Morgunblaðið - 28.10.1961, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 28.10.1961, Qupperneq 23
Laugardagur 28. okt. 1961 MORCVTSB1 ÁÐlb 23 — Vísitalan Frh. af bls. 8. rót sína a'ð rekja til kauphœkk- ana, til gengislækkunarinnar síð- ustu, til hækkaðrar álagningar, sem leyfð hefur verið á vörum og þjónustu og til annarra á- stæðna. Kauphækkanimar hækka vísitöluna um 5,1 stig, en 1,2 stig af þessum 5,1 stigi eiga rót sína að rekja til kauphækkana við vörudreifingu, sem taka varð tillit til með hækkaðri álagningu í krónum. Gengislækkunin hækk ar vísitöluna um 6,1 stig; 0,7 stig af þessu 6,1-stigi eiga rót sína að rekja til hækkaðs rekstrar- kostnaðar við vörudreifingu vegna gengislækkunarinnar, eh til þessa aukna rekstrarkostnað- ar hefur orðið að taka tillit í álagningu. Visitalan hækkar um 0,4 stig vegna þess að álagning hefur verið hækkuð nokkuð um- fram það, sem beinlínis leiddi af kauphækkunum og gengis- lækkuninni. Fjölskyldubætumar lialda hækkun í skefjum ÝmscLr aðrar ástæðUr valda þvi, að vísitalan hækkar um 3,6 stig, svo sem fiskverðshækkun í ágústmánuði, annarsvegar vegna hærra fiskverðs til skipa frá byrjun vetrarvertíðar 1961 og hins vegar vegna hækkaðrar élagningar, vegna hækkunar á útsvarshlið vísitölunnar, á al- mannatrygginga.gjaldi og kirkju- gjaldi, vegna hækkunar á verði dagblaða, á strætisvagnagjöld- um, hitaveitu o. fl. urnfram það, sem telja má beina afleiðingu kauphækkana og gengislækkun- ar. Ennfremur er hér um að ræða hækk-un á landbúnaðar- vöruverði vegna hækkunar á svonefndu kaupi bóndans, grund velli landbúnaðarvöruverðs, í kjölfar hækkunar tekna verka- manna, sjómanna og iðnaðar- manna. Þessar hækkanir nema samtals 15,2 stigum, en frá því dregst væntanleg hækkun fjöl- skyldubóta um 13,8 sem svarar til 1,2 stiga, þannig að nettó- hækkun vísitölunnar verður 14 stig, svo sem ég gat um áðan. Af þessum 14 stigum, sem vitað er nú um, að vísitalan muni hækka umfram það, sem hún var 1. júli sl. eiga 10,4 stig rót sina að rekja til kaup- hækkunarinnar sl. sumar, sem nam 13—19% og gengisbreyt- ingarinnar í ágúst. En þessi 10,4 stig fást þannig, að verð- hækkunin brúttó nemur 11,6 stigum, en frá því verður að draga 1,2 stiga lækkun á vísi- tölunni vegna hækkaðra fjöl- skyldubóta, sem nema 13,8%. Tilraun til rangfærslna í stuttum orðaskiptum, sem að þessum upplýsingum gefnum áttu sér stað milli ráðherra og fyrirspyrjanda, Lúðvíks Jósefs- sonar, reyndi sá síðarnefndi að halda því fram, að tölumar sýndu hækkunina af völdum kauphækkananna aðeins 3,9%. Vísaði ráðherra því gjörsamlega á bug og kvað fráleitt að ætla að túlka þær svo. Ennfremur vakti ráðherrann athygli á, að kauphækkanirnar hefðu almennt numið 13—19%, en sú hækkun, sem þær — og afleiðing þeirra gengislækkunin yllu á vísitölunni næmi, sam- kvæmt framansögðum upplýs- dngum Hagstofunnar, 10,4%. Eft- ir stæðu því hjá þeim, sem minnsta launahækkun hefðu fengið, a. m. k. 1,6%. önnur atriði, sem þátt ættu i hinni 14% hækkun framfærsluvísitöl- unnar, hefðu verið fyrirsjáan- leg — og komið til framkvæmda, hvort sem kaup hefði hækkað eða ekkL 800 tunnur til Keflavíkur Keflavík, 27. okt. ÞRIR bátar komu hér i dag með samtals 800 tunnur af síld, sem öll fer í söltun. Bátarnir eru Ingi- ber Olafsson, 450 tunnur, Manni 150 tunnur og Hilmir 200. Síldin véiddist á svipuðum slóðum Og verið hefur undan JöklL Saturnus eldfiaug skotið á loft Vel heppnuð tilraun, er stærstu eldflaug heims var skotið frd Kanaveralhofða Canaveralhöföa, 27. ókt. (AP) BANDARÍKJAMENN skutu í dag á loft eldflaug af gerð- inni Saturnus — hinni stærstu eldflaug, sem vitað er að gerð hafi verið í heim- inum til þessa. — Tilraunin heppnaðist mjög vel og hef- ur með henni verið stigið stórt skref í áttina til þess áfanga að senda mann til tunglsins. Það vonast Banda- ríkjamenn til að geta gert fyrir lok þessa áratugs. Saturnus-eldflaugin er tvö- fallt öflugri en öflugustu eld- flaugar Sovétríkjanna og þrefalt öflugri en aðrar öfl- ugustu eldflaugar Bandaríkja manna. Flauginni var skotið á loft frá Canaveralhöfða að viðstöddum fjölda vísindamanna, frétta- manna og annarra áhorfenda. — Meðal vísindamannanna voru þýzkfæddu vísindamennirnir Kurt Debus og Hans Griine, sem meðal annars hafa haft forystu um smíði eldflaugarinn- ar — og einnig var þar staddur Vemer von Braun. Saturnus-flaugin vegur rúmar 460 lestir I þetta sinn var að- eins notað fyrsta þrep flaugar- innar og mun væntanlega taka þrjú ár að fullkomna hana svo að hún geti flutt byrðar út í geiminn. —★— Þessi fyrsta Saturnus-flaug Söfnun hondn Sveini Þormóðs sym HUSVERÐIRNIR að Háloga- landi, Agnar Jónsson og Gunn- ar Guðmannsson hafa nú beitt sér fyrir söfnun til handa Sveini Þormóðssyni. _ Sveinn var starfsmaður íþróttavalla og Hálogalands áður en hann brenndist við ljósmyndatöku í Eyjum. Hefur Sveinn síðan legið þunga legu og á fyrir höndum langan atvinnumissi — utan það að hann getur að litlu leyti tekið upp ljósmynid- un aftur, en einmitt fyrir ljós- myndun er Sveinn þekktast- ur — og landskunnur. Sveinn á stórri fjölskyldu fyrir að sjá og hefur löng lega og framundan lanigur tekju- missir gert honum erfitt fyrir. I ávarpi sem húsverðirnir haía látið prenta segja þeir að söfnuninni eigi að ljúka fyrir mánaðamótin nóv.—des. Heita þeir á allt íþróttafólk og aðra að leggja í sjóðinn, sem verður að Hálogalandi. Þar skrifa meiui nöfn sín en enga upphæð — svo allir eru óháðir með framlög. verður merkt C-l. Hún hefur nær tveggja milljóna punda upphafsþrýsting og annað þrep hennar 90 þús. punda þrýsting. Er áætlað, að hún geti flutt fullbúin 20 þúsund punda farm Nýjungar í lax- íiskaeldi Á SAMKOMU Hins íslenzka náttúrufræðifélags í 1. kennslu- stofu Háskólans næstkomandi mánudagskvöld kl. 20,20, mim mag. scient. Þór Guðjónsson, veiðimálastjóri, flytja erindi um laxfiskaeldi í Bandaríkjunum. Þór er nýkominn heim eftir árs- dvöl þar í landi við að kynna sér nýjungar á þessu sviði, m.a. hinar gagnmerku kynbótatil- raunir á laxfiskum, sem kennd- ar eru við próf. Donaldson við Washingtonháskóla í Seattle. — Slíkar kynbætur hafa þegar gefið mjög góða raun og eru einkar athyglisverðar fyrir þá, sem hafa áhuga á fiskirækt í ís- lenzkum vötnum. umhverfis jörð eða átta þúsund pund af rannsóknartækjum. — iiin endurbætta gerð, sem merkt verður C-3 mun hafa 3—4 milljóna punda upphafs- þrýsting, annað þrepið 800 þús. punda þrýsting og hið þriðja 90 þús. punda þrýsting. Sú flaug mun geta borið 45 þús. punda farm umhverfis jörðu, flutt Apollo-geimskip til mánans og margar lestir vísindatækja til mánans, Marz eða Venusar. Gangi allt að óskum, verður flaugin látin flytja þriggja þrepa geimskip umhverfis jörðu árið 1964—65. Saturnus-flaugin, sem send var á loft í dag fór fyrst í 150 km hæð, en sveigði síðan og fór um 300 km vegalengd yfir Atlantshaf. Hún kom niður 11 km frá tilætluðum stað. Flaug- in er á hæð við 16 hæða hús og hin dýrasta, sem til þessa hefur verið smíðuð í Banda- ríkjunum. 25. sprengjan Washington. 27. okt. (NTB-AP). RÚSSAR sprengdu enn í dag kjarnorkusprengju við Novaja Semlja og er það 25. tilraun þeirra síðan 1. september s.l. Sprengjan var lítil — undir meðalstyrkleika, a‘5 því er kjarn orkumálastofnun Bandaríkjanna tilkynnir. Rafstreng- ur til Eyja INGÓLFUR Jónsson, raforku- málaráðherra, skýrði frá því á Alþingi í gær, að ekkert virtist nú því til fyrirstöðu, að á kom andi sumri verði lagður raf- strengur til Vestmannaeyja. Áformað hafði verið, að streng urinn yrði lagður á _ síðasta sumri, en afgreiðsludráttur og nýjar athuganir, sem leiddu í ljós möguleika á að hafa strenginn mun styttri en ráð var fyrir gert — urðu til þess að fresta málinu. Mun streng- urinn nú væntanlega verða um 12,5 km í stað 18,5, sem spara mun verulegt fé, jafnvel 3—4 millj. kr. Mánuðirnir júlí <}g ágúst eru taldir heppileg- astir til lagningar strengsins. Upplýsingar sínar gaf ráð- herrann til svars við fyrir- spurn frá nokkrum þingmönn um Suðurlandskjördæmis, sem áður hafði verið getið hér í blaðinu. — Borgarafundur Framhald af bls. 13. ar hefði komið á daginn, að meðan rússnesku fulltrúarnir í Genf teygðu lopann og eyði- lögðu tilraunir til samkomu- lags, voru þeir önnum kafnir við að undirbúa þær 23 spreng- ingar, sem nú hafa verið gerð- ar. Þannig væri einlægni komm- únista í því máli, sem mest skipti öryggi og velferð alls mannkyns. Þá sagði ræðumaður, að vegna hinna miklu tilrauna Rússa, mætti búast við. að Vesturveldin sæu sig knúin til að taka einnig upp nýjar kjarn- orkuvopnatilraunir. Og enda þótt Krúsjeff setti aftur upp vængi friðardúfunnar á morgun, þá gæti hann ekki stöðvað eftir- leikinn af því ódæði, er hann hefði framið. Islendingar taka í dag undir mótmæli frjálsra manna um all- an heim: Við krefjumst þess, sagði ræðumaður, að stórveldin geri með sér samkomulag um afnám á öllum tilraunum með kjarnorkuvopn og tryggi það bann með öflugu eftirliti. Játa Kínverjar klofn- ing kommúnismans? Margt þykir nú benda til þess í Peking, að | opinberrar tilkynningar um hugsjóna- dgreininginn sé að vænta innan skamms Peking, 26. okt. (NTB-Reuter) ÞAÐ ER álit kunnugra ,,diplómata“ hér, að þess muni nú skammt að bíða, að kínversk stjórnarvöld greini opinberlega frá klofningi heimskommúnis- mans. — Menn gera því nú sem sagt skóna, að eftir að hafa þrætt fyrir það í 16 mánuði, að slíkur klofn- ingur eigi sér stað, muni Pekingstjórnin nú ætla sér að skýra skorinort frá því, að hún styðji Albaníu gegn Krúsjeff og fylgifiskum hans, sem mjög hafa úthúðað stjórn Albaníu á flokksþinginu í Moskvu. ★ ATHYGLISVERÐAR STAÐ- REYNDIR ING ENGIN SKYR- Það vakti athygli, ©r Sjú En-lai, forsætisráðherra Kína, hvarf af flokksþinginu á dögun- um og hélt heimleiðis — og sömu leiðis sú staðreynd, að hinir kín- versku fulltrúar hafa ekki fylgzt með öðrum erlendum fulltrúum á flokksþinginu, sem nú eru á skemmtireisu um Rússland, held- ur tekið sig út úr og haldið til Leningrad. Blöðin í Peking hafa enga skýringu gefið á þessu. Þá hafa menn einnig furðað sig á því, að stjómarmálgagnið hér, „Alþýðudagblaðið“, hefir birt orðrétt árásarræðu Krúsjeffs gtgn Albaniu — svo og svar al- bönsku kommúnistastjórnarinn- ar. Kvöldblöðin birta í kvöld með stórum fyrirsögnum fréttina um heimsókn kínversku fulltrú- anna í Leningrad, sem fyrr get- ur. Þau hafa einnig á forsíðum sínum myndir af albönskum iðn- aðar- og landbúnaðarverkamönn um — og fyrirsagnimar á svari albönsku kommúnistanna til Krúsjeffs eru í þeim dúr, að AI- bania sæki fram til uppbygging- ar sósíalisma — og að þjóðin standi óskipt að baki flokknum. ★ Af þessu og fleiri atriðum draga margir þá ályktun, að stjómarvöldin séu að búa fólkið undir opinbera tilkynningu um hugsjónaklofning hins alþjóðlega kommúnisma. Vorboða-fundur HAFNARFIRÐI: _ Vorboð- inn heldur fund í Sjálfstæðis- húsinu á mánudagskvöld kl. 8,30. f ram fara venjuleg fund arstörf og siðan verða skemmti atriði, spurningaþáttur o. fL Kaffi verður framreitt. Félagsmönnum úr Fram, Þór og Stefni er boðið á fund- -K SPILAÐ verður bingó í Hótel Akranesi sunnudaginn 29. okt. kl. 8,30 stundvíslega. Glæsileg verðlaun. Dansað til klukkan eitt. —

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.