Morgunblaðið - 19.10.1961, Qupperneq 1
24 síður
48. árgangur
237. tbl. — Fimmtudagur 19. október 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins settur í Gamla bíói í kvöld
Gert ráð fyrir mjog mikilli
fundorsókn
íslenzkir kommúnistar j
á flokksþinginu
í Moskvu
nú stendur yfir í Moskvu, eru,
samkvæmt frásögn „Þjóðvilj-
þeir Guðmundur Vig-
ans
fússon og Eggert Þorbjarnar-
son. Mbl. er kuimugt um, að
FULLTRtJAR islenzkra kom- talsvert hefur verið um ausí-
múnista á 22. þingi Kommún- urferðir íslenzkra kommún-
istaflokks Sovétríkjanna, sem ista upp á síðkastið.
LANDSFUNDUR Sjálfstæð-1
isflokksins verður settur í
Gamla bíói kl. 8:30 í kvöld. |
Þar mun varaformaður Sjálf
stæðisflokksins, Bjarni Bene-
diktsson, forsætisráðherra,
flytja yfirlitsræðu um stjórn
málaástandið.
Fundurinn verður settur í
Gamla bíói, en öll önnur
fundarstörf fara fram í Sjálf
stæðishúsinu.
Nefndakjör verður kl. hálf
tíu á föstudagsmorgun, og síð
an verður fundinum haldið á-
fram á sunnudagskvöld.
Ekki er enn vitað um endan
lega tölu fulltrúa, en þegar er
sýnilegt, að fundarsókn verð
ur mjög mikil. Fundinn sitja
fulltrúar úr öllum sýslum
landsins.
Meðal verkefna þessa lands
fundar er að setja Sjálfstæðis
flokknum nýjar skipulagsregl
ur vegna breyttrar kjördæma
skipunar.
Mjög áríðandi er, að þeir
fulltrúar, sem ekki hafa þegar
Krúsjeff
tapaöi
RUST, Austurríki. — 1 fyrra
kom Nikita Krúsjeff forsætis-
ráðherra í opinbera heimsókn
til Austurríkis. I viðtali, sem
hann átti þá við Leopold Figl
forseta austurríska þingsins,
hélt Krúsjeff því fram að
rússneskt korn gæfi tíu sinn-
um meiri uppskeru á hektara
en hið austurríska. Ekki vildi
Figl trúa þessu. Lauk þessum
metingi með veðmáli og bend
ir allt til þesc að rússneskir og
ausiturrískir embættismenn
muni í sameiningu smæða það,
sem undir var lagt — 200
punda grís.
Figl á búgarð skammt frá
Vín og þar var á mánudag
upp skorið rússneskt kom {
viðurvist sérfræðinga frá báð
um löndum. Kom þá í ljós að
rússneskia komið viar mjög
gott, en uppskeran ekki meiri
en af austurrisku korni.
Victor Avilov sendiherra
Sovjetríkjanna var viðstaddur
þegar kornið var skorið. Hélt
hann því fram að Figl hefði
misskilið veðmálið og sáning-
in hefði ekki verið rétt. En
Figl svaraði því til að rúss-
neskl land'búnaðarsérfræðing-
urinn Sjevsjenko prófessor
hefði fyrr á þessu ári heimsótt
búgaæðinn og samþykkt sán-
inguna.
Sendiherrann sagði þá að
hann yrði að ræða málið við
Krúsjeff en Figl var sigurviss
_ og bauð Avilov og öðrum
Írússneskum embættismönnum
til hátíðar í Vín, þar sem fram
verður borin grísasteik.
fengið fulltrúaskírteini, vitji
þeirra fyrir kl. 7 í kvöld í
skrifstofu flokksins í Sjálf-
stæðishúsinu.
Togari
sökk
I GÆR sökk brezki togarinn
Arctic Viking, Hull 176, eign
Boyd Line Ltd., á Norðursjó,
nálægt Dogger Bank. 13 mönnum
hafði verið bjargað í gær, en 5
manna var saknað. Er síðast frétt
ist var björgunarbáturinn fund-
mn tómur.
Arctic Viking var 203 lestir að
stærð, byggður í Selby 1937. Tog-
arinn hafði lengi stundað veiðar
á Islandsmiðum, og kom við sögu
í landhelgisdeilunni, en þá var
hann skrifaður upp af íslenzkum
varðskipum.
Kjarnorkuógnun Krúsjeffs
mótmælt víða um heim
Moskvu og London, 18 .okt.
(NTB—AP).
ÁRSÞINGI kommúnista var hald
ið áfram í Moskvu í dag og flutti
Krúsjeff forsætisráffherra þar
rúmlega sex klukkustunda ræðu
um framleiðsluaukningu í Sovét-
nkjunum á næstu tuttugu árum.
Að ræðunni lokinni var þingi
frestað til morgun, en forsætis-
ráðherran.n gekk um og heilsaði
erlendum fulUrúum. Það vaktí
athygli að Chou En-lai forsætis-
ráðherra Kína gekk úr fundar-
salnum með hendur í vösum áður
en Krúsjeff náði að heilsa hon-
ura.
GLÆPUR
Yfirlýsing Krúsjeffs frá í gær
Nóbelsverðlaun í dag
Stokkhólmi, 18. okt. —
(NTB) —
Karólínska stofnunin í Stokk-
hólmi mun skýra frá því á
fimmtudagsmorgun hver hlýtur
Nobelsverðlaun í læknisfræði í
ár. Verðlaunin eru nokkuð hærri
en í fyrra, eða samtals rúmlega
250 þúsund sænskar krónur (kr.
2.085.000.00).
Ekkert hefur frétzt um það
hver verðlaunin hlýtur, og eru
blöðin í Svíþjóð óvenjulega þög
ul um málið. En í fyrra kom
verðlaunaveitingin nokkuð á ó-
vart. Þá var verðlaununum skipt
milli Bretans Peter Bryans og
Astralíumannsins Frank Macfer-
lanes fyrir tilraunir þeirra í sam
bandi við ágræðslur. Expressen
í Stokkhólmi bendir þó á í dag að
höfundur bólusetningarefna gegn
lömunarvaiki, vísindamennirnir
Jonas Salk og Albert Sabin hafi
enn ekki hlotið Nobelsverðlaunin.
Tilikynnt verður hinn 26. þ.m.
hver hlýtur bókmenntaverðlaun
Nóbels og eðlis- og efnafræði-
verðlaunin verða tilkynnt 2. nóv
ember. -
um að kjarnorkutilraunum
Rússa mundi ljúka um næstu
mánaðarmót með því að sprengd
yrði 50 megatonna sprengja hefur
mætt harðri gagnrýni víða um
heim. Diefenbaker forsætisráðh.
Kanada skýrði frá því í dag að
Kanadastjórn hefði ákveðið að
senda Rússum formleg mótmæli
í þessu sambandi. Sagði ráðherr-
ann að ef Sovétríkin sprengdu
50 megatonna sprengju, væri það
glæpur gegn öllu mannkyni.
Kennedy forseti hefur sent Krú
sjeff orðsendingu þar sem hann
biöur forsætisráðherrann að end-
urskoða þessa ákvörðun og í
brezka þinginu var skýrt frá því
í dag að ríkisstjórnin hefði í
hyggju að leggja fram tillögu hjá
Yinafundur í Moskvu. Nik-
ita Krúsjeff forsætisráff-
herra tekur á móti Chou En-
lai forsætisráffherra Kína á
flugvellinum í Moskvu, en
þangaff kom Chou En-lai s.I.
sunnudag til aff sitja 22.
þing kommúnistaflokksins.
Sameinuðu þjðunum um að Alls-
herjarþingið skori á Sovétríkin
að hætta við að sprengja 50 mega
tonna sprengju.
í umræðum í brezka þinginu
sagði Denis Healey, sérfræðingur
Verkamannaflokksins í utanríkis
málum, að hann vildi minna Krú-
sjeff á það að næst þegar hann
sprengdi kjarnórkusprengju bitn
aði það á börnunum, ekki einung-
is í Bandaríkjunum og Bretlandi,
heldur einnig í Indlandi, Japan,
Ghana, Kína og sjálfum Sovét-
ríkjunum. Healey sagði að það
væri misskilningur hjá Krúsjeff,
ef hann teldi að hann hefði stjórn
málalegan ávinning af þessum
ógnunum. Hitt væri fyrirsjáanlegt
að önnur lönd heimsins mundu á
næstunni sameinast um mótmæli
gegn fyrirætlun Sovétríkjanna og
reyna að fá Krúsjeff til að skipta
um skoðun.
Tage Erlander forsætisráðherra
Svíþjóðar réðist í dag harðlega
Framh. á bls. 23.
Serkjum vísað
landí
París og Oran, 18. okt.
— (NTB — AP) —
T IL alvarlegra átaka kom i
París á þriðjudagskvöld er
um 20—30.000 Serkir söfnuð-
ust saman á götum borgar-
innar til að votta útlaga-
stjórninni í Alsír stuðning
sinn. 11.538 Serkir voru hand
teknir og hefur verið ákveð-
ið að vísa 1500 þeirra tafar-
laust úr Iandi. Tveir Serkir
og einn Frakki létu lífið í
átökunum og vitað er um 77
manns, sem urðu fyrir meiðsl
um. Óeirðirnar breiddust í
dag út víða í Alsír og var
auka lögreglulið kvatt út til
að reyna að koma á friði.
Franska stjórnin segir að
ákvörðunin um að vísa 1500
Serkjum úr landi sé aðeins
fyrsta sporið í aðgerðum til að
fyrirbyggja frekari árekstra.
í Oran hófust óeirðir að nýju
snemma í morgun og breiddust
óðfluga út. Á nokkrum stöðum
varð lögreglan að grípa til skot-
vopna til að dreifa mannfjöld-
anum á götunum. Mest urðu
átökin á aðaltorgi borgarinnar
og hefur öll umferð þar verið
bönnuð í einn sólarhring.
Franska fréttastofan (AFP)
skýrði frá því í dag að ellefu
manns hafi verið drepnir með
sprengjum í Alsír síðastl. sólar-
hring og auk þess létust fjórir
í óeirðum í Oran á þriðjudags-
kvöld.