Morgunblaðið - 19.10.1961, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 19. okt. 1961
MORGVWBL AÐIÐ
15
Mikill fengur að þekkingu
íslendinga á jarðhita
segir ritari ráðstefnunnar í Róm
Svo sem kunnugt er aif frétt-
um, fór fram í ágústmánuði s.l.
ráðstefna í Rómaborg um nýj-
ar orkulindir. Ráðstefnan var
ihaldin á vegum Sameinuðu Þjóð
anna og var Þar einungis fjallað
um hagnýtingu Þriggja orkulinda
— sólar, vinds og jarðhita. Þar
kom í ljós, að íslendingar höfðu
lásamt Itölum og Ný-Sjálending-
un mestri þekkingu að miðla
öðrum Þjóðum um jarðhita, en
iráðstefnuna sóttu fjórir íslend-
ingar, dr. Gunnar Böðvarsson,
Helgi Sigurðsson, hitaveitustjóri.
Sveinn S. Einarsson, verkfr. og
Jóhannes Zoega, verkfr.
Fyrir skömmu var hér á ferð
starfsimaður Sameinuðu Þjóð-
anna, Karl-Erik Hansson, sem
var ritari ráðstefnunnar í Róm
og átti stóran Þátt í undirbún-
ingi hennar. Hann átti hér að-
eins tveggja daga viðdvöl á leið
sinni heim til New York, en hann
og kona hans, sem er kanadísk,
komu við í Svíþjóð á leið sinni
frá Rómaborg til þess að vera
viðstödd útför Dags Hammar-
skjölds. Hansson er maður sænsk
ur eins og Hammarskjöld, og var
Ihonum nákunnugur.
Hansson notaði hverja stund
imeðan á dvöl hans á Islandi stóð
til þess að kynna sér jarðhita-
rannsóknir og framkvsemdir Is-
lendinga, en Mbl. tókst að ná
tali af honum smástund. Okkur
fýsti að heyra persónulegt álit
þessa starfsmanns Sameinuðu
þjóðanna á því hversu hann hugs
ar til starfsemi samtakanna í
framtíðinni, með hliðsjón af láti
framkvæmdastjórans og hinnar
uggvænlegu deilu stórveldanna
um framkvæmdastjórnina í
framtíðinni, en Hansson hliðraði
sér hjá því — sem opinber starfs
maður samtakanna — að ræða
það mál og barst talið þá að
starfi hans í New York.
Hansson hefur verið fastur
starfsmaður Sameinuðu þjóð-
anna í þrettán ár — í deild þeirri
sem nefnist Department of
Economical and Social Affairs,
en starfsmenn þeirrar deildar
einnar eru alls um fjögur hundr-
uð.
— Verkefni deildarinnar eru
víðtæk, sagði Hansson, — fyrst
og fremst fjallar hún um efna-
hags og þjóðfélagsleg vandamál
— um tæknilega aðstoð við van-
þróuð ríki, sér um útvegun tækni
menntaðra manna til starfa með
þjóðum er þess óska og þar sem
þörfin er brýn og vinnur úr gögn
um þar að Kitandi. Deildin fjall-
ar einnig um hagnýtingu nátt-
úruauðlinda og er mitt verksvið
einkum innan þess ramma.
— Fylgja þá efcki starfi yðar
*nikil ferðalög?
— Jú nokkuð svo, en einkum
er það þó á ráðstefnur og varð-l
andi undirbúning þeirra, svo:
sem ráðstefnuna í Rómaborg i j
eumar.
— Liggur ekki geysimikið |
starf að baki slíkrar ráðstefnu?
— Jú, afar mikið. Segja má
að starf mitt síðastliðið ár hafi
verið algerlega bundið ráðstefn-
unni 1 Róm. í fyrra sumar voru
haldnar þrjár undirbúningsráð-
stefnur hver um sína orkugrein-
ina. Ráðstefnan um jarðhita fór
fram í Rómaborg, — og þar hitti
ég fyrst Dr. Gunnar Böðvars-
son — um vindorkuna var fjall-
að í Grenoble í Frakklandi og
um sólina í Madrid á Spáni. Síð-
an fór allur veturinn í að vinna
úr ritgerðum og öðrum undir-
búningi. Persónulega tel ég —
hélt Hansson áfram — að það,
sem fram kom um jarðhitann í
I sumar hafi verið merkasti hluti
| ráðstefnunnar, enda í fyrsta
sinn sem fjallað er um jarðhita-
rannsóknir á slíkum vettvangi.
Málflutningur Islendinganna var
með afbrigðum, og mikill feng-
ur að þeirri þekkingu, sem þeir
gátu miðlað öðruim. Óska ég
sérstaklega að taka það fram hér,
að samvinna við Islendingana
var eins og bezt varð á kosið.
— Hvers árangurs er að vænta
af þessari ráðstefnu?
— Um það er ekki hægt að
segja að svo stöddu, — enda
kemur hann væntanlega í Ijós
smám saman á löngum tíma. Nú
eigum við í aðalstöðvunum eftir
að vinna úr öllum skýrslum og
fyrirlestrum, sem fram komu á
ráðstefnunni, samræma það efni
og búa til prentunar og dreifing
ar með öðrum þjóðum. Tilgang
uxinn með þessu starfi er auð-
vitað fyrst og fremst að kanna
og kynna möguleikana á hag-
nýtingu þessara orkulinda og
gefa þjóðum tækifæri til þess að
byggja hver á annarrar reynslu.
— Hverjar þjóðir teljið þér
líklegastar til að hagnýta sér
rannsóknir á jarðhita?
— Um það er heldur ek'ki hægt
að segja nú. Rannsóknir eru víð-
ast á algeru byrjunarstigi eða
alls ekki hafnar, en víða um
lönd háttar landslagi líkt og hér
— sem og annarsstaðar, þar sem
jarðhiti hefur fundizt. Þegar
þjóðir fara að fá fregnir af jarð
hitarannsóknum má búast við að
forvitnin vakni og þær fýsi að
athuga hvað leynist í iðrum
þeirra eigin fósturjarða — svo
ætla má, að í þessum efnum
verði mikil breyting á næstu
árum.
Lögfræðingafélag íslands
heldur fund fimmtudaginn 19. okt. n.k., kl. 20,30
í Tjarnarcafé, uppi.
Fyrirlesari: Dr. Gunnar Schram.
Lagareglur um verndun fiskstofna á úthafinu.
Stjórnin
Karl-Erik Hansson og frú*
Verzlunarmaður
Reglusamur ungur maður, sem hefur áhuga fyrir að
starfa í járnvöruverzlun, óskast nú þegar. —•
Umsóknir óskast sendar til afgr. Mbl. fyrir mánu-
dag, merkt: „Áhugasamur verzlunarmaður — 4050“.
ALLT \ SAMA STAÐ
Hjólbarðar og slöngur
MICHELINE
670x13
750x14
550x15
700x15
760x15
165x400
750x20
Finnskir snjó
hjólbarðar
640x13
670x13
750x14
800x14
525/560x15
650]670x15
710x15
760x15
S00]525x16
550x16
600/625x16
650x16
BARUM
670x13
560x14
520x15
550x15
590x15
670x15
700x15
710x15
525x16
600x16
650x16
750x16
900x16
550x17
650x20
750x20
165x20
Laugavegi 118 — Sími 22240
BINGO
KVÖLD KLUKKAIM 8,30
Glæsilegir vinningar: Stjórnandi:
FLUGFAR til London ojí heim. BALPUR GEORGS
UR (17 steina Pierpont) Matur framreiddur frá kl. 7.
12 MANNA STELL Dansað til kl. 1.
INNSKOTSBORÐ o. fl. Ókeypis aðgangur
SJÓSTANGAVEIÐIFÉLAG REYKJAVIKIJR