Morgunblaðið - 15.10.1961, Síða 1
1
40 siður og Lesbok
48. árgangur
234. tbl. — Sunnudagur 15. október 1961
Frentsmiðja Morgunblaðsina
Forsætis-
ráöherra
myrtur
Usumbara, Ruanda Urundi,
14. okt. — AP —
1 gærkveldi varð sá atburður í
borginni Usumbara í Urundi, að
forsætisráðherrann, Rwagasore
prins, var myrtur — skotinn, þar
sem hann sat að snæðingi í veit
ingahúsi við strönd Tanganyika-
vatns ásamt öðrum stjórnarmönn
um.
lllræðismaðurinn, sem komst
undan, hafði falið sig í kjarri við
veitingahúsið og skotið af rifli.
Lík forsætisráðherrans hefur ver
ið flutt til Kitgea, höfuðborgar
Urundi, og verður jarðsett þar í
dag.
Rwagasore prins, sem var rum
iega þrítugur að aldri, var son-
ur Mwambutsa konungs í Urundi
— en konungurinn var einmitt
að undirbúa heimsókn til Belgíu.
Kenn. var þegar aflýst.
• Hefndarhugur og
ættflokkadeilur.
í Ruanda Urundi — sem er
tvö smá konungsríki — eru ibúar
um fimm milljónir, þar af 5000
Evrópumenn. Fram að heimsstyrj
öldinni fyrri lutu konungsríkin
stjórn Þj óðverja, en eftir styrjöld
ina urðu þau verndarríki Þjóða
bandalagsins og síðar Sameinuðu
Jjjóðanna undir stjórn Belgíu.
Ruanda Urundi er fjöllótt land
og giljótt. Það liggur í kvos milli
Kongó (fyrrum belgísku Kongó).
Uganda og Tangayika. Aðalat-
vinnugreinar þar eru kaffi- og
Ibaðmullarrækt og einnig nokkur
málmvinnsla. Þó er landið
mjög skammt komið á veg þró-
unar.
Hinn 18. september fóru fram
jþingkosningar í landinu og fyrir
'hugað er, að það komizt í tölu
’hinna nýju sjálfstæðu ríkja
Afríku þegar á næsta ári. En
menn óttast mjög að saga Kongó
ó s.l. ári eigi eftir að endurtaka
■sig í Ruanda Urundi. Hætta er á
cettflokkadeilum eins og í Kongó
— en þar eru þrír helztu ættflokk
Framhald á bls. 23.
Stefniibreyting?
DANSKA útvarpið skýrði frá
því í gær, að utanríkisráðherra
Belgíu, Faul Henri Spaak,
hefði lagt til við flokk sinn,
jafnaðarmánnaflokkinn, að
belgíska stjórnin viðurkenndi
miðstjórnina í Leopoldville
hina hina einu löglegu stjórn
Kongó lýðveldisins og sjálf-
stæði Katanga yrði ekki leng-
ur viðurkennt. Spaak. sagði,
að aðskilnaður Katanga frá
öðrum hlutum Kongó hefði
mætt svo mikilli andspyrnu
hinna nýju frjálsu ríkja
Afriku að ekki væri rétt að
svo yrði áfram.
Gufustrókinn leggur upp um opið á einum af nýju leirhverunum, sem myndast hafa í Oskju síðustu daga. Dr. Sigurður Þórar-
insson stendur lengst til hægri og áætlar að úr honum renni 30 sekúndulítrar. Frásögn af umbrotunum þar innfrá er á bls. 3,
Ljósm. Mbl. E. Pá
Endanlegt vopnahlé í Katanga
Elisabethville, 14. okt. — AP.
SAMIÐ hefur verið um endanlegt vopnahlé í Katanga milli
liðs Sameinuðu þjóðanna og Katangastjórnar. Þar með læt-
ur herlið SÞ af hernaðaraðgerðum sínum sem miðuðu að
því að sameina Katanga öðrum hlutum Kongólýðveldisins.
Lið SÞ mun ekki hindra að Katangastjórn verjist sjálf ut-
anaðkomandi árásum á fylkið — og felst þar í viðurkenn-
ing á því, að hún beiti her sínum gegn hermönnum mið-
stjórnarinnar í Leopoldville. Fregnir herma að þaðan hafi
verið send nokkur herfylki að landamærum Katanga.
Samkomulagið um vopnahlé í
Katanga undirrituðu þeir Moise
Tshombe og Mahmoud Khiari,
fulltrúi SÞ, seint í gærkveldi.
Samkvæmt því verður skipzt á
föngum á mánudag — án vopna.
Samningsaðila greinir enn á
um eitt atriði, hvort skila skuli
vopnum 130 lögreglumanna Kat-
angastjórnar, sem að sögn
herstjórnar SÞ gáfust upp 24.
sept. sl. eða fjórum dögum eftir
Mikil hátíðahöld á
aldarafmælí sr. Bjarna
Þorsteinssonar
SfOHUFIRÐI, 14. okt. — 100 ára
fæðingarafmæli sóknarprestsins,
tónskáldisins, rithöfundarins og
feæjarmálaleiðtogans séra Bjarna
Þorsteinssonar heilsaði Siglufirði
með mildu haustveðri, og fánar
blakta hvarvetna við hún. í bóka
verzlunum prýðir ný bók, „Óm-
ar frá tónskáldsævi“ glugga, en
það er ævisaga séra Bjarna, Ing
Framh. á bls. 23.
að samið hafði verið tímabundið
vopnahlé. Telur Katangastjórn
því rétt að kalla þá „stríðsfanga"
og beri að skila þeim vopnuðum
til baka. Hinsvegar féllst Tshom-
be á að láta atriði þetta liggja
Lömunar-
veiki eykst
í Dan-
mörku
Einkaskeyti til Mbl.
frá Kaupmannahöfn.
14. október.
f SfÐUSTU víku voru
skráð í Danmörku 12 ný,
alvarleg lömunarveikitil-
felli. Alis hafa því verið
skráð 93 tiifelli frá því í
aprílbyrjun, en það eru 28
tilfellum meira en árið
1958. Það ár voru skráð
Frh. á bls. 2
á milli hluta og fjalla um
síðar við yfirstjórn SÞ.
Katangastjórn fær aftur í hend
ur mikilvæga staði, sem herlið
SÞ náði í sínar hendur meðan
baidagar stóðu yfir í Katanga og
SÞ fá aftur fyrri bækistöðvar. Þá
mun lögregla Katangastjómar
gæta flugvallarins í Elisabeth-
ville og samkvæmt samningnum
hefur stjórnin einnig heimild tii
að hafa þar fámennt herlið. Flug-
völlurinn verður S morgun opn-
aður fyrir eðlilegri umferð.
Báðir samningsaðilar heita því
að reyna að leysa öll deilumál
sín í framtíðinni með friðsamleg-
um samningum.
Eitt víxispor getur
leitt til dsigurs
segir Macmillan, forsætisrdðherra Bretlands
Brighton, Englandi, 14. okt.
— AP —
HAROLD Macmillan, for-
sætisráðherra Bretlands, hélt
lokaræðuna á landsfundi í-
haldsflokksins brezka í Brigh
ton, sem var slitið í dag.
Hann sagði þar meðal
annars, að hin hugsjónalega
barátta við kommúnismann
kynni enn að vara manns-
aldur eða lengur. Vesturveld
in yrðu að fylgja fastmótaðri
stefnu í þeirri baráttu — eitt
víxlspor gæti leitt þau til
mikils ósigurs.
Macmillan sagði, að menn
yrðu að halda þeirri von sinni
— sem jafnframt hlyti að vera
takmark Vesturveldanna — að
styr j aldarhættan minnkaði —
reikna með því að tíminn fengi
fi-ið til að græða öll sár. — Ef
við trúum á sjálfa okkur, sagði
forsætisráðherrann, mun það
sem veldur okkur mestum erfið
leikum nú, tapa styrk sínum og
mætti í fyllingu tímans. — Við
megum aldrei láta ónotuð tæki-
færin til að lina spennuna í
heimsmálunum, en við megum
Framh. á bls. 23.