Morgunblaðið - 26.10.1961, Síða 2
«-
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmfndagur 26. okt. 1961
t*
Biekkingartilraun Skúla Guðmunds-
sonar mun ekki hafa tilætluð áhrif
VEGNA ummæla Skúla Guð-
mundssonar á Alþingi í
fyrradag, um að áburðar-
verðið frá Áburðarverksmiðj-
unni hafi verið 16% of hátt
sL 3 ár, vegna ólöglegra af-
skrifta verksmiðjunnar, skal
bent á, að lagaprófessor, sem
einnig er lögfræðingur verk-
smiðjunnar, sagði verksmiðju
stjórninni, að þessar afskrift-
ir væru löglegar, og hefur
það einnig verið borið undir
fleiri viðurkennda lögfræð-
inga, sem eru algjörlega sam-
mála skoðun lagaprófessors-
ins. —
Til upplýsingar fyrir Fram-
sóknarmenn, skal þess getið,
að í stjórn verksmiðjunnar
eru tveir Framsöknarmenn,
þeir Vilhjálmur Þór og Jón
Ivarsson, og hafa þeir báðir
gert tillögur um áburðarverð
ið, ásamt öðrum stjómar-
nefndarmönnum, og hefur
landbúnaðarráðuneytið fall-
izt á sameiginlegar og ágrein
ingslausar tillögur stjórnar-
nefndarinnar um áburðar-
verðið.
Þess ber einnig að geta, að
Framsóknarmenn í stjórn
Áburðarverksmiðjunnar hafa,
ásamt öðrum stjórnarnefnd-
armönnum, talið nauðsyn-
legt, að afskriftimar væru
ekki minni en ákveðið hefur
verið. Það munu og allir á-
líta, sem setja sig inn í rekst
ur jafn umfangsmikils fyrir-
tækis og Áburðarverksmiðjan
er. Vélakost verksmiðjunnar
þarf að endurnýja, en það er
því aðeins mögulegt, að fyrn
ingarafskriftir séu i samræmi
við kostnaðarverð vélanna.
Þess ber að síðustu að
geta og vekja sérstaka at-
hygli á, að áburður frá
Áburðarverksmiðjunni í Gufu
nesi hefur aldrei verið seld-
ur á hærra verði en sam-
bærilegur erlendur áburður
hefur kostað innfluttur, en
oftast verið á lægra verði en
innfluttur áburður hefði
kostað.
Ummæli Skúla Guðmunds-
sonar eru sögð gegn betri
vitund, í því skyni að vekja
óánægju meðal bænda, en sú
tilraun mun mistakast, því
bændur bera betra skyn á
þessi mál, heldur en Skúli
Guðmundsson hefur gert sér
grein fyrir.
„Njdsnatungliö"
sannar hæfni sína
Kanaveralhöföa, Florída,
25. okt. — (AP)
HIÐ nýja „njósnagervitungl"
Bandaríkjanna „Midas IV“,
sem skotið var á loft fyrir
helgina og dreifði hinum um-
deildu koparnálum úti í him-
ingeimnum, hefur sannað
hæfni sína til að fylgjast
með eldflaugaskotum og „til-
kynna“ um þau til jarðar,
sem er eitt aðalhlutverk
þessá gervitungls.
í gærkvöldi, þegar Midas
<ö-
Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels
sem verður uthlutað í dag ?
SÆNSKA Akademían úthlutar í
dag Nóbelsverðlaunum í bók-
men.ntum fyrir árið 1961. Verð-
launin nema rúmlega 250 þús.
sænskum krónum, eða rúmlega
2 milljónum ísl. kr. — Akademí-
an hefir varðveitt „leyndarmál“-
sitt mjög vel, svo að enginn hefir
getað leitt getum að því með
nokkurri vissu, hver hljóta muni
verðlaunin í ár. — Sænsku blöð-
in hafa þó að sjálfsögðu velt
— Malenkov
Framh. af bls. 1
Hvíta-Rússlands Og Armeníu til
þess að skipuleggja útrýmingu
flokksforingja þar og annarra leið
andi manna. Kvað hann Malen-
kov sjálfan hafa stjórnað pynting
um við yfirheyrslur — Og ferðir
hans til annarra hluta Sovétríkj-
anna hefðu verið álíka óhugnan-
legar og þessar tvær. Hann lauk
máli sínu með því að krefjast
þess, að Malenkov væri rekinn
úr kommúnistaflokknum, ásamt
„flokksfjendunum" Molotov, Kag
anovitsj, og Vorosjilov.
1 dag gerði svo Pavel Satjukov,
aðalritstjóri Pravda, harða hríð
að Molotöv — Og gerði sömu til-
lögur og hinn fyrrnefndi um með-
ferð hinna fjögurra „flokks-
fjenda“.
spurningunni mjög fyrir sér und
anfarna daga — og virðast einna
flestir „spámenn“ hallast að því,
að júgóslavneski rithöfundurinn
Ivo Andris standi nú einna næst
því að hljóta verðlaunin, en hann
var helzti keppinautur franska
ljóðskáldsins Saint John-Perse,
sem fékk Nóbelsverðlaunin í
fyrra. Aðrir, sem taldir hafa ver-
ið einna líklegastir, eru t.d. Bret-
arnir Graham Greene og Law-
rence Durrel og danska skáld-
konan Karen Blixen.
Greene og Blixen hafa mjög
komði tii greina við úthlutun um
mörg undanfarin ár — og þeir,
sem kunnugir þykjast, segja að
Durrel hafi færzt ofarlega á list-
ann hjá Akademíunni, er „Alex-
andriu-kvartett“ hans kom út í
sænskri þýðingu á dögunum.
Fleiri hafa verið nefndir í „spá
dómum“, Og þótt almennt sé gert
ráð fyrir, að prósahöfundur hljóti
verðlaunin í ár, þar sem þau voru
veitt ljóðskáldi í fyrra, hefir
nafn hins aldna, bandaríska
skálds, Robert Frost, nokkuð bor-
ið á góma. Aðrir öldungar, sem
nefndir hafa verið, eru t. d. hinn
83ja ára gamli guðfræðignur og
heimspekingur, Gyðingixrinn
Martin Buber (en sagt er, að Dag
Hammarskjöld hafi stungið mjög
„Sagan dæmir..."
Framhald af bls. 1.
að sagan greini vart frá jafn-
óhugnanlegum hráskinnaleik og
Rússar hafa leikið undanfarið —
er þeir hafa hjalað um frið
meðal allra manna, en fótum-
troðið á sama tíma friðarvonir
alls mannkyns með helsprengj-
j um sínum og ógnunum. Verður
hér lauslega minnzt á ummæli,
sem fram komu á ýmsum stöð-
um í gær.
• FORDÆMING
ÚR ÖLLUM ÁTTUM
Karachi, Pakistan: — Blað-
ið Morning News sagði m.a., að
líklegasta skýringin á því fram-
ferði Rússa að feta sig nú svo
tæpt á brún hyldýpisins væri
sú, að þeir hygðust „skelfa alla
heimsbyggðina" til imdirgefni.
„En slik stefna er eikki líkleg
til árangurs", bætti blaðið við.
Vínarborg: — Blaðið Neues
Österreich sagði m.a.: „Sjálfir
ntunu Rússar, svo og Kínverjar,
verða fyrir barðinu á sprengju-
rykinu, ekki síður en aðrir —
en án þess að vita það nú. Þeir
mega ekki fá vitneskju um öll
þau saklausu börn, sem munu
fæðast ýmist andvana eða van-
sköpuð og dauðsjúk eftir ein 60
ár — af því að Krúsjeff er nú,
árið 1961, að reyna að kúga heim
inn til undirgefni . . .“ — Svip-
aður tónn var í Arbeiter-Zeitung.
Blaðið sagði: „Lítt hefir Krúsjeff
gert sér grillur út af áhrifum
' geislaryksins á aðrar þjóðir —
en hann hefir jafnvel enn minni
áhyggjur af velferð sinna eigin
samborgara, að því er virðist.
Þannig hefir hann skipað sér á
bekk með fyrirrennara sínum . . .
Stalín hefði varla gengið lengra“.
Washington: — Fimmtíu banda
rískir visindam-enn hafa sent
Krúsjeff miótmæli sín símleiðis
og krafizt þess, að kjarnavopna-
tilraununum verði hætt án tafar.
Bonn: — Vestur-þýzka stjórnin
hefir opinberlega fordæmt stór-
sprenginguna á mánudag og lýst
henni sem „verulegri ógnun við
líf og heilsu mannkynsins". Jafn
framt upplýsti rikisstjórnin, að
gerðar hefðu verið sérstakar var
úðarráðstafanir vegma aukinnar
geislunarhættu í landinu.
Nýja Dehli: — Mörg i-nctversk
blöð létu í ljós mikinn kvíða
vegna áhrifa risasprengjunnar og
lýstu skelfingu þeirri, sem þetta
tiítæki hefði valdið meðal al-
mennra borgara. 1 einni ritstjóm-
argrein var talað um „dýrslega
framkamu Sovétríkjanna“ í þessu
sambandi.
Manila, Filippseyjum: — Rúm
lega 7500 stúdentar hafa undir-
ritað áskorun til Krúsjeffs um,
að hann stöðvi 'kjarnorkutilraun-
irnar — _,,áður en það er um
seinan".
París: — Blaðið France Soir
hafði það eftir Francis Perrin,
formanni frönsku kjamorku-
nefndarinnar, að risasprengja
Rússa á mánudaginn kynni beint
og óbeint að valda dauða „10
þúsund manna á næstu 30 árum“.
★
Að ofan er aðeins drepið á
örfá atriði til þess að gefa hug-
mynd um, hvernig heimurinn
hugsar til Sovétríkjanna þessa
dagana. Öll mótmælin, sem fram
hafa komið, mundu fylla stóra
bók.
eindregið upp á honum og haft í
huga að þýða hið kunna verk
hans, „Eg og þú“, á sænsku) og
Romulö Gallegos frá Venezúela.
Loks hafa ýmsir nefnt hinn
merka, japanska rithöfund, Jun-
ichiro Tanizaku, sem ekki ólík-
legan „kandídat", ef Akademían
á annað borð líti til hinna fiar-
lægari landa.
Ytri - Mongólía og
Mauritana í SÞ
New York, 25. ökt.
LANGVINNRl togstreitu
austurs og vesturs lauk
giftusamlega í Öryggisráð-
inu í dag, er ráðið mælti
með upptöku tveggja nýrra
ríkja í SÞ, Ytri-Mongólíu
og Mauretaníu.
— ★ —
Við atkvæðagreiðsluna
um Ytri-Mongólíu, sat
bandaríski fulltrúinn hjá,
en fulltrúi þjóðernissinna
á Formósu gekk af fundi.
Þegar aðild Mauretaníu
var borin undir atkvæði,
sat svo rússneski fulltrú-
inn hjá, en fulltrúi Arab-
íska sambandslýðveldisins
var á móti. — Bæði ríkin
hlutu því meðmæli Örygg-
isráðsins með 9 atkv.
— ★ —
Með þessum tveim nýju
aðildarríkjum verða hinar
Sameinuðu þjóðir 103 tals-
ins. —
— Berlin
Frh. af bls. 1
ingja í borgaralegum klæð-
um í A-Berlín.
Á einu stigi deilunnar réð-
ust bandarískir hermenn með
brugðnum byssustingjum austur
fyrir múrinn til þess að fylgja
eftir þeirri kröfu bandaríska her-
stjórans, að liðsforingjarnir
fengju að fara ferða sinna ó-
áreittir — en austur-þýzkir al-
þýðulögreglumenn höfðu krafið
liðsforingjana um persónuskil-
ríki. Það telja bandarísku yfir-
völdin algerlega óheimilt. Áust-
ur-þýzku verðirnir létu kyrrt
liggja, og hélt bifreið liðsfor-
ingjanna áfram ferð sinni austur
yfir.
Nokkru síðar gerðist svo það,
að a-þýzka lögreglan stöðvaði
tvo farþegabíla, sem ætluðu aust
ur yfir mörkin, en í bílunum
voru bandarískir hermenn og að-
standendur þeirra. Til sam-
komulags var þessum bifreiðum
snúið við, enda þótt lögð væri
áherzla á rétt þeirra til að fara
sinna ferða þar sem hér væri
tim að ræða farartæki greinilega
merkt bandaríska hernum.
Vegna þessara árekstra átti
bandaríski hernámsstjórinn, Al-
bert Watson, tveggja klst. fund
með hinum rússneska „kollega"
sínum, Andrei Solovjev. í kvöld
gaf bandaríska herstjórnin í
Eerlín út tilkynningu um fund-
inn, þar sem segir, að rússneski
hershöfðinginn hafi haldið því
fram, að einu reglurnar, sem
gildi um samgöngur inn í A-
Berlín, séu þær, sem a-þýzka
stjórnin hafi sett. Virðist því
vera hér um óleystan hnút að
ræða.
Lincoln White, talsmaður banda
ríska utanríkisráðuneytisins, stað
festi það við blaðamenn í Was-
hington í dag, að bandarísk
stjómarvöld teldu það algerlega
lögleysu að' krefjast persónuskil-
ríkja af bandarískum liðsfor-
ingjum, sem erindi eiga inn í
A-Berlín, allt eins þótt þeir séu
ekki klæddir einkennisbúningi,
ef þeir ferðast í farartæki, sem
ber merki bandaríska hersins.
IV var í um 3.300 km hæð
yfir Kanaveralhöfða, var
skotið þaðan Titan-eldflaug
til þess að reyna, hvernig
tæki þau í gervitunglinu,
sem eiga að nema infrarauða
geisla frá eldflaugaskotum,
reyndust. Starfsmaður í vís-
indastöðinni sagði, að gervi-
tunglið hefði sent boð til
jarðar um Titan-skotið 90
sekúndum eftir að eldflaugin
hófst á loft.
Að 90 sekúndum liðnum var
Titan-flaugin komin í rúmlega
60 km hæð, og sagði talsmað-
urinn, að Midas-gervitunglið
ætti raunar að geta numið hina
infrarauðu geisla frá skotinu
fyrr, en miðað við loftlagsskil-
yrði, sem ekki hefðu verið hag-
stæð, mætti árangurinn teljast
góður og í fullu samræmi við
fyrri athuganir. Hliðstæðar til-
raunir voru gerðar með gervi-
tunglið Midas III, sem sent var
á loft fyrr á þessu ári.
Spilakvöld Stefnis
HAFNARFIRDI. — Stefnir,
fél. ungra Sjálfstæðismanna,
heldur skemmtifund | Sjálf-
stæðishúsinu í kvöld. Hefst
hann kl. 8,30 með því að
Bingó verður spilað og síðan
verður kvikmyndasýning. —
Er skemmtikvöld þetta jafnt
fyrir eldri sem yngri og eru
allir velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
— Heimsbyggð-
inni....
Framh af bls. 24.
við ísland og þár með afkomu is-
lenzku þjóðarinnar.
Afleiðing þessa er sú, að enn
hefur gífurlegt magn geislavirkra
efna bætzt við og mun menga
allt andrúrnsloft jarðarinnar og
stór hafsvæði um árabil.
Úrfall geislavirkra efna frá
þessum og fyrri sprengingum
mun spilia drykikjarvatni,
jarðargróðri og þar með mat-
vælum hvarvetna, en mest I
löndum á norðlægum breidd-
argráðum, eins >g íslandi,
sem vegna legu sinnar er í
sérstakri hættu vegna afleið-
inga af kjarnorkusprenging-
um Sovétríkjanna.
Af þessum sökum hlýtur Al-
þingi íslendinga að mótmæla
þessum aðförum og taka þannig
þátt í þeim andmælum gegn
kjarnorkusprengingum, sem nú
heyrast úr öllum heimsálfum,
jafnframt því sem það skorar á
kjarnorkuveldin að hætta til-
raunasprengingum og setja ör-
uggt eftirlit með því, að þær
fari ekki fram.
DJUP lægð (970 millibar)
skammt suðvestur af Færeyj-
um hreyfist lítið úr stað og
grynnist. Lægðin veldur N-átt
hér á landi og á hafinu suður
undan. Er veður víðast all-
hvasst á þessum slóðum, en
sums staðar rokhvasst í bylj-
um. Hins vegar er SV-átt um
Bretlandseyjar og hlýtt í veðri.
Hér á landi er hlýtt í veðri
þrátt fyrir N-áttina, 5—7 st.
norðanlands, en 9—12 st.
syðra.