, að viðurkenna tilveru
skrímslisins í Loch Ness, en
þeir hafa aldrei tekið svo
djúpt í árina hvað viðvíkur
hinum „viðurstyggilega snjó-
manni“.
Nýjustu kenningar, sem
fram hafa komið um þessa dul
arfullu veru eru kenningar Dr.
Osman Hill, en hann starfar
við krufningar hjá dýrafræði-
félaginu í London.
—★—
Ibúarnir á slóðum snjó-
mannsins í Himalaya fjöllum
virðast þekkja þrjú slík fyrir
brigði. Eitt á stærð við björn,
annað á stærð við fullorðinn
mann og það þriðja áþekkt
fjórtán ára dreng að stærð.
Ekki er kunnugt hvort þetta
eru skepnur sín af hvorri teg-
und og þá mismunandi kyni og
aldri.
Sá, sem er svipaður manni
nefnist á tíbetmáli mehteh,
er ábyrgur fyrir nafninu, sem
þessar verur hafa fengið. 1921
rugluðust í símskeyti tíbetsku
orðin, sem þýða „villt skepna
er líkist manni“ og þau er
þýða „óhreinn snjómaður“.
Þessi villa á sjálfsagt megin
þátt í því að snjómannsins er
alltaf leytað á röngum stað
þ.e.a.s. í snjónum. Eins og Dr.
Osman segir er engin ástæða
til að ætla að hann lifi á fann
breiðunum. Sennilegra er að
hann lifi í dölunum þar sem
er hlýrra, en gangi yfir snjó-
breiðurnar á leið sinni milli
þeirra.
Það sem bendir til þess að
snjómenn séu í raun og veru
til eru sögur manna sem segj-
ast hafa séð þá og lýsingar
þeirra. Myndir og afsteypur,
sem gerðar hafa verið af spor
2um þeirra og ýmsar jarðnesk-
ar leyfar þeirra. En megnið af
Mynd þessi er sögð eina
ófalsaða myndin, sem tekin
hefur verið af „snjómanni“.
þessu stenzt ekki vísindalegar
rannsóknir.
Það helzta eru slóðirnar,
sem nærri því hver einasti
leiðangur til Himalaya-fjalla
frá því 1887, hefur rekizt á.
Rannsókn hinna nýrri mynda
og afsteypa, sem teknar hafa
verið af sporunum. Sérstak-
lega þeim, sem Eric Shipton
fann 1951 hafa komið dýra-
fræðingum til að álíta að þau
væru eftir stórt dýr, sem
gengi upprétt eins og api, en
ekki dýr, sem líktist birni.
Nærri því allar lýsingar
sjónarvotta eru ófullnægj-
andi að einhverju leyti. Sú
mest sannfærandi er lýsing
enska könnuðarins H. King,
sem var í Tíbet 1913, lýsti
hann snjómanninum sem
skepnu er líktist gorilla-apa,
með sterklegan brjóstkassa og
langa framlimi og flatar iljar.
Hið mest umdeilda, sem sézt
hefur nýlega eru tvær tvífætt
ar skepnur með sterklega
brjóstkassa, þaktar rauðu hári
og um 7 fet á hæð. Það var
Pólverjinn Rawicz, sem sá
þær á hinni frægu göngu
sinni til frelsins frá Síberiu i
yfir Himalaya-fjöllin til Ind
lands.
Pétur prins af Grikklandi
hefur skýrt frá því að snjó-
maður hafi eitt sinn verið
handsamaður í Sikkim. Þorps
búar höfðu séð stórar skepn-
ur sem líktust öpum drekka
úr vatnsþró einni að nætur-
lagi. Blönduðu þeir svefnlyfi
í vatnið og handsömuðu eina
skepnuna meðan hún lá í
dvala af áhrifunum. Bundu
þeir hana við staur, en er hún
vaknaði tókst henni að komast
á brott.
Tilraunir til að komast fyr-
ir um hvað snjómaðurinn i
raun og veru er, með þvi að
rannsaka leyfar, sem sagðar
eru af honum hafa allar farið
út um þúfur. Þess er skemmst
að minnast er Sir Edmund
Hillary fékk að láni hið fræga
Kumjung höfuðleður, sem
reyndist vera úr antilopu-
skinni. Þó er enn eftir að rann
saka ýmis smádýr, sem fuud
ust á höfuðleðri þessu. Þau
eru óþekkt og gætu stuðlað
að lausn gátunnar.
Þó að slóðirnar séu einu á-
þreifanlegu sannanirnar fyrir
tilveru snjómannsins og Hill
ary sé á þeirri skoðun að þær
geti verið eftir refi, þá álítur
dr. Osman Hill að í Himalaya
f jöllum lifi skepna, sem vísind
in þekkja ekki.
Hún gengur sennilega á
flatri ilinni og að minhsta
kosti af og til upprétt. Senni-
lega býr hún í litlum fjöl-
skylduhópum neðarlega í döl
um Himalaya. Þar og ekki á
snjóbreiðunum ættu könnuðir I
að leita hennar í framtíðinni. /
Lifir „snjómaSurinn"
ekki í snjónum?
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Emil Björns-
syni Ingibjörg Jóna Guðlaugsdótt
ir frá Guðnastöðum í A-Land-
eyjum og Sturla Einarsson hús-
gagnasmiður Gnoðavogi 18. Heim
éli ungu hjónanna er að Vestur-
brún 28.
«0 ár« er í dag Hermann Er-
lendsson, Öðinsgötu 25.
laoftleiðir h.f.: Snorri Sturluson er
væntanlegur kl. 06:30 frá NY. Fer til
Jjuxemborgar kl. 08:00. Væntanlegur
®ftur kl. 24:00. Fer til NY kl. 10:30.
JSiríkur rauði er væntanlegur kl. 11:00
frá NY. Fer til Luxemborgar kl. 13:30.
J>orfinnur karlsefni er væntanlegur kl.
22:30 frá NY. Fer til Osló, Khafnar og
Hamborgar kl. 24:00. Leifur Eiríks-
®on er væntanlegur kl. 23:00 frá Staf
jmgri. Fer til NY kl. 00:30.
Eimskipafélag íslands h.f.: Brúarfoss
#r á leið til Hvíkur. Dettifoss er á leið
til Rvíkur. Fjallfoss fer frá Rvík í
icvöld til Vestm.eyja. Gullfoss fer frá
Hafnarfirði kl. 17 til Hamborgar og K
tiafnar. Lagarfoss er á leið til Vent-
cpils. Reykjafoss er á leið til Svíþjóðar
Belfoss er á leið til NY. Tröllafoss
er í Esbjerg. Tungufoss er á leið til
Hamborgar.
Jöklar h.f.: Langjökull fer i dag
frá Warnemunde til Jakobstad. Vatna
jökull er á leið til Haifa.
Hafskip h.f.: Laxá fer frá Eski-
firði í kvöld áleiðis til Spánar.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er í Rvík. Askja kemur væntan
lega til Piraeus í dag.
Söfnin
Asgrímssafn, Bergstaðastrætl 74 er
opið priðjud., fimmtud. og sunnudaga
frá kl. 1.30—4 e.h.
Þjóðminjasafnið er opið sunnud.,
þriðjud., fimmtud. og laugard. kl.
1.30— 4 e. h.
Listasafn Einars Jónssonar opið
sunnudaga og miðvikudaga frá kl.
1.30— 3,30.
Tæknibókasafn IMSÍ, Iðnskólanum:
Opið alla virka daga kl. 13 til 19. —
Laugardaga kl. 13—15.
Ameríska bókasafnið, Laugavegi 13,
er opið kl. 9—12 og 13—18, lokað laug-
ardaga og sunnudaga.
Bókasafn Dagsbrúnar, Freyjugötu 27.
Opið á föstudögum frá 8—10 f.h., laug-
ardögum og sunnudögum kl. 4—7 e.h.
Bókasafn Kópavogs: — Utlán þriðju
daga og fimmtudaga í báðum skólun-
um fyrir börn kl. 6—7:30 og fullorðna
kl. 8:30—10.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur —
Sími 12308 — Aðalsafnið Þingholts-
stræti 29 A: Útlán: 2—10 alla virka
daga, nema laugardaga 2—7. Sunnu-
daga 5—7. Lesstofa: 10—10 alla virka
daga, nema laugardaga 10—7. Sunnu-
daga 2—7.
Útibú Hólmgarði 34: Opið 5—7 alla
virka daga, nema laugardaga.
Útibú Hofsvallagötu 16: Opið 5:30—
7:30 alla virka daga, nema laugardaga.
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla
túni 2, opið dag’ega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Hljóðlát og hugsandi læðist hún inn
í drauma mína eins og niður næiur-
regnsins.
Einu sinni dreymdi okkur, að við
værum ókunnug.
Þegar við vöknuðum, urðum við þess
vör, að við höfðum ást hvort á öðru.
Sorgin vaggast í væ'rð í hjarta mínu,
líkt og kvöldið meðal þögulla trjáa.
— Tagore.
\
FÆREYSKIR MÁLSHÆTTIR:
Ofta taka tröll góðra manna börn.
Sjaldan hevir góður kvistur sprottið
av illum runni.
Sjaldan kemur dúvu ungi, úr ravns
eggi.
Mangur lær, tá ið hann átti að
gráta.
Hpgt er harraboð (= hátt er herra-
boð), men hægri en Guds boð.
Ofta etur hundur tað, hann havnar.
Heilt er nýtt sár.
Gott er um heilan fingur at binda.
Hvat skal hveiti í hunds búk?
Hundur veit húsbondans vilja.
Veiðimaðurinn: — Auðvitað
fékk ég fisk, en hann var svo lít
ill að ég nennti ekki að taka hann
með mér heim. Eg fékk nokkra
menn til að hjálpa mér að kasta
honum í vatnið aftur.
Það er ekki nóg að garðyrkju-
maðurinn elski blóm — hann
verður einnig að hata illgresi.
— Eftir hverju bíður Maja
svona spænnt?
— Hún situr og bíður eftir því
að kærastinn hennar hringi, svo
hún geti skellt á hann.
Þetta tímakerfi okkar er eitt
hvað í ólagi, sagði 5 ára sonur við
föður sinn:
— Þegar maður er glaðvak-
andi, þá er maður rekinn 1 rúmið,
en á morgnana er maður rifinn
upp af værum blundi og bannað
að sofa lengur.
Til sölu Chevrolet vörubíll ’46
Chevrolet vörubíll árg. ’53. Uppl. í síma 2057, Keflavík eftir kl. 7 á kvöldin. í góðu ásigkomulagi til sölu. Uppl. í síma 7091 í Gerðum.
2j herb. íbúð nýstandgerð til leigu fyrir barnlaust reglusamt fólk. Tilb. merkt „Austurhverfi — 7031“ sendist afgr. blaðs ins fyrir þriðjudag. Keflavík Stúlka í fastri vinnu ósk- ar eftir góðu herb. strax. Þeir sem vildu sinna þessu gjörj svo vel og hringja í síma 1748.
Keflavík 2ja—3ja herb. íbúð
Sjónvarp til sölu. Uppl. á Hólabraut 13 eftir kl. 8 á kvöldin. óskast nú þegar. Helzt sem næst Rauðarárstíg. Uppl. í síma 10235 og 11905.
Fyrsta vélsjóra Barnarúm
og háseta vantar á mb. Ás björn á ufsaveiðar. Uppl. í síma 35659 og í Mosa- barði 4, Hafnarfirði. 2 gerðir. Húsgagnavinnustofa Sighvatar Gunnarssonar Hverfisg. 96 — Sími 10274
Hjón Sendisveinn óskast
með tvö börn vantar íbúð strax. Sími 17796. hálfan eða allan daginn. Reykjavíkur Apótek.
Til sölu kynditæki, brennari, ketill, hitadúnkar, dæla og olíu- geymir lítið notað. Uppl. að Grænuhlíð 8, — Sími 32576. Múrvinna Get tekið að mér innanhúss múrhúðun nú strax innan- bæjar eða utan. — Tilb. merkt „Múr — 7035“ send ist afgr. Mbl. fyrir laugard.
Óska eftir 2ja—3ja herb. íbúð til leigu. Tilb. merkt „Eldri hjón — 7033“ sendist afgr. Mbl. fyrir 22. þ.m. Stúlka eða kona, sem getur saum að telpna og drengjafatnað óskast. Uppl. á saumastof- unni Austurstræti 3 og í síma 22923 á kvöldin milli kl. 7—8.
Verkamannafélagið DAGSBRÚN
Félagsfundur
verður haldinn í Iðnó sunnudaginn 15. þ.m. kl. 2 e.h.
D A G S K R Á :
Till. um uppsögn á kaupgjaldsákvæðum samninga.
Dagsbrúnarmenn fjölmennið á fundinn og sýnið
skírteini við innganginn.
___________________________STJÓRNIN.
MÓTORVÉLSTJÓRAFÉLAG
ÍSLANDS
Félagsfundur
verður haldinn sunnudaginn 15. október kl. 14.00
að Bárugötu 11, Reykjavík.
Dagskrá:
Uppstilling til stjórnarkjörs.
Önpur mál.
STJÓRNIN.
Unglingar óskast
TIL AÐ BERA BLAÐIÐ
í EFTIRTALIN HVERFI
VÍÐIIViEL, FOSSVOGSBLETT
og KLEPPSVEG
IRorfjvmliIaítiti
Sími 22480.
ISLENZK FRIMERKI
Evropu-serian 1961
óskast í 100 og 1000 seríum á hæsta gangverði. Aðeins ónöt-
aðar seríur í heilörkum. Staðgreiðsla í dollurum eða hvaða
gjaldeyri, sem óskað er. Svar með verði og magni sendist
fr hnerkj averzlun
Axel Hallberg, jr. Jönköping, Sverige.