Morgunblaðið - 20.10.1961, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.10.1961, Qupperneq 2
2 MORCVNRLAÐIÐ Föstudagur 20. okt. 1961 Stuðningur við bændur til umrœðu í Efri deild í GÆR kom til 1. umræðu á fundi Efri deildar frumvarp nokk urra þingmanna Framsóknar- flokksins um stuðning við bænd ur til bústofnaukningar og véla kaupa, en frumvarpið var einnig flutt á síðasta bingi og náði þá ekki fram að ganga. Nýr lána- og styrktarsjóður. Ólafur Jóhannesson fylgdi frum varpinu úr hlaði af hálfu flutn- ingsmanna og rakti ýtarlega efni >ess. Með því er lagt til, að stofn aður verði sérstakur lána- og styrktarsj óður, er nefnist bú- etofnslánasjóður, og hafi hann það hlutverk að veita frumbýl- ingum og efnalitlum bændum hagstæð lán til bústofns- og véla kaupa eða til greiðslu þungbærra iausaskulda. Er gert ráð fyrir, að stofnfé sjóðs ins verði 50 milljónir, þar af 20 millj. kr. óaft urkræft framlag rikissjóðs, sem greitt verði á næstu fimm ár- um, en afgangs- ins aflað með lánum, er ríkis- ábyrgð verði fyrir. Að því er út lán úr sjóðnum snertir er m.a. í frumvarpinu ákvæði um að vext ir skuli aldrei vera hærri en 5% og lánstími aldrei lengri en 12 ár, minni kröfur eru gerðar til trygginga en nú tíðkast. I>á er ætlazt til að sjóðurinn verði í vörzlu Búnaðarbankans, en und ir sérstakri stjórn 5 manna, fjög urra er þingflokkamir tilnefni og eins, sem skipaður sé eftir til nefningu stéttarsambands bænda, og verði hann formaður. Þingmaðurinn gerði síðan m.a. að umtalsefni þörfina á slíkum sjóði og gagnrýndi í því sam- bandi, hvernig núverandi ríkis- stjóm hefði búið að bændum, en efnahagsaðgerðir hennar ættu sök á versnandi hag þeirra, Efla þarf sjóði, sem fyrir eru. Magnús Jónsson tók einnig til máls um fmmvarpið og drap á nokkur atriði, sem hann kvaðst vilja koma á framfæri, áður en málið færi til athugunar í nefnd. i>ví miður hefði það oft viljað brenna við, að sjóðir hefðu verið settir á stofn, án þess að hafa nokkra möguleika til að leysa vandkvæði þeirra manna, sem þeim hefði verið ætlað að styrkja, og hefði af því leitt bæði margvíslega erfiðleika og von- brigði. Þó að sæmilega ætti að sjá fyrir fé til bústofnslánasjóðs væri það því athugunarefni, hvort ekki væri heppilegri lausn á þeim vanda, sem hér væri við að fást, að undirbyggja betur þá stofnlánasjóði, sem landbúnaður heimild til að veita lán í um- Kvikmyndasýning Germaníu Ntl MEÐ veturnóttum hefjast að nýju kvikmyndasýningar félags- ms Germanía, sem notið hafa mikilla vinsælda undanfarna vetur, svo að stundum komust færri að en vildu. Verður fyrsta sýnir.gin á morgun ,laugardag, í Nýja bíó að venju. Þar sem engar kvikmynda- sýningar hafa verið í sumar, eru fréttamyndirnar, sem nú verða sýndar, frá helztu atburðum á s.l. vori, þ. á. m. heimsókn dr. Adenauers og utanríkisráðherra V-Þýzkalands v. Brentanos hjá Kennedy forseta Bandaríkjanna og flóttamannabúðunum i Ber- lín. Fræðslumyndirnar á þessari sýningu verða tvær. Er önnur um lifnaðarhætti silungsins í fjallalækjum og þar sýnt, hví- líkur ránfiskur hann er, étur jafnvel sinn eigin stofn. Mun mörgum þykja fróðlegt að kynn ast lifnaðarháttum þessa fallega og eftirsótta fisks, sem heima á einnig í ám og vötnum hér á landi og lifir sama ló±i hér sem annars staðar. Sýningin hefst kl. 2 e. h., og er öllum heimill aðgangur, böm um þó einungis í fylgd með full- orðnum, (Frá Germaniu). Kristmann Guðmundsson. Loginn hvíti 66 Þriðja bindi sjólfsævisocru ICristinanns Guðmundssonar kiomið ut KOMIÐ er út þriðja bindið af sjálfsævisögu Kristmanns Guð- mundssonar, Sögu skálds, og nefnist það „Loginn hvíti'*. Frásögnin hefst 1921, en þá var Kristmann enn búsettur í Noregi. Hann segir í þessu bindi frá síð- ustu árum sínum þar í landi, ferðalögum erlendis, íslandsferð og síðan frá dvöl sinni og búsetu i Danmörku. Þá heldur frásögnin áfram, þegar hann flytur alfar- ALÞINCIS A fundum Alþingis I dag kl. 13:30 oru dagskrár svohljóSandi: Efri deild: 1. Dómsmálastörf, lögreglustjórn, gjaldheimta o.fl., frv. 3. Vegalög, frv. — 1. umr. Neöri deild: 1. Sildarútvegsnefnd o.fl. frv. — 1. umr. — 2. Félagslegt öryggi, frv. — l. umr. inn hefði, en þeir hefðu fyrir ræddu skyni. Ótraustur grundvöllur. Þá vakti ræðumaður athygli á því, að þar sem gert væri ráð fyrir að hinn nýi sjóður bæði veitti styrki og tæki ekki nema 5% vexti af lánum sínum, væri hætta á, að áður liðið að löngu yrði sjóðurinn, sem byggjast ætti upp af lánsfé að svo stórum hluta, kominn í svipað ástand og stofnlánasjóðir landbúnaðarins væru nú í. Uppbygging þeirra hefði verið með þeim hætti, að stefnt hefði verið út í fullkomna ófæru. Þeir væru nú verr staddir en eigna lausir. Hér mundi vafalaust verða um að ræða mjög veru legan halla, sem þá yrði að borg- ast af því fé, sem sjóðurinn fengj í framlag frá ríkissjóði og Frh. á bls. 23 fNAIShnúhr / 5* V SOhnútar ¥ Snjókomo f ÚSi 7 Skúrir K Þrumur WZs, KuUaskil Hihski! L ; Lmot Háþrýstisvæðið fyrir sunn an land fór heldur minnkandi í gær og þokaðist austur á bóginn. Milli hitaskilanna, sem lágu yfir austanvert ís- land og kuldaskilanna suðaust ur af Grænlandi var víðáttu- mikið þokusvæði og víða þétt ur úði, eins og bæjarbúar fundu í gær. Þetta þoku- loft var mjög hlýtt miðað við árstíma, og var kominn 15 stiga hiti á Akureyri kl. 15 í gær. Hvergi á landinu var þá kaldara en 7 stig á veðurstöðv um. Svala skúraloftið suður af Grænlandi mun sennilega ryðja héðan þessari þoku í dag eða á morgun. Námsstyrkir í Bandaríkjunum inn heim til íslands skömmu fyr ir síðarj heimsstyrjöld og sezt að í Reykjavík, en í bókarlok er skáldið komið til Hveragerðis. Tvö fyrri bindi sjálfsævisögu Kristmanns Guðmundssonar hafa vakið mikla athygli. í fyrsta bindinu fjallar hann um æskuár- in hér heima, en í öðru dvelur hann erlendis og fyrri heilmingi þessa þriðja bindis, en svo kem- ur hann aftur heim og er með þjóð sinni. Aftan á kápu þessa bindis seg ir Kristmann: „Góðfúsir lesendur eru beðnir að athuga, að á þessar bækor hef ég skráð sögu ævi minnar, en hvorki annála né vísindalega sagnfræði.“ Bbkfellsútgáfan gefur bókina út mjög smekklega eins og hinar fyrri. Hún er rúmar 300 bls. að stærð. EINS og mörg undanfarin ár hef- ir íslenzk-ameriska félagið milli göngu um útvegun námsstyrkja til Bandaríkjanna. Er um tvenns konar styrki að ræða. er sækja þarf um nú þegar, og skulu um- sóknir sendar skrifstofu félagsins, Hafnarstræti 19, fyrir 5. nóv. n.k.: Annars vegar eru styrkir fyrir íslenzka framhaldsskólanemend- ur til eins árs náms við banda- ríska menntaskóla á skólaárinu 1962—63 á vegum American Field Service. Styrkir þessir nema skólagjöldum. húsnæði, fæði, sjúkrakostnaði og ferðalöguim innan Bandaríkjanna, en nemend ur búa hjá bandariskum fjöl. skyldum í námunda við viðkom- andi skóla. Ætlazt er til, að þeir er styrkina hljóta. greiði sjálfir ferðakostnað frá íslandi til New York og heim aftur. Ennfremur þurfa þeir að sjá sér fyrir ein- hverjum vasapeningum. Umsækj endur um þessa styrki skulu vera framhaldsskólanemendur á aldr- inum 16 til 18 ára, jafnt piltar sem stúlkur. Þeir þurfa að hafa góða námshæfileika, prúða fram- komu, vera vel hraustir og hafa nokkurt vald á enskri tungu. Hins vegar er-u námsstyrkir fyrir íslenzka stúdenta til náms við bandarísk-a háskóla. en ís- lenzk-ameríska félagið hefir um mörg undanfarin ár haft sam- band við stofnun þá i Bandaríkj- unum, Institute og International Eduoation, er annast fyrirgreiðslu um útvegun námsstyrkja fyrir erlenda stúdenta, er hyggja á háskólanám vestan hafs. Styrkir þessir eru veittir af ýmsum há- skólum í Bandaríkjuaum. og eru mismunandi, nema skólagjöldum og/eða húsnæði og fæði, o. s. frv. Styrkirnir eru eingöngu ætlaðir námsmönnum, er ekki hafa lokið báskólaprófi. Þess skal getið. að nemend'um, er ljúka stúdents- prófi á vori komanda og hyggj- ast hefja háskólanám næsta haust, er heimilt að sækja um þessa styrki, en hámarksaldur umsækjenda er 22 ár. Þá standa vonir til. að Britt- ingham-styrkirnir verði veittir á næsta ári, en þeir lögðust nið- ur vð fráfall hans. Ennfremur eru svokallaðir tæknistyrkir, sem veittir eru á vegum Ameri can and Scandinavian Founda tion, en þeir eru í því fólgnir, að ungu fólki geÆst kostur á frek ari þjálfun í starfsgrein sinni með því að starfa í ýmsum fyrir- tækjum vestra. Mestur áhugi núna er að fá fólk til landbúnað- arstarfa, garðræktar og einnig bóksölu. Verða þessir tveir síðast nefndu styrkir auglýstir sérstak- lega síðar. Þá stendur til að fá hingað bandaríska fyrirlesara, en það var gert fyrir tveim til þremur Érum og gafst mjög vel. Þrjár til fjórar kvikmyndasýningar fyrir almenning verða og í vetur að venju. en það eru aðallega fræð- andi bandarískar kvikmyndir, sem sýndar eru í samvinnu við upplýsingaþjónustu Bandaríkj- anna. Allar nánari upplýsingar um námsstyrkina verða veittar á skrifstofu Íslenzk-ameríska fé- lagsins, Hafnarstræti 19. 2. hæð, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 6—7 e. h. Umsóknareyðublöð verða einnig afhent í Upplýsinga þjónustu Bandaríkjamna, Lauga- vegi 13, 5. hæð, alla virka daga kl. 9—6. Veðurspáin kl. 10 í gærkv.: SV-land til Breiðafjarðar og miðin: SV gola og þokusúld í nótt, SA kaldi og víða dálítil rigning á morgun. Vestfirðir, Vestfj.mið ög Norðumið: SV stinningskaldi, síðar hægari, rigning með köfl um. Norðurland, NA-land og NA mið: Vestan gola og skýjað í nótt, hægviðri og léttskýjað með köflum á morgun. Austfirðir, SA-land og mið- in: NV gola, víða létt-skýjað í nótt en skýjað á morgun. — Lands- fundurinn Framh. af bls. 1 fjölmennur og voru í gær mættir fulltrúar úr öllum sýslum landsins. í upphafi fundarins var fundar stjóri kjörinn og tilnefndir sem fundarritarar þeir Friðjón Þórð arson, sýslumaður, og Stefán Friðbjamarson, bæjarfulltrúi. Að því búnu hóf Bjarni Bene- diktsson, forsætisráðherra, ræðu sína og í lok máls síns sagði hann m.a.: „Þannig vakna vandamálin eitt af öðru. Við, sem settir höfum verið til að leysa þau, getum ekki lofað öðru en því að íeggja okkur alla fram að gera það eitt, sem við teljum rétt og gugna efeki, né hlaupa af hólmi á hættunnar sttmd. En einir ráum við ekki við vandann. Þar verður stuðning ur ykkar og meirihluta þjóðar- innar, sem úrslitin hefur og unn- er fyrir, einnig að koma til. En samt skulum við vinna hverja þraut. Með trausti á Guði og góðum málstað, skulum við ó- trauð sækja fram á veg, þann I veg, sem horfir til heilla ís- i lekri þjóð um alla framtíð“. Fjáröflunardagur Bamaverndarfélagsins er á laugardag Á LAUGARDAG, fyrsta vetrar- dag. er fjáröflunardagur Bama- verndarfélagsins og munu börn að venju selja merki þess og rit, Sólhvörf, á götum úti. Á merk- inu er táknræn mynd fyrir starf- semi félagsins, vemdandi hend- ur, sem grípa um litla stúlku á hlaupahjóli.. sem er að fara sér að voða á götunni. Sólhvörf koma nú út í 12. skipti. Það er bók handa börnum, prýdd f jöldia myndum. og hefur Helga Magn- úsdóttir séð um útgáfuna. Vin- sæfldir bókarinnar má nokkuð marka af því, að stjóm félagsins er ekki í nokkrum vafa um, að 3500 eintök seljist. enda er _hún jafnframt notuð sem lesbók í skólunum. Merki félagsins og Sólhvörf verða afhent söluböm- um í öllum bamaskólum bæjar- ins kl. 9 á laugardagsmorgun og verður það nánar auglýst síðar. Dr. Matthías Jónasson, form. félagsins. lét þess getið við frétta menn í gær, að sjóður félagsins væri tómur. Þar veldur mestu um, að síðustu 100 þúsund krón- urnar fóru í sjóð til stofnunar heimili fyrir taugaveikluð böm. en það er mjög aðkallandi. Þau væru mest misskilin af þegnum þjóðfélagsins, þar sem ekki er almennt litið á taugaveiklun sem sjúkdóm. En oft er nauðsynlegt að taka börnin úr sínu umhverfi og fá þau í umsjón sérmenntaðs og sérþjálfaðs fólks um lengri eða skemmri tima. Þá hefur fé- lagið ýmis önnur verkefni á stefnuskrá sinni. m. a. að kosta ungt fólk til námsdvalar erlendis í þeim greinum uppeldisfræðinn ar, sem ekki hafa verið ræktar, Er þegar kominn upp töluverður 'hópur fólks, 'sem þessa styrkja befur notið, og hefur starf þess þegar borið ávöxt bæði beint og óbeint. Þá hefur félagið styrkt dvalarheimil fyrir vangefin böm, bæði í Grímsnesi og á Skúlatúni með mokkuð ríflegum fjárfram- lögum. Að lokum lét svo dr, Matthías þess getið. að á síðasta þingi L. I. B. hefði verið tekið fyrir vandamálið um ungar stúlkur á gelgjuskeiðsaldri, er lent hefðu á glapstigum. Var kos in nefn dti lað semja lagafrv. um stofnun skólaheimilis til hjálpar þessum stúlkum, sem síðan menntcunálaráðh. og aðrir þing- menn. er það vildu, yrðu beðnír um að bera fram. Bn nú eru tvær_ stúlkur við nám erlendis að búa sig undir að stjórna slíku heimili. • .

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.