Morgunblaðið - 20.10.1961, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.10.1961, Blaðsíða 5
Föstudagur 20. okt. 1961 MORCVNTtLAÐlh 5 Isbúðin, Laugalæk 8 Píanó-, orgel- og gítar- Lítill hluti sömu síðu. Chi Bho síðan ur Kellisbók. hér með. Á henni er aragrúi smáatriða, sem ofin eru sam- an af einstakri leikni. Má t.d. sjá á henni nokkur mannshöf- uð. — Um Kellisbók er sagt í Ul- ster-annálum árið 1006: „Hinni miklu guðspjallabók Kólumkilla var á næturþeli stolið úr vestra skrúðhúsi stór kirkjunnar í Kells. Þetta var merkasti minjagripur hins vestræna heims sökum hins frábæra bókarskríns; bókin fannst eftir tuttugu nætur og tvo mánuði, en öllu gulli hafði verið rænt af henni og torf- hnaus látinn ofan á hana“. Rithöfundurinn Giraldus Cambrensis, sem ferðaðist á írlandi árið 1185 lýsir Kellis- bók í riti sínu Topographia Hiberniae. Þar segir hann m. a.: „Af öllum undrum Kildare er ekkert dásamlegra en hin dýrðlega bók, sem að sögn er skrifuð að fyrirsögn engils á dögum heilagrar Brigidar. Á þessa bók eru skrifuð guð- spjöllin fjögur, og á hverri síðu birtast nýir uppdrættir með breytilegum litum“. Hiiii UM ÞESSAR mundir er til sýn is í Þjóðminjasafninu, Ijós- prentun af Kellisbók, sem er eitt frægasta listaverk forn- írskrar menningar. Ríkisstjórn Irlands gaf Landsbókasafninu ljósprentun þessa 1955. Talið er að Kellisbók hafi verið rituð á 8. eða 9. öld í Kellis á austanverðu Irlandi, þar sem kolúmbamunkar stofn uðu klaustur og lærdómssetur, eftir að víkingar höfðu flæmt þá frá eyjunni helgu Iona ár- ið 806. Bókin var varðveitt í Kellis fram að siðaskiptum, en seint á 17. öld var hún gef- in háskólabókasafninu í Dyfl- inni og þar er hún enn. í Kell- isbók eru 340 bókfellsblöð, sem á eru rituð guðspjöllin fjögur á latínu. Letrið er írsk stórstafaskrift, en upphafs- stafir eru alls rúmlega 2000. Auk þess er 31 blaðsíða með mynd eða skrautverkum. Fræg nst þeirra allra er svo nefnd Chi Rho síða og birtist hún þegar á steinöld. ”—O ’ — Hann var ný skilinn og sagði við vin sinn: — Hún fékk sumarhúsið, en ég fékk húsið í borginni. Læknar fiarveiandi Árnl BJörnsson um óákv. tíma. 'IStefán Bogason). Bjarni Bjarnason fjarv. til 5. nóv. <Alfreð Gíslason) Esra Pétursson um óákv. tíma — (Tryggvi í»orsteinsson). Gísli Ólafsson írá 15. apríl 1 óákv. tíma. (Stefán Bogason). Halldór Arinbjarnar til 21. okt. — <Tryggvi Þorsteinsson). Jón Hannesson til 18. okt. (Ofeigur 3. Ofeigsson). Jón Hjaltalín Gunnlaugsson fjarv. til októberloka. — (Stefán Bogason, Laugavegsapóteki frá kl. 4—5, sími 19690). Kjartan R. Guðmundsson frá 21. sept. 3961 til 31. marz 1962. (Samlagssj. Ol- ©fur Jóhannsson, Taugasj. Gunnar Guðmundsson). Ólafur Geirsson fjarv. fram í miðj- •n nóvember. Sigurður S. Magnússon um óákv. tíma (Tryggvi Þorsteinsson). Sveinn Pétursson frá 5. sept. 1 4—5 vikur. (Kristján Sveinsson). Víkingur Arnórsson til marzloka 1962. (Olafur Jónsson). — En hvað með lausaféð? — Því skiptu lögfræðingarnir á milli sín. —o— Maður, sem óskaði inngöngu í austur-þýzku lögregluna, var spurður: — Getið þér sagt mér, félagi tilvonandi lögreglumaður, hvers vegna vð höfum svó sterk vin- áttubönd við Sovétríkin? — Fyrst þér minnist á það, svaraði umsækjandinn, þá verð ég að segja, að ég hef lengi ver- ið að furða mág á því. Flugfélag íslands h.f.: — Millilanda- flug: Hrímfaxi fer til Glasg. og Kaup mannah. kl. 08:00 í dag. Væntanlegur aftur kl. 22:30 í kvöld. Fer til Oslóar, Kaupmh. og Hamb. kl. 10:00 í íyrra- málið. — Innanlandsflug í dag: Til Akureyrar (2 ferðir), Fagurhólsmýr- ar, Hornafj., Isafj., Kirkjubæjarklaust urs og Vestmannaeyja. — A morgun: Til Akureyrar (2), Egilsstaða, Húsa- víkur, Isafj., Sauðárkróks og Vest- mannaeyja. Hafskip h.f.: — Laxá er á leið til Spánar. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: — Katla lestar á Austur- og Norðurlands höfnum. — Askja er væntanleg til Roquetafe í dag. + Gengið + Kaup Sala 1 Sterlingspund 120,76 121,06 1 Bandaríkjadollar .. 42,95 43,06 1 Kanadadollar 41,66 41,77 100 Danskar krónur .... 622.68 624.28 100 Norskar krónur .... 603,00 604,54 100 Sænskar krónur .~. 831.70 833.85 100 Finnsk mörk 13,39 13,42 100 Franskir frank 872,72 874,96 100 Belgískir frankar 86,28 86,50 100 Gyllini 1.189,74 1.192,80 100 Svissnesklr frank. 994,15 996,70 100 Tékkneskar kr 596.40 598.00 100 Austurr. sch 166,46 166,88 100 Vestur-þýzk mörk 1.077,54 1.080,30 100 Pesetar 71,60 71,80 1000 Lírur 69,20 69,38 Mér er illt í munninum, mæðan þjáir lúna; brcnnivíns á brunninum bergja fáir núna. Mér er illt í mínum haus mest af hita og lúa. Maður enginn mæðulaus má í heimi búa. Mér er illt í maganum — merin úti á haganum. Skipin róa á Skaganum — skjótt varð ég fyrir baganum. \ Mér er skipt það mæðupund minni fjörs á línu, ég má ekki einni stund eyða að gamni mínu. (Gamlar mæðuvísur). Van og of fær sjaldan lof. Varastu þann, sem elskar meira þitt en þig. Veður ræður akri, en vit syni. Fiplar hönd á feigu tafli. Von er vakandi manns draumur. Þegar konan er drukkin, er kossinn falur. Það er frétta fljótast, sem í frásögum er ljótast. Það er sárast, sem á sjálfum liggur. Það er hollast, sem heima fæst. (Islenzkir málshættir). Krússai sprengja Vegfarandi leit inn til blaðs- ins í gær og kastaði fram þess- ari stöku: Krússar sprengja kalda lengja stríðið eitri dengja yfir jörð illt mun tengja þeirra hjörð. Sunnlendingur. Rjómaís, — mjólkurís Nougatís. ísbúðin, sérverzlun Baxabar Heitar pylsur allan daginn. Gosdrykkir, tobak, sæ^" gæti Faxabar, Laugavegi 2. viðgerðir Oig stillingejr. — Píanó til sölu. Hljóðfæraverkstæði Bjarna Pálmasonar Vesturgötu 27. A T H U G I Ð að borið saman ð útbreiðslu er langtum ódýrara að augiýsa i Morgunblaðiu u, en öðrum blöðum. — Unglíngar óskast TIL AÐ BERA BLAÐIÐ í EFTIRTALIN HVERFI Fálkagótu og Laugaveg efri Sírni 22480. Vélvirkjar - Bílstjóri 2 vélvirkjar eða menn vanir vélsmíði óskast tll framleiðslu á olíuvindum. Einnig óskast bifreiða- stjóri, vanur viðhaldi á bílum. Vélaverkstæði Sig. Sveinbjórnsson hf. Skúlatúni 6 Lausar stöður 2 aðstoðarmenn óskast í veðurstofuna á Keflavíkur- flugvelli. Umsækjendur þurfa að hafa gagnfræða- próf eða hliðstæða menntun. Vera heilsuhraustir, reglusamir, hafa góða sjón og heyrn, og vera á aldrinum 29—27 ára. Væntanlegir aðstoðarmenn þurfa að taka þátt í nám- skeiði sem haldið verður í veðurstofunni í Reykja- vík og hefst í næsta mánuði. Þátttaka í því verð- ur ókeypis og mun kennsla fara fram síðdegis eða á kvöldin Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist á skrifstofu Veðurstofunnar í Sjómannaskólanum fyrir 1. nóvember n.k. Veðurstofa íslands Okkur vantar þurra og hlýja geymslu fyrir pappír helst í kjallara eða götuhæð. — Upplýsingar í síma 16837. MIÐBÆR 3 herb. til leigu á bezta stað í Miðbænum. Hentugt fyrir endurskoðun, saumastofur, eða skrifstofur. Einnig léttan iðnað. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyr- ir 25. þ.m. merkt: 7090“. TIL SÖLU 20 tonna vélbátur í góðu standi, með nýlegri vél. Góð lán áhvílandi. FASTEIGNA OG LÖGFRÆÐISTOAFN Tjarnargötu 10 — Sími: 19-7-29

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.