Morgunblaðið - 25.10.1961, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 25. okt. 1961
MORGUNBlAÐIÐ
23
— Uggur um
allan heim
Framhald aí bls. 1.
í.yrir Uralfjöll á leið yfir Asxu.
Engu að síður hefur verið gripið
til víðtækra varúðarráðstafana í
Svíþjóð, og vinnur sérstök stjórn-
arnefnd að áætlun uon hrvað gera
skuli ef geislavirkni eykst veru-
lega. Mun nefnd þessi gefa inn-
anríkisráðherranuim skýrslu á
fimmtudag.
Einn af fulltrúuim bommúnista
í bæjarstjórn Stoklkhólms, dr.
John Takiman, hefur gert fyrir-
spurn um það hvenær bæjar-
stjórniin geti farið að gefa öllum
börnum og unglingum katktöfl-
ur til að vinna gegn hugsanleg-
um áhrifum geislunar frá stór-
sprengju Rússa. Byggir dr. Tak-
man fyrirspum sína á yfirlýsingu
bandaríska vísindamlannsins Lin-
ús Paulings um að kallkinntaka
geti dregið úr myindun strotium
90 í beinmergnum. I>ótt ekki sé
hér um fullkomina vörn að ræða,
gæti þetta þó orðið til góðs, seg-
ir Takman.
Stokikhólmslögreglan hefur nú
vörð um sendiráð Sovétríkjanna
iþar í borg til að fyrirbyggja á-
rekstra. Nokkuð hefur borið á
því að unglingar hafi safnast sam
an fyrir utan sendiráðið til að
mótmæla sprengingum Rússa, en
allt farið friðsamlega fram.
AÐGERÐIR í ÓSLÓ
Tilkynnt vsir í Ósló í dag, að
hraðað yrði smíði neðanjarðar-
byrgja, sem taka munu um 20%
íbúa mliðborgarinnar, eða um 20
jþús. manns. Nú þegar eru full-
byggð 25 byrgi, sem grafin hafa
verið inn í fjöll og taka 20.000
manns og 19 steinsteypt byrgi,
sem taka 14.800 manns. Talið er
að alls séu nú í Ösló 688 byrgi,
sem taiki um 115.000 manns.
Fjölgað hefur vérið mælinga-
stöðvum til að mæla geislavirkni
í Noregi. Er þetta gert til að
efla aðvörunarkerfi sem komið
hefur verið á um allt landið.
1 gær var tilkyinn-t í Osló að
Halvard Lange utanríkisráðherra
hefði þegið boð um að heim-sækja
Sovétríkin á næstunni. Nú hafa
landssamtök ungra hægrimanna
sent ráðherranum áskorun um
að aflýsa fyrirhugaðri opinberri
heimsókn þangað.
Segir í áskoruminni að ekiki sé
rétt „að utanríkisráðherra vor
þiggi boð ríkisstjórnar, sem
norska þjóðin á sama tíma for-
dæmir fyrir að stofna landi voru
í voða með sprengjutilraunum
sínum“.
Landssamtökin telja einnig rétt
að taka menningarmálasamning-
inn við Sovétríkin til endurskoð-
unar og atbuga hvort æskilegt
sé að hann gildi áfram.
STÓRSFRENGJAN EFTIR?
Harold Watkinsson, varnar-
málaráðherra Bretlands, ræddi í
dag uim stórsprengju Rússa í
neðri deild brezka þingsins. Sagði
hann að eftir því sem næst yrði
komizt hafi sprengjan verið um
30 megalestir, en það svaraði til
30 milljóna lesta af TNT sprengi
efni. Ekki væri kunnugt um styrk
leika hinnar sprengjunnar, sem
Rússar sprengdu í gær neðan-
sjávar fyrir sunnan Novaya Zem-
lya, og nokkur bið yrði á því að
vísindamenn Vesturlanda gætu
sagt með vissu um samanlagða
orku beggja sprenigjanna.
Ef rétt er að stórsprengjan
hafi verið 30 megalestir, sagði
Watkinson, má áætla að Rússar
eigi enn eftlr að sprengja 50
megalesta sprengjuna, sem Krús-
jeff hefur boðað að sprengd verði
fyrir næstu mápaðarmót.
TILFINNINGALEYSI
OG GRIMMD
Búast má við að geislavirkni
frá stórsprengjunni berist til
Bretlands eftir um viku, en fer
það nokkuð eitir því í hvaða hæð
sprengjan vai sprengd. Geisla-
virkrn fer nokkuð eftir þvi hvers
konar sprengju hér var um að
ræða og er eaki unnt að segja um
þóð á þessu stigi hvað geisla-
virkni verður mikil. Watkinson
sagði hinsvegar að ríkisstjórnin
hefði gert ráðstafanir til að út-
vega ungbörnum mjólkurduft eða
niðursoðna mjólk í stað nýmjólk
ur, sem er mjög móttækileg fyr-
ir geislavirkni. Ekki taldi Watkin
son senmlegt að eldri börnum og
fullorðnum stafaði mikil hætta af
aivarlegri geislun. „Enginn kemst
hjá því að fyllast skelfingu yfir
því tilfinningaleysi og þeirri
£rimmd, sem Rússar sýna með
Tæki er nefnist „gammaspectrometer" hefur verið sent frá eðlisfræðistofnuninni í Lundi
norður til Lapplands, þar sem m.a. á að nota það til að mæla geislavirknina sem fólk og
hreindýr hafa orðið fyrir. Hér er verið að rannsaka einn Lappann.
því að hefja að nýju eitrun and-
rúmsloftsins".
Þingslit fóru fram i Bretlandi
í dag og var þá lesin ræða Breta-
dröttningar. Þar segir drottningin
að hún harmi mjög að Sovétríkin
skuli hafa tekið upp tilraunir að
riýju. Brezka ríkisstjórnin hefur
unnið að því að samningaviðræð-
um um almenna afvopnun verði
haldiö áfram, segir í ræðunnL
F.innig hefur stjórnin barizt fyr-
ir því að bannaðar verði tilraunir
með kjarnorkusprengjur og virkt
eftirlit haft með því að bannið
verði haldið. Þessvegna er það
mjög ilia farið að stjórn Sovét-
ríkjanna skuli hafa stigið fyrsta
sporið og hafið tilraunirnar að
nýjp, sagði drottning.
TILGANGSLAUST AB DEILA
Bertrand Russel lávarður, sem
er einn helzti förvígismaður and
stæðinga kjarnorkutilrauna í
Bretlandi, gekk í dag á fund
sendifulltrúa Sovétríkjanna í
London. Afhenti Russel sendifull-
trúanum mótmæli vegna tilrauna
Rússa í gær. En sendifulltrúinn
svaraði því til að þetta hafi verið
dásamleg sprengja, sem væri
alveg laus við geislavirkni. Russ-
el yfirgaf sendiráðið eftir að hafa
afhent mótmælin. Sagði lávarð-
urinn á eftir að Rússarnir væru
svo saklausir. „Aldrei í sögu
mannkynsins hefur sézt annað
eins sakleysi,“ sagði Russel. „Eg
fór burt vegna þess að það var
tilgangslaust að deila við þá“
HEFJA BANDARÍKIN
TILRAUNIR?
I fréttum frá Washington er
sagt að ef til vill neyðist Banda-
ríkin til þess að hefja að nýju
tiiraunir með kjarnorkuspreng-
ingar í gufuhvolfinu vegna risa-
sprengju Rússa hjú Novaya Zeml-
ya.
Kom þetta fram í Öldungadeild
Bandaríkjaþings í dag þegar leið
togi demókrata Mike Mansfield,
sagði að hann fengi ekki séð
hvernig hjá þessu yrði komizt og
þingmaðurinn Clinton Anderson,
sem á sæti í kjarnorkunefnd Öld-
ungadeildarinnarinnar tók í sama
streng.
Mansfield sagði að stjórn Sovét
ríkjanna neyddi Bandaríkin til
að hefja tilraunir að nýju. „Með
tilliti til eigin öryggis erum við
tilneyddir að gera það, sem við
ekki óskum að gera, þ. e. að
hefja að nýju tilraunir í gufu-
hvolfinu.“ Anderson sagði að
hann teldi að Bandaríkjastjórn
mundi taka ákvörðun í þessu
máli mjög fljótlega vegna þess
hve örar tilraunir Sovétríkjanna
eru. Aleit hann að Sövétríkin
hefðu brátt lokið tilraunum sín-
um. Eftir það mætti ætla að þau
lýstu yfir vilja sínum um samn-
ingaumræður um algjört bann
við tilraunum með kjarnorku-
sprengingar. Því fylgdi hinsveg-
ar að mjög yrði lagt að Banda-
ríkjunuim að hætta tilraunum.
1 frétt frá New York segir að
Normann Thomas, leiðtogi jafn-
aðarmanna hafi snúið sér til
stjórnarerindreka Sovétríkjanna
til að afhenda honum mótmæli
vegna tilraunanna. Hefur Thom-
as það eftir erindrekanum að
sprengjan, sem sprengd var í gær
hafi alls ekki verið 50 megalesta
sprengjan fyrirhugaða, heldur
verði sú sprengja sprengd n.k.
mánudag.
GEISLASKÝ
Veðurstofa Bandaríkjanna tel-
ur að geislavirkt ský frá stór-
sprengju Rússa breiðist nú út
yfir norðurhluta Sovétríkjanna.
Skýið er talið vera 160—240 km.
breitt og fara með um 130 km.
hraða á klukkustund austureft-
ir. Telur veðurstofan að með
sama áframhaldi gæti fyrstu
geislavirkninnar frá þessari
sprengingu á fimmtudag eða
föstudag í Bandaríkjunum. En
aðaláhrifa geislavirtkninnar mun
þó ekikí gæta fyrr en næsta vor,
því þá fyrst má búast við að
háloftarykið taki að falla til jarð-
ar.
JAPAN MÓTMÆLIR
Japansstjórn hefur ákveðið að
sencia stjórn Sovétrikjanna harð-
orð motmæli vegna stórsprengj-
unnar. Þar í landi gætir nú bæði
ótta og gremju vegna þessara að-
gerða, og voru umræður um mál-
ið í þinginu í dag. Voru þá bæði
stuðningsmenn stjórnarinnar og
stjórnarandstæðingar sammála
um að fordæma, að Rússar skuli
hafa sprengt þessa stærstu kjarn
orkusprengju veraldar. Bent er
á það í fréttum frá Japan að
íbúar þar i landi séu þeir einu,
sem þekki ógnir kjarnorkunnar.
Talið er að geislavirkni berist til
Japan á íöstudag og hafa íbúar
verið áminntir um að drekka ekki
óhreinsað rigningarvatn.
NEHRU
Nehru forsætisráðherra Ind-
lands sagði í Bombay í dag að
Rússar hafi nú sprengt hryllilega
sprengju. Þessi tilraun Sovétríkj
anna muni ekki aðeins eitra and-
rúmsloftið, heldur einnig hug
manna um allan heim. Þessi
sprengja er ekki góður fyrirboði
friðar í heiminum, sagði Nehru.
A alþjóðaþingi jafnaðarmanna
í Róm sagði Hugh Gaitskell, leið-
togi brezka Verkamannaflokks-
ins að allar þjóðir fylltust við-
bjóði yfir þessari sprengingu
Rússa. Samþykkti þingið ályktun
þar sem Sovétríkin eru vítt fyrir
framkomu sína, sem svO mjög
komi í bága við yfirlýsingar um
einlægan friðarvilja og óskir um
friðsamlega sambúð.
Kaupmannahöfn, 2!f. ókt.
Einkaskeyti frá Páli Jónssyni.
FRÉTTIN um nýjustu kjarn-
orkusprengingar Rússa kom
í kvöld af stað óspektum fyr-
ir utan sendiráð Sovétríkj-
anna í Kaupmannahöfn. Fé-
lagið „Baráttan gegn kjarn-
orkuvopnum“ hvatti menn til
að safnast saman fyrir utan
sendiráðið og sitja þar á
gangstéttinni í 24 klukku-
stundir í mótmælaskyni.
Nokkur mannfjöldi safnaðist
þarna saman og nokkrir mann-
anna klifruðu yfir girðingu og
settust inn í garð sendiráðsins.
Varð lögreglan að skerast í leik
inn og fjarlægja mennina. — 28
voru handteknir, þeirra á meðal
formaður félagsins, rithöfundur-
inn Scharnberg. — Öllum var
sleppt eftir stuttar yfirheyrslur,
en þeir verða að greiða sektir
fyrir að hafa farið ólögiega iim
á land sendiráðsins.
Lögreglan hefur bannað mót-
mælaaðgerðir, sem hefjast áttu
í kvöld.
Forsætisráðherra Danmerkur
er fjarverandi um þessar mund-
ir, en Skytte, settur forsætisráð-
Leiðrétting
í FRÉTT af landsfundinum í
blaðinu í gær, stóð, að í lok
fundarins hafi Guðrún Guð-
mundsdóttir tekið til máls, ásamt
fleirum, en þar átti að standa
Guðrún GuðlaugsdóUir.
Meiri geislun
hér upp ur
mánaðar-
mótum
ÚTVARP® hafði það í
gærkvöldi eftir próf. Þor-
bimi Sigurgeirssyni að á-
hrifanna af hinni miklu
sprenginu Rússa mundi
fara að gæta hér á landi
upp úr næstu mánaðamót-
um. Mundu geislamæling-
ar hér á Iandi nú verða
auknar, en búast mætti
við að meiri geislun mundi
nú mælast hér en nokk-
urn tíma áður.
herra, hefur fyrir hönd stjóm-
arinnar mótmælt sprengingunum
í gær.
— Engin mænu-
sóttartilfelli
Framh. af 24
sett og veiktust ekiki, en hún tók
veikina en hlaut etoki lömun.
— Verða nokkrar sérstakar
ráðstafanir gerðar vegna frétta
af mænuveiiki í nágrannalöndun-
um?
— A mánudögum milli kl. 1 og
3 er bólusetning gegn mænusótt
hér á Heilsuverndarstöðinni, aðal
lega fyrir börn. Séu noklkrir full
orðnir, sem eíkiki hafa fengið fulla
bólusetningu, þá eru þeir vel-
'komnir á þessum tíma. Þetta er
fastur tími og hefur ekki þótt á-
stæða til að auka hann enn. Tal-
að er um að bólusetja upp að
45 ára aldri. Þar fyrir ofan er
gert ráð fyrir að fólk hafi tekið
bakteríuna á svoikallaðan eðlileg-
an hátt, einkum í fjölmenninu.
— Nú berast þær fréttir að
Bretar sóu hættir við Salk-bólu-
efnið og farnir að nota Sabin.
Hvað gerið þið hér?
— í Salk bóluefni eru dauðar
mænusóttarveirur, en Sabin bólu
efninu lifandi veirur svo mjög
veiktar að þær geti ekki valdið
sjúkdóminium. Reynzla þeirra
þjóða, sem reynt hafa Sabin bólu
efni, virðist gefa góða raun og
það er mikið auðveldara í notk-
un, þar sem það er gefið í töflu-
eða dropaformi. En meðan Al-
þjóðaheilbrigðisstofnuin hefur
ekki tekið afstöðu til Sabin bólu-
efnisins, er Salk bóluefnið notað
hér á landi sem fyrr.
| — Mengast
hafib ....
Frh. af bls. 1
„Straumar í Norður-íshafi eni
allbreytilegir og háðir vindátt
hverju sinni. Aðalstraumurinn
mun þó vera réttsælis. Stöðugir
straumar liggja norður í hafið
vestan megin Svalbarða, en suð
ur úr íshafinu liggur straumur
norðaustan Grænlands, þ.e.a.s.
A-Grænlandsstraumurinn, eins
og ég gat lun áður“, sagði Unn-
steinn.
„Yfirborðssjórinn frá Novaya
Semlya og svæðinu þar í kring
lendir því í A-Grænlands-
strauminum og má því ætla,
að hann flytji hingað áhrif frá
kjarnorkusprengingunni, sem
* þar var gerð. Hins vegar er ó-
varlegt að ákvarða þann tíma,
sem þessi flutningur tekur. Það
er m.a. háð vindum, eins og ég
sagði áður, og gerist ekki á svip
stundu. Hins vegar getur straum
hraði í A-Grænlandsstraumnum
víða orðið allmikill, allt að 21—
32 km á sólarhring", sagði Unn-
steinn Stefánsson að lokum.
Þorskur kemur ekki að austan
Mbl. átti ennfremur tal við þá
fiskifræðingana Jón Jónsson og
Jakob Jakobsson og innti þá eft-
ir því hvort fiskigöngur af Norð-
urslóðum kæmu frá því haf-
svæði, sem hugsanlega hefðu orð-
ið fyrir sterkum geislunaráhrif-
um frá neðansjávar kjarnorku-
sprengingu við Novaya Semlya.
Jakob Jakobsson sagði, að sam-
gangur milli þorsksins á Islands-
miðum og þorsksins í Barents-
hafi, vestur af Novaya Semlya,
væri sama og enginn. Það kæmi
að vísu fyrir, að þorskar þaðan
veiddust hér, en slíkt væri sjald-
gæft.
Um síldina sagði Jakob Jakobs
son, að þar væri samgangur við
Barentshaf. Norska vetrarsíldin,
sem m. a. er veidd hér á sumrin,
er m. a. í Barentshafi fyrstu þrjú
ár æviskeiðsins. En þá er eftir
að vita hversu áhrif kjarnorku-
sprenginga á þessum slóðum hef-
ur á síldina — og hversu lang-
varandi þau eru. — Þá sagði
Jakob, að islandásíldin gengi all-
iangt norður á bóginn, norður að
Jan Mayen.
Ingvar Hallgrímsson, sem legg-
ur stund á rannsóknir á svifi í
sjónum, sagði í viðtali við Mbl.,
að ekki væri að efa, að geisla-
virk efni mundu hafa mjög skað-
leg áhrif á lífið í sjónum. Þetta
hefði þegar komið fram við rann
sóknir, en þessum rannsóknum
væri ekki að fullu lokið svo að
ekki væri hægt að segja neitt um
endanlegar niðurstöður. En auk
þess sem eiturefni kjarnorku-
sprengingar skaða lífið 1 sjónum,
þá hafa þau líka skaðsamleg áhrif
á þá fæðu, sem dregin er úr sjó,
sem orðið hefur fyrir kjarnorku-
áhrifum, sagði Ingvar.
Mótmæli í Khöfn