Morgunblaðið - 02.11.1961, Blaðsíða 1
24 síður
48. árgangur
248. tbl. — Fimmtudagur 2. nóvember 1961
Prentsmiðja Morrjunblaðsins
Flugslys
48 manns farast í Brasilíu
Rio de Janeiro, 1. nóv. (AP)
AÐ minnsta kosti 48 manns
létu lífið í flugslysi við borg-
ina Recife í Brazilíu í dag.
Flugvélin, sem var af gerð-
inni DC-7 og eign flugfélags-
ins Panair do Brazil, var á
leið frá Lissabon til Rio de
Janeiro. Fregnum ber ekki
saman um það hvort 85 eða
Þegja um
orlog
Stalíns
BERLÍN. 1. nóv. (AP) — Þótt
lík Stalíns haíi nú verið gert
útlægt úr grafhýsi beirra Len
íns við Kreml, hafa Austur
Þjóðverjar enn ekki gripið til
neinna hefndarráðstafana
gegn hinum fallna foringja.
Koparstytta af Stalín stend
ur enn á sínum stað á Stalín-
allee og ekki hefur svo vitað
sé verið gert neitt til að
breyta nafninu á námuborg-
inni Stalinstadt.
Blöðin í Austur Berlín, sem
eru undir strangri ritskoðun,
höfðu heldur ekki í dag
minnst einu orði á bað að líki
einræðisherrans hafi verið út
hýst í Moskvu.
88 manns voru í vélinni, en
37 var bjargað.
Flugvélin átti að hafa viðkomu
í Recife og var í aðflugi er hún
rakst á hæð í úthverfi borgarinn
ar. Kveiknaði í vélinni við á-
reksturinn.
Meðal farþega voru portúgalsk
ir sjóliðar. sem áttu að sækja
skólaskip, sem portúgalski flot-
inn hefur keypt í Brasilíu.
Einn þeirra, sem komust af,
var Silva Horta skipherra úr
portúgalska flotanum. Hann seg
ir svo frá að vegna þess hve
skyndilega slysið varð. hafi eng
inn haft tíma til að verða hrædd
ur. Við áreksturinn brotnaði vél
in í tvennt og eldur brauzt út.
Þeir, sem komust út úr brenn-
andi flakinu, sluppu út um opið
þar sem flugvélin brotnaði. Af
þeim eru átta alvarlega brennd-
ir og meiddir og 22 með minni-
háttar sár. Horta meiddist tals-
vert á hálsi, en engu að síður
vann hann að því að bjarga með
farþegum sínum út úr flakinu
og hætti ekki fyrr en sprenging
varð í vélinni.
I
, 'f •
~
J, ... •*« W$f
Finnska sfjórnin rœðir
orðsendingu Rússa
Helsingfors, 1. nðv. — (NTB)
AHTI Karjalainen kom í dag
til Helsingfors úr opinberri
*4-
Hver var afstaða full-
trúanna frá íslandi
á kommúnistaþinginu i Moskvu?
£Í$3§3r
Guðmundur
Eggert
MENN velta því að vonum
fyrir sér hver hafi verið af-
staða fulltrúa kommúnista-
deildarinnar á Islandi á
flokksþinginu x Moskvu. —
Fögnuðu þeir ákvörðun
Krúsjeffs um helsprengjurn-
ar? Glöddust þeir yfir upp-
lýsingunum um það, að
heimskommúnismanum hefði
frá fyrstu tíð verið stjórnað
af hreinræktuðum glæpa-
mönnum? Voru þeir í einu
og öllu sammála ógnvöldun-
um? Spurningar þessar eru
að vonum áleitnar, því að ís-
lenzkur almenningur vill
vita, hvort meðal okkar
dvelja menn, sem jafnvel
vilja stofna í hættu lífi og
Framh. á bls. 23.
heimsókn til Bandaríkjanna.
Sagði hann við heimkomuna
að hann hefði ekkert að
segja varðandi orðsendingu
þá, er Rússar sendu Finnum
sl. mánudag. En í þeirri orð-
sendingu fara Rússar fram á
viðræður vegna styrjaldar-
hættu af völdum „vestur-
þýzkra hernaðarsinna.“
Karjalainen var í heimsókn í
Bandaríkjunum ásamt Kekkon-
en Finnlandsforseta er orðsend-
ingin barst finnsku stjóminni.
Hélt hann þegar í stað heimleið-
is, en Kekkonen kemur til Hels-
ingfors á föstudag. Sagði Karja-
lainen að forsetinn mundi á-
varpa finnsku þjóðina strax við
heimkomuna.
Boðaður hefur verið fundur
finnsku stjórnarinnar í kvöld
um orðsendingu Rússa, en
Karjalainen mun ekki sitja fund
Góðar sölur
DALVÍK, 1. nóv. — Nýlega hafa
togskipin Björgvin og Björgúlfur
selt afla sinn í Bremerhaven í
Þýzkalandi fyrir mjög gott verð.
Björgvin seldi 18. okt. 62 lestir
fyrir 57,500 mörk og Björgúlfur
31. okt. 65 lestir fyrir 51.700
mörk. — SPJ.
inn. Sagðist hann vera þreyttur
eftir 30 stunda flugferð.
Vél Karjalainens kom við í
Kaupmannahöfn og ræddi ráð-
herrann þar við Jens Otto Krag
utanríkisráðherra Danmerkur.
Til vinstri sést hvernig risa-
sprengja Rússa s.l. mánudag
kom fram á jarðskjálftamæl
um í Uppsala í Svíþjóð.
Hægra megin er mynd af
mælingum sprengjunnar
mánudaginn 23. október,
sem þá var ialið að væri
stórsprengjan fyrirhugaða.
Sú sprengja reyndist vera
um 30 megalestir (á við 30
milljón lestir af TNT
sprengiefni). Ekki er vitað
nákvæmlega um stærð risa-
sprengjunnar s.l. mánudag,
en mælingarnar á meðfylgj
andi myndum gefa nokkra
hugmynd um hve gífurleg
hún hefur verið.
Óeirðir í Alsír
Algeirsborg og París, 1. nóv.
— (NTB—AP) —
í DAG voru liðin sjö ár frá
því styrjöldin brauzt út í
Alsír. Útlagastjórnin í Alsír
hafði hvatt Serki til að fara
mótmælagöngur í tilefni dags
ins og strax í dögun hófust
alvarleg átök milli Serkja og
franskra her- og lögreglu-
sveita. Að minnsta kosti 76
Serkir og þrír franskir her-
menn voru drepnir. Ekki er
vitað hve margir særðust í
átökunum í dag, en talið að
tala þeirra sé mun hærri en
hinna föllnu.
í opinberri tilkynningu frá
París er bent á að yfirvöldin hafi
Vilhjálmur setti heimsmet
i hástokki án atrennu — Sjá iþróttir bls. 22
algjörlega bannað allar mótmæla
göngur í sambandi við sjö ára
afmæli uppreisnarinnar. Þrátt fyr
ir áskorun útlagastjórnarinnar
Framh. á bls. 23.
Felli-
bylur
GUATEMALA, 1. nóv. — (AF') —
Fellibylur hefur gengið yfir ýms
svæði í Mið-Ameríku. — Harðast
úti varð Belize, höfuðborg
Brezka-Honduras, þar sem að
minnsta kosti 40% allra húsa hef-
ur hrunið. Ekki er vitað um nema
fimm manns, sem farizt hafa í
fellibyljum og meðfylgjandi flóð-
um. —
íbúar Belize voru flestir flutt-
ir úr borginni þegar vitað var að
fellibylurinn, sem nefndur er
Hattie, kæmi yfir borgina. í dag
kom fyrsta flugvélin frá Belize
til Guatemala og sagði flugmað-
urinn að flóðin sem fylgdu Hattie
væru í rénun, en flest timiburhús
borgarinnar fallin. Sagði hann að
mikil þörf væri fyrir vistir til
Belize fyrir þúsundir heimils-
lausa íbúa borgarnnar.