Morgunblaðið - 18.10.1961, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.10.1961, Qupperneq 1
48. árgangur 24 síður Við eigum aö gæta víðsýni og hagsýni í fjármálum } Rekstrarútgjöld rtkisins hefBu lækk- J | að á árinu 1962 — ef kauphækk- [ I /inírnm' fiatön alsfsí Ar^Sí^S ^ Fjárlagarœða Cunnars Thoroddsen FYRSTA umræSa um fjárlagafrumvarp ársins 1962 fór fram á Alþingi í gærkvöldi og var henni útvarpað. Gunn- ar Thoroddsen, fjármálaráðherra, fylgdi frumvarpinu úr hlaði með yfirgripsmikilli og glöggri ræðu, þar sem hann gerði grein fyrir afkomu ríkissjóðs á árinu 1960, afkomu- horfunum í ár — og rakti og skýrði einstaka liði hins nýja fjárlagafrumvarps. Þá kom m. a. fram í ræðu ráðherrans, að greiðsluaf- gangur hefði orðið á árinu 1960 og útgjöld ríkisins þá í fyrsta skipti orðið undir áætlun. I»á teldi hann nú ein- sýnt, að hrakspár stjórnarandstæðinga um greiðsluhalla á þessu ári mundu ekki rætast — heldur enn verða hallalaus afkoma. Vegna kauphækkananna í sumar og afleiðinga þeirra, ykjust rekstrarútgjöld ríkissjóðs á árinu 1962 um 138 milljónir króna — en á móti kæmu lækkanir, sem leiddu til þess, að heildarhækkun útgjaldanna á fjárlaga- frumvarpi næsta árs næmi ekki nema 126 milljónum kr. hetta þýddi það, að ef ekki hefði komið til nýrra kaup- hækkana hefðu rekstrarútgjöld ríkissjóðs getað lækkað á næsta ári. Gat ráðherrann um margvíslegar sparnaðar- ráðstafanir, sem ýmist væru í undirbúningi eða þegar komnar til framkvæmda. Óvissa um stjórnar- myndun í Tyrklandi Samsteypustjórn óumflýjanleg Fer framsöguræða fjármálaráð herra hér á eftir í heild: Frumvarp til fjárlaga fyrir ár- Jð 1961 liggur hér fyrir til 1. umræðu. Aður en ég sný mér að frumvarpinu sjálfu vil ég gera tiokkra grein fyrir afkomu ríkis- sjóðs á síðastliðnu ári og því hvernig horfir um afkomu hans á þessu ári. Uppgjöri rikisreiknings fyrir Érið 1960 var lokið á miðju ári. Yfirskoðunarmenn hafa að und- enfömu endurskoðað reikning- inn og verður frumvarp til laga um samþykkt á honum lagt fyrir Alþingi í nóvembermánuði. Ætlunin var að sjálfum reikn- ingnum yrði útbýtit á Alþingi prentuðum fyrir þessa 1. umræðu fjárlaga, eins og gert var í fyrra. En vegna óvenjulegra anna í Ríkisprentsmiðjunni hefur ekki tekizt að ljúka prentun reikn- ingsins. Þegar sýnt var að prent- un yrði ekki lokið fyrr en eftir nokkra daga, þótti þó ekki rétt að lába fjölrita reikninginn og efhenda hann þingmönnum þann ig, eins og stundum hefur verið gert, enda tvíverknaður og auka- kostnaður. Ræðumönnum hv. etj órnarandstæðinga hér í þess- um umræðum var því gefinn kostur á að kynna sér reikning- inn hjá ríkisbókara í próförk, og vona ég að þessi seinkun prent- unar komi ekki að sök. Afkoma ríkissjóðs 1960. Vil ég þá víkja að afkomu ríkissjó& á siðastliðnu ári. Þegar fjárlög fyrir árið 1960 voru undirbúin og afgreidd, var meiri vandi á höndum en oftast éður um flestar áætlanir, eink- um þær, er snertu tekjur ríkisins. J_.águ til þess ýmsar ástæður. Miklar breytingar voru gerðar á Bkattakerfinu á því þingi. Tekju Bkattur var afnuminn af almenn um launatekjum. Felldur var nið ur 9% skattur á innlendBM^am- leiðslu og þjónustu, en í staðinn lögtekinn 3% söluskattur í smá- sölu og hækkaður söluskattur af innfluttum vörum. Erfitt var að áætla nákvæmlega, hvernig þess ar breytingar myndu verka á tekjur ríkissjóðs. 1 annan stað var ljóst, að breytingin á gengis- skráningunni mundi draga úr innflutningi erlendra vara, enda til þess ætlazt. En ógerlegt var að sjá fyrir, hve mikil sú hækkun myndi verða og hversu misjöfn áhrifin á innflutning einstakra vörutegunda. 1 þriðja lagi kom til hið aukna viðskiptafrelsi. Einnig hlaut gengisbreytingin að hafa ýmis konar áhrif á útgjöld- in. Um leið og höfð voru í huga þessi allmörgu óvissu atriði, sem Framhald á bls. 8. Moskva, 17. okt. — únistaflokksins flutti Krú- sjeff ræðu, sem stóð í 6 klst. og 20 mínútur. Var þingið sett í nýjum samkomusal í Kreml að viðstöddum hátt á fimmta þúsund áheyrendum. Gunnar Thoroddsen Kennedy skorar á Krúsjeff WASHINGTON, 17. október — Kennedy Bandarikjaforseti sendi ráðstjórninni í kvöld áskorun um að hætta við að sprengja 50 megatonna kjarnorkusprengj- una, sem Krúsjeff skýrði frá i dag. Sagði Kennedy, að hann bæri þessi tilmæli fram í þágu alls mannkyns, því þessi stóra sprenging gæti haft alvarlegar afleiðingar. — Ennfremur sagði Kennedy, að Bandarikjamenn hefðu getað gert slíka sprengju 1957, en þeir teidu enga nauðsyn bera til þess. 100 megatonn. Krúsjeff sagði í sinni löngu ræðu, að Rússar mundu sprengja kjarnorkusprengjur fram til næstu mánaðamóta. Sú síðasta yrði stærst, um 50 megatonn, eða sem svarar 2,500 sprengjum af þeirri stærð, sem varpað var á Hirosima. Sagðist Krúsjeff eiga ANKARA, 17. okótber. — Úrslit þingkosninganna í Tyrklandi urðu á þá lund, að enginn flokk- anna hlaut nægilegt fylgi til þess að geta myndað stjórn. Sam- steypustjórn virðist því óumflýj- anleg. ♦ * * Lýðveldisflokkurinn undir for- ystu Ismet Inönu, en studdur af Gursel hershöfðingja, er nú stærsti flokkur landsins Og hlaut 180 sæti í fulltrúadeildinni. Rétt- lætisflokkurinn, sem studdur var af áhangendum Menderes hlaut 150 sæti, en hins vegar 68 sæti í öldungadeildinni. Vantar þá lítið upp í meirihluta, því í deildinni sijta 140 þingmenn. Lýð veldisflokkurinn hlaut 45 sæti. * * * Nýi tyrknesi flokkurinn, sem fékk 61 sæti í fulltrúadeildinni Og 21 í öldungadeildinni kemur e. t. v. með að hafa úrslitaáhrif um myndun. stjórnar. Formæl- andi réttlætisflokksins sagði í dag, að hans flokkur væri reiðu- búinn að ganga til stamstarfs með þessum flokki, en mundi ekki vinna með lýðveldisflokknum. Fjórði og minnsti flokkurinn er bændaflokkurinn, sem hlaut Adenauer dregur sig í hlé BONN, 17. október. — Þó að ég verði endurkjörinn kanslari til næstu fjögurra ára, þá mun ég ekki sitja út allt kjörtímabilið, sagði Adenauer kanslari í dag. Hann ætlar hins vegar að sitja nokkurn tíma til þess að búa eftirmann sinn vel undir kansl- arastörfin. LONDON, 17. október — Mac- millan og de Gaulle hittast senni lega innan tíðar til þess að ræða ástand heimsmálanna. helmingi stærri sprengu en hún yrði ekki reynd núna. Sagði hann, að Rússar ættu kjarnorkukafbáta, sem hefðu fjarstýrð flugskeyti og síðan snéri hann að utanríkismálun- um, en hann varði mestum tíma til þess að gera þeim skil. Neitaði hann því, að Rússar hefðu sett fram úrslitakosti í Berlín. Sagði, að hugsanlegt væri að slá friðarsamninglum við A- Þýzkaland á frest fram til ára- móta, því viðræður Gromykos við ráðamenn á vesturlöndum hefðu leitt í ljós, að þar væri vilji fyrir hendi til lausnar mál inu með fi' i ðsamleg u m hætti. 49 sæti í fulltrúadeildinni og HS í öldungadeildinni. . * * * Síðari fréttir: Tyrkneska bylt- ingarráðið, sem stjórnað hefur Tyrklandi síðan Menderes var velt úr stóli í maí 1960, fór þess á leit við förystumenn allra fjög- urra stjórnmálaflokkanna í kvöld, að þeir mynduðu sam- steypustjórn. Undirtektir munu í fyrstu hafa verið daufar. X15 flaug með sex- földum hraða hljóðsins Edwards-flugstöðinni, Kaliforníu, 17. okt. BANDARÍSKA rakettuflug vélin X-15 setti enn nýtt hraðamet í dag, er tilrauna- flugmaðurinn Joe Walker flaug véliikni með 3920 mílna hraða, eða næstum sex sinn um hraðar en hljóðið. Hann hafði lofthemlana niðri til þess að fara ekki enn hrað- ar. Hreyfill flugvélarinnar var aðeins í gangi í 80 sek- úndur og náði Joe Walker 110 þús. feta hæð, en áður hefur X-15 farið upp í 117,000 feta hæð. Lofthemlarnir voru gló- andi af hita, sem myndaðist vegna loftmótstöðunnar. Hitnuðu þeir upp í 1,100 gráður á Fahrenheit en búk ur upp í 1000 gráður. Há- marksþol málmsins, sem flugvélin er smíðuð úr, er 1,200 gráður. Stefnuskráin. Hann krafðtst þess, að kín- verska kommúnistastjórnin yrði tekin í S.Þ. svo og stjórnir beggja hluta Þýzkalands. Þá sagði hann, að kominn væri tími til að þrjú helztu öflin í heimin- um, kommúnistaríkin, hlutlausu ríkin svonefndu og lýðræðisrfk in skiptu með sér öllum stofnun um S.Þ. Annars dró hann utanríkis- málastefnuna sarnan í sex megin atriði: 1) Friðsamleg sambúð verði grundvallarreglan. Framhald á bls. 23. Við eigum stærri sprengjur sagði Krúsjeff, en viðurkenndi, að enn væri matvælaskortur i Rússlandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.