Morgunblaðið - 14.10.1961, Síða 1
24 sfður
48 árgangut
233. tbl. — Laugardagur 14. október 1961
Prentsmiðja MorguuMaðsina
Gelslavirkni gætir í
nfmeti í sex ríkjum
Bandaríkjanna
Washington, Tokíó og
Kaupmannahöfn, 13. okt.
GEISLAVIRKRA ÁHRIFA af
kjarnasprengingum Rússa er nú
farið að gæta í nýmeti — einkum
znjólk — í Bandaríkjunum. Heil-
brigðismálastjórnin tilkynnir, að
mælzt hafi aukin geislavirkni í
mjólk í sex ríkjum, — Lousana,
Georgia, Suður-Karolina, Miss-
issippi, Florida og Missouri. Ekki
hefur geislavirknin þó náð því
magni, sem hættulegt getur talizt
mönnum og telur heilbrigiðis-
Þrettán dæmdir
til dauða
Moskva, 13. okt.
(NTB-Reuter)
DÓMSTÓLL í Minsk í Hvíta
Rússlandi kvað í dag upp dauða-
dóm yfir þrettán mönnum og
konum, sem — að því er Tass
fréttastofan segir — höfðu sam-
vinnu við nazista um hryðjuverk
í síðustu heimsstyrjöld.
Réttarhöldin í máli þessa fólks
hafa staðið yfir í níu daga. Segir
Tass, að þar hafi sannazt á hina
ákærðu fjölmörg hryðjuverk. —
hefðu þeir haft yfir 60 hegningar
vinnubúðir, eyðilegt meira en
hundrað þorp og skotið eða
'brennt lifandi yfir tíu þúsundir
manna.
stjórnin enga ásæðu fyrir fólk að
hætta neyzlu nýmetis.
Geislavirkni hefur mjög aukizt
víða um heim, og jafnóðum hef-
ur verið skýrt frá í fréttum, frá
því Rússar hófu kjarnasprenging
ar 1. sept. sl. — ftarlegar, rann-
sóknir á fæðutegundum fara stöð
ugt fram en hvergi hefur geisla-
virknin komizt yfir hættu mark
nema í Japan. — í Norður-Jap-
an er ástandið orðið alvarlegt í
þeim efnum.
Grikkir eru einnig orðnir ugg-
andi um hag sinn vegna stórauk-
innar geislunar.
— ★ —
Þá segir í NTB-frétt frá Kaup-
mannahöfn í dag, að yfirstjórn
heilbrigðismála þar í landi hafi
í dag birt opinberlega skýrslu
,þar sem segir, að geislavirkni
andrúmsloftsms og í regni hafi
aukizt verulega, en sé þó enn
langt undir hættumarki.
Átök í Óran '
Oran, Alsír, 13. október.
(NTB—Reuter)
FIMM manns biðu bana í
átökum, sem urðu í Oran í
dag milli Araba og Evrópu-
manna. Lögreglan varð að
beita tá.ragasi gegn óróaseggj
unum, • sem vopnaðir voru
járnrörum, steinum og hníf-
um. Mjög er nú óttazt að
Oran kunni að verða miðstöð
nýrrar uppreisnar hægri sinn
aðra öfgamanna gegn stefnu
Frakka í Alsírmálinu,
Sprengja sprakk í stjórnar—
byggingu í Oran síðla í dag,
olli töluverðum skemmdum,
en engum mareni varð meint
af. Jean Morin, fulltrúi
frönsku stjórnarinnar var
meðal þeirra, sem voru í
byggingunni þegar sprenrg-
ingin varð.
NTB-Reuter, 13. okt.
RfKISSTJÓRNIR fimm landa
viðurkenndu hina nýju stjórn
Sýrlands í dag. Það voru stjórn-
ir Norðurlandanna fjögurra —
INoregs, Danmerkur, Sivíþjóðar
og Finnlands — og Bretlands.
Loftmynd af Edinburgh, einu byggðinni á Tristant da Cunha, sem hraunflóðið hefir nú lagt
í eyði. Bærinn var heitinn eftir skozkum hertoga, sem heimsótti eyjuna fyrir nær einni öld.
Sjá grein á bls. 3,
Rússar geta fallizt á að —
framkvæmdastjóri veröi
einn - til bráöabirgöa
en hafi sér til aðstoðar nef nd 6-7 manna
New York, 13. okt. (AP)
Valerian Zorin, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna
og fulltrúi þeirra hjá Sam-
einuðu þjóðunum sagði í
dag, að Rússar gætu fallizt
á. að einn maður yrði kjör-
Vaierian Zorin
yPersonae non gratae'
HAAG og Moskvu, 13. okt. —
Ctíkisstjórn Holiands hefur Iýst
sendiherra Sovétríkjanna í Haag,
Panteleimon Ponomarenko „per-
sona non grata“ frá og með deg-
inum í dag.
Ponomarenko er nú í Moskvu.
Pegar er hoUenzka stjómin hafði
tilkynnt ákvörðun sína, tilkynnti
Tass-fréttastofan, að Ponomaren-
ko hefði verið kallaður heim frá
Hollandi. Ennfremur að Sovét-
stjórnin hefði vísað scndiherra
Hollands í Moskvu Henry Heli-
er úr landi. Jafnframt var hol-
lenzka sendiráðinu í Moskvu af-
hent mótmælaorðsending Sovét-
stjórnarinnar, þar sem hollenzka
Iögreglan er sökuð um hneykslan
lega framkomu við sovézka sendi
ráðsmenn með samþykki ríkis-
stjórnar sinnar.
Þetta sendiherrastríð Rússa og
Hollendinga á rætur að rekja til
atburðanna fyrr í vikunni á Schi-
pol-flugvellinum í Haag, er líf-
eðlisfræðingurinn rússneski, Al-
exei Golub, baðst landvistar í
Hollandi sem pólitískur flótta-
xuaður.
inn framkvæmdastjóri sam-
takanna í stað Dags Hamm
arskjölds til ársins 1963 —
en hann skyldi þá hafa sér
til aðstoðar nefnd 6—7 em-
bættismanna, og hafa við þá
samráð um aðgerðir í þágu
samtakanna. Engu að síður
skyldi úrslitavald í þeim
efnum vera í höndum hans
eins.
Zorin skýrði frá þessu á fundi
með fréttamönnum í New York
í dag. Hann sagði, að Rússar gætu
ekki fallizt á, að aðstoðarfram-
kvæmdastjórar yrðu fimm — eins
og lagt hefði verið til — fremur
að þeir yrðu sex eða sjö. Enn-
fremur sagði hann, að yrði einn
þessara manna frá Bandaríkjun-
um, skyldi annar verða frá Rúss-
iandi — ætti Vestur-Evrópa að
eiga þar fulltrúa, skyldi hið sama
gilda um Austur-Evrópu. Ekki
krafðist hann neitunarvalds til
handa nokkurs nefndarmanna.
# Láta ekki af kröfunni um
þristjórn
Fréttamenn segja að enn sé
nokkurt bil milli þessarar síðustu
tillögu sovézka fulltrúans og þess
sem flestar aðildarþjóðir samtak-
anna telja réttast í þessu erfiða
deilumáli. Zorin gerði það ljóst
á fundi sínum í dag, að Rússar
væru ekki með þessu að falla frá
kröfu sinni um Þrístjórnarkerfi á
stjórn samtakanna. Þeir gerðu
hana hinsvegar ekki að skilyrði
fyrir bráðabirgðalausn málsins
nú. Loks kvað hann Rússa aldrei
mundu fallast á skipan fram-
kvæmdastjóra nema öryggisráð-
ið fjallaði um og samþykkti
þann mann, er valinn yrði í stað
Hammarskj ölds.
• Til einskis að hóta
Adlai Stevenson, aðalfulltrúi
Bandaríkj anna hjá Sameinuðu
þjóðunum sagði í dag í tilefni
blaðamannafundar Zorins, að
Rússum væri til einskis að hóta
og ógna Sameinuðu þjóðunum í
þessu máli. Bandarikjamenn
hygðust ekki fallast á kröfu
þeirra um þrístjórn Samtakanna
-<s> ■
Vín, mjólk
eðo vatn
með mntnum
ÞEGAR Monaco, Frakklands-
meistararair í knattspyrau
fóru til Skotlands og léku við
Glasgow Rangers í Evrópu-
keppninni, höfðu þeir með-
ferðis létta vinið sitt, sem
þeir alla jafna drekka með
niatnum. Og þegar Rangers
fór svo tii Riviera og léku
leikinn að heiman, höfðu þeir
með sér — ekki skozkt wisky
— heldur skozkt vatn. Þess
skal getið að Rangers sló
Frakkana út og komst áfram
í keppninni.
Svona var þetta einnig
á Heimsmeistarakeppninni í
handknattleik á sl. vetri.
Franska liðið neytti ávallt
víns með matnum, en hin lið-
in og þar á meðal íslending-
arnir, drukku mjólk. island
vann Frakkland í þeirri
keppni með 20 mörktim gegn
13.
Geta
eytt
gervihnettir
fellibyljum?
Washington, 13. okt.
YFIRMAÐUR veður-
stofu Bandaríkjanna dr. F.
W. Reichelderfer segir, að
með gervihnöttum skapist ó-
trúlegir möguleikar á að sjá
fyrir • mikla storma — og
ennfremur að eyða þeim, áð-
ur en þeir verða að því ægi-
lega eyðingarafli, sem storm
sveipir og fellibyljir oft eru.
Gætu veðurhnettir orðið þús
undum manna og miklum
verðmætum til bjargar.
Veðurfræðmgurinn fjallaði um
þetta efni á fundi félags blaSa-
manna í Washington og tilnefndi
sérstaklega bandaríska gervi-
hnöttinn Tiros III, sem hefur
í sumar tekið myndir af öllum
helztu stormum yfir Atlantshafi
og nokkrum yfir Kyrrahafi. Tir-
os getur sent myndir af fellibylj-
um þegar frá upphafi myndunar
þeirra — þegar enn á að vera
unnt að eyða þeim.
Reichelderfer sagði frá því,
hvernig minnkað hefði verið afl
fellibylsins Ester, sem í sl. mán-
uði kom upp á Karíbahafi og
stefndi að austurströnd Banda-
ríkjanna — þótt ekki væri unnt
að breyta um stefnu hans.
Regnið féll sem skaðlaus ís
IJr sex flugvélum var dreift
hundruðum punda af silfurjoðíði
yfir storminn. Nærri sjö hundruð
Framh. á bls 2