Morgunblaðið - 20.10.1961, Page 4

Morgunblaðið - 20.10.1961, Page 4
4 MORGVNBLAÐIÐ Föstudagur 20. okt. 1961 Bílkrani til leigu í alls konar gröft, hífing- ar og ámokstur. V. GuSmundsson. Simi 33318. Bókamenn Ef ykkur vantar gamlar bækur, þá lítið inn. Fornbókasalan, Grettisgötu 22 B. Telpa óskast til að gæta 1 árs barns, frá kl. 9,30—11,30 f. h., þrjá daga í viku. Upp- lýsingar í síma 38453. Húsnæði ca. 100 fermetra óskast fyrir léttan iðnað. Uppl. í síma 17694. 1—2 herbergi og eldhús óskast strax. Þeir sem vildu sinna þessu, leggi nöfn sín inn á afgreiðslu blaðsins fyrir sunnudag, merkt: „Aríðandi — 7045“. Renault bifreið ógangfær til sölu. Uppl. í síma 50644 eftir kl. 5. Til sölu sundurdregið barnarúm, — 2ja manna svefnsófi og bað. Frank Herlufsen Hverfisg. 22, Hafnarfirði. Sími 50062 Notuð bárujám óskast ca. 100 ferm. undir pússningu. Sími 22050 og tala við Helbæk. Stúlka óskar eftir íbúð í Reykjavík eða Hafnar- firði. Uppl. í síma 23006 eftir 6 á kvöldin. Barnarúm Búslóð Skipholti 19. Sími 18520. (Géngið frá Nóatúni) Kona óskar eftir atvinnu nokkra tíma á dag. Uppl. í síma 37601. Púðauppsetningar „Spelj“ flauel margir litir. Vinnust. Ólínu Jónsdóttur Bjamastíg 7. Sími 13196. Afgreiðslustúlka dugleg og reglusöm, ósk- ast ca. hálfan daginn. Tilb. með uppl., merkt: „Bækur — 7088“, sendist afgr. Mbl. fyrir 24. þ. m. Ketill ca. 2 ferm. ásamt oliukynd ingu og öllu tilheyrandi i óskast. Sími 50573. Stúlka | Góð stúlka, sem getur tek- f ið að sér heimili (3 full- k orðnir) í forföllum húsmóð | ur, óskast um tíma. Gott 1 kaup. Sérherbergi Uppl. i 1 síma 13014. í dag er föstudagurinn 20. október. 294. dagur ársins. Árdegisflæði kl. 3:12. Síðdegisflæði kl. 15:38. Slysavarðstofan er opin allan sólar- hringinn. — L.æknavörður L.R. (fyrir vitjanir) er á sama stað fra kl. 18—8. Sími 15030. Næturvörður vikuna 14.—21. er í Vesturbæjarapóteki, sunnud. í Aust urbæj arapóteki. Holtsapótek og Garðsapótek eru opin alla virka daga kl. 9—7, laugar- daga frá kl. 9—4 og helgidaga frá kl. 1—4. Kópavogsapótek er opið alla vlrka daga kl. 9,15—8, laugardaga frá ki. 9:15—4, helgid. frá 1—4 e.h. Sími 23100 Næturlæknir í Hafnarfirði 14.—21. er Kristján Jóhannesson, sími 50056. Ljósastofa Hvítabandsins, Fornhaga 8: Ljósböð fyrir börn og fullorðna, Uppl. í síma 16699. I.O.O.F. 1 = 14310208*4 =9.1 RMR Föstud. 20-10-20-Ársf-Ht. FREITIR Frá Guðspekifélaginu. Fundur verð ur í stúkunni Mörk kl. 8:30 í kvöld í húsi félagsins Ingólfsstræti 22. Grétar Fells flytur erindi, er nefnist: ,,Evóhe“, Skúli Halldórsson leikur á píanó. — Kaffiveitingar á eftir. Allir velkomnir. Húsmæðrafélag Reykjavíkur. Konur munið fundinn 1 Breiðfirðingabúð uppi, mánudaginn 23. okt. kl. 8:30. — Nefndin. Kvenfélag Neskirkju heldur bazar laugardaginn 11. nóv. n.k. Pennavinir 18 ára gamall Ungverji óskar eftir að eignast pennavin á Islandi. Hann safnar póstkortum og frímerkjum. — Nafn hans og heimilisfang er: Paul Módosi, Budapest VIII, Rotterbiller st. 19, Hungary. 1,7 ára sænskur piltur óskar að eign- ast pennavin á Islandi. Hann skrifar sænsku, þýzku, ensku og frönsku og hefur áhuga á frímerkjasöfnun, tungu málum, tónlist, bókum og langar mjög til að kynnast Islándi. Nafn hans og heimilisfang er: Bengt-Göran Persson, Hantverkaregatan 50, Landskrona 2, Sweden. Gengið um bæinn ENN SÉSX margtf; sumarblóma í görðum, þótt síga taki á seinni hluta október, og finna má blómgaða fífla og sóleyjar á velli. Lauf trjánna fellur óð- um. Gullvíðir og gljávíðir standa enn fagurgrænir, þótt lauf annarra trjáa sé orðið brúnflekkótt. — Birkihneturn ar, sem sumir kalla bjarkan, berast langar leiðir með vind- inum. Reyniviðurinn hefur aðra dreifingaraðferð. Þrest- irnir eta hin rauðu girnilegu ber hans. Ganga fræin síðan ómelt niður af fuglunum og geta borizt víða. Hrafninn er líka þarfur gestur á berjamó. Arfinn notar bæði menn og búfé sér til „framfæris". Hef- ur hann sennilega borizt með varningi í hlaðvarpa fyrsta landnámsmannsins. Búfé etur arfa með græðgi og dritar fræ unum út um allt. Mýsnar eru byrjaðar að safna vetrarforða. Ein „Vest- urbæjarmús“ sást nýlega klifr andi í rósarunna. Hún losaði rauðu, fallegu rósaaldinin gæti Þröstur á grein. lega og tók þau í framlappirn- ar, brá svo skottinu kunnáttu- lega utan um grein og lét sig síga niður með fengirin. „Það eru svo falleg í henni auun“, sögðu krakkarnir, sem horfðu á. — Enn þá er margt þrasta í görðum. Fuglafræðingar hafa merkt þá hundruðum saman undanfarið til að sjá hvar þeir hafa vetursetu. Hafa sumir hinna merktu náðst suður í Portúgal svo langt fljúga iitlu (Ljósm. Ól. K. M.j, greyin. — Nýlega sá ég skrit- inn mávaleik austur á Norð- firði. Máfarnir settust á mæni stórrar bárujárnsskemmu. Tif uðu síðan fram af og létu sig renna niður hliðina, en grripu flugið neðst á brúninni. Flugu svo upp á mæni aftur og aft- ur að leika sama leikinn. Varð af Jhinn mesti glumurgangur, því hátt lét í bárujárninu. Virtust mávarnir skemmta sér konunglega. Ætla mætti, að þessi mynd væri úr einhverri þýzkri hryll ingskvikmynd frá þriðja tugi aldarinnar, en svo er ekki;' hún er tekin af nöktum raun- veruleikanum árið 1961. Þýzk er hún að vísu, því að hún er tekin af girðingu og varð turni kommúnista á markalín unni, sem aðgreinir sovézka hernámssvæðið frá vestur- þýzka sambandslýðveldinu. —- Rómversku keisaramir reistu múra og varðturna og grófu síki á mörkum veldis síns til þess að verja lönd sín innrás. Kommúnistar reisa gaddavírs girðingar, múra og varðturna og grafa síki til þess að koma í veg fyrir útrás eigin þegna. Þessar ráðstafanir kommún- ista eru einstæðar í mannkyns sögunni. Varðturnarnir, sem kommúnistar hafa reist allt frá Saxelfi til Mansjúríu, minna á turna, sem veiðimenn reisa á viliidýraveiðum. Hér em þó ekki veidd villidýr, heldur menn, sem fiýja frá Þýzkalandi kommúnismans til Þýzkalands frelsisins. (tp). JÚMBÓ OG DREKINN + + + Teiknari J. Mora 1) Drekahausinn slóst til baka við högg Júmbós, og hann sneri sér að Spora leynilögreglumanni, sem hafði kallað á hann. — Hvað nú? spurði hann. 2) Spori var móður og másandi og ætlaði nú að reyna að ná andanum til þess að geta svarað skýrt og skilmerkilega. En þá var það, að drekahausinn kom til baka úr sveiflunni, sem Júmbó hafði sent hann í — og seinkaði í bili skýringum leynilögreglumannsins. 3) — Já, hvað ég vildi nú sagt hafa, sagði Spori ringl- aður, þegar eins náð sér Já, hvað ... .... púh .. stoppuðu ... unni? 4) Júmbó til aö avara, hann hafði að- eftir höggið. — . hvað hefur þú .. gert af upp- . púh .... ugl- gafst ekki tóm því að hans há- tign Ljónstönn konungur gekk nú til þeirra og sagði: — Hvað er okkar unga hetja, Júmbó, að gera þama í grasinu? — Yðar hátign, ég er af æfa mig í drekabar- daga, eins og þér hljótið að sjá, útskýrði Júmbó.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.