Morgunblaðið - 04.11.1961, Blaðsíða 1
Piiirgaísfelalfilí
.48. árgangur
250. tbl. — Laúgardagur 4. nóvember 1961
Prentsmiðja Morg'-nblaðsins
Thant tekur við embætti
framkvæmdastjúra SÞ
Skipan hans samþykkt einróma
hæði í ÖryggisráBinu og
á Allsherjarþinginu
Á LOKUÐUM fundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í
morgun var samþykkt einróma, að fela U Thant, aðal-
fulltrúa Burma hjá S. Þ. að gegna embætti framkvæmda-
stjóra samtakanna til ársins 1963, er fimm ára ráðningar-
tímabili Dags Hammarskjölds hefði verið lokið. Síðdegis
í dag kom Allsherjarþingið saman til fundar og var
ákvörðun Öryggisráðsins þar staðfest í einu hljóði.
mikill og einlægur aðdáandi
Hammarskjölds og hefur í ræðum
sínum lýst stuðningi sínum við
skoðánir hans á hlutverki Sam-
einuðu þjteðanna. U Thant er
Búddatrúar og þykir mörgum
vænlegt að maður þeirrar trúar
muni fá nokkru áorkað í hinu
vandasama embætti framkvæmda
stjóra Sameinuðu þjóðanna.
Svo sem frá hefur verið skýrt
í fréttum varð það að samkomu-
lagi milli stórveldanna að fram-
kvæmdastjóranum yrði í sjálfs-
vald sett hverja hann veldi í
e-nbætti aðstoðarframkvæmda-
stjóra og hversu margir þeir yrðu.
Verður það nú eitt fyrsta verk-
efni U Thants.
V Thant framkvæmdastjóri S.Þ.
Fundur öryggisráðsins í morg-
un stóð aðeins í fjörutíu mínútur
og stjórnaði honum Valerian Zor-
in, fulltrúi Rússa. Eftir ákvörðun
ráðsins lýsti Adlai Stevenson,
íastafulltrúi Bandaríkjanna mik-
illi ánægjii sinni með kjör U
Thant og kvaðst vona aS þessi
atburður leiddi til meiri og betri
isamvinnu aðildarríkjanna í ná-
inni framtíð. A fundi allsherjar-
iþingsins sem hófst kl. 17,30 í dag,
var kjör U Thants samþykkt í
einu hljóði með handaupprétt-
ingum og síðan tók Mongi Slim,
ofrseti þingsins við af hinum nýja
framkvæmdastjóra. A eftir
ílutti hann stutt ávarp og kvaðst
vona, að samvinna aðildarríkj-
anna eflist svo að samtök hinna
Sameinuðu þjóða gætu stöðugt
©rðið virkara afl í baráttunni fyr-
tr heimsfriði. Kvaðst hann mundu
reyna að vinna í anda fyrirrenn
ara síns, Hammarskjölds, en til
þess þyrfti hann aðstóð Og skiln-
ing allra aðildarríkjanna.
# Mikill aðdáandi
Hammarskjölds
U Thant er 52 ára að aldri,
maður kvæntur ög á tvö börn,
dóttur 22 ára og son 19 ára. Hann
hefur verið aðalfulltrúi Burma
hjá Sameinuðu þjóðunum síðan
1957 og er mikill vinur og náinn
samstarfsmaður U Nu forsætisráð
herra lands síns. Fyrr á árum
starfaði hann lengi sem kennari
og blaðamaður.
Almennt er álitið, að U Thant
sé mjög vel til þessa ábyrgðar-
mikla starfa fallinn, en embætti
framkvæmdastjóra krefst mikill-
ar háttvísi, stjórnkænsku og lip-
urðar. Hann er kunnur að því
að halda fast við sínar skoðanir,
en virða jafnframt skoðanir ann-
arra manna og gera sér mikið far
um að dæma öll mál af sanngirni
og hlutleysi. U Thant var einnig
nnrásin út um þúfur?
Dr. Sture Linner, fulltrúi SÞ i
Kongó, segir stjórn Kafanga hafa
margbrotib vopnahléssamninginn
-a
Polaris-
tilraun
KANAVERALHÖFÐA, 3. nóv. —
AP. — I dag var skotið á loft
þrem Polaris flugskeytum, frá
kjarnorkukafbátnum Ethan All-
en. Var báturinn á siglingu neðan
sjávar er tilraunin var gerð. —
Flugakeytin hittu nákvæmlega til
ekilig mark, sem var um ?500
mílur frá kaíbátnum.
D-
SÞ vilja
bann
New York, 2. nóv. (AP).
ALLSHEJARÞING SÞ samþykkti
í dag með 72 atkvæðum gegn 21
tillögu Indlands og fimm annarra
ríkja þar sem skorað er á stór-
þjóðirnar að hætta tilraunum
mrieð kjarnorkusprengjur meðan
verið er að semja um algert bann
við slíkum tilraunum. Ellefu ríki
en bæði Sovétríkin og Bandaríkin
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna,
greiddu atkvæði gegn tillögunni.
Norðurlöndin öll greiddu tillög-
unni atkvæði.
Elisabethville, 3. nóv.
— (NTB-AP-Reuter) —
ÚTVARPIÐ í Katanga til-
kynnti í dag að allir her-
menn miðstjórnarinnar í Leo
poldville hefðu verið hraktir
frá Katanga. Virðist innrás
herliðsins undir stjórn Mob
utus hafa farið gersamlega
út um þúfur.
Katanga-útvarpið segir, að
hermenn Katangastjórnar, undir
forystu Oberts Moke, hershöfð-
ingja, hafi hrakið Kongóher-
mennina á brott yfir Lubalishi
ána, sem rennur um 110 km á
mörkum Katanga og annarra
hluta Kongóríkis. Segir útvarp-
ið ennfremur, að þorpið Kis-
amba og járnbrautarstöðin þar
hafi verið hrifin úr höndum mið
stjórnarnarmanna. Hafi her-
menn Katangastjórnar tekið
nokkra fanga og lagt hald á
birgðir skotfæra.
Síðari fregnir frá Elisabeth-
ville, sem byggðar voru á op-
inberum heimildum, hermdu að
enn héldu hermenn miðstjórnar-
innar nokkrum stöðum um 30
km innan landamæra Katanga,
einkum fyrir sunnan Kivu-hér-
að. —
Fulltrúi Sameinuðu þjóð-
anna í Kongó, dr. Sture Linn
er, hefur í skýrslu sinni til
Öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna, sakað Katangastjórn
um að hafa margbrotið vopna
hléssamningrana, sem gerðir
voru í milli hennar og her-
stjórnar SÞ í sept. sl.
Framh. á bls. 23.
90^b allra
bygginga
eyðilagðar
Gu&tamala, 3. nóv. —
(AP —NTB).
FRÉTTAMENN sem komu í
dag frá Belize í Brezku
Honduras þar sem fellibylur
gekk yfir fyrri hluta vikunn
ar, segja að tala látinna sé
a. m. k. um 340 manns, og
eflaust eigi eftir að finnast
fleiri lík, er hreinsað hefur
verið til í rústum. Sambands
laust er enn við borgina en
samkvæmt fregnum, sem
borizt hafa til Kingston á
Jamaica hafa um 90% allra
bygginga borgarinnar eyði-
lagzt í fellibylnum.
Brezkir hermenn hafa ver
ið sendir á vettvang, búnir
allskyns hjálpargögnum og
lyfjum, því mjög er óttazt
að farsótt gjósi upp í bæn-
um.
Meðfylgjandi mynd var tek-
in sl. þriðjudag á fundi í
finnska þinginu, þar sem
rædd var orðsending Rússa
til Finna. sem frá hefur ver-
ið skýrt. A myndinni má sjá
Kauno Kleemola, sem
gegndi embætti utanríkisráð
herra í fjarveru Karjalain-
ens — í þungum þönkum
yfir hinni alvarlegu orðsend
inigu sovctstjórnarinnar.
Ekki er talið líklegt, að
nokkuð verði látið uppi um
afstöðu finnsku stjórnarinn-
ar í þessu máli fyrr en á
sunnuda.í, en þá mun Kekk-
onen fordseti flytja þjóð
sinni útvarpsávarp.
Kekkon.cn kom heim úr
Bandaríkjaferð sinni í dag,
ef tir skamma viðdvöl í Kaup
mannahöfn, þar sem hann
ræddi stundarlangt við Jens
Otto Kragh. Fjöldi blaða-
manna var á flugvellinum
i Helsinki við komu forset-
aiiis en hann neitaði með öllu
að ræða við þá um afst.ðuna
til rússnesku orðsendingar-
innar.
Sammála um vanda-
mál Afríkuþjóða
Washington, 3. nóv. (AP).
Forseti Senegals, Leopold Sedar
Senghor, sem auk þess að vera
mikilhæfur stjórnmálaleiðtogi, cr
kunnur sem skáld og rithöfundur,
kom í opinbera heimsókn til
Washington í dag. Kennedy
Bandaríkjaforseti tók á móti hon
um á flugvellinum.
I ávarpi sem Kennedy flutti
Senghor á flugvellinum sagði
hann m.a. að þar færi ekki að-
eins lagasmiður sá, er hefði lagt
grundvöllinn að sjálfstæði Sene-
gals, heldur einnig ljóðasmiður
og hugsuður.
Síðdegis í dag ræddust for-
setarnir við um vandamál Afriku
og sagði Senghor, að þeim við-
ræðum loknum að sér væri á-
nægja að því að finna að skoðan
ir þeirra væru í mörgum atrið
um samhljóða.
Senghor er áttundi Afríkuleið-
toginn, sem sækir Kennedy
Bandaríkjaforseta heim.