Morgunblaðið - 21.10.1961, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 21. okt. 1961
Umboðsmenn um land allt,
Reykjavík:
GólfteppagerSin, Skúlag. 51.
Kjörbúð SIS, Austurstræti 10,
Markaðurinn, híbýladeild,
Hafnarstræti 5.
Akranesi:
Haraldur Böðvarsson & Co.
Húsgagnaverzlun Vesturg. 46.
Borgamesi:
Kaupfélag Borgfirðinga
Patreksfirði:
Verziun A.B. Olsen
Bolungarvík:
Verzl. Eiriars Guðfinnssonar
Isafirði:
Húsgagnaverzlun Isafjarðar
Verzl. Helgu Ebenezersdóttur
Blönduósi:
Kaupfélag Húnvetninga
(Asgeir Asgeirsson)
Sauðárkróki:
Arni Daníelsson
Olafsfirði:
Brynjólfur Svemsson
Siglufjörður:
Dívanavinnustofa Siglufjarðar
Akureyri:
Vefnaðarvörudeild KEA
Kristján Aðalsteinsson
Húsavík:
Kaupfélag Þingeyingá
Kópaskeri:
Kaupfélag N-Þingeyinga
Norðfirði:
Kaupfélagið Fram
Seyðisfirði:
Kaupfélag Austfjarða
(Ingim. Hjálmarsson).
Egilsstaðakauptún:
Kaupfélag Héraðsbúa
Reyðarfirði:
Kaupfélag Héraðsbúa
Eskifirði:
Kaupfélagið Björk
V estmannaey jum:
Marinó Guðmundsson
Keflavík:
Verzlunin Kyndill
TunTð
Uf
ctnnn
VERKSMIÐJA KLJÁSTEINI MOSFELLSSVEIT
SKRIFSTOFA EINHOLTI 10, REYKJAVÍK
PÓSTHÓLF 491 — REYKJAVÍK — SÍMI 14700
VOLVO PEIMTA
DIESEL
Getum nú þegar afgreitt 1 stk. Volvo-Penta
diesel 86—103 ha. með Twin Disc gir 3:1
og skrúfuútbúnaði.
Vélin er búin aflúttaki að framan með
koplingu. Einnig fylgir lensidæla með kop-
lingu, niðursetningarhlutir, verkfærasett
o. fl.
Verð: Kr. 194 bús. án tolla, 240 bús með tollum
votvo
PENTA
Gunnar Asgeirsson h.f.
Suðurlandsbraut 16
Reykjavík. — Sími 35200
legum skilningi á viðfangsefn-
inu.
Stríðinu er að ljúka. Þjóð-
verjar hafa gefizt upp skilyrðis-
laust, en ennþá er barizt heift-
arlega í Póllandi um það með
hverju móti ríkið skuli rísa úr
öskunni — hvort það eigi að
verða lýðfrjálst land eða verða
kommúnismanum að bráð. Tveir
ungir menn, vinimir Matsick
og Andrej, sem barizt hafa
gegn Þjóðverjum og kommún-
istum, hafa fengið skipun yfir-
boðara síns í leynihreyfing-
unni um að ráða af dögum
Stuka, hinn nýkomna héraðsrit-
ara pólska kommúnistaflokks-
ins. Þeir sitja fyrir honum og
þegar bifreið ber að hefja þeir
á hana árás og drepa tvo far-
þega í henni. En það er ekki
Stuka, sem þeir hafa drepið,
heldur tveir verkamenn. í há-
tölurum á götum borgarinnar
er sagt frá uppgjöf Þjóðverja
og fólkið fagnar tíðindunum
ákaft. En þeir Matsick og And-
rej geta ekki tekið þátt í gleð-
inni, svo djúp spor hafa hin
löngu og íiryllilegu stríðsár
markað í sálarlíf þeirra — og
ANNAÐ KVÖLD verður gam
anleikurinn „Allir komu þeir
aftur" sýnt I 14. sinn. Uppselt
hefur verið á öllum sýningum
og leiknum mjög vel tekið.
Augljóst er að þetta ætlar að
verða eitt af hinum svo köll-
uðu „gang leikritum" hjá
Þjóðleikhúsinu. Eins og kunn
ugt er fjallar leikurinn um
hermannalíf, en bak við grín-
ið Ieynist ádeila á hemaðar-
andann og heragann yfirleitt.
Fávís svcitadrengur er kallað
ur í herinn og gerir auðvitað
allt gagnstætt því, sem yfir-
mennimir skipa..
Myndin er af Bessa Bjarna
syni og Jóhanni Pálssyni
hlutverkum sínum.
a
‘
kvikmyndir * skrifar um kvikmyndir * kvikmyndir
Haf narfjarð arbíó:
Aska og demantar
Þ E T T A er pólsk verðlauna-
mynd, er gerist í smáborg í
Póllandi í lok síðari heimsstyrj-
aldar. Leikstjórinn er Andrzej
Waida, sem talinn er mikilhæf-
asti leikstjóri Póllands nú, enda
ber myndin það með sér að
hún hefur verið gerð af næmri
listrænni tilfinningu og mann-
ÍBUÐ OSKAST
3ja—4ra herbergja íbúð í Hlíðunum eða nágrenni
óskast um tveggja mánaða tíma. — Upplýsingar 4
síma 34933.
'skóáburfttirii*"-
seiu
þeir eiga enn eftir að fram-
kvæma skipunina um að vinna
á Stuka. Það fellur í hlut Mat-
sich að framkvæma verkið, en
nú er viðhorf hans breytt. Hann
er orðinn ástfanginn af ungri og
fríðri stúlku og ástin mildar hug
hans og varpar nýju ljósi á til-
veruna. Hann fer að efast um
nauðsyn þess að baráttunni sé
haldið áfram og hann þráir það
eitt að mega lifa heilbrigðu lífi
— að læra að lifa og elska. En
hann á ekki undankortm. auðið.
Hann verður að drepa Stuka.
Kvöld eitt tekur Stuka þátt i
miklum veizlufagnaði í borg-
inni, og er hann fer þaðan um
nóttina, situr Matsick fyrir hon-
um og skýtur hann til bana, en
sjálfur fellur hann fyrir kúlum
lögreglunnar skömmu síðar.
Eins og að framan greinir er
þetta mjög áhrifarík mynd og
vel gerð — atburðarásin að vísu
full hæg, en töluverð spenna i
myndinni og hún listræn mjög
að allri gerð. Þá er hún og
mjög vel leikin. Er einkum leik-
ur Zbigniew Cybuskis í hlut-
verkí Matsicks afburða snjalL
Bæjarbíó:
Nú liggur vel á mér
Jean Gabin virðist vera einn
af þeim drottins útvöldu, sem
aldrei eldist í líst sinni. Hann
er alltaf jafn heillandi leikari
og hæfileikar hans til persónu-
sköpunar virðast óþrjótandi. —.
1 þeirri frönsku gamanmynd,
sem hér er um að ræða, leikur
Gabin aðalhlutverkið, flæking-
inn Archimedes, sem er skemmti
legur „hefðarmaður“ í sinni
stétt og lætur hverjum degi
nægja sína þjáningu. En hann á
jafnan í höggi við lögregluna,
ekki vegna neinna stórra af-
brota, heldur vegna þess að
hann vill fá hana til að veita
sér húsaskjól og tvær heitar
máltíðir á dag yfir köldustu
vetrarmánuðina. í þessu skyni
gerir hann mikinn usla í knæp-
um Parísar, en fær jafnan að-
eins nokkra daga íangelsisdóm.
Þá rís hann upp æfur í dóm-
salnum og krefst réttlætis, þ. e.
a. s. þyngri dóms, en allt kem-
ur fyrir ekki.
Mynd þessi er sannkölluð
„stjömu-komedía“, því að hún
snýst, að heita má, eingöngu
um Archimedes. Þó hafa þama
margir aðrir góðir leikarar hlut-
verk, en þeirra gætir lítið við
hlið Archimedesar, hins mikla
,,lífsfílósófs“.
Mynd þessi er bráðskemmti-
leg og leikur Gabins óborgan-
legur. —