Morgunblaðið - 21.10.1961, Blaðsíða 24
LHóflegir skaftar
Sjá bls. 13.
ÍÞRÓTTIR
Sjá bls. 22
239. tbl. — Laugardagur 21. október 1961
Aukin geislavirkni ekki
innanríkismáf neins lands
— sagði formaður dönsku sendinefnd-
arinnar, sem hafði orð fyrir tillögu
Danmerkur, Islands, Sviþjóðar, Nor-
egs, Kanada og Japans
S V O sem frá var skýrt í
Morgunblaðinu í gser, var
fyrirhugað að sex ríki — ís-
land, Danmörk, Noregur, Sví
þjóð, Kanada og Japan —
legðu í dag fyrir stjórnmála-
nefnd Allsherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna tillögu, þar
sem skorað er á Sovétríkin
að sprengja ekki bina stóru
kjarnorkusprengju — 50
megatonna — sem Krúsjeff
forsætisráðherra hefur boðað
að yrði síðust sprengd í þess-
um tilraunaflokki Rússa með
kjarnorkusprengingar.
Morgunblaðinu hefur nú
borizt eftirfarandi einka-
skeyti frá Sigurði Bjarna-
syni, ritstjóra.
Sameinuðu þjóðunum
20. okt. —
1 tillögu landanna sex, sem
lögð var fyrir stjómmálanefnd
allsherj arþingsins í dag. er skor-
að á Rússa að hætta við að
sprengja þá 50 megatonna kjarn-
orkusprengju, sem þeir hafa
boðað. Þar er komizt svo að
orði.
„Með því að stöðvun tilrauna
imeð kjarnorkuvopn er nú tekin
á dagskrá Allsherjarþingsins —
með því ennfremur, að þingið
hefur miklar áhyggjur af ný-
legri tilkynningu forsætisráð-
herra Sovétrikjanna um fyrir-
hugaða sprengingu fimmtíu
megatonna sprengju fyrir lok
októbermánaðar — og með til-
liti til gífurlega aukinna skað-
ræðisáhrifa af slíkri sprengingu
á heilsu og velferð mannkyns-
ins — Þá skorar Allsherjarþing-
ið eindregið á stjórn Sovétríkj-
anna að hætta við þetta áform
sitt.“
Óþörf sönnun.
Umræður um tillöguna hófust
i dag. Pær Hekkerup. formaðúr
dönsku sendínefndarinnar, flutti
stutta framsöguræðu með tillög
unni. Hann kvað yfirlýsingu
Togarasala
TOGARINN Harðbakur landaði
í Grimsby í gær 123 lestum fyrir
9,401 sterlingspund.
Varðarkaffi
verður ekki
í dag
sovétstjómarinnar um fyrirhug-
aða stórsprengingu hafa enn
aukið ugg og ótta mannkynsins
við kjarnorkuvopn og geisla-
virkt ryk. Tillagan væri stutt
og skorinorð. Hennar eini til-
gangur væri að skora á Sovét-
stjórnina að hætta við spreng-
inguna, sem myndi verða hin
mesta. sem framkvæmd befur
verið, ef úr yrði. Hún myndi
hafa í för með sér eins mikla
aukningu geislavirkni og leitt
'hefði af öllum fyrri kjarnorku-
sprengingum þeirra. Slík spreng-
ing sagði Hækkerpu, væri hvorki
framkvæmd í þágu vísinda né
iandvarna.
Við vitum allir, sagði Hækker j
up, að Rússar eiga þessa sprengju1
í fórum sínum og geta notað þetta
mesta eyðileggingarvopn, sem til
er. A því þarfa enga sönnun.
Hvaða réttmætan tilgang gat
Sovétstjórnin haft til þess að
Frh. á bls. 23
Ekkert samkomu-
laS
SÁTTASEMJARI ríkisins, Torfi
Hjartarson, efndi til sáttafundar
vegna verkfalls verkfræðinga í
gær. Þokaðist ekkert í eamkomu
lagsátt á fundinum og halda
verkfræðingar fast við kröfur sín I
ar. Annar fundur hefur ekki ver |
ið boðaður. Verkfall verkfræð-
inga hefur nú staðið 1 þrjá mán-
uði.
Pessi mynd var tekin af rækjubá.tnum Karmöy (nær) i
bátahöfninni á ísafirði, en báturinn fórst vestra fyr-
ir nokkru svo sem kunnugt er. Greinilega sézt að siglutréð
er brotið en að öðru leyti virðist báturinn lítt skemmdur,
þrátt fyrir að hafa sokkið og legið á hafsbotni.
Mæðiveiki finnst í náglega
40 kindum úr Dölum
Um mjög gamla sýki að ræða i
sumum kindanna — Slátrað
i Borgarnesi i
Borgarnesi í gœrkvöldi.
Á MILLI 30 og 40 mæðiveik-
ar kindur fundust hér í dag
er um 350 fullorðnu fé var
slátrað frá tveimur bæjum í
Dölum, en grunur hefur
leikið á að mæðiveiki væri
í fé frá þessum tveimur stöð-
um. —
Frá Smyrlahóli i Haukadal
var slátrað um 200 kindum og
reyndust milli 20 og 30 þeirra
hafa mæðiveiki. Var um mjög
gamla sýki að ræða hjá sum-
um kindanna.
Frá Kolsstöðum i Miðdölum
var slátrað 150 kindum og
fannst meiri og minni þurra-
mæðiskennd í um það bil 10
kindum.
gær
Rannsóknir á fénu önnuðust
þeir Guðmundur Gíslason lækn-
ír að Keldum og Jón Kristjáns-
son bóndi að Kjörseyri.
Guðmundur Gíslason tjáði
mér í kvöld að slátrað hefði
verið 300 fullorðnum kindum úr
neðanverðri Mýrasýslu í dag, en
ekkert hefði fundizt sem gæfi
ástæðu til að ætla að mæði-
veiki sé á þeim slóðum.
Á morgun er ætlunin að
slátra fé úr ofanverðri Mýra-
sýslu, sem einnig á að rannsaka
með tilliti til mæðiveiki.
— Hörður.
11 ára telpa
fyrir bíl í
gœrkvöldi
I
UM níuleytið í gærkvöldi
varð það slys að 11 ára
gömul telpa, Sólborg Péturs
dóttir, til heimilis að
Dvergasteind í Hafnarfirði,
varð fyrir bíl á Hafnarf jarð-
arveginum á móts við Frost
h.f. Sólborg var flutt _ á
slysavarðstofuna í Reykja-
vík. Er blaðið spurðist fyrir
um líðan hennar á tólfta
tímanum í gærkvöldi, stóð
rannsókn enn yfir á meiðsl-
um hennar, en hún virtist
hafa sloppið vel.
Fjögur tonn
á bát
AKRANESI, 20. okt. — Fimm
línubátar lönduðu hér í dag og
höfðu að meðaltali fjögur tonn
á bát. — Oddur.
Dularfullt fyrirbæri á
fyrir Austfjöröum
Menn á sjó og i landi sáu glóandi
hlut stiga i loft upp, slokkna
siðan og falla
Dagskrá Lands-
iundarins í dag
dag
EANDSFUNDUR Sjálfstæðisflokksins heldur áfram
í Sjálfstæðishúsinu.
Dagskráin í dag er á þessa leið:
Kl. 10—12: Kjördæmanefndir starfa. Kl. 14: Ræða dóms-
málaráðherra, Jóhanns Hafstein. Síðan verður hlé. I fundar-
hléi verður aðalfundur Uandsmálasambands Sjálfstæðis-
kvenna í Valhöll. — Kl. 16-18:30: Tillagá til stjórnmálaálykt
unar — umræður. Kl. 20: Leiksýning í Þjóðleikhúsinu.
HENRY Hálfdánarson, skrif-
stofustjóri Slysavarnafélags-
ins, tjáði Morgunblaðinu í
gærkvöldi að um hálf sjö-
leytið í fyrrakvöld hefði dul-
arfullt fyrirbæri sézt í lofti
út af Austfjörðum. Sá fjöldi
manna fyrirbæri þetta frá
Hornafirði og austur á Stöðv
arfjörð og voru margar get-
gátur á lofti um hvað hér
væri á ferðinni. Var Slysa-
varnafél. m. a. gert aðvart.
Mönnum virtist íyrst að hér
væri á fevðinni eldhnöttur eða
eldflaug. Fór hluturinn upp í
loftið, og menn sáu hann síðan
deyja út og falla. Sindráði af
honum eins og þegar raketta
springur.
Eins og fyrr getur sást fyrir-
bærið frá Hornafirði að Stöðv-
arfirði og öllum fjörðum þar á
milli. Fannst mönnum sem fyr-
irbærið væri nærri sér, rétt fyr-
ir utan firðina, og á Hornafirði
sýndist mönnum sem hluturinn
væri rétt fyrir utan Stokksnes.
UTI 1 HAFI
Skip, sem var á annað hundr-
að mílur úti í hafi austan
Hornafjarðar, sá hlutinn einnig,
og tilkynnti að hann væri fyr-
ir austan það, þannig að hlut-
urinn virðist hafa verið langt
austur í hafi.
Islenzkur mælingamaður á
Hornafirði miðaði hlutinn. og
reyndist hann vera 100 gráður
réttvísandi, eða því sem næst í
háaustri.
Slysavamafélaginu var gert
aðvart, þar eð sumir töldu að
hér væri e.t.v. um neyðarmerki
að ræða.
Mörg skip, og fjölmargir í
landi sáu þetta fyrirbæri, sem
stóð í um eina mínútu, og er
því ekki um sjónvillu að ræða.
HVAÐ ER Á SEYÐI f
Kenningar voru á lofti um að
hér væri um gervitungl eða
geimfar að ræða, eða jafnvel
eldflaug.
Mbl. spurðist fyrir hjá vam-
arliðinu í gærkvöldi hvort rad-
arstöðin á Stokksnesi hefði orð-
ið vör við atburð þennan. —
Sagði talsmaður vamarliðsins
að því væri ekki kunnugt um
atburðinn, enda hefðu könnim-
arflugvélar þess ekki getað flog
ið vegna þoku á þessum tíma.
Skyndihappdrætti
Sjáltstæiisfiokksins