Morgunblaðið - 05.11.1961, Page 6

Morgunblaðið - 05.11.1961, Page 6
6 MORGVNBLAÐIO Sunnudagur 5. nóv. 1961 MOLOTOV er fangi í rússneska sendiráðinu í Vínar- borg. Það er almennt álit manna ar syðra og vitað er, að fjórir rússneskir öryggislögreglumenn standa vörð um herbergi hans dag og nótt. Austurríska lögreglan hefur sett verði við sendiráðsbygginguna, en fáir búast samt við því, að Molotov reyni að notfæra sér það og biðja þá ásjár, þegar hann verður leiddur út og fluttur heim. Almennt er búizt við, að þar bíði hans réttar- höld og e. t. v. þungir dómar. Leyniþjónusta Breta og Bandaríkjamanna . hefur að undanförnu verið á höttum eftir afriti af bréfi, sem Molotov ritaði miðstjórninni í Möskvu eftir að ljóst var, að Krúsjeff ætlaði að láta kné fylgja kviði — og útskúfa „flokksféndunum" á flotkks- þinginu. Sennilega væri ekk ert vitað um þetta bréf hérna megin járntjalds, ef Molotov hefði ekki sent afrit af því til eins af leiðtogum stalinista í kommúnistaflokki Austurrík- is. Þar hefur efni bréfsins ver ið rætt í þröngum hópi og helztu atriðin hafa „síazt út“. Bréf Molötovs er 25 síður, heiftarleg árás á Krúsjeff — þar sem Molotöv sakar for- sætisráðherrann um að hafa brotið hinar eilífu og heilögu grundvallarreglur kömmún- ismans. — Og þetta þréf er í rauninni vísbending þess, að Molotov hafi ekki gefið upp alla von. 1 sambandi við átökin inn- an Kremlmúranna hefur það vakið óskipta athygli, að Furtseva var ekki endurkjör- in í forsætisnefnd flokksins á ný afstöðnu flokksþingi. Góðar heimildir eru fyrir því, að það hafi einmitt verið þessi fyrr- verandi flugvélavirki, sem átti mestan þátt í að bjarga Krú- sjeff, þegar Malenkov, Molo- tov og þer félagar ætluðu að gera út af við Krúsjeff í eitt skipti fyrir öll. Það var sumarið 1957, er þeir Krúsjeff og Buganin voru í heimsókn í Finnlandi. Krú- sjeff var í finnskri gufubað- stofu, þreyttur eftir erfitt kvöld Og mikið af vodika. En Bulganin svaf og hvíldi sig í rússneska sendiráðinu í Hels inki. Þá komu boð frá Moskvu, Skeyti, sem tiikynnti, að for- sætisnefnd hefði verið kvödd til aukafundar. Qg það er þessi nefnd, sem í rauninni stjórnar Rússlandi. Krúsjeff hafði fram til þess tíma haft undirtökin í nefnd- inni og hann virtist í essinu sínu, þegar hann kvaddi hina finnsku gestgjafa sína og þakk aði fyrir sig. En brosíð hvarf, þegar til Moskvu kom. Molo- töv hafði krafizt þess í forsæt- isnefndinni, að Krúsjeff yrði varpað fyrir borð. Og ætlun „flokksfjendanna“ var, að íoka öllum dyrum fyrir Krú sjeff áður en hann kæmi heim — m.a. átti ekki að veita hon um inngöngu í Kreml. En Krúsjeff fór inn um bak dyrnar, ef svo mætti segja og „Félagi Mikoyan! Bara að hann Mao væri kominn út á Formósu og elskan hann Sjang Kai-Sjek í Peking............“ þegar hann birtist í forsætis- baki sér. Krúsjeff var sak- nefndinni hófst lokaorrustan. aður um landráð. Hann hafði Molotov hafði meirihluta að svipt flokkinn einingartákn- „Við viljum ekki blanda blóði“ MOLOTOV „Við eruim ein þjóð og við viíjum halda áfram að vera ein þjóð. Við þurfum enga blóðblöndjun, unglingamir verða að vera varkárir", sagði Willy Repetto, hinn 59 ára gamli foringi flóttafóliksins frá Suður-Atlantshafseyj unni Tristan da Cunha, er öll þjóðin hans, 263 manns, kom heilu og höldnu til Bretlands í viku lökin. Fólkið, sem verið hefur í fremur litlu sambandi við urn heiminn og menninguna, neyddust til að flýja eyjuna sína ekki alls fyrir löngu vegna eldsumbrota, eins og kunnugt er. Enn hefur ekki verið ákveðið hvar því verður valinn samastaður, en fast- lega er búizt við, að það verði flutt til Hjaltlandseyja, því þar eru landshættir svipaðir og á gömlu eyjunni — og virð ast flóttamennirnir ekki kjósa að setjast að í fjölmenninu. En hinir eldri og reyndari, fyrst og fremst Repetto, hafa áhyggjur af ungviðinu. A haf skipinu — á leiðinni frá Höfðaborg — höfðu þeir mjög vakandi auga á stúlkum sín um og piltum, „því við vilj- um hindra alla ást mil'li okikar fólks og annarra. Við vitum ekkert hverjir eru góðir og hverjir eklki. Við þekkjum svo lítið til heimsins. Heima á Tristan da Cunha var hægt að treysta öllum, en við höfum heyrt, að það sé ekki hægt úti í þessum stóra heimi“. „En við höfum síður en svO ástæðu til þess að vera á móti öðrum þjóðum. Samt viljum við halda þjóðareinkennum okkar áfram og vildurn helzt fá samastað þar sem við gæt um verið út af fyrir okkur, haldið áfram að blanda blóði Og varðveita minninguna um gamla heimalandið. Þess vegna væri það mjög óheppi legt, ef unga fólkið feildi hug til ungmenna annarra þjóða. Við viljum engar giftingar út á við“, sagði Repetto. En það er ekki víst, að þess ari litlu þjóð takist jafnvel að verjast nýjum áhrifum og Repetto vonar. Aðstæðurnar eru nú allt aðrar — og 263 manneskjur týnast fljótlega í milljónahafi stjórþjóðanna. At lantshafið skilur ekki lengur Tristan-þjóðina frá umheimin um. inu, sem var í hinum látna Stalín. Þetta hafði m.a. leitt til uppreisnanna í Ungverja- land'i Og Poznan og fleiri ó- heillavænlegra atburða, sagði Molotöv. Og Krúsjeff fékk að heyra það. ★ En Krúsjeff átti Ifka góða vini, meðal þeirra var eini kvenmaðurinn 1 forsætisnefnd inni, Jekaterina Furtseva. — Hún lagði á borðið eina tromp ið, sem Krúsjeff hafði á hend inni. Málið er nefnilega þann ig, að sérhver breyting á skip an forsætisnefndarinnar verð ur að híjóta samþykki mið- stjórnarinnar — og þar sitja 125 atkvæðisbærir menn. En Molotöv neitaði í hita uimræðnanna að skjóta málinu til miðstjórnarinnar. Þá var það, að Furtseva fór í sím- ann og hringdi í alla þá mið- stjórnarmenn, sem hún gat náð sambandi við í Moskvu. Þeir tóku þegar að safnast saman við hliðið í Kreml. Furtseva tókst að fá öryggis þjónustuna til þess að hleypa miðstjórnarmönnunum inn og þeir óku gegn um hliðið I svörtum Zim-bíilum með nið urdregin gluggatjöld. Nú kröfðust miðstjórnar- mennirnir þess, að þeir fengju að gera út um örlög Krú- sjeffs. Þeir voru samt of fáir til þess að koma málinu í gegn, því mikill hluti miðstjórnar- manna er búsettur í öðrum borgum víðsvegar í landinu. .— Þá var hægt að nötast við Zhukov, sem lét í snatri sækja miðstjórnarmenn í þotum hers ins — og Molotov hafði beð ið ósigur. ★ 1 sjö daga háðu Krúsjeff og Molotov einvígi í ræðustóli miðstjórnarinnar og Molotov og hans menn færðust æ meira í varnarstöðu. Loks voru helztu „flokksfj endurnir1* reknir bæði úr forsætisnefnd inni og miðstjórninni. Þar með hafði hinn slingi Molotov kall að yfir sjálfan sig samsekt f syndum Stalíns og sök fyrir allt, sem aflaga hefur farið síðan stríðinu lauk. Þetta er þráður sögunnar, sem gengur meðal hinnar, „nýju stéttar“ í Moskvu að flokksþinginu loknu. Færeyíngar deila Mikið hefur verið deilt um það í Færeyjum undanfarna mánuði hver heiðurinn eigi að samningunum við Islendinga um undanþágu fyrir færeysku handfæraskipin innan 12 mílna markanna. Færeyingar lofa íslendinga mjög fyrir drengilega framkomu í þessu máli, en bæði Samibandsmenn og Jafnaðarmenn, sem sitja saman í landsstjórninni, eigna sér heiðurinn. Þetta rifrildi hefur verið forsíðuefni fær- eysku blaðanna í allt sumar því talið er, að samningurinn við íslendinga sé eitt vinsæl- asta afrek stjórnarinnar, a. m. k. á þessu ári. AUir lögðu sig fram um að skemmta flóttafólkinu á skipsfjöl .i-Txrmr<- -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.