Morgunblaðið - 25.10.1961, Side 24
Brét frá New York
Sjá bls. 13.
242. tbl. — MiðvikutlagUi 25. október 1961
ÍÞRÓTTIR
eru á bls. 22.
Engin mænusótt-
artilfefli hér
Bólusefningin ætti að koma í
veg fyrir faraldur
NYLEGA hefur verið sagt frá því
í fréttum hér í blaðinu að mænu
S»tt hafi stungið sér niður í
Kaupmannahöfn og einnig í Hull.
Af því tilefni sneri Mbl. sér til
Jóns Sigurðssonar, borgarlæknis,
og spurði hvort læknar hér óttuð-
ust að veikin kynni að berast
hingað, og hvort nokkrar ráð-
stafanir hefðu verið gerðar af
þeim sökum.
Bórgarlæknir sagði, að enn
hefði ekki orðið vart neinna
rnænusottartilfella, og að vonir
standi til að hin almenna þátttaka
í bólusetningu gegn mænuveiki á
undanförnum árum hér í bænum
komi í veg fyrir að hér geti orð-
ið faraldur, enda þótt engan veg-
inn sé girt fyrir að ein og ein
manneskja geti tekið veikina Oig
jafnvel í einstöku tilfellum þó
bólusett sé.
47 þús Reykvíkingar bólusettir
Talið er að 47—48 þús. Reykvík
ingar hafi verið bólusettir gegn
mænuveiki, sagði borgarlæknir,
flestir þrisvar sinnum, en sumir
einu sinni eða tvisvar. Síðan 1956
hefur árlega verið bólusettur hér
fjöldi manns. Bólusetning fer
fram allt árið á Barnadeild
Heilsuverndarstöðvarinnar, þann
ig að næstum hvert ungbarn er
bólusett við mænusótt, ásamt f jór
um öðrum sjúkdómum. Mænu-
sóttarbólusetning hefur auk þess
árlega farið fram í öllum barna-
og unglingaskólum hér í bænum,
þannig að gera má ráð fyrir að
langflestir bæjarbúa innan 20 ára
hafi verið bólusettir gegn /nænu-
sótt. Auk þess hefur fjöldi full-
orðinna látið bólusetja sig.
Talið er að bólusetningin gefi
85—90% öryggi þeim sem bólu-
settir hafa verði þrisvar sinnum
og með fjórðu bólusetningu hækk
ar þessi hlutfallstala allverulega.
Bólusetning er ekki alger trygg-
ing gegn veikinni, en þeim er
auðvitað hættara, sem ekki eru
bólusettir.
— Og hver hefur orðið árangur
inn af þessari bólusetningu hér?
Mænusóttartilfelli næstum horfin
— Síðan síðasti faraldur varð
1955—’56 og bólusetning hófst
upp úr því, hefur ekki orðið vart
nema eins tilfellis hér í Reykja-
vík og tveggja úti á landi, áður
voru frá 7 upp í fleiri tuigir til-
fella á hverju ári.
Sjúklingarnir úti á landi, ann-
að Ameríkuimaður sem ekki er
talinn hafa smitast hér og Borg-
firðingur, voru báðir óbólusett-
ir. Þeir hlutu lamainir. Sjúlkling-
urinn í Reykjavík, seim veiktist
1960, var óbólusettur. Þetta var
húsmóðir. í henni og börnum
hennar fjórum fundiust mænu-
sóttarveirur. Þau voru öll bólu-
Framhald á bls. 23.
Gígurinn í Oskju sást úr flugvél
Vöruskiptajöfn-
uður hagstæður
ptember
í se
VÖRUSKIPTAJOFNUÐURINN
í september var hagstæður um
47 millj. króna, en í fyrra á sama
tíma óhagstæður um -26,5 millj.
Núna var flu . út alls fyrir 298,5
millj., en inn fyrir 251,4 millj.
Fyrstu 9 mánpði ársins var
vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæð-
ur um 161 millj. kr., en í fyrra
á sama tímabili óhagstæður um
526,4 millj.
AKUREYRI, 24. okt. — Upp úr
hádegi í dag flaug Tryggvi Helga
son ásamt nokkrum öðrum yfir
Öskju. Meðal annarra var í för-
inni Jón Sigurgeirsson. Er þeir
félagar komu yfir öskju, bar
heldur lítið á goshverunum þar,
en geysimikill gígur sást þó.
Virtist hann að sögn Jóns vera
milli syðsta og nyrsta gígsins, er
hann sá í Öskju fyrir 10 dögum
og hafa mynúazit síðan. Virðist
það á sama stað og gosið, -r þeir
Tómas Tryggvason og Guðmund-
ur Sigvaldason sáu.
Úr flugvélinni virtist gígurinn
vera tugir metra í þvermál. Er
Dagsbrún segir
upp samningum
í GÆR sendi verkamannafélagið
Dagsbrún samningsaðilúm sín-
um, en þeir helztu eru Vinnu-
veitendasamband íslands, Reykja
víkurbæjar og Vinnumálasam-
band Samvinnufélaganna, bréf,
þar sem kaupgjaldsákvæðum er
sagt upp frá og með 25. nóvem-
ber nk. Krefst Dagsbrún þess að
breytingar verði gerðar á gild-
andi samningum þannig að kaup
máttur launanna verði ekki
lægri en hann var 1. júlí sl. og
sett verði í samninga ákvæði er
tryggi varanleik kaupmáttarins.
Er í bréfinu, sem sent var í
gær, óskað eftir viðræðum um
þessar breytingar sem fyrst. Er
þetta í samræmi við samþykkt
fundar 15. okt., sem áður hefur
verið skýrt frá í blaðinu.
íslenzkur verkfræðingur
hlaut verðlaun fyrír
tæknifyrirlestur
BLAÐIÐ hefur fregnað, að ís-
lenzkur rafmagnsverKiræúingur,
Ottó Valdimarsson, hafi hlotið
verðlaun í samkeppni, sem
sænska útvarpið efndi til í haust
um tæknifyrirlestra.
Sænska útvarpið hét verðlaun-
unum fyrir þrjá fyrirlestra um
tæknileg efni, sem væru settir
þannig fram, að þeir væru að-
gengilegir fyrir almenning. —
Skyldu verðlaunin vera 5000
sænskar krónur, fyrir hvern
þeirra þriggja fyrirlestra, sem
hlytu verðlaun, eða samtals 15000
sænskar krónur.
Núna um helgina sl. barst
Ottó Valdimarssyni bréf frá
sænska útvarpinu, þar sem hon
um var tilkynnt, að hann hefði
hlotði önnur verðlaun fyrir fyrir-
lestur, er hann samdi og sendi
útvarpinu. Jafnframt bauð
sænska vísindaakademían hon-
um út til Svíþjóðar, og fór hann
með flugvél þangað á mánudags-
morgun.
Ottó Valdimarsson, rafmagns-
verkfræðingur, er nú kennari við
Vé'skólann.
flugvélin hafði verið á sveimi
nokkrar r.iínútur yfir Öskju,
varð mikið gos úr þessum gíg.
Virtist það að mesbu gufa og
vatn og mikill reykur. Tryggvi
flugmaður áætlar að þetta hafi
borið a.m.k. 5—600 fet yfir gíg-
barminn, en þess ber þó að gæta,
að hvass austan vindur var og
lagði því mökkinn mikið niður.
Ekki sáu þeii félagar grjót eða
leir koma upp um hverinn, en
þeir flugu í mikilli hæð og gæti
það hafa verið, þó ekki sæist
það úr flugvélinni. Nýfallinn
Enn síld á
Pollinum
AKUREYRI, 24. okt. — Heildar-
magn síldarinnar, er lagt hefur
verið upp í Krossanesi og feng-
izt hefur á Akureyrarpolli, er nú
orðið yfir 20 þús. mál og þá er
ekki veiðin í dag, sem var sæmi-
leg, talin með. Skipin hafa feng-
ið síldina utarlega allt norður
undir Svalbarðseyri. Veiðarnar
stunda nú 10 skip. — St. E. Sig.
Vantraust
i kvöld og
annað
kvöld
I KVÖL.D og annað kvöld verð
ur útvarpað frá Alþingi um-
ræðum um vantrauststillögu
þá á ríkisstjórnina, sem þeir
Hermann Jónasson og Ey-
steinn Jónsson lögðu fram í
þingbyrjun. — Hefjast umræð
urnar kl 8 bæði kvöldin.
I kvöld verður ræðutími
hvers flokks 50 mínútur, sem
skiptist í tvær umferðir 25—
30 mínútur sú fyrri og 20—25
hin síðari. Röð flokkanna verð
ur þá þessi: Framsóknarflokk-
ur, Sjálfstæðisflokkur, Alþýðu
bandalag og Alþýðuflokkur.
Annað kvöld verður ræðu-
tíminn alls 45 mínútur til
handa hverjum flokki og um-
ferðirnar þrjár: 20, 15 og 10
mínúíur. Röð flokkanna verð-
ur óbreytt að öðru leyti en
því, að Sjálfstæðisflokkurinn
verður fyrstur og Framsókn-
armenn aðrir.
snjór virðist vera í Öskju og það
mikill að ekki sést neitt af etein-
tun eða holum undan steinum úr
gosinu um daiginn.
Öskjuvatn er óilagt og enginn
sýnileg breyting á Stóra-Víti.
—St. E. Sig.
f sl. vlku var foráttu-
brim nyrðra. A Húsavík
hafði ekki komið annað eins
brim um árabil. Meðan
verst var braut svo framan
við höfnina að ekki var fært
inn í hana. Varð Mb. Helgi
að halda sjó þar fyrir utan
í þrjár klukkustundir áður
en hann komst inn, og inni
i höfninni varð að standa
við austur í opnu bátunum,
sem sjávarrokið fyllti. Þessa
mynd tók S.P.J. af Húsa-
víkurhöfn þenman dag.
Bátar slitnuðu upp
í ofsaroki á Siglufirði
SIGDUFIRDI, 24. okt. — Um kl.
8 í gærkvöldi var orðið hvasst
hér á Siglufirði á austan-norð-
austan og frá kl. 10 til kL 1 um
nóttina var ofsarok. í veðrinu
fuku girðingar, glu-ggar brotn-
uðu í húsum, steypimót skekkt-
ust og fleira af því tagi, en ekk-
ert slys varð á fólki.
Tvær trillur slitnuðu frá
bryggju. Sökk önnur, en hin fór
upp á Leirunum og brotnaði.
Dýpkunarskipið Bjöminn slitn-
aði einnig upp og rak inn á
Leirur og skemmdist eitthvað.
Verið var að vinna við Fjall-
foss, er veðrið skall á og átti að
fara að vinna við Kötlu við öldu-
Bíll féll á mann
UM 8 LEYTIÐ í gærkvöldi varð
slys á bif-reiðaverkstæði Ræsis.
Var verið að gera við 6 tonna
vöruflutni-nigabifreið, og búið
að taka undan eitt 'hjólið og setja
eitthvað undir öxulendann.
Rainn öxullinm út af og féll nið-
ur á gólf. Maður að rnafni Rík-
harður Guðjónsson, v-ar að vinma
undir bifreiðinni. Fékk hamn
höggið á mjaðmirnar og var
fluttur á Slysavarðstofuna. Ekki
var búið að fullranmisaka hann
í gærkvöldi en talið að hann
væri ekki alvarlega rmeiddur.
Landleg
a
AKRANESI, 24. okt. — Hrirng-
nótabátarnir komu allir inn í
nótt og sumir þó ekki fyrr en
með morgunsárinu. Hvessti upp
úr miðnætti og gerði A-N-storm.
5—6 vindstig voru, þe-gar hvass-
ast var. Höfrungur mun vera
hæsti báturinn á haustinu með
1600 tunnur síldar. Skírnir mun
slaga hátt upp í hann um afla-
magn. Engir bátar hreyfðu sig
á sjó í dag. — Oddur.
brjótinn. En hún flutti sig út
fyrir og beið þar.
í gærmongun reru bátarnir
héðan. Sumir lögðu ekki,
en þeir sem lögðu eitthvað
misstu veiðarfæri.
I mongun var komið hér hæg-
viðri. — Guðjón.
Danski sendiherr-
ann til SÞ
SENDIHERRA Dana hér á
landi, Bja-rne Paulson og frú
hans halda í dag til New York,
þar sem danska stjómin hefur
útnefnt sendiherrann ráðgjafa
í dönsku sendinefndina á 16. Allg
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Eftir að Allsherjarþingi lýkur
munu sendiherrahjónin taka sér
nokkurra vikna frí og koma til
Reykjavíkur aftur í febrúarmán-
uði 1962.
í fjarveru sendiherrans mun
Jen-s Ege sendiráðsritari gegna
störfum hans sem Chargé d’af-
faires.
Stakk af suður
PILTURINN úr Kópavogi, sem
ók út af veginum í Langadal að-
faranótt sunnudags, og stal síga-
rettum Og benzíni á leiðinni, eins
og skýrt var frá í blaðinu, átti að
mæta til yfirheyrslu á Sauðár-
króki í gærmorgun, en var þá
horfinn af staðnum.
Eftir útafkeyrsluna í Lauga-
dal fékk hann hjálp til að ná
bílnum upp og aka honum til
Sauðárkróks. I fyrradag, er átti
að yfirheyra hann þar, afsakaði
hann sig með lasleika, en í gær-
morgun var hann horfinn. Frétt-
ist til hans um hádegið í Forna-
hvammi, þar sem hann hafði
fengið sér að borða