Morgunblaðið - 28.10.1961, Page 17

Morgunblaðið - 28.10.1961, Page 17
Laugardagur 28. okt. 1961 M ORCVNBL AÐIÐ 17 _^^:g:;:i Fólk hópast inn Á þriðja hundrað manns flaug þar yhr í gær — sæluhusið í Herðubreiðalindum fullskipað — Ekkert lát á Öskju Framh. af bls. 1 mestur. Tryggvi segir að upp úr honum hafi staðið allt að 400 metra há stöðug eldsúla, en gos hafi verið minni úr hin- Um gígunum og misjöfn. Gufu- og leirhverirnir, sem fyrst varð vart við á sínum tíma, er umbrotin hófust í Öskju, eru um það bil hálfan kílómetra frá hraungígunum, í átt að Öskjuvatni, og virðast þar enn gufu- og vatnsgos að sögn Tryggva. Hafa þau heldur aukizt en hvergi sá Tryggvi þar þó í eld. Ekki sá Tryggvi neinar breyt- ingar í Víti. Hraunið rennur í austur Tryggvi sagði að hraunstraum- urinn út um Öskjuop væri mjög breiður og rynni hann meir í austurátt en í fyrstu hefði verið aetlað. Virtist Tryggva hraunið vera 9—10 km langt, og sagði að af því, sem hann hafj getað ráð- ið í ferðum sínum þremur að Öskju í gær, hafi hraunstraum- urinn lengst um allt að 100 metr- uin á klukkustund. Meginhluta leiðarinnar, sem hraunið rennur var það rauðgló- andi, að sögn Tryggva, en aðeins við jaðrana og fjærsta endann var það dekkra. Þar sem hraun- jð snerti snjó, stigu upp miklir gufumekikir. Tryggvi sagði að ihraunið rynni ekki í átt að öskju vatni eins og í fyrstu var haldið að það e.t. v. gerði, heldur ein- vörðungu út um öskjuop. Er hann flaug niður að gíg- unum sjálfum var hitinn svo mikill, að þrátt fyrir að flug- vélin væri alllangt frá gígun- um og vindur stæði af henni á gígana, var hitinn svo mikill inni að nær óbæriiegt var. „Mikið lán“ Blaðamaður Mbl., Elín Pálma- dóttir, átti tal við Sigurð Þór- arinsson jarðfræðing á Aikureyri í gær eftir að Sigurður hafði flogið yfir öskju með Birni Páls- syni og fleirum um tvöleytið í gær. „Það var mikið lán að sjá þetta í nótt, því að í dag var miklu minna að sjá. Skýjað var og við eáum aldrei ofan í gígina, en á flugvél Björns gátum við stungið okkur undir skýin og séð hraun- rennslið“. Sigurður sagði að þá hafi hraun gosið verið miklu minna en nótt- ina áður er hann flaug með frétta imiönnum Morgunblaðsins yfir öskju, nema ef vera kynni að gosið hefði eitthvað breytt sér og rynni inn í öskjudal, en þang- að komst flugvélin ekiki. Sigurður sagði að hraunflóðið hefði lítið lengzt frá nóttin,ni áð- ur, en hins vegar breitt úr sér. Þótt minna væri að sjá en nótt- ina áður sagði Sigurður að vafa- laust mundi glytta laglega í glóð- ina að næturlagi. Mikil gufusúla Sígurður hélt ásamt fleiri jarð fræðingum áleiðis að Öskju síðd. í gær og var ætlunin að aka dagfari og náttfari að gosinu. Edvard Sigufgeirsson ljósmynd ari, flaug með Tryggva Helga- syni yfir Öskju á 11 tímanum í gærmorgun. Var þá lágskýjað, en Tryggvi náði þó að komast undir skýin. Komst flugvélin all nærri gosinu og að sögn Edvards sáu iþeir rauða eldstólpa leggja 150 metra í loft upp. Gufusúlu bar við heiðann himin í 12 þúsund feta hæð. Hraunhellur byltast Björn Pálsson, sem flaug með Sigurð síðar um daginn, saigði að hraunstraumurinn hafi þá lítið lengzt frá því í gær .Hafi hann allur verið svartur að sjá, utan þegar hraunhellur byltust ofan á honum, en þá hefði sézt í rauð- glóandi hraunleðjuna undir. Björn sagði að þeir hefðu lit- ast um eftir því sem hægt var í góða stund, en þeim hefði síðan komið saman um að ekkert væri frekar að sjá þarna í bili. Hins vegar hefði verið sjáanlegt á gufumekkinum yfir öskju að þar hafi verið áframhaldandi gos. Um 260 manns fóru með flug- vélum Flugfélags Islands í gær og fram á nótt að skoða Öskju- gosið. Lagði síðasta vélin af stað klukkan eitt í nótt. Fullskipað var í allar ferðirnar. Dimmt var ytfir öskju síðdegis í gær og lágu ferðirnar niðri um tíma, en veð- ur fór batnandi með kvöldinu. Er Morgunblaðið vísísí síðast til í nótt var allt með svipuðum hætti í öskju, og hraungosið enn í fullum gangi. MIKILL fjöldi manna brá sér á loft í gær og flaug inn að Öskju. í gærkvöldi var vitað um 241 mann, sem flaug frá Reykjavík; Flugfé- lag íslands fór fjórar ferðir með samtals 220 farþega, og — Þriggja mann- hæða Framhald af bls. 1. Þriggja mannhæða hraun Við keyrðum framan við hin ar kvíslarnar, sagði Pétur. — Hraunjaðarinn er þar þriggja mannhæða hár og hrapar stöð- ugt úr lionum. Yzt er svört skorpan, en, þegar hún ryður fram af sér skín í rauðgló- andi hraunið undir. 1 rökkr- inu var þetta á að líta eins og séð væri yfir stórborg. Alltaf annað slagið komu hvítir gufu mekkir upp úr hrauninu og einnig kolsvartir. í útliti er hraunið eins og Nýjahraun á Mvvatnsfjöllum. Talsverður snjór er þarna innfrá og liggur hanu alveg að lirauninu. Öskjuop fullt milli hlíða Hraunið var búið að fylla Óskjuop milli hlíða og rennur nú meira norður úr. Við mættum 13 bílum á leið- innj heim sagði Pétur, og tarði það nokkuð ferð okkar af því að öllum þurftum við að segja eitthvað. Annars verð ég að segja, sagði Pétur, að ég er feg- inn því að vera kominn heim aftur, því stórhætta getur ver- ið þarna á ferðum, ef veður versnar eitthvað. Talsverður snjór er yfir öllu og má ekki miklu á bæta til þess að leiðin verði ófær. ^ Þrjár kindur 1 lok frásagnarinnar kom bóndinnn upp í Pétri: — Við fundum þrjár kindur í Herðu- breiðarlindum í gær, sagði hann, og settum þær í gamla kofann hans Eyvindar. — Þær verða sóttar þangað á morgun. var fimmta flugferðin á- kveðin klukkan hálf eitt um nóttina. Bjöm Pálsson fór eina ferð með sex farþega og Þytur fjórar með fimmtán farþega. Tryggvi Helgason flaug þrjár ferðir frá Akur- eyri með samtals 12 farþega. ★ Guðmundur Jónasson lagði af stað í gærdag með tvær bifreiðir frá Reykjavík og var farþegatala hjá honum milli 40 og 50 manns, þar á meðal um 10 jarðfræðingar og vísindamenn. Frá Akureyri lögðu af stað þrír jeppar upp úr hádeginu, og voru í þeim dr. Sigurður Þórarinsson, jarðfræð- ingur, Guðm. Sigvaldason, jarð- fræðingur; Árni Stefánsson, bif- vélavirki; Þorleifur Einarsson, jarðfræðingur; Jón Sigurgeirs- son, Helluvaði; Kári Sigurjóns- son, formaður Ferðafél. Akur- eyrar o. fl. og ætluðu þeir að Kom frá og gifti síg BLAÐAMENN Morgunblaðs- ins þurftu mikið að tala við Xryggva Helgason, flugmann á Akureyri, í gær, en eins og kunnugt er sá han<n eldgosin í Öskju manna bezt í gær og tok af þeim frábærar Ijós- myndir, sem birtast í blaðinu í dag. Gekk vel að ná í Tryggva fram eftir degi, en undir kvöldið týndist hann, og var ek.ki hægt að ná til hans um hrið. Seint í gærkvöldi kom skýr- inigin: Tryggvi hafði verið að gifta sig þann tíma, sem ekki var hægt að ná til hans. Heitir kona hans Petra Konráðsdótt- ir, ljósmóðir, Sjúkrahúsi Ak- ureyrar. Morgunblaðið sendir brúð- hjónunum beztu árnaðaróskir. að Úskju reyna að komast að hrauninu í nótt. Samtals munu hafa farið átta bílar frá Akureyri, tveir frá Húsavik og sömuleiðis nokkrir jeppar úr Mývatnssveit. ★ Ferðaskrifstofan ,,Lönd og leið ir“ ráðgerði að fara með tvær fullskipaðar langferðabif- reiðir kl. 8 í morgun. Skipta far- þegamir um bifreiðir í Mývatns- sveit og aka í fjallabílum inn að hrauninu. „Lönd og leiðir“ ráð- gerir fleiri ferðir inn að Öskju næstu daga. Guðmundur Jónas- son taldi í gær, að ekki væri útilokað að hann færi aðra ferð SL. MIÐVIKUDAG voru bænd-1 urnir Guðjón Jónsson, Litlu-; Ávík og Gunnar Eiðsson, Víði-j nesi, að bera saman rekavið á Reykjanesströnd. Allt í einu sáu þeir mink koma út úr holu. j Bændurnir drápu minkinn eftirl talsverðan eltingaleik, auðvitað með rekavið því þeir böfðu ekk- ert annað i höndunum. — Mink- ur sást hér fyrst fyrir 4—5 ár- um milli Reykjarfjarðar og Neitar að hætta Moskva. 27. okt. — (AP). f DAG var birt bréf frá Nikita Krúsjeff til leiðtoga ýmissa 1 þjóða og bandarískra vísinda manna— þeirra á meðal Lin-1 us Paulin — sem hafa sent | honum mótmælabréf vegna kjarnorkutilrauna þeirra. í bréfi sínu neitar hann ein- dregirum bónum þessara aðúa um að stöðva irú þegar til- raunir með kjarnorkuvopn. j Segir þær nauðsynlegar vörn-1 um Sovétríkjanna vegna hins mikla herbúnaðar Vest- urveldanna og storkandi stefnu þeirra í heimsmálum. Meðal þeirra sem fengu slík bréf frá sovézka forsæt- isráðherranum voru Kwame Nkrumah forseti Ghana og Ikeda, farsætisráðherra Jap- ans, en báðir höfðu beir harð lega mótmælt sprengingum Rússa. GÍGARNIR fimm eldspúanði í Öskju. Ljósan gufumökk leggur af gosinu, en hann náði í allt að fjögurra kílómetra hæð í gær. Að baki eldstöðv- anna. begg.ia megin gufu- stróksins, sér í sjálft Öskju- vatn. — Tryggvi Helgason tók bessa mynd úr flugvél sinni i klukkan fiögur í gærdag. 1 í dag. Þá áætluðu Skagfirðingar að fara í hópferð í nótt eða snemma í mo-rgun inn að Öskju. Ferðaþjónusta stúdenta befur ákveðið flugferð kl. 8 í kvöld, og veitir stúdentum afslátt á far- gjöldum. Einnig fyrirhuga þeir að fara landveg inn að Öskju síðdegis í dag og koma aftur að- faranótt miðvikudags. Þe=s má geta, að Sæluhúsið i Herðubreiðarlindum mun nú vera fullskipað, og færri komast þar að en vilja á morgun. Naustvíkur, og drap Kjartan Guðmundsson, Naustavík, þrjá minka þá með skömmu milli- bili. — Síðan hefur ekki sézt hér minkur fyrr en á Reykja- nesströnd í fyrradag. Þess má geta að Reykjanes hefur verið í eyði s.l. tvö ár og hafa fyrrgreindir bændur Reykja nes á leigu. Þeir Gunnar og Guð jón segja að mikið af holum hingað og þangað um hagann og héldu þeir að það væru músa- holur. Þess má einnig geta, að þar hefur verið talsvert varp svartbaks og ýmissa fugla, en s.l. tvö vor hafa fuglar ekki orp- ið á þessum slóðum. Er mér að detta í hug að minkur muni hafa verið kominn þarna fyrir tveim- ur árum. — Regína. Erlendar flug- • • vélar við Oskju Flugmálastjórnin sendi í fyrrakvöld skeyti til allra þeirra landa, sem flugsam- göngur hafa yfir Island eða nágrenni, og varaði flugvél- ar við að fljúga innan 25 mílna radíus frá Öskjusvæð inu vegna eldgossins, en gos- mökkinn leggur há.tt í loft upp eins og kunnugt er. Minkurinn unninn með rekaviði á Ströndum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.