Morgunblaðið - 21.10.1961, Qupperneq 2
2
MORGXJTSBLÁÐ1Ð
Laugardagur 21. okt. 1961
Reykjavík sást ekki
af Ártúnsbrekkunni
Einhver svartasta þoka, sem menn muna
NIÐAÞOKA grrúfði yfir Reykja-
vík og nágTenni í allan fyrra-
dag, fyrrinótt og fram að há-
degri í gær. Var veðrið „eins og
í franskri verðlaunamynd“, eins
og einhver orðaði það. Flugsam
göngur lágu að heita algjörlega
niðri vegna þokunmar í allan
fyrradag og fram til hádegis í
gær. Þokan var svo dimm að
elztu menn muna vart annað eins
1 fyrrinótt sást ekki yfir tjörn-
ina utan að grilla mátti í götu-
ljósin handan hennar.
Þótt merkilegt megi virðast
urðu engir árekstrar í Reykja-
vík í þokunni eftir því sem MbL
veit bezt. „Þeir sáu ekki til hvers
annars“ eins og umferðadeild
ranmsóknarlögreglunnar orðaði
það.
Þótt svartaþoka væri I bænum
sj áifum brá svo undarlega við
að er 'ekið var upp Ártúnsbrekk
una, tók þokuna af á brekkubrún
inni og sást sæmilega til austurs
þaðan í fyrrinótt. Það eina, sem
sást af Reykjavík þaðan, voru
nokkrar týrur í Blesugróf óg ljós
in við Nesti. AUt annað hvarf
með öllu í þokuna.
Flugsamgöngur
í eðlilegt horf.
Það var ekki fyrr en klukkan
hálf eitt i gærd' ; að fyrsta vélin
hóf sig á Jof\ af Reykjavíkur-
flugvelli. Vr það Skýfaxi á leið
til Glasgov og Kaupmiannahafn-
ar. Síðastr vélin, sem fór af vell
inum var Hrímfaxi, en hann för
í fyrradag til Glasgow og Kaup-
mannahafnar. Innanlandsflug lá
alveg niðri í fyrradag og fram yf
ir hádegi í gær.
Síðdegis í gær fór svo Viscount
flugvélin Gullfaxi til Akureyrar
og Egilsstaða, en Dakotavélar
fóru til Akureyrar, ísafjarðar,
Vestmannaeyja, Þórshafnar og
Kópaskers. — Hrímfaxi beið í
Glasgow í fyrrinótt vegna þok-
unnar en kom hingað síðdegis í
gær. Flugvélin fer til Osló, Kaup
mannahafnar og Hamborgar í
dag.
Frú Jekaterina
Furtseva, mennta-
málaráðherra
Sovétríkjanna
Stjórnarmyndun lok
iö í V-Þýzkaiandi?
Meðfylgjandi mynd af frú
Furtsevu var tekin er hún
sótti Islendinga heim í júni
mánuði í sumar.
Bonn, 20. október.
VESTUR-ÞÝZKA fréttastof-
an DPA segir, að Kristileg-
— Tass fréttastofan segir,
að þingfulltrúar hafi orðið
sem lamaðir í sætum sínum,
er þeir minntust þessara at-
burða.
Ennfremur lýsti Furtseva
áhrifamiklum fundi hjá mið-
stjórn flokksins, þegar verið
var að hreinsa minningu
Tukhatsjevskijs marskálks —
sem var yfirmaður herja So-
vétveldisins, en rekinn úr
flokknum og tekinn af lífi
árið 1936. A þeim fundi, sagði
Furtseva, að hefði slegið i
harða brýnu með þeim Malen-
kov og Krúsjeff. Hefði hinn
Sumt löglegt
af vörunum
EINS og skýrt var frá hér í blað
inu í gær var lagt hald á nokkurt
magn af nælonsokkum hjá ýms-
um verzlunum bæjarins í fyrra-
dag, þar sem grunur lék á að
sumt af þeim væri smyglvara. I
Jjós hefur komið að sumt af sokk
unum var löglega tilkomið. Rann
sókn heldur áfram í málinu.
Hvílík hamingja fyrir
flokkinn og þjóðina ..
M E Ð A L þeirra, sem
kvöddu sér hljóðs á 22.
flokksþingi kommúnista í
dag var menntamálaráð-
herra Sovétríkjanna, frú
Jekatarína Furtseva. Tók
hún ósvikinn þátt í því að
fordæma fyrrv. forystu-
menn Sovétríkjanna, eink-
um þá Malenkov og Kag-
anovitsj.
Frú Furtseva sagði meðal
annars, að því yrði aldrei
gleymt, þegar Kaganovitsj. á
þriðja tug þessarar aldar,
ákvað dauða 350 járnbrautar-
verkamanna með einu penna-
striki.
Enn eitt slysið:
Tveggja ára dreng-
ur undir vörubíl
ENN eitt umferðarslys varS I
Reykjavík laust eftir klukkan
eitt í gærdag, er tveggja ára
drengur, Sigurður Ingason, ShelX
vegi 10C varð fyrir stórum vöru-
bíl, 914 tonn að þyngd. Drengur-
inn meiddist lítið.
Nánari atvik voru þau að bíl-
stjóri vörubílsins var að leggja
af stað heiman frá sér við Shell-
veginn. Til þess að komast út á
veginn varð hann að aka eftir
afleggjara frá húsinu. Þegar hann
var að aka' inn á Sþellveginn
veitti hann því eftirtekt að telpa
veifaði til hans. Stöðvaði hann
ySl HA /5 hnútor IXr** SV 50hnútor X Snjókoma 't Oð/ mm V Stvrir (t Þrumur KvUasbl Hitvskii H, Hm$ 1 L ^ Lmgð |
Hæðin, sem hefur verið
sunnan við landið undanfama
daga, er nú eydd að mestu,
svo að þokan á Faxaflóanum
og Grænlandshafinu ætti að
vera horfin í dag og heldur
svalara loft komið í staðinn.
Mikið regnsvæði er yfir S.-
Grænlandi. Það þokast austur
á bóginn, en lenddr vonandd
að mestu leyti fyrir sunnan
land.
gær-
Veðurspáin kl
kvöldi:
SV-land og miðin: Austan
gola, síðar kaldi eða stinnings
kaldi, dálítil rigning eða
súld.
Faxaflói til Norðurlands og
Faxaflóamið til Vestfj.miða:
Austan gola, skýjað.
NA-land til SA-lands og
norðurmið til SA-miða: Aust-
an gola Og síðar kaldi, víða
þokusúld eða rigning.
bílinn og sá að lrtill drengur,
bróðursonur hans, lá á götunni
skammt frá þar sem hafði lagt
af stað.
Það varð drengnum til lífs að
hann varð undir bílnum á milli
hjóla. Innra afturhjólið vinstra
megin fór þó yfir hendi hans og
utanverðan fót. — Drengurinn
var fluttur á slysavarðstofuna.
Við rannsókn reyndist hann
óbrotinn, en nögl hafði dottið af
fingri og auk þess var hann mar-
inn á fæti.
fyrrnefndi sagt, að Krúsjeff
skyldi spara sér allar hótanir.
Var raust frúarinnar harmi
þrungin, er hún sagði að lok-
um: Hvílík hamingja var það
fyrir flokkinn og þjóðina, að
miðstjórninni undir forsæti
Nikita Sergeivitsj Krúsjeffs
skyldi takast að svipta falshul
unni af þessum mönnum áður
en það var um seinan.
Bændur liirða hey
á Ströndum
GJÖGRI, 20. okt. — Vestanátt og
hlýindi hafa verið hér þrjá síð-
ustu sólarhringana, þurrkur nótt
og dag, og eru bændur að hirða
hey, sem þeir slógu í byrjun
september.
Móturbáturinn Flugaldan frá
Djúpavík byrjaði að róa héðan
fyrif nokkrum dögum og hefur
fiskað 3—4 tonn í róðri.
Reytingsfiskirí hefur verið
hjá trillum á handfæri, en í
morgun fóru tvær trillur með
lóðir og voru að kocma að í þessu.
Fiskuðu þær ágætlega, ca. 150
pund á lóð miðað við hausað og
slægt. — Regína.
Merkjasala Sjálfs-
bjargar á morgun
ir demókratar og Frjálsir
demókratar muni nú hafa
komið sér saman um mynd-
un samsteypustjórnar í Vest-
ur-Þýzkalandi undir forsæti
Adenauers — sem þó skuli
ekki sitja í embætti kanzlara
allt stjórnartímabilið. Ekki
fæst fregn þessi staðfest a£
opinberri hálfu — en talið
að tilkynning um stjórnar-
myndunina verði gefin út
næstk. miðvikudag.
Fréttastofa Reuters hefur eftir
fréttamanni í Bonn, að allt bendi
til þíss, að af átján ráðherrum
verði aðeins fimm úr hópi
frjálsra demokrata, — og enn-
fremur að engar breytingar verði
á mikilvægustu embættunum.
Eftir því að dæma ætti t.d. ut-
anríkisráðherrann að verða hinn
sami Heinrich von Brentano
ósamhljóða fregnir.
Hinsvegaæ segir DPA af viðtali
við ýmsa stjórnmálamenn að
Ijóst virðist, að samsteypustjórn
in byggist á fjórum meginkröf-
um Frjálsra.
1. Adenauer verði ekki í em-
bætti kanzlara út kjörtímabilið.
Ekki virðist þó enn ákveðið,
hvenær hann láti af embætti.
2. Frjálsir demokratar fái sjö
ráðherraembætti. Fréttaritari
Reuters segir hinsvegar að lík-
lega verði þeir aðeins fimm.
3. Erich Mende verði innanrík
isráðherra í stað hins kristilega
Bernards Schroeder, sem aftur
taki við embætti fjármálaráð-
herra. Mende sagði hinsvegar í
dag við fréttamenn í Bonn, að
hann yrði ekki 1 ríkisstjórninni.
4. Frjálsir demokratar vilja
að Heinrieh von Brentano láti af
embætti utanríkisráðherra én við
því taki Georg Kiesinger, sem
einnig er úr flokki Kristilegra.
Ekki ber þessum fregnum bein
línis saman, enda allar óstaðfest
ar af viðkomandi aðilum — en
hið sanna og rétta liggur vænt-
anlega fyrir, áður en langt um
liður.
Á MORGUN, sunnudag er hinn
árlegi merkjasöludagur Sjálfs-
bjargar, landssambands fatlaðra.
Auk merkjanna verður selt tima
ritið „Sjálfsbjörg“. sem kemur
nú út í þriðja sinn. Ritstjórar
tímaritsins eru tveir, Trausti
Sigurlaugsson og Theodór A.
Jónsson, en hann er formaður
landssambandsins.
1 blaðinu er t. d. viðtal við
Ólöfu Ríkarðsdóttur. ritara lands
sambands fatlaðra. en hún sat í
sumar stjórnarfund Öryrkja-
bandalags Norðurlanda. sem
Sjálfsbjörg er nú aðili að og þing
landssambands fatlaðra í Noregi.
Aðaltilgangur Sjálfsbjargar er
að færa lífsskilyrði fatlaðra í
eðlilegt horf m. a. nýta starfs-
krafta öryrkja sem bezt og koma
upp og reka vinnuheimili, sem
verða þá um leið endurhæfinga-
stöðvar. Helzta áhugamál félags-
ing nú er að eignast eigið hús
hér í Reykjavík, þar sem væru
vinnustofur oe skrifstofur lands-
sambandsins og herbergi fyrir
fatlaða. sem kæmu utan af landi
og þyrftu að dvelja hér í bæ.
En Sjálfsbjörg hefur enn sem
komið er engan fastan tekju-
stofn. en milliþinganefnd um
atvinnu og félagsmál öryrkja,
sem skipuð var á vorþingi 1959
lagði til að Sjálfsbjörg fengi kr.
3,00 af hverju kílói af sælgæti,
sem framleitt er í landinu.
Skyldi fé þetta renna til bygg-
ingar og rekstrar vinnuheimila
Sjálfsbjargar. Þetta er þó ekki
komið til framkvæmda enn þá
og á meðan svo er byggist starf-
semin á frjálsum framlögum al-
mennings.
í landssambandi fatlaðra. sem
stofnað var 1959 eru nú 8 félög
víðsvegar um landið með tæp-
lega 500 virka meðlimi. Og á
þessum stutta tíma hafa sum
félögin náð undraverðum árangri
t. d. Sjálfsbjörg á Akureyri. sem
hefur byggt myndarlegt félags-
og vinnuheimili, og Sjálfsbjörg á
ísafirði, sem komið hefur á fót
prjónastofu.
Náms- og ferða-
styrktir til USA
MENNTASTOFNUN Bandaríkj-
anna hér á landi, Fulbright-stofn
unin, auglýsir hér með eftir um
sóknum um nokkra náms- og
ferðastyrki handa íslenzkum há
skólaborgurum, sem þegar hafa
lakið háskólaprófi og hyggja á
frekara nám við bandaríska há-
skóla á skólaárinu 1962—1963.
Hér er um að ræða möguleika
til að öðlast styrki til náms i
ýmsum greinum, en einkum á
sviði raunvísinda og samanburðar
lögfræði.
Umsækjendur um styrki þessa
verða að vera íslenzkir ríkisborg
arar og hafa lokið háskólaprófi,
annaðhvort hér á landi eða ann
ars staðax utan Bandaríkjanna.
Þeir, sem ekki eru eldri en 35 ára
að aldri verða að öðru jöfnu látn
ir ganga fyrir um styrkveitingar.
Nauðsynlegt er að umsækjendur
hafi mjög gott vald á enskri
tungu.
Það skal sérstaklega tekið
fram að í þetta skipti verður
ekki mögulegt að taka á móti
umsóknum um styrki til fram-
haldsnáms í læknisfræði. þeir,
sem hins vegar kunna sjálfir að
hafa komizt að við nám vestan
hafs í þessum eða öðrum, fræðum,
geta síðan sótt um sérstaka ferða
styrki, sem stofnunin mun aug-
lýsa í aprílmánuði næsta ár.
Umsóknir um námstyrkj þessa
skulu hafa borizt Menntastofnun
Bandaríkj anna, pósthólf 1059,
Reykjavík, fyrir 13. nóvember n.
k. Sérstök umsóknareyðublöð
fást á skrifstöfu stofnunarinnar,
Laugavegi 13, 2. hæð. hjá Upp-
lýsingaþjónustu Bandaríkjanna,
Laugavegi 13, 5. hæð og hjá
Menntamálaráðuneytinu, Stjórn
arráðinu.