Morgunblaðið - 28.10.1961, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 28.10.1961, Qupperneq 6
6 MORGVHBLAÐlh Laugardagur 28. okt. 196J Haustmót Taflfélagsins hefst i dag TAFLFÉLAG Reykjavíkur hefur nú vetrarstarfsemi sína, að lokn- um aðalfundi félagsins, sem hald inn var í Breiðfirðingabúð fimmtudaginn 26. okt. Á aðal- fundinum var kjörin ný stjórn og er hún skipuð sem hér segir: Jóhann Þ. Jónsson, formaður; Guðjón Jóhannsson, gjaldkeri; Hilmar Viggósson, ritari; Jónas Þorvaldsson, skákritari; Tryggvi Arason, varaformaður (með- stjórnandi); — Áhaldaverðir: Andrés Fjelsted, Geirlaugur Magnússon og Bjöm Theodórs- son; Varamaður í stjórn: Björn Þorsteinsson. Fyrst á vetrardagskránni er Haustmót T.R., sem hefst laugar- SVEITAKEPPNI 1. flokks hjá TBK hófst í Sjómannaskólanum sl. mánudagskvöld, 23. þ.m. — Úrslit: Ólafur Gíslason vann Tryggva Gíslason (82-56) 6-0 Guðlaugur Nielsen v. Helga Jóhannsson (87-44) 6-0 Sig. Sigurkarlsson v. Hafstein Ólafsson (106-89 6-0 Runólfur Sigurðsson v. Braga Björnsson (gaf) 6-0 Næsta umferð verður spiluð í Sjómannaskólanum 30. þ. m. ENSKI spilarinn, PRIDAY, sem var í ensika liðinu, sem sigraði á nýafstöðnu Evrópumóti, ritaði grein í Sunday Telegraph fyrir nokkrum dögum. Ræðir hann þar um gerfisagnir og segir að ítal- irnir, sem eru taldir hvað verst- ir í þessum efnum, hafi alls ekki verið þeir verstu á þessu Evrópu móti. Segir PRIDAY að t. d. hafi Islendingar og FRAKKAR verið mun verri. Máli sínu til stuðnings varðandi ísl. spilarana nefnir hann spil úr leik Englands við ísland, og fer það hér á eftir. Lárus Karlsson sat Norður og hafði þessi spil: S A-K-10-7-3 H. — T. A-D-9-8-6-5 L. A-2 Guðlaugur Guðmundsson sat Suður og hafði þessi spil: S. D-G H. s-8-6-3 T. 10-7-3 L. K-D-7-5 Og nú kemur að sögnunum, sem PRIDAY telur að séu verri en sagnir t. d. ítala, hvað snertir tilbúnar sagnir. LÁRUS—GUBLAUGUR 2 Lauf—2 Tíglar 2 Grönd—3 Spaðar 4 Lauf—4 Hjörtu 6 Tíglar—Pass. Til skýringar skal þess getið að 2 Lauf er krafa um úttekt og jafn fram spurning um Ása. 2 Tíglar þýðir engann ás, 2 Grönd þýðir að spurt er um lengd í þeirn lit er síðast var sagður þ e. Tígli og 3 Spaðar þýðir að svarhönd- in hefur 3 Tígla. 4 Lauf er spurnarsögn og 4 Hjörtu þýðir að svarhöndin hefur Laufa Kon- ung. Lárus segir því 1 6 Tígla, sem er ágæt lokasögn. A.ð lokum skal þess getið að spilið vannst auðveldlega. daginn 28. okt. eða í dag í Breið- firðingabúð, uppi. Teflt verður í öllum flokkum eftir Monrad kerfi, 9 umferðir. Tíminn verður 2 klst. á 40 leiki fyrir hvern keppanda og síðan 1 klst. á hverja 20 leiki. Að þessu sinni verður teflt nokkuð þéttar en venjulega a m. k. fyrst í stað: 1. umferð 28. október ki 2 e. h. 2. umf. sunnudag 29. okt. kl. 2, síðan biðskákir á þriðjudags- kvöld kl. 8., 3. umf. miðvikudags kvöld kl. 8. 4. umf. fimmtudags- kvöld kl. 8, síðan biðskákir á föstudagskvöld kl. 8. 5. umferð laugardag kl. 2. 6. umferð sunnu- dag kl. 2. Siðan biðskákir mánu- dagskvöld kl. 8. 7. umferð laug- ardag kl. 2. 8. umferð sunnudag kl. 2. Biðskákir þriðjudag kl. 8. 9. umferð laugardag kl. 2 og siðan biðskákir sunnudag kl. 2. Hvenær verðlaunaafhending fer fram verður ákveðið meðan á mótinu stendur. Birt verða úrslit hverrar umferðar svo fljótt sem auðið er. í vetur er ætlunin að taka upp þá nýjung að halda regluleg hraðskákmót með hálfs mánaðar eða þriggja vikna fresti, og að öllum líkindum keppt um verðlaunagrip sem vinnst til eignar eftir að sami maðurinn hefur sigrað nokkrum sinnum í röð eða þá fleiri skipti í heild (t. d. 5 sinnum í röð eða 10 sinnum í allt). ÞESSI skemmtilega mynd var «<?* tekin á barnaskemmtun Leik- ' félags Reykjavíkur í Háskóla- bíói á sunnudaginn var. Börn- in taka þátt í því sem fram fer á sviðinu og syngja með skemmtikiröftunum „Fram og til baka . . Það fer ekki milli mála að þau eru með af lífi og sál, enda var salurinn þéttskipaður börnum og und- irtektir mjög góðar. Sýníng á listakeramik NÝLEGA er lokið í Washington borg í Bandaríkjunum alþjóð- legri sýningu á listkeramik hinni áttundu í röðinni (International Exhibition of Ceramic Art). Að tilhlutan vörusýningarnefndar tók eitt íslenzkt fyrirtæki, Glit hf., þátt í sýningunni, en hlut- irnir, sem sýndir voru eru unnir af keramiklistamönnunum Ragn- ari Kjartanssyni og Steinunni Marteinsdóttur. . Sýning fór fram í Smithsonian Institution á vegum fklagsskap- ar um listkeramik — the Kiln Club of Washington. Sýningin þykir merkisviðburð- ur í listalífi Bandaríkjanna og er einhver viðurkenndasta sýn- in,g í þessari listgrein, sem stofn- að er til og taka ávallt þátt í henni margir heimsþekktir lista- menn. Þetta var í fyrsta skipti, sem íslenzkir aðilar taka þátt í þess- ari sýningu og í fyrsta skipti, sem íslenzkir keramikmunir fá samanburð við það bezta, sem er að finna á þessu sviði í dag. Fullyrða má, að þessi fyrsta tilraun hafi tekizt ágætavel. Hinna íslenzku listamanna og listmuna var mjög lofsamlega getið og talar listagagnrýnandi The Washington Post um frá- bærlega gott framlag íslands til sýningarinnar. Er íslands ásamt fjórum öðrum af samtals 17 þátt- tökuþjóðum getið sérstaklega lofsamlega. Segir svo orðrétt í listdómnum: skálar eftir listamennina Ragn- ar Kjartansson og Steinunni Marteinsdóttur. Munir þessir eru einfaldir í formi, skreyttir „Af öðrum löndum, sem tóku þátt í sýningunni, sendu ísland, írland, Svíþjóð og Japan frá- bærlega góða gripi. ísland sendir eingöngu stóra vasa, diska og abstrakt munstri í dempuðum litum, allt sérlega (excellent) smekklegt." Fréttatilkynning frá vörusýningarnefnd. Vandamálið við höfnína I TILEFNI af frásögn í Mbl. 15. okt. sl. undir fyrirsögninni: „Skæruhernaður við höfnina“, tel ég nauðsynlega að eftirfarandi komi fram: 1 frásögninni segir sjáanlega vegna ókunnugleika, að verkamenn hjá Eimskip hefji vinnu kl. 7,30 á sumrin en kl. 8 eftir 1. okt. og vinni því ekki af sér laugardagstímann eftir há- degi. En sannleikurinn er hins vegar sá, að verkamenn hjá Eim- skip byrja að vinna kl. 8 allan ársins hring, einnig á sumrin en fá borgað helgidagakaup eftir há- degi é laugardögum ef unnið er á tímabiiinu frá 1. maí til 30. sept. Það er samskonar fyrirkomulag sem uppskipunarverkamenn vilja einnig eftir -. okt. á þeirri for- sendu að þeir séu ekki fastráðn- ir hjá félaginu og hafa þar af leið endi ekki stöðuga vinnu yfirleitt. En hins vegar er atvinnurek- andi ekki skyldugur samkvæmt samningi að hafa menn í vinnu sé vinna ekki fyrir hendi og get- ur þá krafist að vinna á tímabil- inu frá 1. okt. til 1. maí sé innt af hendi á tímanum 8—5 alla virka daga vikunnar nema öðru vísi sé um samið. Þar sem verkamenn skila ekki nema 44 tímum í dagvinnu, á viku hjá félaginu frá 1. maí til 30. sept. og t. d. mönnum í vöru- skálunum sagt að fara heim e.h. á iaugardögum eftir 1. okt. vegna verkeínaskorts. Þá tapast því 4 tímar £ dagvinnu og greiðsla sem því nemur eins og á sumrin. En þetta tap er hægt að fyr- irbyggja með afvinnslu á eftir- faranai hátt: Með því að hefja vinnu kl. 7,45 f.h., stytta kaffitímann frá ki. 9,40—10 um fimm mínútur og verði því frá 9,4-5—10. Eg vil helst ekki að hann sé felldur niður vegna þess að menn koma jafnvel næringarlausir að heiman. Þá mætti fella niður kaffitímann milli kl. 3,30—3,50. Sé hins vegar unnin yfirvinna þá geta menn, ef þeir óska með samkomulagi við viðkomandi at- vinnurekendur, fengið kaffitím- ann írá kl. 5—5,15 enda yrði hann þá greiddur einfaldur, þar sem hann yrði ekki unninn. Með þessu fyrirkomulagi vinnst að helgidagakaup yrði greitt eft- ir hádegi á laugardögum allt ár- ið, sama tímafjölda skilað upp á mínútu eins og þegar byrjað er kl. 7,20. Eins og frá greinir í samning- unum í 2. grein: A timabilinu frá 1. maí tii 30. sept. skal dagvinnu lokið kl. 11,40 á laugardögum ef vinna er hafin kl. 7,20 o. s. frv. Að lokum segir: Heimilt er að haga vmnutíma á þennan hátt allt árið ef vinnuveitandi og verkamaður koma sér saman um það. Miðað við núverandi ástand gæti ég helst fellt mig við þann hátt, sem ég nú hefi lýst Halldór Þ. Briem. LEIÐRÉTTING EITT orð féll niður úr grein Sigurðar Magnússonar frá Eski- íirði í Mbl. í gær. Rétt er setn- mgin þannig: Einna athyglis- verðast fannst mér útreikningur hans á hlutfallslegum aflahlut togaranna miðað við aflahlut bátanna í fiskveiðum okkar landsmanna. • Slysahætta • Bach eftir Schweitzer Tónlistarunnandi skrifar: Vegna þess, hve Ragnar Jónsson er göfugur og óeigin- gjarn listvinur. langar mig að biðja yður að koma á fram- færi þeirri áskorun til hans, að hann gefi út á íslenzku ævisögu Bachs eftir Albert Sehweitzer — þá bók, er hann reit á þýzku. Sú bók er lykill að verkum Bachs, og tónlist Bachs er lyk ill að allri sannri hljómlist. Ég man, er Arni Kristjánsson þýddi og las í útvarp ævisögu Bachs eftir Forkel. Ég hef saknað, að bók Forkels var ekki gefin út á íslenzku, er hún hafði verið þýdd á svo hreina og vandaða íslenzku. Vildi ég helzt skora á Arna Kristjánsson að þýða þessa ævisögu líka og á alla unn- endur Bachs að styðja að þess an framkvæmd. Bók Schweitz ers er ómetanleg til að auka skilning og ást á verkum hins mikla og göíuga meistara, og sá, er stuðiaði að því, að ís- lenzka þjóðin lærði að hlusta á og njóta í ríkara mæli tón- listar Bachs, hann gæfi þjóð sinni mikla gjöf. Sá, er fær notið tonlistar Bachs, hefur öðlazt hlutdeild í því æðsta og fegursía í menningu og list, sem heimurinn hefur eignazt. Ljós himinsins streymir yfir mannssálina í hljómlist Jo- hanns Sebastians Bachs. Og Vesturbæingur skrifar: Tvisvar hefir Velvakandi, með ára millibili, léð mér rúm í dáÍKum sínum til þess að vekja athygli á þeirri hættu er vegfarendum stafar af trjám með fram strætum þeg- ar gremar eru svo síðar að ekki sé hæstu mönnum gengt undir þær laufgaðar og ólaufg aðar. Og vitaskuld eru grein- arnar til muna síðari á sumrin, þegar iaufið þyngir þær niður. Ekki mun bendingin hafa haft minnstu áhrif, og enginn tók heldur undir hana. En núna nýlega sýndi einhver þé menn- ingu og ábyrgðartilfinnmgu að minna á þessa hættu. Lík- lega var það i dálkum Velvak- anda en ekki man ég það fyrir víst. Þeir menn eiga þakkir skilið sem prýða bæinn með trjá- gróðn — en einungis svo lengi sem ekki stafar hætta af þeirri fegiun. Hætta af henni er aug ljós og óumdeilanleg þegar gkngandi fólk verður sökum trjánna að fara út á akbraut- ina. favo er þó hreint ekki óvíða núna, og furða að lög- reglan skuli láta það mál af- skiptalaust. Við kunnum ekki enn að fara með trjágróðurinn, t. d. ekki að kllppa tré svo að jafn væg', s -’mmetri, sé í toppnum eða krónunni. Mörg tré eru hér lytt fyrir þetta skeytingar- ieysi. V esturbæingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.