Morgunblaðið - 09.11.1961, Blaðsíða 2
2
MORCVWBLAÐIÐ
Fimmtudagur 9. nóv. 1961
i
— Ég hélt
Frh. af bls. 1
línuna á Visi aðfaranótt 7. nóv.
15 sjóm. NNV af Skagaströnd.
Gunnar sagir frá á þessa leið:
— Haligrímur var við rennuna
Og hnýtti saman en ég gerði klár
færi, tók frá honum tómu stamp-
ana og kastaði út baujum. Við
vorum með um 20 bjóð og köst-
uðum bauju við fjórða hvert bjóð
(í bjóði eru 5 stokkar, 100 öngl-
ar á stokk). Við vorum búnir að
leggja fyrstu fjögur bjóðin og
ég var búinn að kasta öðru fær-
inu. Hallgrímur var að hnýta
saman línuna á milli stampa og
stóð aftuia. Eg ætlaði að fara að
fera klára bauju og færi og var
ganginum bakborðsmegin við
stýrishusið.
J\ Logn en dimmt
** Logn var og nærri sjólaust,
en dimmt af nóttu, því klukkan
mun hafa verið um 5. A þess-
lun tíma fer ekki að birta fyrr
en kl. 7 og albjart er ekki fyrr
en kl. 8 að morgni. Þegar ég gekk
fram bákborðsganginn til þess að j
ná í baujuna, sem lá á vélarhúss- 1
kappa íraman við stýrishúsið, |
skrikaði mér fótur og skipti það t
engum togum að ég steyptist á
höfuðið beint í sjóinn. Eg var
klæddur í klofhá stígvél og hafði i
loðúlpu sem yfirhöfn. Eg mun
hafa vexið nokkuð lengi í kafi,
því þegar mér skaut upp, var bát-
urmn kominn alllangt frá mér.
Og þótt ég öskraði af öllum lífs
og sálarkröilum heyrðu þeir ekki j
til mín um borð. Eg sá bátinn
sigia burt frá mér út í myrkrið.
Fyrst hugsaði ég heim
Við spyrjum nú Gunnar
hverjar hugsanir hefðu brotizt
um í höfði hans er hann velktist
þarna og sá félaga sína sigla á
brott.
— Fyrst var mér hugsað til
þess, að lítil björgunarvon væri
og segi þá svona við sjálfan mig.
— Þetta atti þá fyrir mér að
liggja. Mér varð hugsað heim til
foreldra og systkina og hvernig
þeim myndi nú líða ef þau vissu
hvernig ástatt væri fyrir mér. En
þessar hugr-anir stóðu ekki nema
örstutt. Ailan timann, sem ég
svamlaði í sjónum, tókst mér að
halda bjargfast í þá trú að mér
yrði bjargað Eg sá bátinn allan
tímann neroa nokkrar mínútur
er hann var lengst í burtu.
— Ertu ve! syndur Gunnar?
— Ja, ég tel mig sæmilega
syndan. Eg iærði á einu nám-
skeiði, en að vísu hefi ég ekki
komið í vatn i eitt og hálft ár.
J\ Reyiwli ekki að synda
' — Fækkaðirðu fötum, þar sem
þú lást í sjónum?
— Já, ég byrjaði á því að
klæða mig xir stígvélunum og
úlpunm. Síðan tróð ég marvað-
ann, en reyndi ekki að synda til
lands, því ég taldi einustu vonina
tii björgunar að þeir fyndu mig,
ef ég værj kyrr á þeim stað þar
sem ég íéll í sjóinn. Eg reyndi
aðeins að synda ofurlítið í áttina
þegar éff sá pá nálgast. Annars
fannst mér báturinn alltaf vera
langt frá mér, þar til hann var
eiginlega alveg kominn til mín.
Og ég sá í.ðeins ljósið í mastrinu
allan tLmann. Raunar bjóst ég
við að ég mjndi þurfa að vera
mikiu lensur í sjónum heldur
en ég var.
— Hv?ð með kuldann?
— Mér varð aldrei kalt eða a.
m. k. fanr. ég aldrei til kulda á
ineðan ég vyr í sjónum. Hins veg-
ar gat ég ekki gengið óstuddur,
og ég byrjaði strax að skjálfa
þegar þeir voru búnir að ná mér
um borð.
— Ertu hár Gunnar?
— Já, ég er nokkuð hár.
— En sver og feitur?
— Já. ég mun vera talinn
nokkuð sver og dálítið feitur.
— Og hvað skeði svo þegar
féiagar þinir höfðu fundið þig?
VALÞINGIS
FUNDUR í sameinuðu þingi kl. 1:30
e.h.: Fyrirspurn: Rafvæðing Norðaust
urlands. — Hvort leyfð skuli.
Fundur í efri deild að loknum fundi
í sameinuðu þingi: — Réttur verka-
fólks til uppsagnarfrests og launa
vegna sjúkdóms- og slysaforfalla, frv.
— 1. umr.
Fundur í neðri deild að loknum
fundi í sameinuðu þingi: — 1. Seðla-
banki íslands, frv. — Frh. 1. umr. —
2. Ráðstafanir vegna ákvörðunar um
nýtt gengi, frv. — 1. umr. — 3. Efna-
hagsmál, frv. — 1. umr. — 4. Ferða-
skrifstofa ríkisins, frv. — 1. umr. —
5. Landsútsvör, frv. — 1. umr.
Revían „Sunnan sex“ eftir Jón Blámann verður frumsýnd í
Sjálfstæðishúsinu í kvöld klukkan 8:30, en Flosi Ólafsson
hefur sett revíuna á svið. Er hér um að ræða ósvikið gaman.
— Myndin sýnir eitt atriðanna: Skreiðarforstjórarnir eru að
mæla eina þokkadísina hátt og lágt. Frá vinstri: Baldur Hólm-
geirsson, Kristjana Magnúsdóttir og Karl Sigurðsson.
(Ljósm.: Oddur Ólafsson).
^ Lánaðu mér fötin sín
~ ' — Það voru snör handtök Og
ekkert fálm. Þegar ég kom upp
á dekkið driíu þeir mig fram í
lúkar og klæddu mig úr, fóru
sjá.’fir úr fötunum og klæddu
m?g í þiu Þegar mér var orðið
heitt soinaði ég og svaf í þrjá
tíma. Þeir fóru á meðan að
draga iinuna, sem búið var að
ieggja. En þegar ég vaknaði fann
ég að ekkert var að mér og lögð-
um við þá það, sem eftir var af
línunm og iukum róðurinn.
Að síðustu spurðum við Gunn-
ar hvort þett3 volk hans hefði
ekki hrætt hann frá því að
halda áfram sjómennsku.
Hann sagði nei þegar í stað
og hló við Henn sagðist mundu
halda áfrain að stunda sjóinn, ætl
að' sér að fara í Stýrimannaskól-
ann og að iíkindum stunda róðra
á bátum.
£\ Frásögn formannsins
Eftir að hafa rabbað við
Gunnar náðum við sambandi við
Sigurð Arnason formann, en hann
er 34 ára gemall og hefir stýrt
bátum frá Skagaströnd í fjögur
ár. Hann sagði að ástæðan til
þess að Gunnar hefði farið með
sér í þennan róður væri sú, að
bróðir sinn hefði meitt sig á
fingri. Sigurður segir svo frá:
— V’ð vorum að leggja linuna
og ég var í stýrishúsinu þegar ég
saknaði Gunnars frá verki sínu.
Eg kaiiaði til Hallgríms þegar
komið var að því að kasta færinu
og sp-irði hann hvar Gunnar
væri, en hann kveðst halda að
hann hefði brugðið sér frammí.
Þegar hann kom ekki og ég sá
hann ekki neldur úr stýrishúsinu,
en opið var fram í lúkarinn,
hægði ég á vélinni og brá mér
fram til þess að gá að honum.
Sá ég þá hvernig komið var og
Gunnar var með öllu horfinn. Eg
skar þegar á línuna og sneri til
baka, stóðvaði vélina, og kölluð-
um við nú á Gunnar eins og við
máttum.
Töldu líkur litlar
' En við íengum ekkert svar.
Varð ég þá fremur vonlítill um
að við myndum geta fundið hann
í náttmyrkrinu, ekki slzt þar sem
ég vissi ekki bvenær hann hafði
fal.ið fvrir borð. Eg sagði þó við
sjálfan mig: „Það vildi ég að
Guð gæfi að roér tækist að finna
Gunnar". Við höfðum lagt fyrstu
fimm bjóðin til norðurs, síðan
beygðum við til SA og vorum
búnir að leggja um 7 bjóð þegar
við urðum varir við hvarf Gunn-
ais. Linuna leggjum við eftir
dýptarmæli, en þar sém við vor-
um er botnliallandi til norðurs og
því noíkuð hægt að átta sig á
dýpi. Líkurnar til þess að finna
Gunnar voru mestar með því að
halda til baka nákvæmlega eins
og við höfðum lagt línuna. Hins
vegar óttaðist ég að það myndi
taka of iangan tíma og sigldi
þvi eftir dýptarmælinum, þar
sem fyrr segir ekki löngu eftir
að fjögur bjóð voru komin í sjó-
inn. Línuna höfðum við lagt 1
nærfellt hálfhring á þessum tíma.
^ Vissu ekki hvort hann
" var syndur
Eg setti nú vélina í gang á
ný og sióaði til baka. Eg sá aldrei
neitt, en eflir nokkra stund hróp-
aði Hallgrímur að sigla á stjórn-
borða. Hafði hann þá orðið Gunn-
ars var, og örskömmu síðar sá
ég hann aftux með borðstokkn-
um, setti vélir.a fullt aftur á bak,
en Hallgrímur náði í bjarghring,
og eftir örskamma stund var
Gunnar kom:nn um borð. Það
vakti o ikur Hallgrím ugg, að við
vissum ekki hvort Gunnar var
syndur. Hann hefir um allangt
skeið verið búsettur fyrir sunn-
an og þótt ég þekki fjölskyldu
hans allvel, vorum við ekki mik-
ið kunnugir.
Við þökkum Sigurði og Gunn-
ari fyrir groðan og góða frásögn
af þessum sérstæða atburði og
óskum þr.im fe.rsælda í framtíð-
inni.
— Ehvador
Framh. af bls. I.
úr flugher Ekvadors hafi gert
árás á skriðdreka og hermenn
við þinghúsið, þar sem haldinn
hafi verið vörður um Arose-
mena. Hafi þetta verið gert til
þess að leggja áherzlu á, að
flugherinn styddi hann, en ekki
Gallegos, sem herforingjarnir
höfðu áður lýst stuðningi við.
SÍÐUSTU FRÉTTIR
útvarpsins í Quite herma,
að Galleg i hafi tjáð herfor-
ingjum beim. sem hugðust
gera hann að forseta, að hann
sjái sér ekki fært að taka við
embættinu við núverandi að-
stæður og jafnframt segir út-
varpið, að Arosemena taki nú
við forsetaembættinu, sam-
kvæmt útnefningu þingsins.
Engin opinber staðfesting fylg
ir fréttinni.
Gyðingahandtðk-
ur í Rússlandi
MosTcvu, 8. nóv. (AP)
Þ R IR af helztu leiðtogum
Gyðinga í Sovétríkjunum
hafa verið dæmdir í fangelsi
fyrir „samstaíf við erlenda
útsendara“. — Engin skýring
hefur verið gefin á því, við
hvaða „útsendara“ sé átt. —
Gyðingar hér segjast sann-
færðir um, að handtökurnar
og dómarnir yfir leiðtogum
þessum, sem allir áttu heima
í Leningrad og höfðu starfað
þar lengi, séu aðgerðir, sem
miði að því að sundra sam-
tökum Gyðinga í Leningrad,
en þau eru hin síðustu vel
skipulögðu Gyðingasamtök í
Sovétrík j unum.
Einn þessara þriggja manna
er Gedalia R. Pehersky, sem er
sennilega kunnasti Gyðingaleið-
togi í Sovétríkjunum, nú sex-
Sjálfstæðisfélag
GarSahrepps
MUNH) hin vinsælu spilakvöld
okkar. Félagsvist verður spiluð
í samkomuhúsinu að Garðaholti
í k v ö 1 d . fimmtudagskvöld.
Fjölmennið. Stjórnin.
Spilakvöld
HAFNARFIRÐI — Stefnir
heldur kvöldvöku í Sjálf-
stæðishúsinu í kvöld kl. 8.30.
Spilað verður Bingó og nokk-
ur verðlaun veitt. Það skal
tekið fram, au bæði ungum og
gömlum er heimilt að taka
þátt í spilinu meðan húsrúm
Ieyfir.
Kellavík - bingo
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í
Keflavík hefja yetrarstarfsemi
sína í kvöld kl. 8.30 í Aðalveri.
Spilað verður bingó. Geta menn
fengið þar, ef heppnin er með
fl-gferð fyrir tvo til Kaupmanna
hafnar og heim aftur. Fjöl-
mennið.
tugur að aldri. Hann var dæmd
ur í 12 ára fangelsi. — Hinir
tveir, sem báðir eru yfir sjö-
tugt, hlutu 7 ára fangelsi — og
munu þeim verða gefin eftir
þrjú ár af refsidómnum, vegna
hins háa aldurs, að því er Gyð-
ingar hér herma eftir dómar-
anum í málinu.
Þremenningarnir munu hafa
verið handteknir í júní sl., en
réttarhöldin fóru fram með
leynd í Leningrad dagana 9.—
13. október.
Þriðju hljómleikar
SinfóníuÍiljóm-
sveitarinnar
ÞRIÐJU hljómleikar Sinfóníu
Jiljómsveitar íslands og Ríkis-
útvarpsins fara fram í kvöld kL
9 í Samkomu-
húsi háskólans.
Einleikari e r
Einar G. Svein-
björnsson. E r u
þessir hljómleik
ar helgaðir
frönskum tón-
skáldum, og eru
öll verk efnis-
skrárinnar n ú
flutt 1 fyrsta
Einar G. sinn á íslandi.
3veinbjörnsson stjórnandi e r
Jindrich Rohan.
Hljómleikarnir hefjast með
svítu eftir Maurice Ravel, ,-t\
leiði Couperins“. Einar G. Svein-
björnsson er einleikari í hnum
kunna fiðlukonsert eftir Ernest
Chausson. „Poéme“. Er sóló-
hlutverkið kærkomið keppikefli
allra góðra fiðluleikara.
César Franck er hér kunnastur
fyrir ýmis orgelverk sín og fiðlu-
sónötuna, sem flestir þekkja. Af
hljómsveitarverkum hans er að-
eins fátt eitt kunnugt. Veigamest
mun vera sinfónía hans, er nú
verður leikin.
Samkomuhús háskólans er hið
rétta umhverfi til að njóta góðr-
ar listar og þar nýtur Sinfóníu-
hljómsveitin sín betur en annars
staðar.
í NA /5 hnúfar 1 / SV 50 hnútar X Snjéhma > ÚSi \7 Shúrír K Þrumur W/t%, KuUatkH JgS* Hitaskit H HmS L f Laai
LÆGÐIN suður af Ingólfs-
höfða þokast austur eftir, svo
að í dag má búast við austan
og norðaustan átt hér á landi
Ekki mun þó verða kaldara í
veðri. því að loftið, sem sækir
að landinu er hlýtt. Er t. d.
7 stiga hiti á Jan Mayen, en
það er óvenju hlýtt á þessurr^
tíma árs. Þetta hlýja og raka
loft sækir að ströndum Norð-
austur-Grænlands, enda er
þar snjókoma dag eftir dag.
Varla minnka jöklar þar í ár.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi
SV-land til Breiðafjarðar
og miðin: Austan og síðan NA
gola^ léttskýjað.
Vestfirðir: Austan gola og
léttskýjað í nótt, NA kaldl og
norðan til á morgun.
Vestfjarðamið: NA kaldi og
skýjað í nótt, stinningskaldi
og rigning öðru hverju á
morgun.
Norðurland og miðin. Aust-
an gola og léttskýjað fyrst,
austan og NA kaldi og skúrir
einkum á miðunum á morgun.
NA-land og miðin: NA
kaldi og rigning fyrst, SA
kaldi og skýjað en súld á
miðunum á morgun.
Austfirðir og miðin: NA
kaldi í nótt en austan og SA
á morgun, rigning með köfl-
um.
SA-land og miðin: Austan
og NA kaldi, skúrir.